Morgunblaðið - 04.09.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.09.1988, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1988 Á. Landssamtök sauðfjárbænda: Bráðabirgðalögum og álögum vegna úreldingarsjóðs sláturhúsa mótmælt Útflutningnr lifandi fjár verði kannaður Selfossi. AÐALFUNDUR Landssamtaka sauðfjárbænda, sem haldinn var á Flúðum 26.-27. ágúst, mót- mælti harðlega bráðabirgðalög- um rikisstjórnarinnar um stöðv- un verðlags. Bent var á að ef ekki verði tekið tiUit til hækkun- ar reksturskostnaðar búanna hljóti sauðfjárbændur að verða fyrir tvöfalt meiri kauplækkun en aðrir launþegar. Einnig var mótmælt harðlega tillögum um sérstakt gjald á kindakjöt til að fjármagna úreldingarsjóð slátur- húsa. í ályktun um bráðabirgðaiögin segir að bændur geri sér þess fulla grein að aðgerða sé þörf í efnahags- málum en þess sé krafist að álögum sé dreift réttlátlega á þegnana. Þannig haldi lögin gildi sínu greiði ríkissjóður þann hluta búvöruhækk- unarinnar sem ekki er launabund- inn. Frá fundi Landssamtaka sauðfjárbænda á Flúðum. Par sm tWJSMJ &■ KEMUSIMJ m usr Haustnámskeið hefst 12. september Síðast komust færri að en vildu. Jazz, modern, ballett og nýjasta nýtt, Jazz-funk. Námskeiðin eru fyrir byrjendur jafnt sem fram- haldsnema frá 5 ára aldri. Kennarar: Tracy Jackson frá N.Y. Bryndís Einarsdóttir Guðrún Helga Arnarsdóttir Sóley Jóhannsdóttir. Innritun er hafin f símum: 687701 og 687801 Pantaðu strax. HREYFING SF. ENGJATEIGI I, Jóhannes Kristjánsson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Morgunblaðið/Sig. Jóns. „Þessi fundur einkennist af þeirri stöðu sem komin er upp vegna óhóf- legra birgða og erfíðleika framund- an varðandi slátrun og fleira, nú og svo bráðabirgðalögin sem þegar eru skollin á,“ sagði Jóhannes Kristjánsson, formaður Landssam- taka sauðfjárbænda. Þeim tilmælum var beint til stjómar samtakanna að vinna að könnun á útflutningi lifandi fjár til slátrunar erlendis og reynt að fá úr því skorið hvort slíkur útflutning- ur skilaði hærra verði en útflutning- ur kjöts. Þá var skorað á stjómvöld að leita tilboða erlendis frá í allar fyrirliggjandi birgðir kindakjöts og losa það úr kjötgeymslum í haust. í umræðum var rætt um meðferð á kjöti eftir slátrun og bent á leiðir sem minnkað gætu geymslukostn- að, svo sem grófstykkjun kjöts eft- ir slátrun. í einni ályktun fundarins er bent á að verð á kindakjöti megi ekki hækka frá því sem nú er en fram- leiðendur verði að fá eðlilegar launahækkanir en þær náist ekki nema með lækkun annars kostnað- ar og niðurfellingu gjalda sem ekki varða afkomu sauðfjárbænda. Fundurinn mótmælti harðlega þeim tilögum að leggja sérstakt gjald á kindakjöt sem renna á í úreldingarsjóð sláturhúsa. Talið er fráleitt að verð á kindakjöti sé hækkað af þeim ástæðum og bend- ir fundurinn á að núverandi ástand sé að nokkru leyti afleiðing þeirrar framleiðslutakmörkunar sem tekin hefur verið upp. Fjölmargar aðrar ályktanir voru samþykktar á fundinum. Mótmælt var hugmyndum um virðisauka- skatt með einu skattþrepi á allar vörur. Nefndaráliti um skipulags- breytingar á félagskerfí bænda var vísað til stjómar og henni falið að vinna að frekari útfærslu á fram komnum hugmyndum. Skorað var á Framleiðnisjóð og ríkisvaldið að gefa öllum sauðfjárbændum kost á raunhæfum fækkunarsamningum í haust. Bent var á að fækkun slátur- húsa gæti verið varhugaverð, auk- inn flutningskostnaður lenti á bændum og vinna færi úr byggðar- lögum sem mörg hver standa höll- um fæti. Hvatt er til að komið verði á námskeiðum í meðferð kjöts, slát- urgerð og nýtingu sláturafurða. Stjómir félaga sauðfjárbænda era hvattar til að hvetja sláturleyfíshafa til öflugs sölustarfs á sínu svæði. Þá er í einni ályktuninni þeim til- mælum beint til stjómar samtak- anna að gerð verði könnun á því meðal ferðamanna hvaða verkun og matreiðsla kindakjöts þeim fínn- ist eiga best við íslenska dilkalqötið. í einni ályktuninni kemur fram að fundurinn treystir því að ríkis- stjóm íslands standi við ákvæði búvörulaga frá 1985 um að bændur fái afurðir sínar greiddar á þeim tíma sem lög mæla fyrir um. Skor- að er á stjóm samtakanna og Stétt- arsamband bænda að vinna að því að kröfur framleiðenda á hendur afurðastöðvum vegna innlagðra af- urða verði metnar í lögum sem for- gangskröfur. í lok fundarins var Johannes Kristjánsson endurkjörinn formað- ur samtakanna. Sig. Jóns. Viltu fá fréttir úr Borgarfiröi? Blaðið Borgfirðingur hóf göngu sína í desember 1987 og kem- ur út tvisvar í mánuði. Það er eina blaðið sem er gefið út reglulega í Borgarfirði. Meðal efnis má nefna: Greinar, fréttir úr héraði, leiðara, vísna- |)átt, verkalýðsmál, íþróttir, ferðaþætti og viðtöl. Áskriftargjald fyrir áriÓ 1988 er kr. 800,- Undirrit-----vill gerast áskrifandi að blaðinu Borgfirðingi. Ég vil fá blaðið frá upphafi-----Frá 13. tölublaði------ Nafn....................................................... Heimili.................................................... Póstnúmer.................................................. Sendist til: Borgfirðingur, Dílahæð 1, 310 Borgarnesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.