Morgunblaðið - 26.08.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988
C 9
NÝR HÖNNUÐUR
"Chloé
Chloé var mjög þekkt merki á sínum tíma, eða þegar Karl Lagerfeld sá um hönnunina, en
hann snéri sér sem kunnugt ér að tískuhúsi Chanel, eftir glæsilegt tilboð um að gerast
aðalhönnuður þess og fá að hanna hátísku. Lagerfeld fór sem sú til Chanel og með það sama
féll Chloé í gleymsku og dá. En nú virðist sem Chloé hafi loks eignast á ný hönnuð sem kann
aðleiða merkiðafturtil vegsog virðingar. Þaðerungurhönnuðuraðnafni MartineSitbon, en
hún hefur um skeið hannað fatnað undir eigin nafni og
hyggst halda því áfram samhliða hönnun fyrir Chloé.
Hönnun hennar, sem sást á síðustu sýningu Chloé hefur
verið kölluð afturkoma „luxus-hipp“ og er Sitbon reyndar
ekki ein um þesskonarhönnun, því rósóttu kjólarnirog
yfirhafnirnar sem hafa sést á tískusýningum í París í vetur
virðast oft vera í ætt við hvort heldur er tísku fimmta
áratugarins og svo „bítla-tísku" þess sjötta.
Myndir/Texti: Ágústa Daníelsdóttir, París.
r
i