Morgunblaðið - 19.07.1988, Side 8

Morgunblaðið - 19.07.1988, Side 8
8 B MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1988 KNATTSPYRNA / ÍSLANDSMÓTIÐ 2. DEILD FRJALSAR Wyludda varpaði kúlunni 20,23 m - sem er nýtt heimsmet unglinga. Lewis setti met í 400 m hlaupi Ilke Wyludda frá Austur-Þýska- landi, sem er 19 ára, setti nýtt heimsmet í stúlknaflokki á aust- ur-þýska meistaramóti unglinga í frjálsum íþróttum sem fram um helgina. Hún varpaði kúlunni 20,23 metra. Á föstudaginn bætti hún heims- met unglinga í kringlukasti í fjórða sinn á þessu ári. Hún kepp- ir á heimsmeistaramóti unglinga sem fram fer í Sudbury í Kanada síðar í þessum mánuði. Þetta var í fyrsta sinn á þessu ári sem Wyludda varpar kúlu og má því búast við miklu af henni í framtíðinni. Hún hefur verið þekktari fyrir árangur sinn í kringlukasti, en hún var í fjórða sæti á heimsmeistaramótinu í Róm í fyrra. ■Steve Lewis frá Bandaríkjunum setti heimsmet unglinga í 400 m hlaupi, er hann hljóp á úrtöku- móti Bandaríkjamanna fyrir ÓL. Lewis hljóp á 44.61 sek. Eyjamenn nýttu færín vel gegn Selfossi Selfyssingar voru ekki á skot- skónum, þegar liðið spilaði við ÍBV í Vestmannaeyjum á laug- ardag. Gestirnir sóttu svo til allan leikinn án þess þó að skapa sér umtalsverð færi. ÍBV liðið nýtti sín færi til fullnustu og sigraði 3:1. Strax á fyrstu mínútu fékk Sel- fyssingurinn Heimir Bergsson dauðafæri á markteig ÍBV, en Adolf Óskarsson markmaður náði að slá boltann yfir slá- Eft- FráSigfúsi ir korter fékk ÍBV Gunnari sína fyrstu sókn. Guðmundssyni jngj Sigurðsson tók homspymu. Boltinn flaug yfir alla vöm Selfoss á Ólaf Ámason sem einn og óvaldaður skallaði boltann glæsilega í netið. Stuttu _ seinna_ kom 'annað mark ÍBV. Ólafur Ámason gaf langan bolta fyrir mark Selfoss og virtist engin hætta vera á ferðum. Anton Hartmannsson markmaður Selfoss hljóp út í boltann en missti hann frá sér og Tómas Ingi Tómasson var fljótur að átta sig og renndi boltanum í autt markið. Stuttu fyrir leikhlé var hrint á bak Heimis Bergssonar innan vítateigs ÍBV og umsvifalaust dæmt víti sem Guðmundur Magnússon skoraði ör- ugglega úr. Á 64. mínútu fékk ÍBV aukaspymu rétt utan við vítateig. Ingi Sigurðs- son renndi boltanum inn á Jón Atla Gunnarsson sem skoraði með snún- ingsbolta í bláhomið, óveijandi fyr- ir Anton. Um miðjan síðari hálfleik braut Friðrik Snæbjömsson á sóknar- manni Selfoss innan vítateigs ÍBV og Selfyssingar fengu annað víti. í þetta sinn varði Adolf Óskarsson frá Guðmundi. Selfyssingar sóttu mun meira það sem eftir var án þess að skapa sér umtalsverð færi. Laudrup + 210 milljónir Juventus vill skipta á Michael Laudrup og Portúgalanum Futre = Futre Michael Laudrup. Morgunblaðiö/KGA Sævar Lelfsson sést hér fagna marki sínu gegn Þrótti. í 1. deildinni á Ítalíu, en Humbergo Raggi, lék með Inter og Vicenza frá 1961-1968. „Ég hef talað við Dino Zoff, hinn nýja þjálfara Juve og hann hefur ekkert á móti því að ég leiki áfram með Juventus. Það er undir mér komið hvort ég skipti um lið eða ekki,“ sagði Laudrup í vikunni. Hann bætti því við að líkurnar á að hann léki með Juve á komandi keppnistímabili væm minni en 50%. JuVentus hefur einnig augastað á rússneska leikmanninum Zavarov, en umræður um þau viðskipti hafa ekki gengið sérlega vel þar sem Rússar vilja ekki láta leikmenn af hendi fyrr en þeir hafa náð 28 ára aldri, en þá eru flestir knattspymu- menn á síðasta snúningi, eins og sagt er. Bestu kaupin eru yfirleitt í ungu mönnum, um 22 ára. Nú hafa Rússar látið af hendi hinn sterka Igor Belanov sem á næsta ári mun leika með Atalanta. Hann er 28 ára gamall og sleppur því yfir „múrinn." Salan á Belanov til Italíu ætti að hjálpa Juventus í samningaviðræðum við Rússana um Zavarov og Protasov, sem Juve hefur einnig gefíð hýrt auga. Futre er 22 ára og er á stöðugri uppleið. Þá hafa Juventus-menn einnig áhuga á Ronald Koeman og Gerald Vanenburg, rósunum í hnappagati Eindhoven. Jan Wout- ers 28 ára gamall leikmaður Ajax er einnig á óskalistanum ásamt De Cruyff sem leikur með Utrecht í Hollandi. Aðrir leikmenn sem nefndir hafa verið sem hugsanlegir leikmenn Juve á næsta ári eru Steve McMahon (Liverpool), sem er góður vinur Ians Rush og Belginn Marc Degryse. Paulo Jorge Futre sést hér í leik gegn Liverpool. KAUP og sala á leikmönnum ítalskra knattspyrnuliða stend- ur nú sem hæst. Flest ítölsku liðanna hafa á síðustu dögum gengið frá viðskiptum sínum, en Juventus hefur dregið fram á síðustu stundu að skrifa und- ir samninga. Nú vill Juventus selja danska leikmanninn Mic- hael Laudrup til Atletico Madrid og borga 210 milljónir íslenskra króna með honum gegn því að fá hinn geysisterka Paulo Jorge Futre. Boniperti, forseti Juve átti leyni- legan einkafund með Julio Carrascosa, forráðamanni Atletico, * í Genf vikunni, þar sem rætt var um skipti á Laudrup og Futre. Taldar eru miklar líkur á að af skiptunum geti orð- ið, en Juventus þarf að tína til litlar 210 milljónir, sem að vísu ætti ekki að vera félaginu ofraun, þar sem um er að ræða eitt ríkasta félagslið Evrópu. Laudr- up sagðist í vikunni vera sáttur við þá hugmynd að flytjast til Spánar og leika með Atletico Madrid, en hann hefur leikið þrjú keppnistíma- bil með Juve. Futre yrði annar portúgalski leikmaðurinn sem léki Frá Brynju Tomer á Italíu ÍBV-SeHoss 3:1 (2:1) Mðrk ÍBV: ólafur Árnason (14. mín.), Tómas Tómasson (20. mín.) og Jón Atli Gunnarsson (64. mín.). Mark Selfoss: Guðmundur Magnússon ( 43. mín. víti). Maður leiksins: Adolf Óskarsson, ÍBV. Tíu Víðismenn unnu lánlausa Þróttara Víðismenn áttu ekki í erfiðleik- um með Þróttara á laugardag, þrátt fyrir að leika einum færri mestan part leiksins. Fyrri hálf- leikur var fjörugur og voru fjög- ur mörk skoruð fyrir hlé. Víðis- menn skoruðu þrjú en Þróttar- ar eitt. Leikurinn var öllu dauf- ari eftir hlé. Þróttarar sóttu mun meira, en mörkin urðu ekki fleiri. Leiknum lauk því með 3:1 sigri Víðismanna sem þar með eru enn í toppbarát- tunni, en Þróttarar sitja einir á botninum. Heimir Karlsson skoraði fyrsta mark Víðismanna á 15. mínútu úr aukaspymu. Þróttarar byijuðu mun betur en höfðu ekki erindi sem erfíði og það voru því Víðismenn sem áttu fyrsta markið nokkuð gegn gangi leiksins. Þegar tuttugu mínútur voru liðnar var einum Víðismanna, Svani Þor- steinssyni, vikið af leikvelli fyrir klaufalegt brot. Víðismenn tvíefld- ust og á 23. mínútu skoraði Sævar Leifsson annað mark Víðis. Sigurður Hallvarðsson minnkaði muninn fyrir Þrótt úr víti á 30. mínútu eftir að Gísli Heiðarsson í marki Víðis hafði brugðið Magnúsi Bergs. Nokkru síðar skall hurð nærri hælum við Víðismarkið þegar Sverrir Pétursson átti þrumuskot í stöng. Sókn Þróttar þyngdist nokk- uð eftir þetta, en Víðismenn vörð- ust vel og beittu skyndisóknum sem voru öllu hættulegri en hálfbit- lausar sóknir Þróttar. Á 40. mínútu skoraði Heimir annað mark sitt og þriðja mark Víðismanna eftir góðan undirbúning Björgvins Björgvins- sonar. Síðari hálfleikur var daufur. Þrótt- arar sóttu látlaust, en gekk illa að reka endahnútinn á sóknir sínar, enda vöm Víðismanna sterk. Ekk- ert mark var skorað í síðari hálfleik og endaði leikurinn því með 3:1 sigri Víðismánna. Þróttur - Víðir 1 : 3 (1 : 3) Mark Þróttar: Sigurður HáJlvarösson (29. mín. víti). Mörk Víðis: Heimir Karlsson (13. og 40. mín.), Sævar Leifsson (23. mín.). Maður leiksins: Guðjón Guðmundsson, Víði. KNATTSPYRNA / ITALIA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.