Morgunblaðið - 19.07.1988, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚIÍ 1988
B 5
ARANGUR
Besti árangur frá upphafí í A-Þýskalandi
Tap fyrir ólympíuþjóðununum
Fymt og fremst undirbúningur
Islenska landsliðið er nú kom-
ið heim eftir keppnisferð í
Austur- og Vestur-Þýskalandi.
Árangurinn úr fimm leikjum —
tveir sigrar, eitt jafntefli og tvö
töp. Á heildina litið er þetta
ágætur árangur,
enda mótið vissu-
lega mjög sterkt, en
ekkert sem kemur á
óvart.
Þetta er í fjórða sinn
sem liðið tekur þátt
I þessu móti og þetta
er besti árangur
íslenska liðsins
hingað tii. En ef litið
er á úrslitin má sjá
að engin stór afrek
voru unnin. Tapað
fyrir ÓL-þjóðunum,
Á-Þýskalandi og
Sovétríkjunum, og
tvivegis leikið gegn
V-Þjóðverjum án
þess að sigra.
Tap fyrir Sovét-
mönnum og A-Þjóð-
verjum á útivelli er
hægt að sætta sig
við. Báðar þjóðimar
em með sterkustu
handknattleiksþjóð-
um heims. Sigur á
Póllandi og .Kína er
eðlilegt, en tap og
jafntefli gegn V-
Þýskalandi eru sam-
kvæmt „bókinni"
ekki mjög góð úrslit.
En hvað cru góð
úrslit?
Það er ekki alltaf
hægt að meta þjóðir
bara út frá því hvort
þær eru A- eða B
að ná sem allra bestum árangri
á Ólympíuleikunum.
Leikir fram að því eru fyrst og
fremst æfíngaleikir, hugsaðir til
þess að liðið sé sem best undir-
búið þegar til kastanna kemur.
Hvað er góður árangur?
Ekki er hægt að meta árangur út frá úrslitum. Það
getur verið mikilvægara að liðið leiki vel og fái
mikiö út úr leiknum en að það sigri.
þjóðir. Liðin eru án efa mismun-
andi á veg komin ( undirbúningi
sínum fyrir Ólympfuleikana eða
B-keppnina. Sovétmenn eru til
dæmis komnir langt fram úr
öðrum þjóðum og V-Þjóðverjar
stefna að allt öðru móti, þ.e.
B-keppninni. Hinsvegar á það
eftir að koma í ljós með Sovét-
menn í hve góðu formi þeir verða
á ólympíuleikunum og þeir
skipta að sjálfsögðu meira máli
Það er því kannski skiljanlegt
að Bogdan Kowalczyk landsliðs-
þjálfari sé ekki mjög áhyggju-
fullur þó að liðið tapi. Það kom
mér þó nokkuð á óvart er hann
sagði að sigur væri ekki aðal-
atriðið og jafnvel allt í lagi að
leikir töpuðust, svo lengi sem
liðið hefði eitthvað upp úr þeim.
Óneitanlega undarlegt að heyra
slíkt frá landsliðsþjálfara rétt
fyrir leik, en kannski skiljan-
Stund milli stríða
Ekkert íslenskt lið hefur æft jafn mikiö fyrir eina keppni og íslenska
landsliðið fyrir Ólympiuleikana. Langar keppnisferðir hljóta að vera þreyt-
andi, en þetta sætta landsliðsmennimir sig við án þess að kvarta.
en mótið í Austur-Þýskalandi.
Þegar nær dregur Ólympíuleik-
unum fara úrslit að skipta meira
máli og hver leikur hefur meiri
þýðingu. Þegar loks er komið
til Seoul er fyrst hægt að tala
um alvöru árangur.
íslenska landsliðið er nú að und-
irbúa sig fyrir Ólympfuleikana í
Seoul í haust. Ekkert íslenskt
lið hefur lagt jafn mikið í undir-
búning fyrir eina keppni og
fslenska landsliðið fyrir
Ólympfuleikana. Æfíngar 11
sinnum í viku, langar keppnis-
ferðir og ýmiskonar skuldbind-
ingar þurfa landsliðsmennimir
að sætta sig við og kvarta ekki.
Allt er lagt f sölumar til þess
legt. Hann hefur einnig sagt að
hann vilji frekar tapa öllum
leikjunum frá að Ólympíuleikun-
um ef íslenska liðið vinnur leiki
sína í Seoul.
Eins og Bogdan hefur sjálfur
bent á er varla hægt að gagn-
rýna hann fyrr en eftir Ólympíu-
leikana og út af fyrir sig ekki
ástæða til þess. Ólympiuleikarn-
ir em það sem allt miðast við
og það verður ekki fyrr en að
þeim loknum að hægt er að
dæma um hvort áætlun Bogdans
hafi gengið upp.
Logi Bergmann
Eiðsson
FOLK
■ GRAHAM Souaess, fram-
kvæmdastjóri Glasgow Rangers,
hefur keypt 21 leikmann síðan hann
tók við hjá félaginu. 12 þeirra eru
enskir. Sá síðasti,
Gary Stevens, sem
keyptur var frá
Everton, lýsti því
yfir að honum hefði
verið nauðsyn á tilbreytingu og að
hann hafi verið staðnaður hjá Ever-
ton. Auk þess gefi þetta honum
tækifæri til að leika í Evrópu-
keppni.
EVERTON ætlar að kaupa
bakvörðinn Neil McDonald frá
Newcastle til að taka stöðu Ste-
vens. Newcastle vill fá 800 þús
pund en Everton er ekki reiðubúið
að borga nema 600 þús pund. Mál-
inu verður því skotið til matsnefnd-
ar, sem sker úr um verðið.
QPR hefur keypt Simon Bar-
ker frá Blackburn fyrir 400 þús
pund. Hann er 23 ára en hefur
samt leikið yfir 200 leiki með
Blackburn.
Frá
Bob Hennessy
ÍEnglandi
■ JIM McLean, sem var fram-
kvæmdastjóri Dundee United í
fjölda ára en sagði af sér á dögun-
um, hefur séð sig um hönd og er
aftur kominn í gömlu stöðuna.
Hann sagði af sér í kjölfar þess,
að skozka knattspyrnusambandið
sektaði hann fyrir að hafa truflandi
áhrif á leikinn af hliðarlínunni. Þótt
McLean sé hættur við að hætta,
er hann enn afar óhress með niður-
stöðu skozka knattspymusam-
bandsins og efast um að hún stand-
ist fyrir dómstólum.
■ MIRANDINHA, Brasilíu-
maðurinn sókndjarfi hjá New-
castle, er ekkert að skafa utan af
hlutunum. Hann gaf fyrir stuttu
út eftirfarandi yfírlýsingu: „Ég verð
markahæsti leikmaður 1. deildar á
næsta keppnistímabili."
■ WEST Ham hefur keypt vara-
markvörð Glasgow Celtic, Alan
McKnight, á 220 þús pund.
McKnight, sem er 24 ára, hefur
hefur ekki komist í aðallið Celtic
enda er írski markvörðurinn Pat
Bonner þar fyrir.
■ NICO Claesen, sem keyptur
var til Tottenham frá Standard
Liege fyrir 600 þús pund f október
1986, er á förum frá Englandi.
Hann hefur ekki náð að sína getu
sína undanfarið hjá Tottenham.
Claesen, sem stóð sig með prýði
með belgíska landsliðinu í HM í
Mexíkó 1986, á nú í viðræðum við
belgíska liðið Antwerpen.
■ LOU Macari, framkvæmda-
stjóri Swindon, hefur ákveðið að
vera áfram hjá félaginu, þrátt fyrir
gott boð frá Chelsea, sem fól í sér
að hann yrði stjóri hjá því fom-
fræga félagi eftir stuttan tíma.
Svar hans kom eins og köld vatns-
gusa framan í forráðamenn
Chelsea.
Reuter
■ IGOR Polyanski frá Sovétríkjunum bætti eigið heimsmet í 100
metra baksundi um 0,16 sekúndur á sovéska meistaramótinu í sundi sem
fram fór um helgina. Hann synti á 55,00 sekúndum. Polyanski, sem
hefur verið besti baksundsmaður heims, setti heimsmet í mars í land-
skeppni Sovétríkjanna og A-þýskalands. Hann verður því að teljast sigur-
stranglegastur í baksundinu í Soeul. Til gamans má geta þess að ís-
lands- og Norðurlandamet Eðvarð Þórs Eðvarðssonar er 57,15 sekúnd-
ur og var sett á Evrópumeistaramótinu í Srassborg í Frakkalandi í
fyrra.
Einheijar keppa í Grafarholti
Þeir kylfingar sem hafa náð=að fara holu í höggi, verða í sviðsljósinu
á Grafarholtsvellinum á sunnudaginn, en þá fer fram hið árlega
mót Einherjaklúbbsins. Tíu kylfingar hafa farið holu í höggi í ár,
en alls hafa á þriðja hundruð íslenskir kylfingar náð þessu drauma-
höggi. Ræst verður út kl. 9-11 á sunnudag, en þeir sem hafa hug á
að vera með eru beðnir að bóka rástíma í síma 82815 fyrir hádegi
á laugardaginn.
Morgunblaðiö/Öskar Sæmundsson
Komu akandi ffrá Egiisstöðum með bátana!
Siglingaáhuginn er mikill hjá bræðrunum Konráði og Vilhjálmi Benediktssonum
frá Egilsstöðum. Þeir fengu faðir sinn, Benedikt Vilhjálmsson, til að aka með
sig til Reykjavíkur á föstudaginn með bátana sem þeir kepptu á í íslandsmótinu
í siglingum sem fram fór á Fossvogi um helgina. Ferðin, sem er um 750 km,
gekk vel. Myndin er tekin er þeir komu til Reykjavíkur á föstudagskvöld.
íttiMR
FOLK
■ FIMM sundmenn héldu til
Spánar í gær. Eðvarð Þór Eð-
varðsson, Ragnheiður Runólfs-
dóttir, Arnþór Ragnarsson,
Bryndís Ólafsdóttir og Magnús
Már Ólafsson, fóru til Bilbao, þar
sem þau taka þátt í spænska meist-
aramótinu um næstu helgi. Arn-
þór, Magnús Már og Bryndís
muna reyna við ólympíulágmörk á
mótinu, en keppt verður í 50 m
sundlaug. Ragnar Guðmundsson,
sem einnig er að reyna við Ól-
lágmark, er staddur í Svíþjóð, við
æfingar og keppni.
UKRISTJÁN Rafnsson, körfu-
knattleiksmaður í UBK, er á förum
frá félaginu en hefur ekki tilkynnt
félagsskipti ennþá. Að hans sögn
koma þrjú lið til greina, KR, Tinda-
stóll og Þór. Hvert hann fer mun
skýrast á næstu dögum.
■ TRÓPÍ-tennismótið, sem haldið
er á vegum Tennissambands ís-
lands og Sólar hf, hefst í dag,
þriðjudag á Víkingsvöllunum í
Fossvogi og stendur til næsta laug-
ardags. Keppt verður í kvenna- og
karlaflokki, einliða, tvíliða, tvennd-
arleik og unglingaflokki.
Ivanescu með námskeið
Eins og hefur komið fram þá mun Petre Ivanescu, landsliðsþjálf-
ari V-Þýskalands, vera með fyrirlestur og námskeið fyrir íslenska
handknattleiksþjálfara í sambandi við komu v-þýska landsliðsins hing-
að til lands um næstu helgi. Þjálfurum gefst einnig tækifæri til að
fylgjast með tveimur æfingum hjá v-þýska landsliðinu. Fyrri fundurinn
verður á föstudaginn kl. 16 og að honum loknum verður fylgst með
tveggja tíma æfingu þýska landsliðsins. Á laugardagsmorgun verðyr
fylgst með æfingu og að hanni lokinni verður annar fundur. „Ég var
á tveggja daga námskeiði hjá Ivanescu fyrir stuttu. Það er sú
besta endurmenntun sem ég hef fengið í tíu ár,“ sagði Jóhann
Ingi Gunnarsson, þjálfari KR.
Þeir þjálfarar, sem hafa B-stigs próf, sem hafa hug á að vera á
námskeiðunum, þurfa að tilkynna þátttöku strax til skrifstofu HSÍ.