Morgunblaðið - 02.10.1988, Side 55
aspi íwfliVrvio c; ínioAnimMUfí UTUA iavmnaoM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTOBER 1988
fcfí
55
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Skipstjóra
vantar á dragnótarbát frá Suðvesturlandi.
Upplýsingar í síma 54871 eftir kl. 19.00.
Hárgreiðslunemi
Óskum að ráða hárgreiðslunema sem fyrst.
Hárstofa Reykjavíkurvegi 50,
sími 54365.
Hárskerasveinn
óskareftirvinnu allan daginn frá 1. nóvember.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„H - 8010“ fyrir 10.10.
Véla- og rekstrar-
iðnfræðingur
(sveinn í plötusm.) óskar eftir starfi. Hefur
reynslu við hönnun, smíði, uppsetningu
tækja úr ryðfríu stáli, tilboðsgerð o.fl.
Upplýsingar í síma 623064 eftir kl. 17.30.
Bókaverslun
Bókabúð í miðborginni óskar eftir starfs-
krafti. Vinnutími er frá kl. 13.00-18.00.
Umsóknir óskast sendar á auglýsingadeild
Mbl. merktar: „A - 4761“fyrir 10. október.
Hlutastarf
- vörukynningar
Fyrirtæki f matvælaiðnaði óskar eftir hæfu
starfsfólki til að annast vörukynningar þess.
Starfið: Starfið felst í umsjón og framkvæmd
vöru- og sölukynninga í stórmörkuðum og
stærri hverfaverslunum. Tekjumöguleikar
eru góðir, en laun munu að hluta ákvarðast
af söluafköstum.
Kröfur: Leitað er að fólki, sem hefur örugga
en fágaða framkomu, er glatt í fasi og um-
fram allt samviskusamt. Reynsla af kynning-
arstarfi er ekki skilyrði. Umsækjendur munu
fá nauðsynlega tilsögn og þjálfun sem þarf
til starfsins.
Tilboð er greini frá nafni, síma og heimilis-
fangi, ásamt helstu upplýsingum, leggist inn
á auglýsingadeild Mbl. fyrir 5. okt., merkt:
„Kynning 1988“.
Ríkisspítalar, heilbrigðiseftirlit
Læknir
óskast til að veita forstöðu eftirliti með heil-
brigði starfsfólks og vinnuaðstöðu á Ríkis-
spítölum.
Hugsanlegt er að starf öryggisfulltrúa teng-
ist þessu starf.
Nánari upplýsingar gefur forstjóri ríkisspítal-
anna.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna
sendist Stjórnarnefnd Ríkisspítala fyrir 1.
nóvember nk.
RÍKISSPÍTALAR
STARFSMANNAHALD
Aðstoð á
tannlæknastofu
óskast eftir hádegi í miðbæ Garðabæjar.
Upplýsingar í síma 656844.
Starfsmenn
vantar á þvottastöð. Kvöld- og næturvinna.
Upplýsingar í síma 82533.
Strætisvagnar Reykjavíkur
REYKJMJÍKURBORG l|l
£cuc6cm, Stödtvi MK
Starfsmaður
óskast á tómstundaheimili til stuðnings fötl-
uðu barni eftir hádegi.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
674044.
Sálfræðingur
sérkennari eða félagsráðgjafi óskast til starfa
við fræðsluskrifstofu Reykjanessumdæmis í
Garðabæ. Viðkomandi getur hafið störf nú
þegar. Laun samkv. kjarasamningi opinberra
starfsmanna.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni í
síma 91-54011.
Fræðslustjóri Reykjanessumdæmis.
Verslunarstörf
Viljum ráða starfsmenn í eftirtalin störf:
Skeifan 15
Störf á sérvörulager.
Upplýsingar hjá lagerstjóra á staðnum.
Kjörgarður, Laugavegi 59
Afgreiðslustörf.
Upplýsingar hjá verslunarstjóra á staðnum.
Kringlan
Störf við uppfyllingu og afgreiðslu í matvöru-
verslun.
Upplýsingar hjá verslunarstjóra á staðnum.
Umsóknareyðublöð á skrifstofu, Skeifunni
15, og hjá verslunarstjóra.
HAGKAUP
starfsmannahald, Skeifunni 15.
Blaðamaður óskast
Tvö af stærstu tímaritum landsins óska eftir
dugmiklum blaðamanni til starfa sem fyrst.
Skilyrði er að viðkomandi hafi víðtæka
reynslu af geinaskrifum, rannsóknarverkefn-
um og vinnslu viðamikilla viðtala.
Umsóknum verður ekki svarað í síma en
sendist ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf til Frjáls framtaks hf.,
Ármúla 18 fyrir 10. nóvember í lokuðu um-
slagi merktu: „Frumkvæði".
Farið verður með umsóknir sem trúnaðar-
mál.
Frjálstframtak
Sólheimar
í Grímsnesi
óska eftir að ráða starfsmann til að‘ hafa
umsjón með börnum starfsfólks á leikskóla-
aldri. Vinnutími frá kl. 9.00-17.00 virka daga.
Nánari upplýsingar gefur aðstoðarforstöðu-
maður í síma 98-64432.
m
Kennarar
Vegna forfalla vantar kennara við Snælands-
skóla í Kópavogi.
Upplýsingar veita skólastjóri og yfirkennari
í síma 44911.
Skólafulltrúinn í Kópavogi.
Sölumaður
- fasteignasala
Sölumaður óskast til starfa á fasteignasölu.
Þarf að vera reglusamur og hafa bíl til umráða.
Tilboð ásamt upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf leggist inn á auglýsinga-
deild Mbl. fyrir 7. október merkt: „M - 0891
Kven-og
herrafata versl u n
í miðbænum óskar eftir starfskrafti til af-
greiðslustarfa. Vinnutími frá kl. 13-18 5 daga
vikunnar. Lágmarksaldur 20 ár. Viðkomandi
þarf að geta hafið störf strax.
Upplýsingar í versluninni milli kl. 16 og 18
mánudag og þriðjudag.
EgillJacobsen,
Austurstræti 9.
Kjötvinnsla
Viljum ráða nú þegar starfsfólk í kjötvinnslu
okkar við Borgarholtsbraut í Kópavogi. Störf-
in eru aðallega við pökkun. Heilsdagssstörf.
Nánari upplýsingar hjá verksmiðjustjóra í
síma 43580 og á staðnum.
HAGKAUP
Verslunarstjóri
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar
Nýja Bæ, Eiðistorgi,
vill ráða verslunarstjóra til starfa.
Leitað er að reglusömum og drífandi aðila
sem hefur reynslu í verslunarstörfum (ekki
verra ef reynsla væri á sviði bókaverslana)
og lipurð í allri framkomu.
Umsóknir og allar nánari upplýsingar fást á
skrifstofu okkar á Túngötu 5.
Launakjör samningsatriði. Fullur trúnaður.
Umsóknarfrestur er til 10 okt. nk.
Guðni Iónsson
RÁÐCJÖF &RÁÐN1NGARÞJÓNUSTA
TÚNGOTU 5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322