Morgunblaðið - 02.10.1988, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1988
STARFS - OG NÁMSRÁÐGJÖF
Hulda, ritari I Ábendi, tekur á móti viðskiptavinum.
MorgunMaðið/Svemr
Ert þú á réttri hillu?
Það er örlagarík ákvörðun að ve(ja sér framtíðarstarf og það
skiptir meginmáli fyrir hvern einstakling að sú ákvörðun sé tek-
in að vel athuguðu máli. Á þessu er þó oft misbrestur, framtí-
ðarstarf margra ræðst af tilvilj un eða af áhrifagirni viðkomandi
einstaklings sem fylgir félögum sínum i námi eða fetar í fótspor
foreldranna án þess að leiða hugann að öðrum möguleikum.
egar fólk tekur
ákvörðun um framtí-
ðarstarf, er það að
leggja homstein að
lífshamingju sinni. Ef
fólk er óánægt f starfi sfnu er það
f mörgum tilfellum einnig óánægt
fyrir utan vinnutímann og það
bitnar þá helst á þeim sem síst
skyldi, fjölskyldunni. Það er því
grundvallaratriði að vanda valið
en það getur reynst erfitt fyrir
marga sem eru óákveðnir og hafa
ekki hugmynd um hvaða nám eða
starf muni henta þeim best, þ.e.
hvar hæfileikar og áhugi fari best
saman.
Forsenda þess að geta valið sér
framtíðarstarf er að þekkja sjálf-
an sig og þarfir sínar. Ekld er
nóg að hugsa einungis um tekju-
möguleikana þó að það atriði
skipti auðvitað miklu máli. Hver
og einn hlýtur að þurfa að hafa
mikinn áhuga á því sem hann er
að fást við dags daglega.
Á síðustu árum hafa fáeinar
ráðgjafarþjónustur skotið upp
kollinum hérlendis. Blaðamaður
hafði áhuga á að kynna sér þessa
þjónustu og brá sér því f ráðning-
ar- og ráðgjafarþjónustuna
Ábendi sf. sem hefur starfsemi
bæði í Reykjavfk og á Akureyri.
Starfsemi þessa fyrirtækis er
tvíþætt, þ.e. annars vegar ráðn-
ingarþjónusta fyrir einstaklinga
og fyrirtæki og hins vegar náms-
og starfsráðgjöf fyrir einstaklinga
sem vilja leita sér aðstoðar við
val á starfi eða námi.
I Ábendi hitti blaðamaður fyrir
þær Ágústu Gunnarsdóttur sál-
fræðing og Nönnu Christiansen
ráðgjafa. Þær höfðu frá ýmsu
fróðlegu að segja hvað varðar
ráðgjafarþjónustuna.
Það geta verið margar ástæður
til að leita sér aðstoðar, t.d. ef
maður er orðinn leiður á náminu
eða starfinu og hefur það á tilfinn-
ingunni að eitthvað annað henti
betur án þess þó að gera sér grein
fyrir því hvað það er. Einnig er
gott að leita sér aðstoðar ef mað-
ur stendur á tímamótum f lífi sfnu
og þarf að taka ákvörðun um
náms- eða starfsval sem á eftir
að hafa veruleg áhrif á lff manns
í framtíðinni. I þessu sambandi
getur einnig verið gott að fá stað-
festingu á því að maður hafi valið
rétt ef maður hefur þegar tekið
ákvörðun.
Óákveðni og rangt starfs- eða
námsval getur kostað einstakling-
inn bæði tíma og peninga. Einnig
má benda á þann aukakostnað
sem ríkiskassinn stendur straum
af í formi námslána og annarra
styrlga.
Ráðgjafarþjónusta Ábendis
byggist fyrst og fremst upp á
prófi sem hefur verið þróað í Stan-
ford-háskólanum f Bandaríkjun-
um en það tekur mið af rannsókn-
um sem hafa staðið samfleytt í
60 ár. Rannsóknimar fóru m.a.
fram í háskólanum í Minnesota f
Bandaríkjunum en þær hófust
árið 1927 þegar byijað var að
aðstoða ungt fólk við starfsval og
sfðan þá hefur sffelld þróun verið
í gangi. Það var Dr. Sölvfna Konr-
áðs sem þýddi þetta próf og staðl-
aði fyrir íslenskar aðstæður.
Um er að ræða 325 spumingar
sem viðskiptavinurinn svarar en
þær varða áhuga manns á ýmsum
störfum, námi, manngerðum,
tómstundum og fleim. Svör hvers
og eins em síðan borin saman við
svör samanburðarhópa úr 106
starfsgreinum.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að
fólk í sömu starfsgrein hefur svip-
að áhugasvið þrátt fyrir að um
ólíkar manngerðir sé að ræða.
T.d. hafa góðir ritarar oft sömu
áhugamál sem em aftur á móti
gjörólík áhugamálum annarra
starfshópa t.d. líffræðinga. Hins
vegar þarf fólk ekki að hafe svip-
uð áhugamál þótt það vinni á
sama vinnustað. Hjúkmnarfræð-
ingar hafa til að mynda yfirleitt
ekki lfkt áhugasvið og læknar.
Starfshópamir sem em hafðir
til viðmiðunar standa saman af
fólki sem hefur unnið a.m.k. f
þijú ár við tiltekna starfsgrein,
er ánægt í sínu starfi og fær góða
umsögn frá vinnuveitanda sfnum.
Niðurstaða prófsins sýnir einfald-
lega hvaða starfshópum maður
líkist mest, þ.e. hvort maður hafi
svipað eða ólíkt áhugasvið og hin-
ir ýmsu samanburðarhópar. Þetta
er semsagt áhugasviðskönnun en
er ekki mælikvarði á hæfileika
hvers og eins.
Blaðamaður hætti á að gangast
undir prófið hjá Ágústu og hafði
gaman af. Spumingamar em af
ýmsu tagi og varða áhuga manns
á hinum og þessum málefnum.
Best er að svara þeim fijótt og
án þess að hugsa sig lengi um.
Þeim er svarað á tölvu og að því
loknu em svörin borin saman við
svör samanburðarhópanna. Þegar
niðurstaðan er komin í ljós, er
næsta skref að mæta í viðtal hjá
Agústu sálfræðingi sem sér um
að túlka niðurstöðumar fyrir
mann og útskýra hvert og eitt
atriði.
Ágústa nefodi nokkur dæmi um
fólk sem gæti haft gagn af því
að notfæra sér þessa þjónustu.
Fyrst má nefoa nemendur sem
hafa lokið gmnnskóla og þurfa
að taka ákvörðun um áframhald-
andi nám. Þá getur verið gott
fyrir framhaldsskólanemendur að
fá ráðgjöf þegar velja á svið eða
deild því þeir em þar með að
marka ákveðna stefou í námi sfnu
sem æskilegt væri að fylgja í
framtíðinni. Síðan er það háskóla-
fólkið sem oft á tíðum er mjög
óákveðið og „rokkar milli deilda"
eins og það er kallað. HÚsmæður
sem em að fara út á vinnumark-
aðinn eftir margra ára starf heima
við gætu einnig fengið góð ráð
og jafovel ellilífeyrisþegar sem
hafa orðið að hætta störfum og
langar að finna sér tómstunda-
gaman við hæfi.
Blaðamaðurinn gekk sæll og
glaður út frá þeim stöllum og
hafði fengið staðfestingu á því að
hann væri á réttri hillu og hefði
valið sér rétta námsgrein f háskó-
lanum sem hann var þó forinn
að efast um á tímabili. Niðurstöð-
ur prófsins em þó engar alhæfíng-
ar heldur benda á nokkra mögu-
leika og geta gefið góðar hug-
myndir. Slfkt getur verið nyög
gagnlegt fyrir fólk sem getur ekki
tekið ákvörðun um hvað það vill
læra eða er óánægt í starfí og
hefor áhuga á að breyta til.
Texti: Dagmar Sigurðardóttir
YOGASTÖÐIN
HEILSUBÓT
AUGLÝSIRI
Konur og karlar
athugið!
Nýtt námskeið hefst eftir 3. október. Mjög góð
alhliða leikfimi (teygjur, styrkur, öndun, slökun).
Byrjenda-, morgun-, dag- og kvöldtímar. Ljósa-
lampar.
Visa- og Eurokortaþjónusta.
Yogastööin Heilsubót,
Hátúni 6a, sími: 27710.
Yeggskápasamstæður
; $ p n-
i pÉ |ii|
frá Finnlandi.
Bæsuð eik
Verð kr.
64.500.
HUSGOGN OG
INNRFTTINGAR
S.UÐURLAND:
68 69 00