Morgunblaðið - 02.10.1988, Qupperneq 61
61
MORGUNBLAÐIÐ, SÚNNUDAGUR 2. OKTÓBEá 1988
Minning:
Sólrún Guðbjarnar-
dóttirfrá Drangsnesi
Á snðggu augabragði,
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði,—
líf raannlegt endar skjótt
Foreldrar Sólrúnar voru Kristín
Magnúsdóttir og Guðbjartur Jóns-
son. Sólrún missti föður sinn á unga
aldri, tæpra tveggja ára. Fleiri voru
þau systkinin. I þá tíð var ekki
annað fyrir hendi en að taka upp
heimilin og þá var bömunum komið
fyrir annars staðar. Móðirin fékk
að hafa méð sér eitt bam þegar
best lét og það fékk Kristín.
Sólrún var svo lánsöm að vera
tekin að Gestsstöðum í Tungusveit
til Guðbjargar Aðalsteinsdóttur og
Jóns Níelssonar er þar bjuggu. Hjá
þeim hjónum ólst hún upp og naut
þar sömu hlýju og þeirra böm enda
hafði hún ekki neina aðra foreldra.
TÖLVLLSKÓLINN
ÁRMÚLA 5, 5ÍMI 687086
NÆSTU NÁMSKEIÐ í OKTÓBER:
1. Ritvinnslukerfið WordPerfect.
Verð 7.000 kr.
12 klst. eða 18 kennslustundir.
2. Töflureiknirinn MULTIPLAN.
Verð 7.000 kr.
12 klst. eða 18 kennslustundir.
3. Gagnasafnskerfið DBASE.
Verð 9.000 kr.
16 klst. eða 24 kennslustundir.
4. Byrjendanámskeið. Verð 5.000 kr.
10 klst. eða 15 kennslustundir.
~ RICOH-FPP48&
acohf
SKIPHOLT117
105 REYKJAVlK
SlMI: 91 -2 73 33
ÆTLARÐU AÐ HJAKKA
ENDALAUST í SAMA
LJÓSRITUNARFARINU ?
Þetta er örstutt kynning á hinni nýju FT-4480
Ijósritunarvél frá RICOH. Það má segja að hún
dragi að sér athygli fyrir allt nema stærðina.
FT-4480 býr yfir ýmsum sérstökum
möguleikum og kostum. Stýrikerfið sparar
tíma. Tími, sem áður fór í að standa yfir verki,
nýtist nú til annars eftir að búið er að velja og
ýta á takka. Sjálvirk stækkun og minnkun og
sjálfvirkt pappírsval. Hægt er að stækka að
óskum eftir þremur leiðum. Auðveldir valkostir
við frágang og útlit gera öllum unnt að setja
fagmannlegan svip á árangurinn.
Siðast en ekki síst: hæfni RICOH hvílir á
traustum grunni langrar reynslu sem notendur
í 130 löndum hafa sannprófað.
Þegar Sólrún er tolf ára deyr
fóstúrfaðir hennar, þá fór hún að
vinna á öðmm bæjum, sem urðu
henni mikil viðbrigði. Fóstursystir
hennar, Aðalbjörg, var gift Her-
manni frá Bæ. Þau bjuggu á
Drangsnesi og höfðu þar matsölu
fyrir Kristján Einarsson, sem átti
stóran þátt í að breyta Drangsnesi
í smáþorp. Þá komu bátar að sunn-
an og stunduðu róðra til hausts og
heimabátar allt árið. Þá flutti Sól-
rún sig stranda á milli, úr Tungu-
sveit og yfir á Selströnd. Þá fór
hún að vinna hjá þeim hjónum, sem
varð þeim báðum til gleði, enda
tryggð, sem entist meðan báðar
lifðu.
A Drangsnesi kynntist hún eftir-
lifandi manni sínum, Guðmundi
Ragnari Ámasyni frá Gautshamri
á Selströnd, sem er næsti bær við
Drangsnes. Þau reistu sér heimili á
Drangsnesi, með tvær hendur tóm-
ar, eins og svo margir urðu að gera
í þá tíð. En þetta gekk allt vel, má
vera að ekki hafi verið mikið fyrir
hendi fyrstu árin, en hjá þeim fór
saman hugur og hönd, bæði voru
bráðdugleg, enda þeirra afkoma
góð. Þau eignuðust einn son, fædd-
an 17.12. 1945. Hann var bráðdug-
legur, föngulegur og vel gefinn.
Hann var ekki gamall þegar hann
fór að fara á sjóinn og annast kind-
ur og fleira. Guðjón fór til Patreks-
fjarðar og þar giftist hann eftirlif-
andi konu sinni, Dagnýju, þau eiga
flögur böm, þijár uppkomnar dætur
og einn dreng, sex ára. Þau áttu
þar gott heimili, en vegna heilsu-
brests hans fluttu þau hingað suður
og dó hann eftir nokkurra mánaða
vera hér. Hans er sárt saknað.
Hún Sólrún mín var ekki stórvax-
in, en falleg kona, glaðvær og,
skemmtileg og það sem af bar vaT-
hennar mikli dugnaður. Hún fylgdi
manni sínum til allra verka, auk
þess var heimili þeirra til fyrirmynd-
ar. Það var sama hvert litið var,
alls staðar þekktist handbragð
hennar, hvort sem var í eldhúsinu
eða við hannyrðir.
Nú skilja leiðir um stund. Þessar
línur era þakkarorð til minningar
um öll þín gæði við mig og mína.
Drottinn gaf og Drottinn tók, sé
nafn Drottins vegsamað. Friður
Guðs þig blessi, svo biður elskandi
tengdamóðir.
Þuríður Guðmunds-
dóttir frá Bæ.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681960
VERTU MEÐ
í UPPBYGGINGUNNI VIÐ EIÐISTORG
VILT ÞÚ VERA MEÐ?
* EIÐISTORGI 11 er nú
laust rými fyrir fáeinar
verslanir eins og t.d. meö
gjafavörur, búsáhöld, skart-
gripi, listmuni, hannyrðavör-
ur, herraföt, dömukjóla og
kápur og tískufatnað unga
fólksins. Margt íleira kemur
til greina.
Eiöistorg er nýlegt, listrænt, yfirbyggt
torg á Seltjarnarnesi rétt við Sólar-
lagsbrautina rómantísku, vestast í vestur-
bænum í Reykjavík. Viö EIÐISTORG eru
margar verslanir og þjónustufyrirtæki eins
og banki, lyfjabúð, pósthús, veitingahús,
snyrtistofa, hárgreiðslustofa, hárskeri, gler-
augnasérfraeðingur, skósmiðir, efnalaug,
fllmuþjónusta og verslanir með sportvörur,
blóm, fatnað, bækur ofl.
Eiðistorg 11 er stórt og glæsilegt versl-
unarhús i tengslum við sjálft torgið.
Það hét áður Nýi bær, en hefur nú verið
endurskipulagt og endurbætt, Á 1. hæð
hússins hefur HAGKAUP opnað matvöru-
verslun og SVEINN BAKARI selur kökur
og brauð. Á 2. hæð hússins eru þekktar
verslanir með vandaðar vörur á hagstæðu
verði: HUMMEL búðin með iþróttavörur,
SKÓBÚÐ fjölskyldunnar með skótau,
EYMUNDSSON meö bækur, blöð, ritföng
og skólavörur, EVITA með snyrtivörur. Að
auki kemur SPÁKONUHORN með kafft,
meðlæti og spákonu. Á 3. hæð verður
verslunin FÓLK með fatnað á alla fjöl-
skylduna.
VILT ÞÚ VERA MEÐ í
rekstri öflugs og vax-
andi verslunar- og þjónustu-
kjarna í stækkandi íbúðar-
hverfum? Laust rými er tak-
markað. Kannaðu málið.
Leitaðu upplýsinga í síma
686677 á skrifstofutíma eða
í síma 76430.
Ath. Bílastæðin eru gjaldftjáls, malbikuð
og meira að segja upphituð.
HAGKAUP