Morgunblaðið - 02.10.1988, Side 68
SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Síld fannst
í Mjóafírði
SÍLDAKBÁTARNIR Heiðrún EA
og Arnþór EA fundu síld i Mjóa-
firði á föstudaginn en hún var
mjög dreifð og ekki hægt að veiða
hana. „Það er bræla núna og við
ætlum að skoða þetta betur þegar
veður lægir," sagði Gylfi Baldvins-
son, skipstjóri á Heiðrúnu EA, í
samtali við Morgunblaðið.
Heiðrún EA og Amþór EIA eru frá
Árskógsströnd í Eyjafirði og síldar-
afli þeirra verður bræddur í Krossa-
nessverksmiðjunni í Eyjafirði. Þeir
fengu leyfi til að hefja síldveiðar 20.
september síðastliðinn þar sem verk-
smiðjan mun framleiða sérstakt fisk-
eldismjöl úr afla þeirra. Veiðar ann-
arra sfldarbáta mega heflast 9. októ-
ber næstkomandi en ellefu loðnubát-
um var heimilað að hefla sfldveiðar
if^r^ 20. september síðastliðinn.
Sendi kóka-
ínið í vit-
laust hús
FYRIR einstæða tilviljun og mis-
tök smyglara komst fíkniefna-
^ögreglan nýlega yfir 12 grömm
af kókaíni. í Kaliforníu kom
maður 12 grömmum af efninu
fyrir í plastpoka og setti inn i
póstkort prýtt mynd af kettinum
Gretti. Utan á umslag var ritað
nafii verslunar í Reykjavík,
heimilisfang og póstnúmer.
Smyglaranum varð það hins veg-
ar á að skrifa rangt götuheiti
utan á umslagið, þrátt fyrir að
hús- og póstnúmer væru rétt.
Póstþjónustan lét götuheiti ’' ráða
og þar sem engin verslun vai í því
húsi sem húsnúmerið átti við var
kortið borið í verslun við götuna
sem var talin líklegur viðtakandi.
Þótt eigandi verslunarinnar teldi
’að póstinum hefðu orðið á mistök
opnaði hann kortið og sá sér til
mikillar furðu hvers kyns var. Hann
hafði strax samband við fíkniefna-
lögregluna sem tók efnið í sína
vörslu og hóf rannsókn málsins.
Fljótlega var talið ljóst hvert efn-
inu hafði verið ætlað að fara enda
skeikaði þar einungis síðasta hluta
götuheitisins. Yfírheyrslur yfír eig-
anda og starfsmönnum þeirrar
verslunar leiddu þó ekkert í ljós
enda á veikum grunni að byggja.
Sá sem grunaður er um að hafa
sent kortið mun ekki væntanlegur
til landsins- í bráð og sagðist Amar
Jensson hjá fíkniefnalögreglunni
.ekki eiga von á að málið upplýstist
ur þessu.
Morgunblaðið/RAX
Stungið saman nefjum
RELLUR stínga saman neQum í flugskýli á Reykjavíkurflug-
velli í gærmorgun. Skýlin fylltust af Iitlum flugvélum á föstu-
dag þar sem spáð var allt að 11 vindstíga hvassviðri.
Fárviðri, 12 vindstig, var á VestQörðum í gær. Hvassviðrinu
olli 940 millibara djúp lægð sem er leifar fellibylsins Helenar.
Hvasst verður í öllum landshlutum í dag, 7 til 10 vindstig, að
sögn Magnúsar Jónssonar veðurfræðings. Lægðarmiðjan var
rétt fyrír sunnan Vestmannaeyjar um hádegisbilið í gær og
reiknað var með að hún feeri yfir Grímsey í nótt. Fjögur til
sex vindstíg voru á Suðvesturlandi og Norðurlandi í gær en
sjö til niu vindstig á Suðausturlandi.
Lýsi hf. selur til stórra
verslana á Norðurlöndum
LÝSIHF. hefur náð samningum
við nokkrar af stærstu verslana-
keðjum Norðurlanda um sölu
og dreifingu á framleiðslu fyr-
irtækisins. Að sögn Ágústs Ein-
arssonar forstjóra fyrirtækisins
hefur stærsta verslanakeðja
Svíþjóðar, ICA, sem rekur um
3.500 verslanir og hefur um 33%
markaðshlutdeild í matvöru-
verslun í Svíþjóð, framleiðslu
Lýsis hf. nú á boðstólum í versl-
unum sínum. Dönsku kaupfé-
lagsbúðimar, Brugsen, selja nú
einnig lýsisflöskur og -perlur
frá Lýsi hf. Að auki hefur
finnskt lyQadreifingarfyrir-
tæki nýveríð tekið að sér að
dreifa vörum fyrirtækisins tfl
um 700 apóteka þar í landi.
Þá birtast um þessar mundir
heilsíðuauglýsingar frá Lýsi hf. í
nokkrum stærstu blöðum Dan-
merkur. „Við höfum sett okkur
það markmið að okkar merki nái
góðri stöðu á Norðurlandamark-
SnjóbíU og jarðýta til að-
stoðar gangnamönnum
Egilsstöðum.
GANGNAMENN á Héraði hafa
lent í miklum hrakningum
vegna spjóa og ófeerðar.
Nýr snjóbfll Hjálparsveitar
skáta á Héraði hefur komið að
góðum notum í haust. Bændur á
Völlum og Hjaltastaðaþinghá
hafa notað bflinn til að flytja upp-
gefið fé til byggða og til smala-
mennsku. Bændur f Eiðaþinghá
og Borgarfirði hafa lent í miklum
hrakningum og vosbúð í göngum
í Loðmundarfirði. Venjulega er
farið með fé úr Loðmundarfirði
yfír Tó til Héraðs, eða yfír
Hjálmadalsheiði til Seyðisfjarðar.
Báðar þessar leiðir hafa verið
ófærar. Þvf var gripið til þess
ráðs að fá jarðýtu til að ryðja
vegslóða milli Borgarflarðar og
Loðmundarfjarðar og fara þá leið
með Qárreksturinn. Þetta er erfið
leið enda um tvo fjallvegi að fara.
Mikill snjór hefur verið á þess-
um slóðum og skaflar allt að 2-3
metra djúpir. Einn göngumanna
úr Borgarfirði, Guðmundur
Sveinsson, lenti ásamt hundi
sínum f snjóflóði. Litlu munaði að
maður og hundur færu fram af
klettum.
Björn
aði, og verði stærst í Danmörku,
Svíþjóð og Finnlandi," sagði Ágúst
Einarsson.
Ágúst sagði að um þessar
mundir væru horfur á þessum
markaði mjög góðar, almenningur
erlendis væri að sannfærast um
það, sem íslenska þjóðin hefði vit-
að öldum saman, að lýsið væri
hollt. Nýjasti sigurinn í því máli
væri grein sem birst hefði í banda-
ríska læknatímaritinu The New
England Joumal of Medicine þar
sem staðfest væru áhrif lýsis sem
vöm gegn kransæðasjúkdómum.
„I þessari grein er það staðfest
sem prófessor Sigmundur Guð-
bjamason og fleiri hafa haldið
fram í áraraðir," sagði Ágúst.
„Við vonum að þetta hafi þau
áhrif að læknar erlendis mæli með
lýsistöku við sjúklinga sína.“
Ágúst sagði ennfremur að um
95% af framleiðslu fyrirtækisjns
færu nú til útflutnings, mikið af
henni væri selt í tunnum og pakk-
að ytra undir öðrum vörumerkjum,
en stór og sívaxandi hluti undir
vömmerki Lýsis hf. Einungis um
5%, hálf milljón flaskna og milljón-
ir þorskalýsispilla, færu á innan-
landsmarkað. Um útflutning á
Bandaríkjamarkað sagði Ágúst að
hann væri óverulegur og fyrirtæk-
ið hygðist í nánustu framtíð ein-
beita sér að Norðurlöndum og
Evrópu. Hins vegar hefði verið lit-
ið til Bandaríkjanna enda væri þar
markaður hvað almennastur fyrir
heilsubótarlyf. Hins vegar sæju
forsvarsmenn Lýsis hf. ekki fram
á annað en að möguleikar á Norð-
urlandamarkaði væru fyrirtækinu
nægjanlegir á næstu ámm.
Seyðisgörður:
Hafsíld seld
útgerðarmönn-
um loðnuskipa
VIÐRÆÐUR hafa staðið milli
eigenda loðnubræðslunnar
Hafsildar og þríggja útgerða
loðnuskipa um sölu bræðslunnar.
Hafsíld er í eigu Jóns Ingvars-
sonar og dánarbús Vilhjálms
Ingvarssonar. Jón Ingvarsson
segir að enn hafi ekki veríð geng-
ið endanlega frá kaupunum og
þvi eigi hann erfitt með að tjá
sig um málið.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru kaupendumir útgerð
Bjama Olafssonar á Akranesi,
Gjögur á Grenivík og Fiskanes í
Grindavík auk fleiri aðila.