Morgunblaðið - 16.11.1988, Blaðsíða 52
Stórleikur
á Hlíðarenda
í dag kl. 18.15
Valur
ISAL
Pólar
Einholti 1, s. 618401.
GoldStar
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
SAMBANDSINS
KRÓKHÁLSI 7 SlMI 8 20 33
»hummel^
SPORTBÚOIN
K.A
Hinirfrísku og firna-
sterku norðanmenn
heimsækja íslands-
meistara Vals og heyja
hörkuleik kl. 18.1 5.
Fjölmennum og hvetjum
okkar menn.
„ Tekst Pésa pulsu að
koma Harpix klessu fyrír
á innra lærí Geira
Sveins?
(ekki Geira Sæm)“.
HKD Vals flýgur innanlands með
Arnarflugi.
Gardínubúðin
Skipholti 35, s. 35677.
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR M3ÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1988
- segir PeterWarr, keppnisstjóri Lot-
us liðsins, í samtali við Morgunblaðið
um nýbakaðan heimsmeistara
Morgunblaðiö/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Heimsmeistarinn
Ayrton Senna, nýbakaður heimsmeistari í Formula 1 kappakstri, í bíl sínum er hann tók þátt í ungverska kappaskstrinum
í sumar.
HANN þykir fámáll og stund-
um kaldranalegur, en Bras-
ilíumaðurinn Ayrton Senna
hefur sannað getu sína í
Formula 1 kappakstri oftar
en einu sinni. Hann tryggði
sér heimsmeistaratitilinn á
dögunum. Kannski á það
stóran þátt í veigengni Senna
að hann reynir af fremsta
megni að forðast áhorfendur
og blaðamenn, semelta hann
á röndum í kringum hverja
keppni. Það er örugglega er-
fitt fyrir ungan mann að
standast álagið í heimi Form-
ula ökumanna, Senna er að-
eins 28 ára gamall, en virðist
nú kominn á toppinn.
Hann þótti full borubrattur
fyrir tveimur árum, þegar
menn tóku fyrst eftir getu hans
á kappakstursbrautinni. Árangur-
^■■■■M inn steig honum til
Gunnlaugur höfuðs og hann
Rögnvaldsson var oft með ótíma-
skrifar bærar yfirlýsing-
ar. Senna ók í
nokkur ár fyrir Lotus liðið og lét
oft á tíðum eins og hann væri
einræðisherra í liðinu, flestir stóðu
og sátu eftir hans hugmyndum.
Árangur
Hann vann tvö mót i fyrra á
Lotus, en þá réð McLaren liðið
hann til sín og hann átti að aka
við hlið þrefalds heimsmeistara,
Alain Prost. Senna virðist hafa
haft gott af breytingunni, árang-
urinn talar sínu máli, en ekki má
framhjá því líta að McLaren hefur
haft besta bílinn og öflugustu
vélina. Það þarf hins vegar mikla
hæfileika til að ná að sigra Prost
eins oft og Senna hefur gert,
þannig að Senna þarf ekki að
óttast neinn.
TilLotus
Ferill Senna hófst í keppni á
karting smábílum, þar sem hann
vann hveija keppnina af annari í
Brasilíu. Toleman Formula 1 liðið
réð hann síðan til sín árið 1984,
þegar hann fór fyrstu metrana á
Formula 1 bíl. Þó hann ynni ekki
keppni sáu stóru liðin hvílíkt efni
var á ferðinni og Ferrari, Williams
og McLaren slógust um að fá
hann í sínar raðir. Það var hins-
vegar Lotus liðið í Englandi, sem
náði í kappann og hann flutti til
Englands.
Mýkt og harka
Peter Warr keppnisstjóri Lotus
þroskaði hann sem ökumann og
hann vann sína fyrstu sigra með
liðinu. „Það sem heillaði mig mest
við Senna var hve hratt hann
getur ekið, án þess að keppnis-
bíllinn sé í slæmu ásigkomulagi á
eftir. Hann fer vel með vél og
gírkassa, bremsurnar líka þó hann
aki hraðar en flestir og „flengi"
bílnum stundum gegnum beygj-
umar. Hann ekur af mýkt en samt
hörku. Svo hefur hann hæfileika
til að beita líkamanum í akstrin-
um, án þess að hugsunin fari lönd
og leið. Það er eins og hann sé
fæddur með stýrið í höndunum
og fæturna á bremsu og bensín-
gjöfinni," sagði Peter Warr í sam-
tali við Morgunblaðið & dögunum.
KAPPAKSTUR / FORMULA 1
Eins og Senna
hafi fæðst
meðstýrið
í höndunum...