Morgunblaðið - 02.10.1988, Blaðsíða 49
QQor cr*?QYYrvo <? cnm mo t iprMTTOQAM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1988 49
CHICAGO BLUES
THE EARLY Wja'í
K3KcS>i>: - rísaact Joau
KU ÍKiUit
5Kw1ftr:»fSflr.5»>{«(:wí
»iKW3*í*á5íc*KW
W:*a«>!S6Si£»-i *.»!<■>.
HVl l£iR; ÍU*S • iiix M
Í3UK' * < **» 5»» t«*y
»505 líAK • .;»a fcsls
«»»*s 8/.is *•: -xz • wa» f «w
nm% sisrs • s*»> * uaa»
*3«T I*.<»5 W5B«»i*«* fi»5
MtíSttí.Bo«AN»
8A*í ««5B K3*«»f? «*x
03« CW a»sí * *ó»: V«xUm
mxMHi'Hftr*
XI_uk«s cl*»»io» a
Chicago-
blús
Blús
Árni Matthíasson
Chicagoblús er sennilega
það afbrigði blúsins sem
flestir þekkja, eða halda að
þeir þekki. Hann spratt úr
arfleifð sem blökkumenn
báru með sér frá Mississippi
er þeir fluttust til Chicago í
leit að atvinnu og velsæld.
Víst var vistin í Chicago
flestum erfið, en þó betri en
þrældómur í Mississippi og
blúsinn lagaði sig að stórborg-
arlífínu. Faðir Chicagoblúsins
var Muddy Waters, sem átti
rætur sínar á Stowallsplantekr-
unni í Mississippi, eins og heyra
má af upptökum sem hann
gerði þar 1941—42. Það voru
þó fleiri sem áttu þátt í að
móta Chicagoblúsinn og til að
sannfærast um það ættu menn
að hlýða á plötuna Chicago
Blues, The Early 1950’s, sem
Chris Strachwitz gaf út á merki
sínu Arhoolie um 1965. Á þeirri
plötu á Muddy sjálfur ekkert
lag, en hann leikur undir hjá
öðrum og menn úr hljómsveit
hans, eins og Junior Wells og
Little Walter, eiga lög á plöt-
unni. Aðrir sem koma við sögu
eru Eddie Boyd, sem leikur sitt
þekktasta lag, Five Long Years,
„Baby Face“ Leroy Foster, sem
var stórsnjall gítarleikari og
söngvari þó Little Walter geri
heiðarlega tilraun til að stela
senunni í lögum hans á plöt-
unni (Baby Face sýnir snilldar-
leik á gítarinn í lagi Little
Walter Muskadine og borgar
þannig fyrir sig), Homesick
James, slidegítarleikarinn J.B.
Hutto, Floyd Jones, sem var
áhrifamikill söngvari á upp-
hafsárum Chicagoblúsins,
mandólínleikarinn Johnny
Young, Snooky Pryor, sem
sendi frá sér nýja plötu fyrir
skömmu, John Brim með eigin-
konuna Grace á trommur, einn
hinna snjöllu blúsleikara sem
eiga það til að gleymast, slide-
gítarsnillingurinn Robert Nigh-
thawk, og hinn snjalli munn-
hörpuieikari Big Walter
„Shaky" Horton.
Blúsinn er Chicagoblús eins
og hann var í upphafi með mikl-
um áhrifum frá Mississippiblús,
sem gerir hann áhugaverðari
og skemmtilegri áheymar.
Textamir spanna flest þema
sem blússkáldum voru hugieik-
in; einsemd, heitrof, fjárhags-
örðugleika, heimþrá og hjátrú.
Eftirminnlegir eru textamir við
Stockyard Blues Snookys Pry-
ors, Things are so Slow J.B.
Huttos og Tough Times Johns
Brims. Allir spegla þeir hvemig
það var að vera ófaglærður
verkamaður sem var blökku-
maður í þokkabót. Mississippi-
áhrifin heyrast kannski best í
textum eins og Boll Weevil
„Baby Face“ Leroys Fosters,
en Boll Weevil var bjalla sem
lagðist á baðmull og olli því að
þúsundir smábænda flosnuðu
upp.
Á plötunni er margur
klassískur blúsinn og platan er
hin eigulegasta. Hljómur er
yfirleitt piýðilegur.
Alltafsöm
viðsig,
gamla Köben!
Ef þig langar að gera þér eftirminnilegan dagamun stendur
gamla, góða Köben alltaf fyrir sínu. f Kaupmannahöfn er vonlaust
að láta sér leiðast. Dýrleg máltíð á góðum veitingastað, innlit í
Montmartre djassklúbbinn, heimsókn í Louisiana safnið - þú finnur
alltaf eitthvað skemmtilegt og nýtt.
Með Flugleiðum áttu kost á mjög hagstæðum helgar- og
vikufargjöldum í vetur:
Helgarverð frá kr. 19.980,-*
Vikuverð frá kr. 29.640,-**
* Verð í gildi frá 1/10 - 31/3 ’89. 3 dagar, föstud. - mánud.
** Verð í gildi frá 1/10 - 31/3 ’89. 7 dagar.
Staðgreiðsluverð.
Gistimöguleikar t.d.: Cosmopol, Park, Imperial, Admiral,
Selandia/Absalon.
P.S. Athugið að þið fáið söluskatt (15%) endurgreiddan við
brottför. Og á sunnudögum eru verslanir í Malmö opnar kl. 11-16
en þangað er aðeins 25 mín. sigling.
Leitaðu ekki langt yfir skammt. Fáðu nánari upplýsingar hjá
söluskrifstofum Flugleiða, ferðaskrifstofum og umboðsmönnum
um land allt.
FLUGLEIÐIR
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2,
Hótel Esju og í Kringlunni. Upplýsingasími 25 100.