Morgunblaðið - 05.08.1988, Síða 4

Morgunblaðið - 05.08.1988, Síða 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988 MANEX HÁR- VÖRURNAR HAFA SÉRSTÖÐU Próteinbætti Manex hárvökvinn samanstendur af 22 amínósýrum sem inni- halda nægilega lítil mólikúl til að komast inn í hárslíðrið og næra hárrótina með hreint undraverðum árangri. Virkni próteinbætta hárvökvans er ótvíræð: / / Hárvökvinn stöðvar hárlos í allt að 100% tilvika. Flasa hverfurí 100% tilvika. I 73% tilvika hefur Manex hárvökvinn endurheimt hár í hársverði þar sem lífsmark er enn með hárrótinni. Með því að bæta hár- vökvanum í permanent festi, næst langvarandi ending permanents í þunnu hári. / / Próteinbætti Manex hár- vökvinn dregur úr exemi í hársverði. Hárvökvinn lífgar og styrkir hár sem er þurrt og slitið eftir efnameðferð. Manex hárlcekninga- vörumar samanstanda af sjampó, hámærtngu, vítamín- töflum og próteinbcettum hárvökva og fást á flestum rakara- og hársnyrtistofum um land allt. HEILDSÖLUBIRGÐIR osia UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN SlMI 680630 CHANEL AðalhönnuðurChanel, Karl Lagerfeld, ásarrít einni þekktustu sýningarstúlku tískuhússins, Ines de la Fressange, sem er klædd í vetrarútgáfu hinnar klassísku Chanel-dragtar. Dragtinerúrljósri ull, með svörtum silkilíningum, notuð með svartri silkiblússi. Þessu fylgir svo klassískt keðjubelti frá Chanel ogveski. LACROIX Teikning Christian Lacroix af einni vetrarkápunni sem hann sýn di nú. Kápan er efnismikil, úr mohair-ull og notuð utan yfir einfaldan kjól, skreyttan fjöðrum. Hárskraut og slæða úr appelsínugulu sikli og sokkamir grænir. GIVENCHY. Hönnuðurinn Hubert de Givenchy leggur lokahönd á frágang kvöldkjóla fyrir sýningu sína. Þeir eru fjölmargir sem sitja liðlangan daginn, á skrifstofustólnum, i bílnum eða íflugvél. Þetta mœðir mjög á bakinu enda hættir fólki til að gleyma grundvallarreglum sem flestir hafa þó einhvern tíma haft ávæning af. Meginreglan er sú að hryggurinn á alltaf að vera í sömu stellingu hvort sem maður liggur, stendur eða situr. Semsagt: Beinn. Héreru leiðbeiningar varðandi það hvernig kyrrsetufólk getur með einföldum ráðum dregið úr álagi á bakið. Ef lesandinn er sitjandi er bezt að byrja á því að veita stellingunni nánari athygli. Allar líkur eru á því að maður halli sér fram með bogið bak, magann út og hálsinn boginn. Þeireru því miður fáir sem gefa þessari óheillastellingu gaum þótt þeir sitji svona dag út og dag inn, enda þótt sórfræðingar séu á einu máli um að langvarandi setur hafi í för með sér óeðlilegt álag á bakið sem geti haft heilsuspillandi áhrif þegar til lengri tíma er litið, einkum og sór i lagi verki í mjóhrygg. Flestir láta hjá líða að nota kviðvöðvana sem ná aftur með bakinu til þess að styðja við hrygginn með þeirri afleiðingu að þrýstingurkemurá brjósksneiðarnarsem eru á milli hryggjarliðanna. Reyndar verður þrýstingurinn meiri með þessu móti en við nokkuð annað sem maður aðhefst annað en það að beygja sig og lyfta síðan þungum hlut. Þrýstingurinn geturýtt brjósksneiðunum upp að taugum í hryggnum og það getur valdið miklum sársauka. Onnur afleiðing rangrar stellingar birtist í því að þegar setið er með bogið bak stríkkar á liðböndum milli hryggjarliðanna og afleiðingin verður sá stirðleiki og ónot sem margir verða varir við þegar þeir standa á fætur og teygja úr bakinu. Þá má nefna verki í hálsvöðvum, herðum og efri hluta baksins, sem venjulega stafar af þvi að fólk situr álútt jafnt og þótt, auk þess sem það þjáist jafnframt af streitu og vöðvaspennu sem bæta sízt úr skák. Svokallaöurtennisolnbogi, þ.e. verkur sem leiðir út i framhandlegg og olnbogann að utanverðu, getur verið afleiðing þess að setið er í rangri stellingu. Þótt fæstir treysti sór til þess að hafa hugann stöðugt við þá stellingu sem setið er í við vinnu eru ýmsar leiðirtil að stuðla að úrbótum. Skilningur á nokkrum grundvallaratriðum. Ákjósanlegasta sætið er stóll sem lagar sig að llkamanum. Hönnunln hindrar beinlínis að notandinn láti eftir sér að siga saman og sitja álútur. En hvernig á að stilla stólinn þannig að hann komi að tilætluðum notum? Hrygglengjan á að vera lóðrótt og fylgja stólbakinu. Fæturnir ná með góðu mótl niður á gólfið og þjóhnapparnir eru Iftið eitt neðar en hnón. Aukapúði til að styðja við bakið getur verið til bóta. Mikilvægt er að borðbrúnin só um 2,5 sm ofar en olnbogarnir. Þegar setið er á hryggurinn að vera í sömu stellingu og þegar staðið er, þó þannig að haft sé í huga að eölilegar bogalínur líkamans eru þrjár, hálslina, bringulína og mjóhryggjarlína. Sá sem situr rétt lyftir bringunni með því að teygja úr bakvöðvum og draga saman magavöðvana, sem framkalla þrýsting í kviðarholinu en þessi þrýstingur verður stuðningur við bakið. Herðarnar eiga að vera beinar og slakar, eyrun í beinni línu fyrirofan mjaðmirnar. Fæturnireiga að hvíla stöðugir á gólfinu og hnén um fjórum sm ofar en mjaðmirnar. Á sumum stólum hallast setan eilítið aftur og það stuðlar einmitt að því að afstaöa hnjánna og mjaðmanna só eins og hún á að vera. Það á ekki að sitja með krosslagða fætur. Með því móti eykst álagið á hrygginn og vöðvana, auk þess sem það heftir blóðrásina. Erfitt, ef ekki ómögulegt, er að sitja svo vel fari ef aðstæöur eru ekki réttar. Iðjuþjálfarar halda þvi fram að heilsusamlegur og þar af

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.