Morgunblaðið - 02.10.1988, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1988
Eyðnirannsóknir:
Fjórir Islending-
ar fa nú AZT-lyfið
Rætt er um að gefa það einnig sjúkl-
ingum sem eru án einkenna
FJÓRIR Islendingar sem haldnir eru eyðni-sjúkdómnum á lokastigi
fa nú AZT-lyfið. Er þetta liður í rannsókn á Norðurlöndunum til
að kanna áhrif lyfsins í að halda sjúkdómnum i skeQum. Rannsókn
þessi hófst í febrúar s.I. og taka 200 eyðnisjúklingar á öilum Norður-
löndunum þátt í henni.
Sigurður Guðmundsson læknir
hefur stjómað rannsókn þessari hér
á landi. Hann segir að fullsnemmt
sé enn að meta árangur af henni
en lyfið sé aðeins gefið sjúklingum
með sjúkdóminn á lokastigi. Nú sé
hinsvegar verið að ræða um að
gefa það einnig sjúklingum sem
hafa sjúkdóminn en eru einkenna-
lausir. Mun ákvörðun um slíkt verða
tekin á næstu mánuðum.
Vitað er að AZT-lyfið hefur mikl-
ar aukaverkanir í för með sér en
það er eina lyfið sem haldið getur
sjúkdóminum í skeQum. í rannsókn-
inni er lyfið gefið í þremur mismun-
andi stómm skömmtum til að finna
út hvaða magn þess hefur mesta
verkun með minnstu aukaverkun-
um. Um svokallaða tvíblinda rann-
sókn er að ræða, það er hvorki
læknar eða sjúklingar vita hve
skammturinn er stór í hveiju til-
felli en þetta mun þekkt aðferð til
að kanna áhrif lyfja.
„Við viljum vita hvort hægt er
að gefa lyfíð í minni skömmtum en
gert hefur verið og draga þannig
úr aukaverkunum," segir Sigurður.
Sérstök nefnd fylgist með rann-
sókninni og það er hún sem ákveð-
ur hvenær næg vitneskja er fyrir
hendi til að stöðva hana. Hún getur
einnig stöðvað rannsóknina ef
aukaverkanir verða of miklar.
Sem fyrr segir er lyfíð aðeins
gefið sjúklingum með eyðni á loka-
stigi. Sigurður segir að einhvem
tíman fyrir jólin sé ætlunin að gefa
lyfið einnig þeim sjúklingum sem
hafa eyðni en em einkennalausir.
Hraðfrystihús Patreksfiarðar:
Fastaráðnu starfe-
fólki sagt upp
STARFSFÓLKI í Hraðfrystihúsi PatreksQarðar hefúr verið sagt upp
fastráðningarsamningum, en þar er um að ræða 30 tíl 40 manns.
Astæðan fyrir uppsögnunum er sú að stjórn Hraðfrystihússins telur
hagkvæmara að láta skip I eigu þess sigla með aflann erlendis, eða
selja hann á fiskmörkuðum innanlands, heldur en að vinna hann
heima fyrir. Hraðfrystíhús PatreksíQarðar gerir út einn togara og
einn togbát.
Sigurður Viggósson, stjómar-
formaður Hraðfrystihúss Patreks-
flarðar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að öllum fastráðningarsamn-
ingum starfsfólks hafí verið sagt
upp frá og með deginum í gær, en
uppsagnarfrestur á fastráðningar-
samningunum er 4 vikur.
„Eins og staðan er í dag þá hef-
ur það sýnt sig að því fylgir minna
tap að láta skipin sigla með aflann,
eða selja hann á fiskmörkuðunum
fyrir sunnan, heldur en að vinna
hann hér heima í frystingu. Þessi
fsafiörður:
*
Ulfur Gunnarsson
yfirlæknir látinn
ÚLFUR Gunnarsson fyrrverandi
yfirlæknir Fjórðungssjúkrahúss-
ins á ísafírði lést síðstliðinn
fimmtudag á heimili dóttur
sinnar i Suður-Englandi. Hann
varð tæpra 69 ára, fæddur 12.
nóvember 1919. Úlfúr fæddist á
Friðriksbergi í Kaupmannahöfn,
sonur Gunnars Gunnarssonar rit-
höfúndar og konu hans, Franz-
iscu.
Hann varð stúdent frá Birkeröds
Statsskole í Danmörku, en las síðan
læknisfræði í Þýzkalandi 1939—
1945. Kom þá til íslands og lauk
cand.med.-prófi frá Háskóla Islands
1947. Hóf störf sem yfírlæknir við
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði
1954 og starfaði þar óslitið síðan
en lét af störfum yfirlæknis fyrir
fáum árum.
Úlfur var vararæðismaður sam-
bandslýðveldisins Þýskalands á
ísafírði frá 1961. Kjörinn heiðurs-
borgari ísafjarðar 1984, þá 65 ára
en þá átti hann jafnframt 35 ára
starfsafrnæli við sjúkrahúsið. Eftir-
lifandi kona hans er Benedikta frá
Rostock í Þýskalandi. Böm þeirra
eru Katharina búsett í Englandi,
Úlfúr Gunnarsson
Birgir sölustjóri hjá Pólstækni hf.
f Reykjavík, Gunnar Martin auglýs-
ingateiknari í Reykjavík og Kristín
skíðakennari á Siglufirði.
Úlfur vann á langri starfsæsvi
Qölda erfiðra læknisverka við erfið-
ar aðstæður og undir miklu álagi.
- Úlfar
staða mála hefur raunar verið með
þessum hætti í rúmt eitt ár, en við
eins og aðrir höfum sífellt verið að
bíða eftir að eitthvað verði að gert.
Nú ákváðum við hins vegar að láta
staðar numið, því frystingin er rek-
in með það miklu tapi í dag, að við
getum raunverulega ekki varist
lengur. Við verðum að fá plústölu
út úr rekstrinum, og eini möguleik-
inn á því núna virðist vera með
ísfisksölu," sagði Sigurður Viggós-
son.
Áhöfnin á frystitogaranum Örvari.
Skagaströnd:
Fiskar fyrir 1,3 miUj. á sólarhring
Frystítogarinn Örvar kom inn
úr sinni 14. veiðiferð á árinu nú
á miðvikudagsmorgun. Afli Órv-
ars upp úr sjó á þessu ári er nú
orðinn 4.700 tonn en aflaverð-
mætíð 305 milfjónir. Úthalds-
dagar Órvars eru orðnir 234
þannig að aflinn á sólarhring er
rúm 20 tonn að meðaltali og
aflaverðmætið um 1,3 milfjónir
á sólarhring.
Er þetta í fyrsta sinn sem Örvar
fiskar fyrir meira en 300 milljónir
á ári og má til samanburðar geta
þess að alit árið í fyrra fiskaðist
fyrir 265 milljónir. Ætla má að
aflaverðmæti Orvars á öllu árinu í
ár geti farið upp undir 400 milljón-
ir ef ekki þarf að stoppa vegna
kvótaleysis eða bilana.
í tilefni þessa 300 milljóna
áfanga gerði áhöftiin sér glaðan
dag og fór saman út að borða
ásamt mökum sfnum. í áhöfninni
eru 24 menn en næm lætur að ein
og hálf áhöfn sé á Örvari þar sem
alltaf eru einhveijir í fríi. - ÓB
Verkíræðifyrirtækið Víkingur stofnað:
Ætlar að taka þátt í
smíði og rekstri IADS
STOFNAÐ hefúr verið verkfræði-
fyrirtækið Víkingur. Meginmark-
mið þess er að tryggja íslenskum
fyrirtækjum sem mesta þátttöku
í þróun og uppsetningu á IADS
(íslenska loftvamakerfinu). Auk
þess er ætlunin að annast viðhald
á kerfinu eftír að uppsetningu
þess er lokið og kerfið hefúr ver-
ið tekið í notkun.
Stofnendur Víkings eru Teleplan
í Ósló, Rafhönnun hf., Verk og kerf-
isfræðistofan hf., Tölvumyndir hf.,
Artek hf., Örtölvutækni og Samvirki
hf. Alls hafa þessi fyrirtæki á að
skipa um 200 starfsmönnum.
Daði Ágústsson stjómarformaður
Víkings segir að fyrirtækið hafí ver-
ið stofnað í framhaldi af viðleitni
Þróunarfélagsins og Félags íslenskra
iðnrekenda til að stofna sérstakt fé-
lag til að annast uppsetningu og við-
hald IADS-búnaðarins. Náin sam-
vinna hafi verið höfð við Þróunarfé-
lagið og Víkingur hafi þegar átt við-
ræður við þá aðila sem líklega verða
aðalverktakar svo sem Harris, Lit-
ton, Boeing, Lockheed, Hughes, ITT
og fleiri.
„Við höfum boðið þessum aðilum
þjónustu okkar en hún nær til verka
sem vinna þarf hérlendis auk þátt-
töku í þróunarvinnu erlendis," segir
Daði. I útboðsgögnum fyrir IADS
sem send voru út fyrir nokkm er
ákvæði þess efnis að íslenskum aðil-
um sé gefinn kostur á að vera með
sem undirverktakar og er kerfið
verður fúllbyggt munu fslendingar
alfarið sjá um viðhald þess og rekst-
ur. Reiknað er með að við þetta verk
vinni 20-40 menn.
„f viðræðum okkar við hugsanlega
aðalverktaka hafa þeir sýnt mikinn
áhuga á þátttöku íslendinga í þróun
og uppbyggingu kerfísins. Þetta þýð-
ir í raun að íslenskir fagmenn og
tæknimenn munu fá starfsþjálfun í
þeim löndum sem kerfið verður
smíðað," segir Daði.
í máli hans kemur fram að um
mikið hagsmunamál sé að ræða fyrir
íslenskan hátækniiðnað. Þetta muni
verða lyftistöng fyrir tölvuiðnaðinn
einkum vegna þess að viðkomandi
starfsmenn muni koma hingað með
reynslu og þekkingu úr hátæknilegu
umhverfí stórfyrirtælqa.
í stofnsamningi Víkings er ákvæði
um að allir stofnendur þess skuld-
binda sig til að afsala sér forkaups-
KRON á nú eða rekur 10 verslan-
ir á höfuðborgarsvæðinu. Ilelm-
ingur þeirra er af miðlungsstærð
eða stærri og helmingur er litíar
hverfáverslanir. Eftír að KRON
tók JL-húsið á leigu eru þessar
verslanir auk JL, Mikligarður,
Kaupstaður, Miðvangur, Kaup-
garður og Eddufell. Við þetta
bætast svo þijár litlar hverfaversl-
anir í Reykjavík og tvær í Hafiiar-
firði.
Þröstur Ólafsson stjómarformað-
ur KRON segir hvað leiguna á JL-
húsinu varðar að þeir hafi verið í
sambandi við forráðamenn JL nokkru
áður en húsinu var lokað. Hann vill
að öðru leyti ekki tjá sig um hvemig
leigu þeirra á húsinu bar að.
Af fyrrgreindum verslunum á
KRON þær allar utan Miklagarðs
þar sem eignarhlutur KRON er 52%.
Aðspurður um samstarfið við hinn
eignaraðilann segir Þröstur að þeir
hafi ákveðið að fara hægt í sakimar
en segja megi að málin séu sífellt
að nálgast það sem þeir stefndu að.
„Helstu ljónin í veginum eru hve
langur timi líður frá ákvörðunum til
þess að niðurstöður fáist," segir
Þröstur. „Við ákváðum strax að taka
tillit til mannlega þáttarins í verslun-
inni, það er að vinna með fólkinu en
ekki gegn því. Því var ákveðið að
fara ekki uppsagnaleiðina þótt hún
hefði kannski leitt til þess að við
rétti á viðbótarhlutafé sem Þróunar-
félaginu er gefinn kostur á að kaupa.
Með þessu móti á að tryggja að sem
flest önnur hugbúnaðarfyrirtæki geti
fengið aðild að Víkingi gegnum Þró-
unarfélagið.
næðum markmiðum okkar fyrr í
hagræðingu á rekstrinum," segir
Þröstur.
Fundursam-
taka krabba-
meinssjúklinga
og aðstand-
endaþeirra
„STYRKUR", samtök
krabbameinssjúklinga og að-
standenda þeirra, heldur
fyrsta fúnd komandi vetrar
mánudaginn 3. október nk.
klukkan 20.00.
Fyrirhugað er að koma sam-
an í húsi Krabbameinsfélagsins
í Skógarhlíð 8 og fara f létta
gönguferð (ca. 30 mín.) í Öskju-
hlíðinni. Síðan er boðið upp á
hressingu í Skógarhlíðinni.
Hermann Ragnar Stefánsson
segir frá ferð sinni til Bristol á
Bretlandi, þar sem hann kynnti
sér starfsemi Cancer Help
Center sem er heilsustöð
krabbameinssjúklinga og að-
standenda þeirrá. Hann svarar
fyrirspumum á eftir.
Ef veðurguðimir koma í veg
fyrir gönguferð er ætlunin að
spila félagsvist.
(Fréttatilkynning)
KRON rekur nú
ellefu verslanir