Morgunblaðið - 02.10.1988, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1988
65
Minning:
*
Oskar Sigurðsson
bóndi, Hábæ
Fæddur 13. október 1906
Dáinn 25. október 1988
Vor ævi stuttrar stundar
er stefnd til drottins fundar,
að heyra lifs og liðins dóm.
En mannsins sonar mildi
skal máttug standa í gildi.
Hún boðast oss í engils róm.
Svo helgist hjartans varðar.
Ei hrynur tár til jarðar
í trú, að ekki talið sé.
í aldastormsins straumi
og stundarbarnsins draumi
oss veita himnar vemd og hlé.
(Einar Ben.)
Afí fæddist að Hábæ, sonur hjón-
anna Sigurðar Ólafssonar bónda f
Hábæ og Sesselju Ólafsdóttur frá
Hávarðakoti. Hann var tvíburi en
systir hans lést í fæðingu. Afí átti
einn bróður, Ólaf hreppstjóra í Hábæ,
sem nú er látinn. Þeir bjuggu báðir
á föðurleifð sinni og voru þeir sjö-
undi ættliðurinn sem þar bjó.
Langafí var sonur Ólafs Ölafsson-
ar sem fæddist 1842 í Krosshjáleigu
en var síðar bóndi S Hábæ. Hans
faðir var Ólafur Sigurðsson, fæddur
á Vatnsbóli 1811, Jónssonar frá
Hallgeirsey í A-Landeyjum, fæddur
1773. En systir hans var Guðrún
móðir Tómasar Sæmundssonar
skálds. Jón Ólafsson, faðir Sigurðar
frá Hallgeirsey, fæddur 1757, var
sonur Ólafs Ólafssonar frá Kirkjul-
andi, en móðir hans var Guðfinna
Magnúsdóttir, kona Ólafs f Miðkoti
í V-Landeyjum, fæddur 1703. Guð-
fínna var dóttir Magnúsar Jónssonar
prests á Breiðabólstað, fæddur 1611,
Sigurðssonar prests á Breiðabólstað,
fæddur 1588, Einarssonar, einnig
prests á Breiðabólstað, fæddur 1562,
Sigurðssonar prests og sálmaskálds
í Eydölum, faeddur 1538.
Afí kvæntist árið 1930 Steinunni
Sigurðardóttur sem ættuð var frá
Akranesi, og átti með henni fjórar
dætur. Þær eru Halldóra, gift Tóm-
asi Guðmundssyni frá Vestmanna-
eyjum, Jóna Birta, gift Gísla Jóns-.
syni frá Ólafsvík, Ragnhildur, gift
Svavari Guðbrandssyni frá Ólafsvík
og Sigurlín Sesselja. Steinunn amma
dó ung af bamsförum en afí átti því
láni að fagna að eignast annan
lífsförunaut, Ágústu Ámadóttur frá
Vestmannaeyjum, sem nú lifir mann
sinn. Með henni eignaðist hann fóst-
urdóttur, Ámýju Elsu Tómasdóttur.
Hún er gift Valdimar Jónssyni frá
Selfossi. Afkomendur afa fylla orðið
Qórða tuginn.
Afí fór ungur til sjós og var nokkr-
ar vertíðir á bát í Vestmannaeyjum.
Hann hafði alla tíð mikinn áhuga á
sjómennsku og fylgdist af alhug með
aflabrögðum Vestmanneyinga fram
á síðustu ár. Hann átti margar góðar
minningar frá þessum ámm.
Hann reri og með öðmm sveitung-
um frá Þykkvabæjarfjöru með gamla
laginu og var sérlega fískinn. Hefur
það verið góð búbót á þessum ámm.
Blómmtofa
Fridfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Hann var með í siðasta róðrinum sem
farinn var frá sandinum á áttæringi.
Sá róður varð allsögulegur því bátn-
um hvolfdi í lendingu. Til allrar ham-
ingju komust allir lífs af. Svo merki-
lega tókst til að ljósmynd var tekin
á því andartaki er bátnum var að
hvolfa. Er þessi mynd einstök í sinni
röð.
Árið 1930 keypti afi Jaðar, húsaði
jörðina og flutti þangað til búskapar
1933 en hann hafði áður haft hús-
næði í Hábæ hjá foreldmm sínum.
Hann flytur svo að Hábæ 1 árið
1943 og bjó þar síðan eða þar til
heilsunni hrakaði og hafa afí og
amma notið aðhlynningar á Lundi á
Hellu síðustu tvö ár.
Afí var framsækinn og stórhuga
bóndi og var einn af brautryðjendum
kartöfluræktar í Þykkvabæ. Hann
var skjóthuga og tileinkaði sér fljótt
tækninýjungar á því sviði. Auk kart-
öfluræktar var hann með fé, kýr og
hesta.
Ég var sjö ára gömul þegar ég fór
fyrst í sveitina til afa fyrir alvöm.
Það var þá sem við Steinunn fómm
á engjar sem ráðskonur með matinn
hennar Gústu sem hún hafði tilreitt
af svo mikilli natni fyrir litlar stúlk-
ur. Afí tjaldaði og við tókum upp
potta og pönnur og kveiktum á
prímus, lögðum á borð og afa fannst
„frænkur" sínar vera vænar. Og litlu
stúlkumar vom mjög hreyknar, þá
ekki nema sex og sjö ára.
Þetta vora fyrstu sporin stigin til
manns cið heiman. Mér hefur oft
verið hugsað til þessara gæfuspora.
Það var öðm sinni þegar ég var
bam að aldri að amma þurfti að
bregða sér í höfuðstaðinn að ég hélt
heimili fyrir afa. Ég kunni lítið fyrir
mér í matseld en mér var svo mikið
í mun að standa mig í fjarvem ömmu
að ég fór á fætur fyrir allar aldir
og baxaði við fíringuna áður en afi
kom niður eftir fjósamál. Og hann
kom niður í hafragraut allmisjafnan,
hann kom í hádegismat, fiskurinn
illa soðinn og kartöflumar hálfhráar.
En afi sagði alltaf: Mikið em þetta
góðar og mátulega soðnar kartöflur.
Ég hef oft hugsað um þetta síðan.
Þama vomm við að borða háifsoðnar
kartöflur að mér fannst en kartöflu-
bóndinn bar glöggt skyn á meðferð
framleiðslu sinnar. Afí hafði unun
af góðum mat enda var hann vel
þekktur kjötiðnaðarmaður. Hann var
snillingur í vinnslu á hrossakjöti og
var eftirsókn í bjúgun sem hann
gerði og reykti sjálfur svo og saltaða
kjötið hans.
Það var mikils virði að fá að dvelj-
ast á sumrin með afa og Gústu. Á
fjölmennu heimili þar sem mikið var
umleikis, var alltaf glatt á hjalla í
borðstofunni að loknum löngum
vinnudegi, enda var afí hrókur alls
fagnaðar í góðra vina hópi. Hann
hafði frá mörgu að segja og þótti
gaman að hlusta á frásagnir annarra.
Afí hefur lokið langri og viðburð-
aríkri ævi sem við minnumst og
þökkum samfylgdina.
Við vottum eftirlifandi konu hans
og dætrum dýpstu samúð.
Agústa, Tryggvi og börn.
t
Elskuleg litla dóttir okkar og barnabarn,
LÁRA LÝÐSDÓTTIR,
lést 20. september. Útförin fór fram f kyrrþey.
Þökkum auösýnda samúö og vináttu. Sérstakar þakkir til lækna
og hjúkrunarfólks á gjörgæsludeild Landspítalans.
Unnur Carlsdóttir, Lýöur Árnason,
Carl Eiríksson, Árnl L. Jónsson,
Guöríður Magnúsdóttir, Margit Jónsson.
t
Móðir okkar og systir,
SVAVA HALLDÓRSDÓTTIR,
frá Hvanneyri,
til heimilis í Austurbrún 2 f Reykjavfk,
lést í Landspftalanum mánudaginn 26. september. Jaröarförin fer
fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 4. október kl. 15.00. Þeim,
sem vildu minnast hennar, er bent á átak Landgræðslunnar til
að græöa landið.
Halldór Gunnarsson, Valgerður Halldórsdóttir,
Bjarni Gunnarsson, Þórhallur Halldórsson.
t
BALDVINA J. BRYNJÓLFSDÓTTIR,
Kleppsvegi 40,
sem lést 24. þ.m., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn
3. október kl. 15.00.
Unda Hreggviðsdóttir, Sævar Hallgrfmsson,
GuArún Vllmundardóttlr
og barnabörn.
t
Systir min,
HALLBERA BERGSDÓTTIR,
Vffilsgötu 5,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 5. október
kl. 13.30.
Fyrir hönd mfna og annarra vandamanna,
Guðbjörg Bergsdóttir.
Útför eiginkonu minnar,
sigrIðar ebenezardóttur,
fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 3. október kl. 11.15.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd fjölskytdunnar,
Magnús Ásmundsson.
Utför HARALDS BJÖRNSSONAR, Hjaltabakka 12, Reykjavfk, verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 3. októberkl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, SigrfAur Eifsabet GuAmundsdóttir.
t Móðir okkar, fósturmóöir og tengdamóðir, BJÖRG HALLGRÍMSDÓTTIR, Dvalarheimilinu HlfA, Akureyri, áður Helgamagrastræti 30, sem lóst 25. september, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 4. október kl. 13.30. GuArún Svava Bjamadóttir, Ásgrfmur Pálsson, Nanna Krístfn Bjarnadóttir, KonráA Árnason, Björg Ólafsdóttir, Jósef Kristjánsson.
t Eiginkona mín, tengdamóðir og amma, SÓLRÚN GUÐBJARTSDÓTTIR frá Drangsnesi, Esjuvöllum 14, Akranesi, sem andaöist 25. september sl., verður jarösungin frá Akranes- kirkju mánudaginn 3. október kl. 14.00. GuAmundur Ragnar Árnason, Sólrún Guðjónsdóttlr, Svava Hrund GuAjónsdóttir, Mjöll Guðjónsdóttir, GuAmundur Ingþór GuAjónsson, Dagný Björk Þorgeirsdóttlr.
t Móðir okkar, tengdamóöir og amma, VALGERÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR frá Skoruvfk á Langanesi, til helmilis á Kleppsvegi 74, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 4. október kl. 10.30. Kristbjörg J. Sveinsdóttir, Jón V. Þorsteinsson, Marfa Sveinsdóttir, Samúel Samúelsson, GuAmundur R. Sveinsson og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför
ástkærrar móöursystur okkar,
GYÐU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Lelfsgötu 3.
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðrfður J. Pótursdóttir,
Matthfas Guðmundur Pótursson.
t
Þökkum innilega veitta samúö og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns mfns, föður okkar og sonar,
GUÐMUNDAR EINARSSONAR,
Eyjaholti 13,
Garði.
Fanney Jóhannsdóttlr,
Guðmunda Ólöf Guömundsdóttlr,
Pótur Rúnar Guðmundsson,
Úlfar Guðmundsson,
SlgrfAur Benediktsdóttir, Elnar Jóhannsson.