Morgunblaðið - 19.07.1988, Síða 2
2 B
MORGUNBLAÐHD IÞROTTIR ÞRHXJUDAGUR 19. JÚIÍ 1988
KNATTSPYRNA
Fram hefur fengið
kr. 243.750 frá
Samvinnuferð-,
um/Landsýn
FRAMARAR hafa unnið sér inn kr. 243.750 frá Samvinnuferð-
um/Landsýn það sem af er íslandsmóti. Samvinnuferðir/Landsýn
greiðir kr. 25.000 fyrir sigurleik í 1. deild og fyrir 4 mörk eða fleiri
í leik eru greiddar kr. 12.500. Ef ekki næst að skora 4 mörk eða fleiri
í umferð fellur sú greiðsla niður, eins ef fleiri en einn leikur vinnst
með fjórum mörkum skiptist upphæðin á milli liða. Samvinnuferð-
ir/Landsýn hafa þurft að greiða samtals kr. 975.350 það sem af
er íslandsmóti.
Hér á eftir fer listi yfír 1. deildarliðin og hvað þau hafa fengið í
sinn hiut eftir 10 umferðir:
Fram.................
Valur................
ÍA..................
KR..................
KA..................
Þór..................
ÍBK.................
Víkingur.............
Leiftur..............
Völsungur............
Samtals:............
.kr. 243.750
.kr. 144.000
.kr. 137.500
.kr. 125.000
.kr. 100.000
...kr. 75.000
...kr. 50.000
...kr. 50.000
...kr. 25.000
...kr. 25.000
.kr. 975.350
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Yfirburðir FH
ÁHORFENDUR á Valbjarnar-
velli fengu að sjá leik kattarins
að músinni í gærkveldi þegar
lið ÍR og FH mættust. Hafnar-
fjarðarliðið uppskar 6 mörk, og
var það síst of mikið, því liðið
óð í marktækifærum, en ÍR-
ingar urðu að láta sér lynda að
skora eitt, og var það mikið
heppnismark. FH er með mikið
yfirburðarlið i 2. deild og held
ég að tími sé kominn til að
bjóða það velkomið í 1. deild.
FH lék í varabúningi sínum, sem
er rauður og svartur, og virtist
það bara gefast vel því ekki voru
nema tvær mínútur liðnar þegar
þeir skoruðu sitt
KristinnJens fyrsta mark. Virtist
Sigurþórsson þeir þar með gefa
skrifar til kynna að nú væri
ekki annað eftir en
að raða þeim niður jafnt og þétt.
En sú von brást því þetta varð eina
mark hálfleiksins, þrátt fyrir að
FH-ingar fengju mýgrút af mark-
tækifærum.
Seinni hálfleikur byijaði svo mjög
slysalega því eftir hræðileg mark-
mannsmistök - Halldór missti bolt-
ann gegnum klofið : jafnaði Hörður
Theódórsson fyrir ÍR. Þá var eins
og FH-ingar áttuðu sig á því að
þeir yrðu að nýta færin, og það
gerðu þeir það sem eftir var og
skoruðu 5 sinnum.
FH-ingar voru án Pálma Jónssonar,
markaskorarans mikla, í þessum
leik, og hafa þeir líklega verið að
spara sér hann fyrir bikarleikinn
gegn Víkingum annað kvöld. Yuri
Sedov, þjálfari Víkinga fylgdist með
leiknum, og var þungur á brún þeg-
ar hann yfirgaf völlinn.
ÍR - FH
1 : 6 (0 : 1)
Mark ÍR: Hörður Theódórsson (47.
mín.).
Mörk FH: Bjöm Jónsson (2. mín.),
Þórhallur Víkingsson (53. mín.), Hörð-
ur Magnússon (59. og 75. mín.), Kristj-
án Gíslason (77. mín.) og Jón Erling
Ragnarsson (90. mín.).
Maður leiksins: Kristján Gíslason, FH.
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Knapp þjálfar á ný
Tók við Djerv 1919 um helgina
TONY Knapp, fýrrum lands-
liðsþjálfari Islands í knatt-
spyrnu, var um helgina ráöinn
þjálfari Djerv 1919 sem leikur
í 1. deild norsku knattspyrn-
unnar.
Botnlið 1. deildar hér í Nor-
egi, Djerv 1919 frá Hauga-
sundi, réð um helgina Tony Knapp
sem þjálfara liðsins. Tony fær það
erfiða verkefni að
Frá reyna að bjarga
Sigurjóni liðinu frá falli í 2.
Bnarssyni deild. Samnings-
i Noregi tími hans er aðeins
til haustsins til að byrja með.
Staða Djerv 1919 í 1. deild er
afar slæm og fékk liðið meðal
annars slæman skell gegn Rosen-
borg 0:8 rétt fyrir sumarfrí.
Tíu mánuðir eru nú frá því að
Knapp var rekinn frá Brann og
rúm tíu ár frá því að hann þjálf-
aði fyrst hér í Noregi. Hann var
þá hjá Viking frá Stavanger.
„Þetta verður erfitt, en langt frá
því að vera vonlaust. Ég hef hugs-
að mér að þjálfa Djerv 1919 í 1.
deild á næsta tímabili. Það hefði
verið slæmt að hætta öllum af-
skiptum af norsku knattspymunni
eftir það sem gerðist hjá Brann í
fyrra. Þetta verður spennandi
verkefni," sagði Tony Knapp sem
er nýorðinn fimmtugur.
GOLF / OPNA BRESKA MEISTARAMÓTIÐ
Ballesteros
lék alveg ótrú-
lega vel síðasta
daginn og fór
þá hringinn á 6
höggum undir
pari og komst
þar með fram
úr Nick Price,
sem leitt hafði
mótið nærri því
frá byijun.
____________________li________________
Úrslit
273.........Severiano Ballesteros, Spáni (67 71 70 65)
275...............Nick Price, Zimbabwe (70 67 69 69)
279...............Nick Faldo, Bretlandi (71 69 68 71)
281...............Fred Couples, Bandar. (73 69 71 68)
281 ................Gary Koch, Bandar. (71 72 70 68)
282 ..............Peter Senior, Ástralíu (70 73 70 69)
283 ............David Frost, S-Ameríku (71 75 69 68)
283...............Sandy Lyle, Bretlandi (73 69 67 74)
283....................Isao Aoki, Japan (72 71 73 67)
283 ............Payne Stewart, Bandar. (73 75 68 67)
284 ..........David J. Russell, Bretlandi (71 74 69 70)
284 ...............Brad Faxon, Bandar. (69 74 70 71)
285 ........Eduardo Romero, Argentínu (72 71 69 73)
285...............Larry Nelson, Bandar. (73 71 68 73)
285 ............Curtis Strange, Bandar. (79 69 69 68)
286 ..................Jose Rivero, Spáni (75 69 70 72)
286.............Ben Crenshaw, Bandar. (73 73 68 72)
286............•....Andy Bean, Bandar. (71 70 71 74)
286................Don Pooley, Bandar. (70 73 69 74)
Ballesteros lék loka-
hrínginn á 65 höggum
SEVE BALLESTEROS sigraði á
Opna breska meistaramótinu í
golfi um helgina með því að
leika síðasta hringinn alveg
listilega vel, eða á einungis 65
höggum; sex höggum undir
pari. Fyrir síðasta hringinn var
hann í öðru sæti ásamt Nick
Faldo, en tveimur höggum á
undan þeim var Nick Prise,
sem hafði leitt mótið svo til frá
byrjun. Það var því að duga éða
drepast fyrir Baliesteros, sem
ekki hafði sigrað á stórmóti
undanfarin fjögur ár, og það
tókst honum með því að sýna
ótrúlega leikni.
Ballesteros lék á 273 höggum
og var 11 höggum undir pari
þegar á heildina er litið. Síðasti
dagurinn skilaði honum þó lang-
besta árangrinum en þá fór hann
sex holur á fálka, sem á-golfmáli
þýðir að hann hafi komið kúlunni
ofan í holuna á einu höggi betur
en venjulegt getur talist.
Þegar verðlaunin voru afhent lauk
Ballesteros miklu lofsorði á Nick
Price fyrir að hafa leikið mjög vel
í mótinu, og sagði að það væri grát-
legt að einungis annar þeirra hefði
getað orðið meistari. Hann huggaði
þó Price með því að segja að þess
yrði skammt að bíða að hann yrði
líka meistari, ef hann léki eins vei
og hann gerði á þessu móti, en ein-
ungis tvö högg skildu kappana að
þegar uppi var staðið.
Price sagði að Ballesteros hefði
verið ósigrandi eins og hann lék
Síðasta hringinn, en kvaðst hins
vegar vita að sjálfur hefði hann
getu og hæfileika til að vinna þetta
opna mót í framtíðinni.
Nick Faldo, frá Bretlandi, varð í
þriðja sæti þegar yfir lauk, en hann
sigraði á mótinu í fyrra. Hann fylgdi
þeim Ballesteros og Price vel eftir
í síðasta hringnum þangað til koma
að 9. holunni en þá skildu þeir hann
eftir, ef svo má segja, og hann
varð 7 höggum á eftir Ballesteros
og tveimur á eftir Price.
HANDKNATTLEIKUR / FLUGLEIÐAMOT
Fjórar Ólympíuþjóðir
mæta til leiks
Sovétmenn, Spánverjar og Tékkar koma
Nú er ákveðið hvaða þjóðir leika
í Flugleiðamótinu í handkna.tt-
leik sem fram fer hér á landi 19.
til 27. ágúst. Sovétríkin, Spánn og
Tékkóslóvakía, sem allar taka þátt
í Ólympíuleikunum í Seoul, mæta
til leiks. Auk þess senda íslendingar
A og B-lið og svo verður Sviss sjött
þjóðin. Leikimir fara fram S
Reykjavík og á Akureyri.
Þetta er kærkomin heimsókn fyrir
íslenska liðið sem verður þá í loka-
undirbúningi sínum fyrir Ólympíu-
leikana sem hefjast í september.