Morgunblaðið - 25.11.1988, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
C 11
Grœnt oggómsœtt
SVEPPASUPA
50 g þurrkaðir villisveppir
550 g nýir sveppir og/eða villtir
safi úr 1 sítrónu
2 msk. smjör
3 meðalstórir skalotlaukar,
afhýddir og smásaxaðir
3-4 meðalstór hvítlauksrif, marin
2 msk. ólífuolía
tæpur 1,2 I grænmetissoð
eða vatn
1 meðalstór kartafla, afhýdd,
skorin í teninga
1,5 dl þurrt rauðvín
2 msk. sojasósa
timian og rósmarín,
hálf tsk. af hvoru, saxað
4 msk. sýrður rjómi
1111 söxuð steinselja til skrauts
Hellið sjóðandi vatni á villi-
sveppina og látið þá iiggja í
því í 20-30 mínútur. Skerið 6
fallega ætisveppi í þunnar
sneiðar, veltið þeim upp úr
sítrónusafa og geymið þar til
síðast. Skerið ætisveppina
sem eftir eru í fjórðunga.
Bræðið smjörið á miðlungs-
hita. Steikið skalotlaukinn
með 1 hvítlauksrifi þartil hann
er gullbrúnn og hrærið í á
meðan. Látið renna af villi-
sveppunum og geymið vök-
vann. Skolið þá vel og kreistið
úr þeim vökvann. Geymið 6
kúfaðar matskeiðar af ólífu-
olíu, ætisveppunum og af-
ganginn af hvítlauknum. Látið
þetta malla á miðlungshita í
5 til 10 mínútur. Bætið við
dálitlu af víninu og síðan soj-
asósu, timian og rósmarín.
Látið þetta krauma í 10
mínútur enn og hrærið í á
meðan. Síið sveppavökvann
sem þið geymduð og þætið
við soði svo þetta verði 1,2
lítrar. Hellið þessu á svepp-
ina, bætið kartöflunni við, lát-
ið suðuna koma upp og sjóð-
ið við lágan hita í 30 mínútur.
Smásaxið villisveppina sem
þið geymduð, hitið olíuna sem
eftir er og steikið þá í henni í
5 mínútur. Hrærið í á meðan.
Saltið og piprið. Búið til mauk
úr súpunni í hnífakvörn og
setjið hana aftur í pottinn.
Bætið í hana því sem eftir er
af víninu. Þeytið saman við
hana sýrðan rjóma og setjið
steiktu villisveppina út í. Hitið
súpuna og skreytið með
steinselju og sítrónusveppun-
um þegar hún er borin fram.
Þessa súpu má geyma í kæli
í sólarhring.
GRANATEPLASKÁL
4 kívíávextir, afhýddir og
saxaðir
2 granatepli, fræin tekin
úr
1 msk. hvftt romm-bland-
að
1 msk. af tæru hunangi
1,5 dl rjómi, þeyttur þar
til hann heldur lögun
sinni
1 eggjahvíta, stífþeytt
2 msk. mjög fíngerður
sykur eða flórsykur
nokkrir myntukvístar (má
sleppa)
Setjið saxaða kívíávext-
ina í skál og graniteplafræ-
in f aðra, nema 2 mat-
skeiðar sem þið geymið.
Skiptið rommblöndunni
jafnt í skálarnar. Blandið
saman þeyttum rjóma og
stífþeyttri eggjahvítu og
hrærið svo sykurinn sam-
an við. Setjið nú allt þetta
þrennt til skiptis í failegar
skálar eða glös á fæti og
hafið rjómablöndu efst.
Kælið í 30 mínútur. Skrey-
tið með fræjunum sem
voru geymd og myntu-
kvistum.
GLJÁÐIR
RÓTARÁVEXTIR
MEÐ
VILLIHRÍS-
GRJÓNADYNGJU
í viilihrísgrjónadyngjuna:
150 g villihrísgrjón, skoluð
150 g stutt hrísgrjón, skoluð
150 g löng hrfsgrjón
(basmati), skoluð
50 g brætt smjör
salt og pipar
í grænmetið:
450 g smálaukur, afhýddur
450 g smár blaðlaukur,
veginn hreinsaður
450 g litlar gulrætur, skafnar
450 g fennika, vegin hreinsuð
225 g pastinakka, afhýdd
225 g jarðaldin, vegin afhýdd
225 g kastaníur,
vegnar skurðlausar
1,2 i grænmetissoð
75 g smjör
I glerunginn
3 msk þurrt vermút
11/2 msk. hvítvínsedik
salt og pipar eftir bragði
11/2 msk. sykur
1 msk. fínt maísmjöl
5 msk. sesamfræ, ristuð
5 msk. steinselja, söxuð
Sjóðið grjónin. Látið renna af
þeim, blandið saman við þau
smjöri, salti og pipar og setjið
blönduna í smurt búðingsform
sem tekur 1,5 I. Setjið lok á það
og haldið þessu heitu. Saxið allt
grænmetið, nema laukinn, í 2 sm
bita, en mjög smáar gulrætur
mega vera heilar. Takið utan af
kastaníunum og skerið þær í
fernt. Sjóðið gulræturnar f 5
mínútur og látið renna af þeim.
Brúnið lauk, þlaðlauk og fenniku
aðeins í smjörinu. Hitið soðið og
hellið því á grænmetið, svo það
sé nokkurn veginn í kafi. Setjið
lok á og látið þetta krauma þar
til grænmetið er rótt aðeins orð-
ið mjúkt. Þá á að láta renna vel
af því og geyma soöiö. Þegar
allt grænmetið er meyrt á að láta
grænmetissoðið sjóða þar til eft-
ir eru 4,5 dl. Setjið út í það verm-
út, krydd og sykur. Blandið maís-
mjölinu saman við 2 mSk. af heit-
um vökvanum. Helliö blöndunni
í pottinn og hrærið í þar til sýð-
ur. Látið þetta sjóða hægt í 2
mínútur. Hellið sósunni á græn-
metið og blandið saman sesam-
fræjum og steinselju.
Það er rangt að svipta fólk sorg-
inni. Engum kæmi til hugar að
segja við manneskju sem missir
maka sinn: „Iss, flýttu þér bara að
finna þér nýjan." Þetta segir fé-
lagsráðgjafinn Gunni Söe sem hef-
ur sérhæft sig í aðstoö við fjöl-
, skyldur sem eiga um sárt að binda
en sjálf hefur hún orðiö fyrir því
að missa barn. Hún bendir á að
fæstir viti hvernig koma eigi fram
við manneskju sem hefur orðið
fyrir áfalli eða á í miklum erfiðleik-
um. Sumir taka þann kost að forða
sér en aðrir reyna að láta í té hugg-
un með því að gera lítið úr því sem
gerzt hefur og draga í staðinn fram
eitthvað jákvætt sem kann að vera
framundan, s.s. vorið eða sumar-
leyfi. Þetta er röng aðferð af því
að hún hefur þveröfug áhrif miðað
við það sem henni er ætlað. Sorg-
in verður enn þungbærari þegar
hún ber að dyrum þegar aðrir eru
\ glaöir og fullir eftirvæntingar.
Oft eru syrgjendur eða þeir sem
eiga í sérstökum erfiðleikum svo
illa á sig komnir og öryggisvana
aö þeir eru þess ekki umkomnir
að svara fyrir sig. Fólk í þessari
aðstöðu á það líka til að bregðast
óvenjuharkalega við. Dæmi um
slíkt eru foreldrar sem höfðu misst
barn sem var hálfsannars árs og
urðu óvkæða við þegar læknirinn
ráðlagði þeim að fara út að borða
eða fara í ferðalag og reyna bara
að gleyma þessu.
Sumu fólki tekzt að pæla sig (
gegnum sorg eða kreppu. Aðrir
eru ekki færir um að gera það.
Þetta er einstaklingsbundið.
Sjaldnast á þó við, eins og margir
gera í góðum tilgangi, að brýna
fyrir þeim sem svo er ástatt um
að hella sér út í mikla vinnu í því
skyni að komast yfir sorgina.
Verum spör á góð ráð
Margir eiga bágt með að horf-
ast i augu við að aðrir eigi um
sárt að binda og að grunnurinn
undir lífi þeirra leiki á reiöiskjálfi.
Fólk óttast það að vera í námunda
við manneskju sem er miður sín
af örvæntingu, kannski af hræðslu
við að slikt ástand geti verið smit-
andi. Hægt er að losa sig við slíkan
ótta. Öll búum við yfir sterkum til-
finningum sem koma upp á yfir-
borðið þegar ( harðbakka slær og
það er ekki annað en eðlilegt. Þá
er þörf fyrir umhyggju af hálfu
umhverfisins en ekki fyrir alls kon-
ar róðleggingar um hitt og þetta
til að slá á sársaukann.
Við slíkar aðstæður er mikilvægt
að sýna skilning fremur en að
reyna aö taka ráðin af manneskju
sem er sorgmædd og auk þess
vanmáttug, örvingluð og jafnvel
full reiði. Þegar svo stendur á er
mest um vert að vera til taks og
bjóða fram aðstoð, t.d. við það að
gæta barna eða taka til. Það skipt-
ir líka máli að vera reiðubúinn að
hlusta. Við slíkar aðstæður hefur
fólk yfirleitt þörf fyrir að segja frá
því sem þjakar það. En það er
ekki sama hvernig slík samtöl fara
fram. Viðkomandi þarf að finna að
hann mæti skilningi en smám sam-
an er ástæða til að beita hann
skynsamlegum fortölum til að fá
hann til að hugsa skýrt, t.d. með
því að spyrja út í umræðuefniö.
T.d. má spyrja þann sem stendur
í skilnaði hvaða tilgang það hefði
að koma fram hefndum á fyrrver-
andi maka. En fyrst í stað er mikil-
vægast að hlusta og reyna þannig
að hjálpa þeim sem hefur orðið
fyrir sorg að gera sér grein fyrir
staðreyndum og láta í Ijós samúð.
Ekki þarf aö gera þvi skóna að
sama viðmót eigi við í öllum tilvik-
um. Því er vert að spara góðu ráð-
in en rétta í staðinn út höndina til
vinar eða skyldmennis i viðkvæmri
aðstöðu, hvort sem um er að ræða
ánægjulegan viðburð eins og fæö-
ingu eða sorglegan eins og óst-
vinamissi eða skilnað.
Og kannski er það rétt að góð
ráð séu eitthvað sem maður sé
reiðubúinn að gefa af því að mað-
ur hefur engin not fyrir þau sjálfur.
BIODROGA
Snyrtivörukynning í dag föstudag
Bankastræti 3, sími 13635.
jurtasnyrtivqrur
BIODROGA
alkúhúlprufan
Alkóhólið situr lengur í blóðinu en þú heldur.
Notkun er mjög einföld: Opnið pokann, takið
prufustrimilinn og bleytið í munnvatni. Bíðið í 2
mínútur og berið síðan saman við litakortið. Örugg
niðurstaða á aðeins 2 mínútum.
Neytið ekki matar né drykkjar
15 mínútum áður en prufan
er framkvæmd.
0,2%. 0,S»/„ 1,0 %. 2,4»/«
Einkaumboð:
EINAR PÉTURSS0N
-heildverslun-
Hafnarstræti 7, sími 18060.
3 prufur í pakka.
H0RNSÓFAR
Margar gerðir, smíðum eftir máli.
Eirmig sófasettog hvíldarstólar
í miklu úrvali.
Opið virkadaga kl. 9-18 og
iaugardagakl. 10-17.
húsgögn
Bíldshöfða 8, símar 674080 og 686675