Morgunblaðið - 16.11.1988, Blaðsíða 53
53
L
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTÍ1R MIÐVTKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1988
KNATTSPYRNA / VESTUR ÞÝSKALAND
Ásgelr Sigurvlnsson og Frítz Walter fagna marki þess fyrmefnda gegn
Bayem fyrir um ári síðan. Þeim var báðum skipt út af í gær, og vakti það
mikla furðu þegar Ásgeir var kallaður af velli.
Reuter
Fögnuður hjá Basjurum eftir að Roland Wohlfarth hefði skorað, 1:1. Lud-
wig Koegel, Stefan Reuter, Wohlfarth og Hans Dorfner (6).
Ásgeir besti maður
vallarins í Múnchen
/mm
FOLK
■ BLAÐAMENN á leikjum
Werder Bremen í Vestur-Þýska-
landi bíða ekki bara spenntir eftir
hvort eitthvað skemmtilegt gerist
inni á vellinum. Þeir hafa tekið upp
þann sið á hverjum leik liðsins að
veðja um það á hvaða mínútu Otto
Rehagel, hinn líflegi þjálfari Brem-
en stekkur í fyrsta skipti upp af
varamannabekknum til að skamma,, .
dómarann eða einhvem leikmanna
sinna. Hver blaðamaður leggur tvö
v-þýsk mörk í pott og sá hirðir
pottinn sem getur upp á réttri
mínútu eða kemst næst þvp.
■ UWE Rahn leikur sinn fyrsta
leik með 1. FC Köln í dag gegn
Leverkusen, en hann var keyptur
á dögunum frá Gladbach.
■ TOTTENHAM hefur ekki
gengið vel það sem af er vetri í
ensku knattspymunni og gera sum-
ir „áhangenda" liðsins góðlátlegt
grín að öllu saman. „Hver er mun-
urinn á Bobby Mimms [markverði
liðsins] og leigubílstjóra?" er spurt..-
Svar: „Leigubílstjórinn hleypir ekki
nema fjórum inn!“
■ ÖNNUR kímnisaga um Tott-
enham: „Hver er munurinn á Tott-
enham ogtepoka?" Svar: „Tepokinn
er lengur f bikamum!"
Bayem Munchen jafnaði, 3:3, gegn Stuttgart á elleftu stundu
ÁSGEIR Sigurvinsson átti frá-
bæran leik meft VfB Stuttgart
í gærkvöldi er liftift gerði jaf n-
Frálóni
Halldórí
Garðarssynií
V-Þýskalandi
tefli, 3:3, gegn Bayern Miinc-
hen í vestur-þýsku úrvalsdeild-
inni á Ólympíuleikvanginum f
Munchen. Asgeir var besti
maftur vallarins, en öilum á
óvart var hann tekinn af velli
er stundarfjórðungur var eftir.
Stuttgart komst í 3:1 en leik-
menn Bayem neituðu að gef-
ast upp og náðu að jafna með ótrú-
legri seiglu. Leikurinn þótti stór-
kostlegur, sá besti á
keppnistímabilinu.
Hraðinn var mikill
og 65.000 áhorfend-
ur sáu Qöldamörg
marktækifæri á báða bóga.
Leikurinn hófst of seint þar sem
bílaumferð var gífurleg í kringum
völlinn og fólk lengi að komast inn.
Bayem hefur ekki tapað á heima-
velli í 19 ár gegn Stuttgart, en
Arie Haan, þjálfari Ásgeirs og fé-
laga, sagði fyrir leikinn að hans
menn myndu leika til sigurs. Strax
frá fyrstu mínútu komu leikmenn
Stuttgart andstæðingum sínum í
opna skjöldu með því að pressa á
móti þeim alveg fram að vítateig,
og strax á 8. mín. skoraði Fritz
Walter fyrsta mark leiksins fyrir
Stuttgart.
Eftir 20 mín. tóku leikmenn Bay-
em síðan völdin og sóttu ákaft. En
Stuttgart átti þó mjög hættulegar
skyndisóknir og var Ásgeir maður-
inn á bak við þær flestar — náði í
knöttinn aftur að eigin vítateig og
geystist fram völlinn. Leikmenn
Bayem höfðu ekki roð við honum
og eina ráðið til að stöðva Ásgeir
.var að bijóta á honum. Flick, sem
hafði það hlutverk að gæta Ás-
geirs, fékk gult spjald fyrir gróft
brot á honum á 22. mín.
Roland Wohlfarth jafnaði svo,
1:1, á 38. mín. með glæsilegum
skalla eftir aukaspymu.
Arie Haan, þjálfari Stuttgart,
gerði tvö stór mistök í leiknum í
gær. Á 54. mín. tók hann fram-
herjann Fritz Walter útaf og setti
Schiitterle inn á. Walter var greini-
lega mjög reiður og hristi höfuðið
er hann gekk af velli. Síðari mistök-
in voru svo að taka Ásgeir út af —
og trúðu menn vart sínum eigin
augum er hann vár kallaður af velli.
En mínútu eftir að Walter fór
af velli komst Stuttgart yfir. Klins-
mann skallaði knöttinn til Gaudino
sem skaut yfir Aumann markvörð
og í netið.
Bayem sótti áfram meira en
Stuttgart byggði upp á hættulegum
skyndisóknum sem Ásgeir byggði
flestar upp. Augenthaler, fyrirliði
Bayem, átti síðan þrumuskot sem
stefndi efst í markhornið en Immel
Netzer trúði ekki
eigin augum er
Ásgeir fór útaf!
Gunter Netzer, fyrrum lands-
liðsmaður Vestur-Þýska-
lands, var þulur í beinni sjón-
varpssendingu af leik Bayem og
Stuttgart. Netzer, sem er einn
besti miðvallarleikmaður sem
Þjóðveijar hafa átt, sagðist ekki
trúa sínum eigin augum þegar
Ásgeir Sigurvinsson var tekinn
af velli. „Hann hefur verið besti
maður vallarins. Þetta hlýtur að
hafa verið ákveðið fyrirfram"
sagði Netzer.
Síðan var tekið stutt viðtal við
Ásgeir fljótlega eftir að hann kom
af velii og hann spurður hvers
vegna honum hefði verið skipt út
af: „Ég vil ekkert um það segja,"
sagði Ásgeir og var greinilega
ekki ánægður.
Jupp Heynckes, þjálfari Bay-
em, og Uli Höhness, fram-
kvæmdastjóri liðsins, sögðu báðir
að þetta hefði verið lang besti
leikurinn á tfmabilinu. Þeir vom
sammála að knattspyman sem
bæði lið sýndu hefði verið f þeim
gæðaflokki að leikurinn hefði
fyrst og fremst verið sigur fyrir
vestur-þýsku deildarkeppnina.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
ii
„Efstu liðin eiga eftir að tapa stigum
- segir Gunnar Einarsson, þjálfari Stjörnunnar, og spáir í 4. umferð
„MÓTIÐ er rétt aft byrja og þaft
er mikill hugur í okkur þó stig-
in vanti. Vift gerðum ráft fyrir
aft þessi staða gæti komift upp,
en mótið er allt eftir og efstu
liftin eiga eftir aft tapa stigum,"
sagfti Gunnar Einarsson, þjálf-
ari Stjörnunnar, vift Morgun-
blaðið, er hann var beftinn aft
spá í leiki fjórðu umferftar.
Fjórir leikir verða í 1. deild karla
í kvöld. FH og Grótta leika í
Hafnarfirði klukkan 20. „FH er
með betra lið,“ sagði Gunnar, „og
á samkvæmt því að sigra. En segja
'!' má Gróttu til hróss að geysileg
stemmning er í liðinu og staða þess
er dæmigerð fyrir lið, sem er að
koma upp í 1. deild. Menn tvíeflast
og vilja sanna sig, en reynsla FH
vegur þyngra."
Leikur KR og ÍBV í Laugardals-
höll hefst einnig klukkan 20. „KR-
ingar eru sterkari á pappírnum —
með landsliðsmenn í nær hverri
stöðu og ungan markvörð, sem hef-
ur allt að vinna. Liðið á að sigra,
en ÍBV á eftir að velgja því undir
uggurn," sagði Gunnar.
Valsmenn fá KA í heimsókn og
hefst viðureignin klukkan 18.15.
„Valsmenn eru betri og með heil-
steyptara lið, en KA spilar af mik-
varði frábærlega.
Er um stundaifyórðungur var
eftir var Ásgeir svo tekinn út af
og einni mfn. síðar jók Stuttgart
forystuna. Mirwald, sem kom inn á
fyrir Ásgeir, átti skot í slá, boltinn
barst til Gaudino og hann skoraði
í autt markið. Mirwald kom þarna
strax við sögu, en sást svo ekki það
illi gleði og leikmennirnir, sem
margir hveijir eru góðir, hafa
greinilega gaman af því sem þeir
eru að gera. Ég hallast að heima-
sigri."
UBK og Víkingur leika í Digra-
nesi klukkan 20. „Síðustu leikir lið-
anna ráða úrslitum. Víkingar hafa
burði til að ná sér eftir skell og
fara því með sigur af hólmi."
Fram og Stjarnan leika síðan í
Laugardalshöll á morgun klukkan
20.15. „Við ætlum að sigra, en
þetta getur orðið okkar erfiðasti
leikur til þessa og við vanmetum
ekki mótheijana. Fram er gamal-
sem eftir var.
Bayem sótti stíft það sem eftir
var án þess að eiga hættuleg færi,
en skoraði þó tvívegis. Níu mín.
fyrir leikslok minnkaði Olaf Thon
muninn í 3:2 og strax mfnútu síðar
jafnaði Svíinn Johnny Ekström 3:3.
Hann kom skömmu áður inn á sem
varamaður.
gróið félag og það er seigla í lið-
inu,“ sagði þjálfari Stjörnunnar.
Fj.lélkja u J T Mörk Stig
Valur 3 3 0 0 82: 59 6
KR 3 3 0 0 73: 59 6
KA 3 2 0 1 73: 63 4
FH 3 2 0 1 72: 66 4
Grótta 3 2 0 1 65: 63 4
Víkingur 3 1 0 2 70: 76 2
UBK 3 1 0 2 64: 70 2
ÍBV 3 1 0 2 63: 72 2
Stjarnan 3 0 0 3 61:67 0
Fram 3 0 0 3 61: 89 0
■ / BLAÐINU Independent er
ofangreindar sögur af Tottenham
að fmna. Þar eru menn hvattir til
að senda blaðinu góðar sögur ef
þeir eiga einhveijar f pokahominu.
Fyrstu verðlaun em miði á einn^
heimaleik Tottenham, en háðunga-
verðlaunin, fyrir lélegustu söguna
em — já, miði á alla þá heimaleiki
Tottenham sem eftir em í vetur!
■ PAUL Stephenson, sem Mill-
wall keypti frá Newcastle á dögun-
um lék sinn fyrsta leik með liðinu
gegn Liverpool á Anfield um helg-
ina. Hann skoraði mark Millwall í
1:1 jafntefli og hefur aldrei tapað
leik á Anfield. Stephenson lék
tvívegis með Newcastle, sem vann
annan leikinn og hinn endaði með
jafntefli.
Honda 89
Accord
Sedan
2,0 EX
Verð frá 1053 þúsund,
miðað við staðgreiðslu á gengi 1. nóv. 1988
NÝ AFBORGUNARKJÖR
ÁN VAXTA OG VERÐBÓTA.
ÍHONDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SfMI 689900