Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988 ÁFENGIÁ NEK»NGU Léttur fordrykkur, eitt rauðvínsglas með matnum og koníak með kaffinu . . . það getur ekki skaðað fóstrið. Ég finn varla á mér. Það er ekki eins og ég sé að drekka mér til óbóta, bara aðeins að dreypa á svona tií að vera með! „Þetta sagði ung verðandi móðir fyrir nokkru þegar hún var spurð hvort hún þyrði að vera að drekka áfengi á meðgöngutímanum. „Konur œttu alls ekki að neyta ðfengls á meðgöngutíma vlljl þær vera öruggar um að skaða ekkl fóstrið. Jafnvel lítlð magn af áfengi kann að valda því skaða á vissu þroskastlgi það er að segja á fyrstu vlkunum meðan hlð frjóvgaða egg er í örum vextl, veflr og Ifffœri fósturslns að byrja að myndast." „Drekkl karlmaðurinn mikið og só hann með mikinn vínanda I líkamsvökva sínum þegar sæðisf rumur eru að myndast verða þær fyrlr áhrifum hans og geta skaðast. Vínandl truflar einnig starfseml kynkirtlanna og getur skaðað frumur þelrra. Það kann að koma fram á fóstrínu." En er þetta rétt hjá henni. Er þafi saklaust afi dreypa aðeins á eins og það er kallað þegar kona gengur með barni? Jó- hannes Bergsveinsson yfirlæknir á áfengisdeildum Landspítalans var beðinn að svara þessari spurn- ingu. „Konur ættu alls ekki að neyta áfengis á meðgöngutjma vilji þær vera öruggar um að skaða ekki fóstrið. Jafnvel lítið magn af áfengi kann að valda því skaða á vissu þroskastigi þaö er að segja á fyrstu vikunum meðan hið frjóvgaða egg er í örum vexti, vefir og líffæri fóst- ursins að byrja að myndast. Sjálfsagt er minna um alvarlegar aukaverkanir ef víns er aðeins neytt einstöku sinnum og í litlum mæli. Hér á landi er áfengi yfirleitt ekki þáttur í daglegri neyslu fólks og þess því væntanlega sjaldnar neytt af vanfærum konum á með- göngutíma en gerist í vín- og bjórl- öndum. Ég hef þó séð einstaklinga er greinilega bera þess merki að mæður þeirra höfðu neytt of mik- ils áfengis á meðgöngutímanum. Þessi ummerki voru vanþroski greindar, útlitslýti og önnur ein- kenni um vanskapnaði, en þau eru hluti af safni einkenna sem oft finnast hjá þeim einstaklingum er hlotið hafa fósturskaða af völdum áfengisneyslu mæðra á með- göngutíma. Gerðar hafa verið ýtarlegar rannsóknir á fósturskoðun hjá ýmsum tilraunadýrum sem voru látin neyta vínanda á meðgöngut- ímanum og finnst talsverð sam- svörun milli þess sem þar kom fram og athugana sem gerðar hafa verið á nýfæddum börnum í Ijósi áfengisneyslu mæðra þeirra á meðgöngutíma. Árið 1976 vart.d. gerð rannsókn við Boston City Hospital á áhrifum áfengisneyslu kvenna um með- göngutímann. Rannsakaðir voru 322 nýburar. Mæðrum þeirra var skipt í þrjá hópa: Þær sem drukku mikið (að meðaltali 174 g af vínanda á dag), þær sem drukku í hófi og þær sem drukku lítið um meðgöngutímann. Hópur mæð- ranna skiptist þá þannig: 13% drukku mikið, 40% drukku í hófi og 47% drukku sjaldan. Þær konur sem drukku sjaldan áfengi eignuðust í 65% tilfella al- veg eðlileg börn, en þær sem drukku mikið aðeins í 29% tilfella. Þau börn, sem höfðu líkamlegan og/eða andlegan vanþroska eða meðfæddan vanskapnað voru í lang flestum tilfellum börn þeirra mæðra er drukku mikið. Á meðan 12% barna þeirra mæðra, sem drukku mikið, fæddust vansköpuð, fæddust aðeins 3% og 2% van- sköpuð hjá hinum tveim hópunum. Það er hinsvegar athyglisvert að tölur um tíðni vanskapnaða voru tiltölulega líkar hjá þeim mæðrum er drukku í hófi og þeim sem drukku sjaldan. Á því kunna að vera ýmsar skýringar aðrar en neysla áfengis, en ef til vill er HUNANG veitir ljúfa lækningu á sárum KURÐLÆKNAR í Nígeríu hafa á árang- ursríkan hátt læknað sár með hungangi, segir í júlíblaði tíma- ritsins New Scientist. Spencer Efem, sem er yfirlæknir á kennslusjúkrahúsi við læknaskól- ann í Calabar hefur á síðustu þrem árum meðhöndlað 59 sjúkl- inga með hunangi. Þessir sjúkl- ingar höfðu opin sár, brunasár og legusár, þeir höfðu verið sendir til meðferðar af öðrum læknum þar sem venjuleg með- höndlun og meðferð með fúka- lyfjum, í allt að tvö ár, hafði ekki borið árangur. Efem tók grisjur af sárunum og lét í frumuræktun á rannsókn- arstofu, hann smurði sárin síðan með ómeðhöndluðu hunangi. Hunangið þurrkaði sýktu vefina en lét líkamanum eftir að lækna sárin. Efem segir að dauðir vefir og vefir sem í er komið drep aðskiljist smám saman frá hinum heilbrigðari vef, þannig að auð- velt sé að fjarlægja þá með töng (forceps) án þess að sjúklingur- inn finni fyrir sársauka, en undir. liggur svo heilbrigði vefurinn. Frumuræktun benti til að í sárunum væru sýklar eins og Pseudomonas pyocyanea sem oft er að finna í augnsýkingum og í þvagfæraleiðurum og Esc- herichia coli sem oft eru tengdir bólgum í þörmum. Þegar með- höndlað hafði verið með hunangi í viku, var þessa sýkla ekki leng- ur að finna í grisjum sem lágu við sárin. Undantekning var einn sjúklingur sem var með opið sár, en við ræktun reyndist þar vera Myobacterium ulcerans. Hunang er lítið eitt súrt og mjög seigt og dregur til sín vatn. Þessir eiginleikar gerir því mögu- legt að draga vökva frá sýktum vef, hreinsa sárið og verja það frá frekari sýkingu. Hunang inni- heldur einnig bakteríudrepandi efnið, inhibine.w Efem hefur sýnt fram á, fyrstur manna, aö hunang er hægt að nota til að fjarlægja dauða vefi frá sárum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.