Morgunblaðið - 04.09.1988, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 04.09.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1988 B 35 Lifi hörkutólin Eru harðjaxlar hvíta tjaldsins í útrýmingarhættu? Sá virðist boðskapur bíómyndasumarsins í Bandaríkjunum. Metsöluhetjan er Tom Hariks í hlutverki of- vaxins 13 ára stráks sem hefur gaman af leikföngum (,,Big“) en ekki Sylvester Stallone í Rambo III. Hið óendanlega elskulega Ijúfmenni Krókódíla-Dundee og teiknimyndahetjan Robbi kanína heilla fólk uppúr skónum og það gerir raunar Eddie Murphy í nýj- ustu myndinni sinni, sætur og elskulegur. Er nema von aö menn spyrji, hvar eru hörkutól- in? Ekki langt undan. Maður skyldi ekki afskrifa kappa eins og Bruce Willis svo glatt. Hvað þá Clint Eastwood. „Die Hard" er hasarmynd Willis og hún hef- ur notið mikilla vinsælda enda víst ekki um annað en gengdar- lausa spennu að ræða og röð hápunkta sem taka hverjum öðrum fram. Willis leikur New York-löggu sem flýgur yfir til Los Angeles á aðfangadagskvöld til að heim- sækja fráskilda eiginkonu sína. Hún er yfirmaður hjá risafyrir- tæki sem hefur aðsetur í glans- andi, nýtísku skýjaklúfri. Willis er svo óheppinn að líta þar inn að hitta fyrrum elskuna sína sama .kvöldið og hópur hryöju- verkamanna nær byggingunni á sitt vald. Getur ein vopnlaus lögga ráðið niðurlögum þjálf- aðra og þungvopnaðra hryðju- verkamanna? Bíddu, er þetta spurning? Leikstjóri er John McTiernan sem stjórnaði Arnold Schwarz- enegger í„Predator“ og hand- ritshöfundarnir eru Jeb Stuart og Steven E. de Souze sem mjólka hvern dropa spennu, hasars og húmors úr glæfraleg- um aðstæðunum. Willis er sennilega óvinsælasti leikarinn sem nokkurntíman hefur fengið fimm milljónir dollara fyrir mynd (fyrri bíómyndir hans hafa ekki gert það gott). í „The Dead Pool“ eigum við eftir að hitta Harry gamla sóða aftur í marmaramynd Clint East- woods. Það er ekki brosunum fyrir að fara frekar en fyrri dag- inn en í þessari fimmtu mynd um hetjuna Dirty Harry fæst Eastwood við að upplýsa röð morða sem leiða hann til þriðja- flokks hryllingsmyndaleikstjóra er írski leikarinn Liam Neeson leikur (sá fer víða). Morðinginn hefur þegar drep- ið rokkstjörnu, sjónvarpsþátta- stjórnanda og kvikmyndagagn- rýnanda og Harry vinur okkar er næstur á lista morðingjans. Það er að segja ef mafían nær honum ekki á undan. Leikstjóri er Buddy Van Horn og í Time sagði að líklega væri „The Dead Pool" besta myndin sem maður að nafni Buddy hefði gert. að gera „River's Edge“ og Örvæningarfull leit að Susan. Þau studdu hann til ráða og dáða. Það sem Sayles þurfti til að geta gert myndina, þ.e. fá menn til að leggja fjármagn í hana, var að laða til sín eftir- sóttar stjörnur sem tilbúnar væru að vinna fyrir lámarks- laun. Það eina sem hann gat boðið leikurunum var tækifæ- rið til að þykjast vera meirihátt- ar hornaboltamaður í heims- meistarakeppni. Charlie Sheen var sá fyrsti sem beit á agnið. Sem barn hafði hann dreymt um að vera í fremstu röð í íþróttinni og hann hafði ennþá mikinn áhuga á hornaboltanum. D.B Sweeney („Gardens of Stone"), góðvinur Sheens, fékk líka áhuga. „Þetta er auð- vitað frábær saga og mig lang- aði verulega til að vinna með John Sayles," segir hann. „En það sem höfðaði mest til mín var hornaboltinn." Hann hafði hug á að gerast atvinnumaður í hornabolta í háskóla. „Eina ástæðan fyrir því að ég endaði sem leikari var að ég meidd- ist.“ Með stjörnurnar á samningi gat Sayles lokkað til sín pen- ingamenn og gert samning við dreifingafyrirtæki. Hann end- aði með 6,5 milljón dollara fjár- hagsáætlun, sem er lítill pen- ingur í Hollywood en mikill samanborið við aðrar myndir Sayles. Hann hefur ávallt starf- að á sjálfs síns vegum og gert þær myndir sem hann hefur mest langað að gera. En búningamyndir eins og þessi eru dýrar og stórar hóps- enur voru kostnaðarsamar. Kvikmyndatakan fór fram síðasta haust í Cincinnatti og Indianapolis og tók níu vikur. Sayles skilaði myndinni á áætl- un. „Það var erfitt," segir liann. „Þetta var eins og partý," segir Sheen. Sheen fannst erfiðast að lýsa persónu sinni sem hvorki fégráðugum spilara né engli. „Það, sem kom mér svo á óvart," segirhann, „ersakleysi þeirra þegar þeir þágu múturn- ar. Þeir litu á það sem venju- lega kaupsýslu. Við reyndum ekki að réttlæta gjörðir þeirra, við vildum aðeins veita innsýn inní hvers vegna þeir gerðu það.“ TILBOÐ ÓSKAST í Chevrolet Blazer S-10, árgerð ’85, 2 W/D (ekinn 28 þús. mílur) og Nissan Kingcab P/U 4x4, árgerð ’85 (ekinn 41 þús. mílur), ásamt öðrum bifreiðum er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 6. september kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. SALA VARNARLIÐSEIGNA Haustnámskeið hefst 12. september Það er staðreynd að alvöru líkamsþjálfun sem skilar fögrum vexti verður aldrei iétt. Við hjá Dansstúdíói Sóleyjar getum hins vegar lofað því að hjá okkur verður hún skemmtileg og hressandi. Bjargey Eldhressir púltímar, 16 ára til 30 ára. Auk þessa verður Ásta Vala með ráðgjöf Púltími fyrir stráka. um mat og mataræði. Árný Teygjur og þrek eftir vinnu. Framhaldshöpar. Birna Teygjur og þrek í hádeginu og eftir hádegi. Ásta Vala sjúkraþjálfi verður með létta og góða leikfimi fyrir barnshafandi konur og konur með börn a brjósti.. Innritun í símum: 687701 og 687801 Pantaðu strax. - , s<öi t v j if *4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.