Morgunblaðið - 19.07.1988, Side 4
4 B
MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1988
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD
KARL Þórðarson, minnsti leik-
maðurinn á vellinum, stökk
hærra helduren varnarmenn
Leifturs og skoraði með skalla
- sitt fyrsta mark með skaila í
ellefu ár. Það var því ástæða
fyrir Karl að fagna markinu, en
með því kom hann Skaga-
mönnum yfir, 2:1, gegn Leiftri
á Akranesi, þar sem Skaga-
menn unnu sigur, 3:1.
Nýliðar Leifturs mættu ákveðn-
ir til leiks og var greinilegt
að þeir ætluðu ekkert að gefa eftir
í fyrsta leik þeirra á Akranesi. Þeir
sóttu grimmt að
Sigþór marki Skagamanna,
Eiriksson sem voru slegnir út
skrifar af laginu. Leiftur-
menn náðu góðum
tökum á leiknum, en náðu ekki að
skapa sér góð marktækifæri. Þeir
reyndu mikið af langskotum, sem
hittu ekki mark Skagamanna. Eitt
sinn varði Ólafur Gottskálksson
meistaralega langskot frá Steinari
Ingimundarsyni - á 28. mín.
Eftir það tóku leikmenn Skagaliðs-
ins við sér og fengu góð tækifæri
til að skora. Sigursteinn Gíslason
átti skot sem hafnaði í hliðametinu,
Karl Þórðarson skaut yfír mark
Leifturs í dauðafæri, Heimir Gunn-
arsson skaut rétt fram hjá stöng
og síðan varði Þorvaldur Jónsson
aukaspymu Heimis af 25 m færi.
Sigursteinn Gíslason náði að koma
knettinum í netið hjá Leiftri á 42.
mín., eftir sendingu frá Ólafi Þórð-
arsyni. Sigursteinn skaut föstu
skoti. Þorvaldur Jónsson hafði
hendur á knettinum, en skot Sigur-
steins var svo fast, að Þorvaldur
náði ekki að halda knettinum, sem
hafnaði í netinu.
Skagamenn náðu góðum leikkafla
í upphafí seinni hálfleiksins, án
þess að skapa sér færi. Leifturs-
menn fengu aftur á móti tvo mjög
góð færi, sem nýttust ekki. Það
vom bræðumir Steinar og Óskar
Ingimundarsynir sem fengu færin.
A 65 mín. náðu leikmenn Leifturs
að jafna, eftir mikil vamarmistök
Skagamanna. Heimir Guðmunds-
son ætlaði að senda knöttinn aftur
til Ólafs Gottskálkssonar, en send-
ing hans var föst og ónákvæm.
Ólafur varð að kasta sér til að verja
sendingu Heimis. Hann hélt ekki
knettinum. Óskar þakkaði fyrir sig
og sendi knöttinn í mannlaust mark
Skagamanna, 1:1.
Karl Þórðarson kom Skagamönnum
afturyfír, 2:1, á 72. mín. Óm Gunn-
arsson átti þá langa sendingu inn
í vítateig Leifturs. Þar var Karl
Þórðarson á réttum stað - stökk
Jónína með fjögur mörk gegn Isafirði
Leikur ÍA gegn ÍBÍ á sunnudag
var leikur kattarins að mú-
sinni. Skagastúlkurnar skor-
uðu átta sinnum, fjórum sinn-
um í hvorum hálfleik, án þess
að ÍBÍ tækist að svara fyrir sig.
Leikur KA og Fram á laugar-
dag, var öllu jafnari en honum
lauk með 1:0 sigri KA.
Skagastúlkumar mættu grimm-
ar til leiks á móti ÍBÍ. Þegar
liðin léku í fyrri umferð á Isafírði
lauk leiknum með markalausu jafn-
tefli þrátt fyrir látlausa sókn IA.
Markaskorun var ekki vandamál
hjá ÍA í þetta sinn og þegar upp
var staðið höfðu þær skorað átta
sinnum hjá daufu liði IBI. Staðan
í leikhléi var 4:0.
Jónína Víglundsdóttir skoraði fjór-
um sinnum fyrir ÍA. Halldóra Gylfa-
dóttir setti tvö og Júlíana Sigur-
steinsdóttir og Sigurlín Jónsdóttir
skoruðu sitt markið hvor.
KA-Fram 1:0
KA var mun sterkari aðilinn í leikn-
um. Þær sóttu látlaust, en Framlið-
ið varðist vel. Hvomgt liðið skoraði
í fyrri hálfleik.
Sókn KA hélt áfram í síðari hálf-
leik og þegar korter var eftir af
leiknum, uppskám þær mark. Það
var Inga Bima Hákonardóttir sem
skoraði fyrir KA.
Morgunblaðiö/Júlíus
Karl ÞórAarson sést hér hlaupa fagnandi frá marki Leifturs, eftir að hann
hafði skallað knöttinn í netið hjá Leiftursmönnum.
ÍA-Leíftur
3 : 1
íslandsmótið í knattspymu, 1. deild.
Akranesvöllur, laugardagur 16. júlí.
Mörk ÍA: Sigursteinn Gíslason (42.
mín.), Karl Þórðarson (72.) og Harald-
ur Ingólfsson (87.).
Mark Leifturs: Óskar Ingimundarson
(65.).
Ahorfendur: 626.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson 6.
Gul spjöld: Heimir Guðmundsson (14.)
og Öm Gunnarsson, ÍA (17.). Þorsteinn
Geirsson (71.) og Óskar Ingimundar-
son, Leiftri (84.).
Lið ÍA: Ólafur Gottskálksson, Heimir
Guðmundsson, Hafliði Guðjónsson (Öm
Gunnarsson 5. mín.), Sigurður B. Jóns-
son, Guðbjöm Tryggvason, Karl Þórð-
arson, Olafur Þórðarson, Mark
Duffield, Aðalsteinn Viglundsson (Har-
aldur Ingólfsson 44. mín.), Gunnar
Jónsson, Sigurstcinn Gíslason;
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson, Guð-
mundur Garðarson, Sigurbjöm Jakobs-
son, Ámi Stefánsson, Gústaf Ómars-
son, Hafsteinn Jakobsson, Þorsteinn
Geirssin, Halldór Guðmundsson (Hörð-
ur Benónýsson 64. mín.), Óskar Ingi-
mundarson, Steinar Ingimundarson,
Lúðvík Bergvinsson (Friðgeir Sigurðs-
son 79. mín.).
upp og skallaði knöttinn upp í blá-
homið;
Leiftursmenn reyndu að jafna og
það munaði ekki miklu að þeim
tækist það á 85. mín. Ámi Stefáns-
son spmti knettinum þá yfír mark
Skagamanna úr góðu færi.
Haraldur Ingólfsson gerði út um
leikinn á 87. mín., eftir sendingu
frá Ólafi Þórðarsyni. Ólafur og
Heimir Guðmundsson ptjónuðu sig
þá skemmtilega í gegnum vöm
Leifturs.
Sigur Skagamanna var sanngjam,
en leikur þeirra var eins og svo oft
áður, sveiflukenndur. Guðbjöm
Tryggvason lék í stöðu „sweepers"
og skilaði nýju hlutverki sínu vel.
Þá lék Sigursteinn Gíslason vel á
miðjunni í sínum fyrsta heila leik.
Leiftur er með sterka vöm og góða
miðju, en það vantar brodd í sóknar-
leik liðsins, sem leikur ágæta knatt-
spyrnu.
P
Guðbjörn Tryggvason og Sig-
ursteinn Gíslason, ÍA. Árni
Stefánsson, Leiftur.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA
Karl Þórðarson sést hér skora fyrsta mark sitt með skalla í ellefu ár.
Morgunblaöið/Júlíus
Karl Þórðarson
stökk upp og skor-
aði með skalla