Morgunblaðið - 19.07.1988, Síða 11
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1988
B 11
FRJALSAR IÞROTTIR / BANDARIKIIM
Joyner-
systumar
settu
heimsmet
Carl Lewis og VVillie Banks náði frábærum
árangri á bandaríska úrtökumótinu fyrir ÓL
LAUGARDAGURINN 15. júlíá
eftir að verða minnstæður í
heimi frjálsíþóttanna fyrir frá-
bæran árangur. Systurnar,
Florence Griffith Joyner og
Jackie Joyner, settu heimsmet
og Carl Lewis og Willie Banks
náðu besta heimsárangrinum í
100 metra hlaupi og þrístökki,
en vindhraðinn mældist of mik-
ill þannig að heimsmet voru
ekki staðfest. Þetta var á úr-
tökumóti í Bandaríkjamanna
fyrir Ólympíuleikana Seoul sem
hófst í Indianapolis á föstudag-
inn og stendur yfir næstu daga.
Griffith Joyner hljóp 100 metr-
ana á 10,49 sek og bætti
heimsmet Evelyn Ashoford frá
1984 um 27/100 hluta úr sekúndu.
Þetta er messta heimsmetsbæting
í 100 m hlaupi kvenna síðan raf-
magnstímataka var tekin upp fyrir
20 árum. „Ég bjóst ekki við að mér
tækist að hlaupa á svona góðum
tíma hér í dag,“ sagði Griffith Joyn-
er eftir hlaupið.
Þegar Griffith Joyner setti heims-
metið mældist vindhraðinn 0,0
m/sek. Margir töldu að vindmælir-
inn hafí ekki sýnt réttan vindhraða
og var því mælirinn prófaður eftir
hlaupið og kom þá í ljós að hann
var í góðu lagi. Griffith Joyner hljóp
á 10,60 sek í undanrásum og var
það einnig undir gildandi heims-
meti, en þá var vindharðinn 3,2
metrar á sekúndu sem er yfír vind-
mörkum.
Jackie Yoyner Kersee bsetti
heimsetið f þriðja sinn
Aðeins nokkrum mínútum eftir að
Griffith setti metið bætti systir
hennar, Jackie Yoyner Kersee,
heimsmetið í sjöþraut í þriðja sinn
á tveimur árum. Hún hlaut samtals
7,215 stig og bætti heimsmet sitt
frá því í ágúst í fyrra um 57 stig.
Eiginmaður hennar, Bob Kersee,
hafði sagt fyrir mótið að hún myndi
bæta heimsmetið og við það stóð
Jackie. Hún keppir einnig í lang-
stökki í vikunni og ætlar sér einnig
að komast í bandaríska liðið í þeirri
grein.
Arangur hennar í sjöþrautinni var
sem hér segir: Langstökk 7,00
metrar, spjótkast 50,08 metrar, 800
m hlaup 2:20.70 mín., 100 m
grindahlaup 12,71 sek., hástökk
1,93 metrar, kúluvarp 15,65 metrar
og 200 m hlaup 22,30 sek.
Cari Lewis á frábærum tíma í
10O metra hlaupi
Carl Lewis, fjórfaldur ólympíu-
meistari frá því í Los Angeles, hljóp
100 metrana á 9,78 sekúndum, en
skömmu áður hafði Willie Banks
stokkið tvívegis yfír 18 metra í
þrístökki. Þetta er horutveggja
besti árangur sem náðst hefur í
heiminum fyrr og síðar, en ekki var
hægt að staðfesta heimsmet þar
sem vindhraðinn mældist meira en
2 metrar á sekúndu.
í 100 metra hlaupinu hjá Lewis
mældist vindhraðinn 5,2 metrar á
sekúndu. Heimset Ben Johnson frá
HM í fyrra, 9,83 sek stendur því
enn óhaggað. Annar í 100 m hlaup-
inu var Dennis Mitchell á 9,86 sek
og Calvin Smith þriðji á 9,87 sek.
Willie Banks tvíveigis yfir 18
metra í þrístökki
Vindhraðinn er Willie Banks stökk
í þrístökkinu var frá 3,4 til 5,2
metrarar á sekúndu. En samkvæmt
alþjóðareglum má vindhraðinn ekki
fara yfir 2 metra á sekúndu. Banks,
sem setti heimsmet í þrístökki 17,97
Heimsmetin
í sjöþraut
29. sept. 1979: Sylvia Barlag, Hollandi.....5,872
29. mai 1980: Tatyana Shpat, Sovétr.........5,922
12. Júlí 1980: Nnn Golvina, Sovétr............6,074
13. sept. 1980: Yekaterina Gordiyenko, Sovétr.6,144
23.apríl 1981: JaneFrderiek, Bandar.........6,166
5. maí 1981: Nina Vinogradova, Sovétr......v6,212
23. maí 1981: Romano Neubert, A-Þýskal......6,621
27. júlí 1981: Romano Neubert, A-Þýskal.....6,716
20. júní 1982: Romano Neubert, A-Þýskal....6,772
19. júní 1983: Romano Neubert, A-Þýskal.....6,836
5. maí 1984: Sabine Paetz, A-Þýskal.........6,867
6. júlí 1986: Jackie Joyner, Bandar........7,148 *
l.ágúst 1986: Jackie Joyner, Bandar.________7,158
15. júll 1988: Jackie Joyner-Kersee, Bandar.7,215
'\ « „» "f>
m
'• - ||t,
Jackie
Joyner-
Kersee
sést hér
stökkva f
langstökkl f
sjöþraut-
inni, en hún
setti glæsi-
legt heims-
met f sjö-
þrautinni.
Heimsmet I
100 m hlaupi kvenna
15. ókt. 1968: Wyomia Tyus, Bandar.........11,08
2. sept. 1972: Renate Stecher, A-Þýskal.11,07
13. júní 1976: Inge Helten, A-Þýskal.......11,04
25. júlí 1976: Annegret Richter, V-Þýskal.11,01
l.júlí 1977: Marlies Ölsner, A-Þýskal.10,88
8.júní 1983: M. ÖlsnerGöhr, A-Þýskal...10,81
3. júlí 1983: Evelyn Ashoford, Bandar..10,79
22. ágúst 1984: Evelyn Ashford, Bandar.10,76
16. júlí 1988: Griffith Joyner, Bandar.....10,49
Reuter
Florence Grifflth-Joyner sést
í 100 m hlaupi, 10.49 sek.
Reuter
hér fagna heimsmeti sínu
Þeir fara til Seoul
Eftirtalið frjálsíþróttafólk í
Bandarikjunum, hefur tryggt
sér farseðla á Olympíuleikana í
Seoul.
Fyrstldagur
Kúluvarp 1. Randy Bames ...21.88
2. GreggTafralis 3. Jim Döhring .... 20.88 ... 20.63
Annardagur
20 km gangæ .1:34.12
2. Tim Lewis 1:36.31
1:36.36
100 m hlaup: l.CarlLewis
2. DenniaSmith 9.86
3. Calvin Smith 9.87
( Of mikill meðvindur i hlaupinu). Þrtstökk: 1. Willie Banks 18 20
2. Charlie Simpkins
8. Robcrt Cannon
Sjöþraut kvenna: 1. .iackie Joyner-Kersee... 2. Cindy Grciner 3. Wendy Brown 6,226
Hástökk karlæ
2.34
2.HollisConway 2.32
3. Brian Stanton 2.32
(Ot mikill meðvindur)
Þrlftjl dagun
400 m grindahlaup karla:
1. Edwin Moses.....................47.37
2. Andro PhiUips...................47.58
3. Kevin Young.................„...47.72
Spjótkast karla:
1. Dave Stcphens...................79.66
2. Brian Crouser...................79.46
3. Tom Petranoff...................79.46
100 m hlaup kvenna:
1. FlorenceGriffith Joyner.........10.61
2. Evelyn Ashford..................10.81
3. Gwen Torrence...................10.91
3.000 m tUaup kvennæ
1. Mary Deeker Slaney............8:42.53
2. Vicki Huber...................8:46.48
3. PattiSue Plumcr...............8:49.21
metra fyrir þremur árum, stökk í
fyrst 18,06 metra, en þá var vind-
harðinn 4,9 metrar á sek. Lengst
stökk hann 18,20 metra og var
vindharðinn þá mældur 5,2 m/sek.
Þetta eru lengstu stökk sem mælst
hafa í heiminum.
„í fyrsta stökkinu leið mér eins og
ég væri fugl. Ég lengsta stökkinu
hreinlega flaug ég og vildi helst
ekki koma niður aftur,“ sagði
Banks.
Carl Lewis tryggði sér þátttökurétt
í bandaríska liðinu með sigrinum í
100 metara hlaupinu, en þrír efstu
í hverri grein komast til Seoul.
Hann keppir í vikunni í 200 m
hlaupi og langstökki og reynir að
tryggja sér þátttökurétt þar einnig.
Þá má einnig búast við að hann
verði í boðhlaupssveit Banda-
ríkjanna þannig að hann ætti að
eiga möguleika á að endurtaka af-
rek sitt frá því í Los Angeles 1984.
Moses f fjörða sinn á ÓL
Edwin Moses, heimsmethafí f 400
m grindahlaupi, varð sigurvegari í
grindahlaupinu - fékk tímann
47.37 sek. Moses, sem varð
Ólympíumeistari 1976 og 1984, var
tveimur metrum á undan Andre
Phillips, sem kom í mark á 47.58
sek. Þriðji Bandaríkjamaðurinn sem
fer til Seoul, er Kevin Young, sem
kom í mark á 47.72 sek.
SUND
Aldursflokkamót
á Akranesi
„Mótið er mjög vel skipulagt. 300 keppend-
ur mæta til leiks," sagði GuðmundurÁrna-
son, hjá sundsambandinu
ALDURSFLOKKAMÓTIÐ í
sundi verður haldið í nýju
sundlauginni á Akranesi um
næstu helgi. Þar mæta til
leiks rúmlega þrjú hundruð
keppendur á eldrinum níu til
sextán ára og keppt verður í
fjórum flokkum.
Sundfélag Akraness, sem er
heldur upp á 40 ára afmælið
sitt í ár, sér um mótið. „Þetta
mót er geysilega vel skipulagt -
það hefur ekkert mót, sem farið
hefur fram hér á landi, verið eins
vel skipulagt og er allur undirbún-
ingUr til fyrirmyndar,“ sagði Guð-
mundur Árnason, blaðafulltrúi
Sundsambands íslands, sem er
þekktur fyrir að skipulegga sund-
mót fyrir sambandið.
Skagamenn hafa keypt nýja mjög
fullkomna tímatökuvél, sem verð-
ur tekin í notkun á mótinu. „Þetta
er þriggja daga mót og það verð-
ur mikið um að vera á Akranesi,"
sagði Guðmundur.