Morgunblaðið - 19.07.1988, Page 9

Morgunblaðið - 19.07.1988, Page 9
 Enzo Schifo er byijaður að hrella markverði í Frakklandi. Enzo Scrfo var hetja Bordeaux ENZO Scifo, sem var keyptur frá Inter Milanó til Bordeaux, skoraði bæði mörk liðsins, 2:0, gegn Auxerre í fyrstu umferð frönsku deildarkeppninnar sem hófst á laugardaginn. Meistararnir, Mónakó, gerðu jafntefli við Nantes, 1:1. Enzo Scifo, sem er belgískur landsliðsmaður, kom sá og sigraði með sínu nýja félagi Borde- aux í fyrstu umferð frönsku deild- asrkeppninnar. Hann kom Borde- aux, sem varð í öðru sæti keppninn- ar á síðasta keppnistímbili, yfir á 38. mínútu með góðu vinstri fótar- skoti. Hann bætti svo síðara mark- inu við rétt fyrir leikslok er hann hafði leikið vamarmenn Auxerre grátt. Boredeaux keyjjti tvo aðra leikmenn fyrir þetta keppnistíma- bil, þá Clive Allen frá Tottenham og Yannick Stopyra frá Toulouse. Mónakó, sem mætir Valsmönnum í Evrópukeppni meistaraliða í haust, gerði jafntefli við Nantes, 1:1. Mark Hateley gerði mark Mónakó um miðjan fyrri hálfleik. Stigareglunum í frönsku deildinni hefur nú verið breytt og fær sigur- lið nú þrjú sitig fyrir sigur eins og er hér á Islandi og í Englandi. Þess má geta að Frakkar reyndu fyrstir þriggja stiga regluna - fyrir nokkr- um árum, en hættu við hana eftir eitt keppnistímabil. LYFTINGAR 15ára kínversk stúlka settiþrjú heimsmet Zhou Lunmei frá Kína, sem er aðeins 14 ára gömul, gerði sér lítið fyrir og sétti þrefalt heimsmet í 67,5 kg flokki kvenna á unglinga- móti í lyftingum í Peking um helg- ina. Hún snaraði 81 kg og jafnhetti 103,5 kg, Hún bætti metið í snörun um 4,5 kg, í jafnhöttun um 1 kg og 2,5 kg í samanlögðu. Eldra metið í samanlögðu átti landi henn- ar, Gao Lijuan, sem sett var í fyrra. MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR ÞRIÐ.IUDAGUR 19. JÚLÍ 1988 Viðhald veiðiáa er fólgið í fleiru en að sleppa seiðum ÞRÁTT fyrir hina miklu veiði sem verið hefur í mörgum íslensku laxveiðiánum á þessu sumri hefur lítið farið fyrir þeim stóru og sárafáir stórlaxar veiðst. Uppistaðan í afla sum- arsins hefur verið smálax. Smálaxamergðin hefur raunar verið ótrúleg á Suðvestur- og Vesturlandi. Það iofaði góðu um stórlaxasumar þegar 26 punda hrygna veiddist á fyrsta degi í Laxá í Aðaldal, en eftir því sem komist verður næst hafa fáir eða engir 20 punda veiðst síðan og töldu menn sig þó sjá nokkra stóra bolta þarna ífyrstu göngunum. 23 punda lax hefur veiðst í Víðidalsá og 24 punda lax í Kerinu í Hvítá í Langholti. Líklega eru þeir eitt- hvað fleiri, 20 pundarar hafa veiðst a.m.k. í Laxá í Kjós og Þverá og í smálaxaánni Norð- urá hefur veiðst 19,5 punda. Það væri trúlega hægt að telja áfram upp um hríð og þótt list- inn yrði nokkuð álitlegur breyt- ir það því ekki, að miðað við síðustu sumur stefnir í að veiðisumarið 1988 verður smá- laxasumar, borið uppi af risa- göngunum á fyrrnefndum land- svæðum. Viðhald laxveiðiáa er ekki ein- ungis fólgið í því að sjá til þess að laxagöngur séu sem jafn- astar og mestar. Ræktun er ekki Skemmtlleg mynd Jóns Ársælssonar, frá Ytri Rangá, nú á póstkorti. VEIÐI Guðmundur Guðjónsson skrifar nema hluti af stærra dæmi. Flestar ár eru því marki brenndar, að þær breyta sér mikið og sumar breyta sér gífurlega frá einu ári til þess FLUGA VIKUNNAR Gullflugan VEIÐI Guðmundur Guöjónsson skrifar Fluga vikunnar hefur rétt ný- verið hlotið nafn, áður hafði hún gengið undir ýmsum nöfnum eins og Goldfínger. Höfundur hennar er hins vegar alfarið andvígur erlend- um nöfnum á íslenskum flugum og þegar menn fóru að veiða vel á þessa flugu, bar hann nafngiftar- málin undir nokkra vini sína. Ofan á varð að flugan var skýrð einfald- lega Gullflugan. Höfundurinn er sá kunni kappi, Þórður Pétursson, sem hannað hefur ýmsar af veiðn- ustu og fallegustu íslensku flug- unum. Gullflugan hefur vérið lengi í smiðum eins og margar af helstu flugum Þórðar í gegnum tíðina, en sem betur fer var henni lokið fyrir sumarið. Þórður vill ekki að flugur sínar hljóti nöfn fyrr en búið er að veiða að minnsta kosti 10—12 laxa á þær, finnst þær ekki hafa sannað ágæti sitt fyrr en þá, því „vart sé sú fluga til sem ekki er hægt að slíta upp einn og einn fisk á,“ eins og hann komst sjálfur að orði. Burðarlitur í gullflugunni er eins og nafnið bendir til gylltur. Einn- ig er þar að finna gulan lit og grænan og Þórður álítur að afla- sæld Gullflugunnar í Laxá í Að- aldal eigi rætur að rekja til þess að áin er búin að vera mjög sko- luð á köflum vegna sunnanroks og leirlosins í Mývatni. Undir slíkum kringumstæðum dregur ekki einungis stórlega úr allri fluguveiði, heldur gefa þær bláu þá lítið sem ekkert. Gullflugan hafði gefið 23 laxa í Laxá um miðja síðustu viku og hefur flugu- veiðin þó verið afar lítill hluti 650 laxa aflans enda meginhluti hans dreginn fyrir neðan Æðarfossa. „Ef að þessi fluga er vel hnýtt, fínnst mér hún afar veiðileg," segir Þórður um afsprengi sitt nýjasta. Við skulum nú líta á upp- skriftina: Stélið er gult og nær ekki lengra aftur en vængendinn. Aft- ast á leggnum er gullvafíð og „buttið" er gult með svartri strútsfjöður hringvafinni. Leggur- inn svo allur þar fyrir framan gullvafínn og hausinn svartur. Vængurinn er úr tvílitum íkoma- hárum. Fremst em þau dökk, en gul í endana. Skeggið er og svart. Litaskilin á vænghárunum og skeggendinn eiga að nema við svörtu strútsfjöðrina, ella er flug- an ekki rétt hnýtt að mati hönnuð- ar. Auðvitað hafa allir leyfí til að breyta út frá uppskriftinni og framleiða afbrigði. En þá er það heldur ekki lengur hin eina og sanna Gullfluga ... næsta. Stafar þetta af leir- sand- og malarburði sem getur verið gífurlegur, ekki síst ef miklir vatna- vextir verða. Þá bijóta ámar niður holbakka og hyljir hverfa, jafnvel toppveiðistaðir. Á lengri tímabilum sverfa árnar meira að segja niður fossa. Hinar minnstu breytingar geta gerbreytt veiðistað, t.d. að áin renni eitt árið ögn meira n'iður mitt fljótið í staðinn fyrir niður með öðrum bakkanum. Veiðiréttareigendur og leigutak- ar ættu að vera meira vakandi fyr- ir þessum breytingum og athuga hvort ekki er hægt að laga eitt og annað sem aflaga fer, ekki síst vegna þeirra sem veiðileyfi kaupa og eru e.t.v. ekki allir jafn stekir á svellinu, þekkja ámar kannski ekki eins vel og sumir og styðjast við kort af viðkomandi veiðiám. Veiði- kort í ýmsum ám geta orðið vem- lega úrelt á fáum ámm af þeim sökum sem reifuð hafa verið. Við getum tekið sem dæmi Laxá í Aðaldal. Margur gæti haldið að sú mikla á breytti sér ekki mikið og sannarlega em stórvægilegar breytingar yfirleitt lengi að verða. En frá því em þó undantekningar, þannig var í flóðunum miklu 1979, að gífurlegt magn af sandi barst í marga veiðistaði, sérstaklega ofar- lega í ánni, ekki síst á svokallað svæði 7 á svæðum Laxárfélagsins. Stórkostlegir veiðistaðir eins og Laxhólmi gefa nú lítið eða ekkert allar götur síðan. Neðar í ánni er Hólmavaðsstíflan, sá fomfrægi veiðistaður, trúlega einn frægasti og gjöfulast.i veiðistaður landsins. Þeim stað byijaði að hraka í kjölfar- ið á umræddum flóðum, hefur hríðversnað og keyrir um þverbak í sumar. Þórður Pétursson veiði- vörður og leiðsögumaður við Laxá hefur sagt þeim er þetta ritar, að það sé lítið mál að lagfæra þetta, það þurfi aðeins vilja landeigenda, jarðýtu, en útlagður kostnaður myndi fljótt skila sér í aukinni veiði á ný. Öll svona mál em hins vegar viðkvæm og vandmeðfarin, ekki síst í Laxá í Aðaldal þar sem allt slíkt þarf að bera auk alls undir Náttúm- verndarráð vegna sérstöðu lífríkis árinnar. Önnur hlið á þessu máli er tilbún- aður veiðistaða í ám þar sem fátt , er um góð laxalægi. í Stangar- holtslandi í Langá mddu landeig- endur upp malargörðum, en það bar í heild séð ekki sérstakan árangur. I Reykjadalsá í Borgarfirði var gerð skemmtileg tilraun fyrir mörgum ámm, en Reykjadalsá er afar lygn og víða lítt fysileg laxinum. Sturla heitinn Jóhannesson á Sturlu- Reykjum í Reykholtsdal átti í land- areign sinni veiðistað, Sturlu- Reykjabug, sem gaf einn og einn lax, helst í vatnavöxtum og þegar lax var í göngu. Sturlu datt í hug hvort eigi væri hægt að nota sér ákveðið straumkast í ánni til þess að gera aðlaðandi laxalægi. Góð- viðrisdag einn sótti hann sér tunnu eina stóra, fyllti hana til hálfs af gijóti og óð með hana út í ána miðja. Tunnan var til muna léttari í ánni en uppi á þurru. Straumurinn var ekki meiri en svo að hann hreif tunnuna ekki burt er hreppstjórinn sleppti af henni takinu. Svo tók hann til við að bera meira gijót í tunnuna og linnti ekki látunum fyrr en hún var troðfull. Stráumurinn tók þá þegar til við að grafa rás í botninn undan henni. Þetta var að haustlagi, svo leið vetur, vor og nýtt veiðitímabil gekk í garð. Seint það sumar vom tengdafaðir hrepp- stjórans og góðvinur hans að veið- um í .ánni, en urðu lítið varir eins og algengt er í Reykjadalsá á seinni ámm. Þá stakk Sturla upp á því við vini sína hvort eigi væri ráð í stöðunni að líta á „Tunnufljótið" sitt. Þeir gerðu það og drógu 6 laxa í beit. . . _ Abu Garcia

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.