Morgunblaðið - 04.09.1988, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1988
B 19
Þessir krakkar eru Sigríður, Svanhvít, Lilja, Ragnheiður, Þórunn,
Einar og Jakob. Þau héldu hlutaveltu og gáfu ágóðann í Eþíópíu-
söfnun Rauða krossins, en hann var um 1.200 krónur.
Bandaríkin:
32 flugfélög sektuð fyrir
vankanta á öryggisgæslu
Washington. Reuter.
Bandaríkjastjórn sektaði á
fimmtudag 32 flugfélög fyrir
vankanta á öryggisgæslu eftir
að leynilögreglumenn höfðu
komist í gegnum vopnaleitartæki
með eftirlíkingar að vopnum.
Flugfélögin þurfa að greiða rúm-
lega eina milljón dala alls, um
46 milljónir ísl. kr.
Flugfélagið United Airlines þarf
að greiða stærstu sektina, um
215.000 dali (9,9 milljónir ísl. kr),
vegna 26 meintra brota. Northwest
Airlines fær 156.000 dala sekt (7,1
milljón ísl. kr.), fyrir 21 brot, og
Delta Airlines 113.000 dala (5,2
millj. ísl kr.), fyrir 23 brot.
Samkvæmt bandarískum lögum
ber flugfélögum að leita að vopnum
á farþegum og í handfarangri
þeirra. „Starfsmönnum flugfélag-
anna tókst ekki að finna hluti sem
ekki voru vopn en ættu að hafa
fundist í vopnaleitartækjunum,"
segir í yfirlýsingu frá bandaríska
samgönguráðuneytinu. Þar segir
ennfremur að leynilögreglumenn
hafi falið vopnaeftirlíkingamar á
sér eða í farangri sínum til að kanna
hvort bandarískum lögum um ör-
yggisgæslu sé fylgt.
... maður getur alltaf á sig blómum bætt
Við óskum Ragnhildi og Jakobi til hamingju með DVALARHEIMILI sitt á sýningunni „Veröld '88„.
W puwAwue DuAnónq