Morgunblaðið - 02.10.1988, Side 37
MORGUNBLÁÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1988
Félag íslenskra iðnrekenda:
Aðgerðir stj órnarinnar
mismuna atvimuigreinum
í tilefoi af efnahagsaðgerðum nýrrar ríkisstjórnar hefur Félag
íslenskra iðnrekenda ítrekað fyrri mótmæli sin gegn hverskonar
millifærslu og styrkjakerfi fyrir einstakar greinar útflutnings-
framleiðslunnar. í ályktun Félags íslenskra iðnrekenda segir orðrétt:
„Þessar aðgerðir mismuna at-
vinnugreinum en leysa engan vanda
eins og reynslan frá fyrri árum ber
glöggt vitni um. Þetta er einungis
margreynd gengisfölsunarleið, sem
ávallt hefur magnað taprekstur í
útflutnings- og samkeppnisgreinum
samhliða auknum halla ríkissjóðs
og miklum viðskiptahalla.
Þá mótmælir stjóm Félags
íslenskra iðnrekenda sérstaklega
þeirri ákvörðun ríkisstjómarinnar
að halda íslenskum iðnaði í verð-
stöðvun til 28. febrúar 1989 á sama
tíma og innflutningsverslunin fær
að búa við frjálsa verðlagningu.
Iðnrekendur vilja einnig vara al-
varlega við þeim fyrirætlunum
ríkisstjómarinnar að skattleggja
vexti af sparifé. Við núverandi að-
stæður þar sem enn er meiri eftir-
spum en framboð íjármagns myndu
slík áform einungis leiða til hækk-
unar á raunvöxtum f landinu og
auka þannig á erfíðleika fram-
leiðsluatvinnuveganna.
Stjóm félagsins telur sérstaka
ástæðu til að harma það að stóriðju-
uppbyggingin sé enn á ný orðin
pólitískt bitbein í ríkisstjómarsam-
starfi hér á landi. Það getur ekki
farið fram hjá neinum að nú em
mnnir upp tímar mikils efnahags-
samdráttar hér á landi, samdráttar
sem getur fljótlega leitt til atvinnu-
leysis. Við slfkar aðstæður í at-
vinnumáium þurfum við á því að
halda að nýta alla kosti sem við
eigum til nýsköpunar í atvinnulíf-
inu. Uppbygging stóriðju er þar
mjög álitlegur möguleiki. Auk þess
að draga úr hagvexti mun stefnu-
breyting í þessum málum skerða
möguleika á uppbyggingu stóriðju
í framtíðinni og draga úr trú er-
lendra aðila á samstarfi við íslend-
inga.
Undanfama daga hefur þa^-
margsinnis komið fram að mark-"
miðið með stofnun þessarar ríkis-
sfjómar væri að forða atvinnulífinu
frá rekstrarstöðvun með tafarlaus-
um aðgerðum til að bæta rekstrar-
stöðu útflutnings- og samkeppnis-
greina.
Nú þegar fyrirhugaðar aðgerðir
hafa verið kunngjörðar verður ekki
séð að þær megni að stöðva tap-
rekstur útflutnings- og samkeppn-
isfyrirtækja eða draga úr viðskipta-
halla.
t
Þvert á móti verður að gera ráð
fyrir því að flest fyrirtæki í þessum
greinum verði áfram rekin með tapi,
þannig að fljótlega þurfi að koma
til nýjar efnahagsráðstafanir."
Skógræktarfélag
íslands:
TOYOTA
Fagnarund-
irtektumvið
skógrækt-
arátak 1990
Aðalfiindur Skógræktarfélags
Islands var haldinn að Reykholti
í Borgarfirði dagana 26.-28.
ágúst sl. Fundurinn var vel sóttur
og voru samþykktar margar til-
lögur og ályktanir þar sem m.a.
kemur fram ósk um aukna áherslu
á fræðslu um skógrækt og gróður-
vemd.
Fundinum lauk með stjómarkjöri
og afgreiðslu mála. Úr stjóm áttu
að ganga Ólafur Vilhiálmsson og
Thomas Ingi Olrich. Olafur baðst
undan endurkosningu og var í hans
stað kjörinn Bjöm Amason, Hafnar-
firði. Thomas Ingi var endurkjörinn.
Aðrir í stjóm eru: Baldur Helgason,
Kópavogi, Hulda Valtýsdóttir,
Reykjavík, Jónas Jónsson, Reykjavík,
Sveinbjöm Dagfinnson, Reykjavík
og Þorvaldur S. Þorvaldsson,
Reykjavík. í varastjóm em: Jón
Bjamason, skólastjóri Hólum, Ólafía
Jakobsdóttir, Hörgslandi og Sigurður
Ágústsson, Stykkishólmi.
Hér fer á eftir úrdráttur úr helstu
tillögum sem samþykktar voru á
fundinum.
„Aðalfundur Skógræktarfélags fs-
lands fagnar góðum undirtektum við
fyrirhugað „Atak 1990“, klæðum
landið, og hvetur skógræktarfélög,
sveitarfélög og önnur félagasamtök
til að fara nú þegar að undirbúa
„Átak 1990“.
Aðalfundurinn skorar á landbún-
aðarráðherra og skógræktarstjóra
að taka strax föstum tökum allan
innflutning á tijám og plöntum, einn-
ig jólatijám og greinum, til að hindra
að til landsins berist fleiri skaðvaldar
á gróður en þegar eru í landinu.
Aðalfundurinn hvetur stjómvöld
eindregið til að fylgja eftir lögum
um nytjaskógrækt á jörðum bænda,
með stórauknum flárveitingum.
Aðalfundurinn fagnar því að sveit-
arfélög á höfuðborgarsvæðinu og
Suðumesjum hafa sameinast um að
afnema þar iausagöngu búfjár og
telur að nú sé tímabært að friða land-
nám Ingólfs á sama hátt.
Fundurinn leggur til að stjórn fé-
lagsins kanni möguleika á samstarfi
við Menntamálaráðuneytið og Land-
búnaðarráðuneytið um að afla
kennsluefnis um skógrækt og land-
græðslu til notkunar í skólakerfinu.
Aðalfundurinn lýsir yfir vonbrigð-
um vegna framkvæmda jarðræktar-
laga er varða skjólbeltaræktun.
Fundurinn beinir því til Landbúnað-
arráðuneytisins, Fjármálaráðuneyt-
isins og Búnaðarfélags íslands að
úr þessu verði bætt.
Áðalfundurinn hvetur til þjóðar-
átaks og samstöðu til vemdar gróð-
urríki landsins. Sérstaklega skorar
fundurinn á stjórnvöld og Alþingi að
veita meira fjármagni til landgræðslu
.en veitt hefur verið undanfarin ár.
_ L I T E A C E
UPUREN
BURÐUGUR!
Toyota Liteace er gott dæmi um þaö aö rúmgóöur vagn
þarf ekki aö vera fyrirferðarmikill. Pessl rennilega háþekja frá
Toyota býr yfir mjög góöum aksturseiginleikum og getur boriö
allt aö 760 kg þunga. Stórir aftur- og hliðargluggar tryggja
ökumanni gott útsýni. Og síðast en ekki síst getur
Liteace tekiö fimm í sæti (fellanlegt aftursæti).
Tæknilegar upplýsingar:
• Farangursrými: 213x144x133 cm. • Snúningsradfus 4,2 m.
• Fæst bæði með bensín- og díselvél. • Vélargerðir: 63 hestöfl
1500 cc (bensín) og 66 hestöfl 1800 cc (dísel).
Toyota Liteace er til afgreiðslu strax.
Komiö viö og reynsluakið honum hjá Toyota á Nýbýlavegi 4.