Morgunblaðið - 02.10.1988, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1988
búnar að koma til landsins og
spila. Það sem við erum að gera
er að rejma að bjóða fólki upp á
það sem það vill og við gerum það
meðal annars með því að vera í
sambandi við fólkið sem sækir
staðinn. Að skapa réttan anda á
milli starfsfólksins og gesta. Vin-
gjamlegt andrúmsloft.
Er þróunin í íslenska
skemmtanaiðnaðinum ekki óút-
reiknanleg?
Jú, þessi þróun er dáldið skond-
in. Hér áður þyrptust allir í Holly-
wood þegar diskóið var upp á sitt
besta. Svo tvístraðist þetta og ein-
hverra hluta vegna þá minnkaði
aðsókn að skemmtistöðum. Ég
held að ástæðan sé sú að fólki var
ekki boðið upp á neitt skemmti-
legt. Sumartíminn er talinn hvað
daufastur í þessum blessaða
bransa en í sumar t.d. gekk Casa-
blanca fyrir fullu húsi. Ég tel
ástæðuna vera breytta innréttingu
á staðnum og öðruvísi tónlist en
heyrðist annars staðar. Fólk sem
aldrei áður hafði farið á skemmti-
stað kom og upplifði eitthvað nýtt.
Aður en ég hóf störf sem plötu-
snúður hafði ég td. ekki farið á
skemmtistað í tvö ár. Núna í dag
einkennir svokölluð House-tónlist
það sem spilað er á íslenskum
II
Hér áðurþyrptust allir
í Hollywood þegar
diskóið var upp á sitt
besta. Svo tvístraðist
þetta og einhverra
hluta vegna þá
minnkaði aðsókn að
skemmtistöðum.
Umferðarmenningin og
viðskip tah eim urinn
gengur útá þetta. Sjáðu
það. Þegar stjórn-
málafræðingur kemur
fram með einhvetjar
nýjar kenningar eru
þærjafhfiramt byggðar
að einhverju leyti á
gömlum kenningum.
ÞORSTEINN HÖGNI
GUNNARSSON
u
ff
„Það er reglulega gott
að vinna fyrir fiatlað
folk. Maður fiær inni-
legt þakklæti, þannig
að oft eru þetta miklu
ánægjulegri fierðir en
þegar maður er að aka
einhverjum sem segir
ekki aukatekið orð, firá
atilb, gerirupp oger
svo bara fiarinn ...“
ÞÓRIR
GARÐARSSON
ii
skemmtistöðum. En það
er einmitt sú tegund tón-
listar sem við spiluðum í
Casablanca í allt sumar.
Ég er mjög þakklátur fyr-
ir að fá tækifæri til að
útfæra mína tónlist. Ég
kappkosta við að blanda
saman ýmsum tónlistar-
stefnum sem eru vinsælar
í Bandaríkjunum, Bret-
landi og í Evrópu. Ég
reyni að blanda kokteil
sem ég vona að gangi.
Verður einhver frek-
ari starfsemi i húsinu?
Já við stefnum að því.
Við ætlum að reyna að
nýta þetta góða húsnæði
fyrir uppákomur af ýmsu
tagi. Maður hefur dútlað
dáldið í leiklist og við ætl-
um að reyna að nýta hús-
næðið undir leiksýningar.
Jafnvel fjölleikahús. Þetta
á að vera vettvangur fyrir
ljóðasamkomur og við
stefnum að því að hafa
myndlistina með í kok-
teilnum.
Hvað er sköpun að
þínu mati?
Það er oft sagt um
rokktónlistina að það
sama hafi verið í gangi í
30—40 ár. Að ekkert nýtt
komi fram. Einstaklingur-
inn er mótaður af sínu
umhverfí. Sköpun þess
einstaklings felst í því að
hann raðar saman þeim
brotum sem umhverfið
hefur fært honum. Hann
myndar einhveija nýja
heild út frá þessum brotum. Hæfí-
leikinn felst I því að sjá ólíka fleti
á því sem allir sjá. Þetta á við um
alla list. Að sjá hluti úr umhverf-
inu og raða þeim saman á ólíkan
hátt. Þetta á reyndar við um alla
hluti. Umferðarmenningin og við-
skiptaheimurinn gengur útá þetta.
Sjáðu það. Þegar stjómmálafræð-
ingur kemur fram með einhveijar
nýjar kenningar eru þær jafnframt
byggðar að einhveiju leyti á göml-
um kenningum. Sumir halda því
fram að sumir hafí sköpunargáfu
en aðrir ekki. Þetta er rangt.
Maður sem hefur ekki tóneyra er
kannski frábær í mannlegum sam-
skiptum. Sköpun á sér alltaf stað
dags daglega. Þegar þú situr í
strætó þá verður einhver hugar-
farsbreyting gagnvart einhverri
annarri manneskju en þetta sér
enginn nema þú einn. Þetta er
sköpun. En þau era mörg stóra
orðin í lífinu. Óhlutbundin hugtök
og fleira. Þess vegna borgar sig
ekki að alhæfa neitt um jafn
maigslungið hugtak og sköpun.
Maður hugsar eitthvað í dag en
breytir síðan um skoðun á morgun.
Hefurðu gaman af ferðalög-
um Þorsteinn?
Já, ég fæ mikið út úr ferðalög-
um. Ég var búsettur í norðurfylkj-
um Bandaríkjanna frá 5 ára aldri
til tíu ára aldurs. Ég ferðaðist
mikið um Bandaríkin á þessum
áram. Það er mjög gott að ferð-
ast. Sjá mismunandi lífsviðhorf.
Ég held ég sé nokkuð frjálslyndur
að eðlisfari. Ef ég hefði átt heima
á íslandi alla ævi væri ég líklega
vinstrisinnaður. En allar öfga-
kenndar skoðanir spretta af þekk-
ingarleysi, kynþáttahatur til dæm-
is. Þekkingarleysi skapar hræðslu
og fólk bregst við hraeðslu þannig
að það brýst fram í öfgum. Ef þú
ert hræddur við eitthvað þá er til-
hneigingin sú að útiloka það. Tök-
um sem dæmi hvíta og svarta í
Bandaríkjunum. Þar era ólík við-
horf á ferðinni og hvorirtveggju
hræddir við að tapa sínum sér-
kennum. Fólk heldur alltaf að það
sé best að búa í sínum heimabæ.
Ef eitthvað utanaðkomandi kemur
inn í líf fólks þá verður það hrætt.
Besta lausnin er að ferðast. Kynn-
ast öðram viðhorfum. Það er heil-
brigt. í Bandaríkjunum kynnist
maður því besta og versta í mann-
Þorsteinn Högni Gunnarsson
borgum Bandaríkjanna sér maður
það besta og versta. Næst þegar
ég fer á flakk um heiminn langar
mig að ferðast til Austurlanda
Qær. Til Afríku og Asíu og kynn-
ast hvemig fólk lifír þar.
Áttu einhver áhugamál fyrir
utan starfið?
Ég hef áhuga á bókmenntum,
tónlist og leiklist. Ég tók þátt I
leiklistinni þegar ég var S menntó
og hafði gaman af. Ég innritaði
mig í bókmenntir og heimspeki
við Háskóla íslands í vetur. Ég
ætla að taka einhveija kúrsa í
hvora fagi fyrir sig. Annars er
þetta nú meira til gamans. Ég
veit ekki hvort þetta gengur upp
með vinnunni en ég stefni S há-
skólanám S framtiðinni.
Hvað ertu að spá i?
Ég hef áhuga á lSffræði og
erfðafræði. Það er aldrei að vita
nema maður kúvendi og skelli sér
útí raungreinamar. En maður er
að átta sig ennþá. Annars hef ég
töluverðan áhuga á rannsóknum.
Láffræðirannsóknir og sérstaklega
þær sem koma inná erfðafræðina.
Það er margt sem hægt er að laga
ef við gætum breytt genum fólks.
Hver er lífsskoðun þin?
Fólk verður að upplifa lífíð gálft
til að þroskast. Lífsskoðun mín er
sú að manni beri að sinna sínum
innri manni. Það sem ég hef gert
S störfum mínum bæði í Qölmiðlum
og S tónlistinni er að gefa fólki
kosti. Það er ekkert verra en möt-
un og stýring. Þegar fólk er rekið
$ hjarðir. Þegar fólki er sagt að
gera eitthvað annað en það vill.
Eg er til dæmis ekki hlynntur trú-
arflokkum og stjómmálaflokkum.
Kristin trú er aðalorsök styijalda
og ófriðar ýmiss konar. Þegar
menn halda svo fast í einhveijar
kenningar að til ófriðar kemur.
Þinn bakgarður er það besta og
ekkert annað kemst að. Afleiðing-
in er sú að fólk lokast í einstefnu.
Það er þetta sem hefur valdið
mestum vandræðum í mannkyns-
sögunni. En þetta hefúr alltaf
mismunandi gervi. Þegar tveir
ólíkir hlutir rekast á. Þá verður
árekstur.
AGB
inum. Hvemig hann er oj
hann lifír. Hér heima á
hvemig
slandi er
fólk tiltölulega vemdað en í stór-
Sýningarinnréttingar
til sölu
Vegna breytinga er til sölu með 50% afslætti
baðinnrétting lengd 180 cm
fataskápur lengd 120 cm
eldhúsinnr. í vinkil stærð 2 x 215 cm eldhús-
innr. í vinkil stærð 2 x 188 cm
eldhúsinnr. á tvo veggi lengd 215 cm
Gæti hentaö á kaffistofu eða í minni eldhús.
Eldhúsval sf.,
Sigtúni9, sími84770.
Píanó — flyglar
STEINWAY 6 SONS
4i
GROTRIAN-STEINWEG
T
Einkaumboð á Islandi
Pálmar ísólfsson & Pálsson sf.
Pósthólf 136, Reykjavík.
Símar: 611392 - 13214 - 11980
VERSLUNAR- OG SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Til leigu er 360 fm bjart og rúmgott húsnæði á
neðri hæð við Brekkustíg 39 í Njarðvík.
Húsið er vel staðsett og á lóðinni eru góð bíia-
stæði.
Upplýsingar gefur Einar í síma 92-14113 alla virka
daga milli ki. 9.00 og 12.00.
IFSTÓLAR
VEFSTOLAI
í tilefni af 75 ára afmæli Heimiiisiðnaðarfé-
lags íslands kynnum við hina viðurkenndu
Glimákra vefstóla.
Kynningin verður út októbermánuð og veit-
um við 10% afslátt af vefstólum og vefjar-
áhöldum meðan á kynningunni stendur.
Við erum með uppsettan vefstól í verslun-
inni og myndalistar og^ verðlistar liggja
frammi.
ÍSLENSKUR HEIMILISIÐNAÐURI