Alþýðublaðið - 19.10.1920, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 19.10.1920, Qupperneq 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ K@ iör w við kosningu 6. nóv. 1920, á einum bæjarfulltrúa og 8 mönnu í niðurjöfnunarnefnd, liggur frammi, al- menningi til sýnis, á skrifstofu bæjargjaldkera í slökkvistöðinni, frá 19. október til 2. nóvember, að báðum dögum meðtöldum. — JK ærur um að nokkur sé oftalinn eða vantalinn á kjör- skránni skal senda kjörstjórninni ekki seinna en þriðjudag 2. nóvember. Borgarsljórinn í Rej'kjavík 18. ókt. 1920. K. Zimsen. fer til Borgarness miðvikudag 20. október klukkan 8 árdegis. ifogaæ andinn. Amerisk /andnemasaga. (Framh.) Lesarinn má ekki halda, að Öskur-Hrólfur hafi í raun og veru verið sá angurgap’, sem hann Iést vera. Fíflalæti hans og grobb var að eins gríma, sem var eina ráð hans, tii þess að leiða at- hygli manna að sér og losna þannig við fyrirlitninguna, sem hann óhjákvæmilega hefði annars orðið að þola, vegna þess hve durgslegur hann var í klæðaburði og óheiðarlegur til orðs og at- hæfis. „Nathan blóðugi“, sagði hann, þegar hann hætti hnegginu og stökkdansinum, „ef þú hugsar nokkurn tíman um endalok æfi þinnar, þá hefurðu fulla ástæðu til þess núna. Kastaðu birðinni, því eg get engu rent niður, með- an hjartarhár loða við það“. „Vinur“, mælti Nathan blóðugi í blíðum bænarrómi, „lof mér að fara leiðar minnar. Eg er frið- samur maður". Að svo mæltu ætlaði hann að halda áfram; en Hrólfur aftraði honum, tók annari hendi í skinna- baggan og sparkaði í hann hægri fæti, svo hann þaut hátt í loft upp, en skráþur skinnin tyfstruð- ust í allar áttir, svo áhorfendurnir ráku upp skellihlátur. „Vinur“, mælti Nathan, sem tók þessu með mestu rósemi, „hvað vilt þú mér, fyrst þú leik- ur mig svona?" „Berjast við þig!“ öskraði Hrólfur og iaust upp herópi. „Þá kemur þú í geitnahús að leita ullar", mælti Nathan, „lát þú mig í friði fara leiðar minnar". „Ha?" æpti foringi hestaþjóf- anna, þandi út nasirn&r og skældi sig allan eins og hann væri bál- reiður. „Það er sagt um þig, að þú álítir það gagnstætt skyldu þinni og samvisku að drepa rauðskinnana. Þú hliðrar þér hjá, að verja konur og börn fyrir rauðu þorpurunum. Og hvers vegna? Vegna þess, að þú ert friðarins maður, en ekki stríðsins. — K'oflacgi, heimski þrjótur 1 En eg er staðráðinn í, að gera mann úr þér! Kastaðu byssunni og — eg skal reka ragmenskuna úr þér“. „Vinur“, mælti Nathan, og virtist auðmýkt hans verða að fyrirlitningu, „þú ert sjálfur rag- geit, annars mundir þú ekki ráð- ast að manni, sem þú veist vel, að getur ekki barist við þig. Þú mundir ekki svona gleiður, ef þú ættir við þér jafnsnjallan mann". Meðan hann sagði síðustu orð- in, laut hann niður til þess, að tína upp skinnin, en Hrólfur, sem nú var orðinn að athlægi, þreif í herðar han9, sneri honum við og lét sem hann ætlaði að berja hann. Hinn friðsami Nathan þoldi þetta jafnvel, án þess að róta sér; en hann misti þolinmæðma, þegar Hrólfur snéri sér að hundi hans, sem reyndi . að hjálpa húsbónda sínum með því að urra, og spark- aði svo hranalega í hann, að hépni hentist burtu og Iá ýlfrandi þar sem hann kom niður. Eínar Helgason garðyrkjustjórí verður til viðtals um garðyrkju- mál á Eyrarbakka og Stokkseyri vikuna 25.—31. þ. m. — Funda- höld um sama efni, nánar aug- lýst þar eystra. Reykiavík 16. okt. 1920. Hannes Thorsteinson, Tækifserislsiort og heillaóskabréf, er þér sendið vinum og kunningjum, fá- ið þér fallegust og ódýrust á Laugaveg 43 B. Friðfinnur Guðjónsson. Verzlunin Hlíí á Hverfisgötu 56 A selur lxreinlsstisvör- ur, svo sem: Sólskinssápu, R.S. sápu, þvottaduft í pökkum og lausri vigt, sápuspæni, sóda og Iínbláma, »Skurepulver« í pökk- um af þremur stærðum, fægidult, ofnsvertu, skósvertu og góðar ert ódýrar handsápur. — Athugið, að nú er ekki nema Htið orðið eftif af riðblettameðalinu góða.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.