Morgunblaðið - 02.10.1988, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 2. OKTÓBER 1988
29
24 nemendur í starfs-
þjálfun fatlaðra
STARFSÞJÁLFUN fatlaðra hóf einnig frammi eyðublöð til umsókn-
annað starfsár sitt, í núverandi ar um skólavist.
mynd, í byrjun september. Haust- Starfsþjálfun fatlaðra er til húsa
ið 1987 hófii 13 nemendur nám á efstu hæð í Hátuni löa, þar sem
í starfsþjálfuninni, um áramót Öryrkjabandalagið hefur látið inn-
bættist annar hópur við og nú rétta húsakynni fyrir starfsemina.
stunda alls 24 nemendur þar (Fréttatilkynning)
nám.
BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG
HEKIAHF
Laugavegi 170-172 Simi 695500 695.000
Utan reglubundna námsins voru
í sumar haldin námskeið, þar sem
boðið var uppá tölvukynningu fyrir
byijendur og voru þau mjög vel sótt.
Fyrsti nemendahópurinn mun
útskrifast um næstu áramót, eftir
þriggja anna nám. Síðasta önnin
verður meðal annars notuð til náms-
og starfskynningar.
í janúar 1989 verður tekinn inn
nýr hópur nemenda og er innritun
í þann hóp nú að hefjast. Umsókn-
arfrestur er til 1. nóvember nk.
í sumar gaf félagsmálaráðuneyt-
ið út kynningarbækling um Starfs-
þjálfun fatlaðra þar sem m.a. má
finna upplýsingar um aðdraganda
hennar, tilgang og markmið,
kennslugreinar og skipan námsins.
Bækling þennan má meðal annars
fá hjá Svæðisstjómum um málefni
fatiaðra um allt land, þar liggja
Morg-unfundur
V erslunarráðsins:
Hvað er
framund-
an í at-
vinnulifínu
Atvinnulífið á í vök að veijast
um þessar mundir og nú er verið
að kynna nýjustu aðgerðir stjóm-
valda í efnahags- og atvinnumálum.
Verslunarráð Islands efnir til morg-
unverðarfundar af þessu tilefni, en
hann verður í Átthagasal Hótel
Sögu á miðvikudaginn kl. 8.00—
9.30.
Þar munu þrír framsögumenn
velta fyrir sér svöram við spuming-
um eins og: Næst verðbólgan nið-
ur? Heldur gengið? Hver verður
framvindan á vinnumarkaðnum?
Einnig verður flallað almennt um
stöðu atvinnulífsins í iandinu.
Framsögu hafa þeir Vilhjálmur
Egilsson framkvæmdastjóri Versl-
unarráðsins, Ólafur Davíðsson
framkvæmdastjóri Félags íslenskra
iðnrekenda og Friðrik Pálsson for-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna.
Fundurinn er opinn, en þátttak-
endur eru beðnir að skrá sig fyrir
fundardag í síma hjá Verslunarráð-
inu.
(Fréttatilkynning)
LITGREINING
IVIEÐ
CROSFIELD
ER
LYKILLINN
AÐ VANDAÐRI
LITPRENTUN
MYNDAMÓT HF