Morgunblaðið - 16.12.1988, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988
‘ C 5
Inga
að námið í Kaupmannahöfn hafi
verið mjög lærdómsríkt þá held
ég að það sé reynsla fyrir mig
að vera í París sem er miðpunkt-
ur tískunnar. Ég er ekki alveg
búin að gera það upp við mig í
hverskonar hönnun ég fer, bún-
ingahönnun eða jafnvel textíl-
hönnun gæti vel komið til greina.
Ég reikna því ekki með að fara í
neina fasta vinnu þennan tíma
þangað til ég fer út, heldur taka
sjálfstætt að mér verkefni.“
— Ertu bjartsýn á framtíð
fatahönnunar herna heima?
„Mér finnst yiðhorf fólks til
íslenskrar fatahönnunar vera að
breytast mjög mikið. Hér áður
fyrr lét enginn sjá sig í íslenskri
hönnun og innlendir framleið-
endur létu jafnvel breyta nöfnum
í erlend til að flíkur seldust. Þetta
er á undanhaldi og í dag þykir
það gaman að vera aðeins öðruv-
ísi.
Það eru mikil viðbrigði að
koma heim frá Danmörku hvað
fatnað snertir. íslendingar klæða
sig mjög vel, fylgjast með nýjung-
um og eyða peningum í föt. Það
er svo skrítið að þrátt fyrir tal
um að allt sé á hausnum get ég
ekki séð þaö á klæðaburði fólks.
í Danmörku er almenningur hal-
lærislegur til fara og það eru ein-
ungis fyrirsætur, fólk sem hræ-
rist í tískuheiminum og efnað
fólk sem fylgist með og eyðir í
tískufatnað. Hér á íslandi eru föt
dýr en fólk virðist ekki setja það
fyrir sig og sparar þá í öðru. Það
er mjög ríkt í okkur að vera vel
til fara.“
Það er ekki hægt að sleppa
fatahönnuði úr spjalli án þess að
spyrja hvað það sé sem komi til
með að bera hæst í fatnaði á
næstunni.
„Breytingarnar eru mestar í
kvenfatnaði og frekar rómantísk-
ur stíllinn sem verður í sumar.
Berar axlir verða vinsælar og
aðskorið mitti heldur sér. Pilssí-
ddin verður um hné en einnig
ber nokkuð á ökklasíðum pilsum.
Buxur verða víðar og víðu stutt-
buxurnar (bermuda-buxur)
ganga áfram. Ermar á flíkum eru
að þrengjast og stuttir bolir og
ber magi er nokkuð sem verður
áberandi."
Inga segir að lokum að þeir
litir sem komi til með að bera
hæst á komandi sumri séu mild-
ir jarðlitir eins og hermanna-
grænt, Ijósbrúnn og Ijósgulur.
Hinsvegar verður líka nokkuð um
sterka sígaunaliti eins og rauðan,
gulan og bláan.
GRG
.STÓRUi ■
stunaimar
Lífið er í raun dásamlegt ævin-
týri, og þó flestir hafi átt sína
ósigra og sorgarstundir, þá hafa í
fleiri tilfellum sigrar verið meiri og
gleðistundir fleiri. En lífið getur
verið margbrotið og margir boðar
á lífsleiðinni sem læra þarf að
sneiða hjá, það er því nauðsynlegt
að kunna umgangast samferða-
menn sína á réttan hátt eigi vel
að fara. Mikilvægi þessa sam-
skiptaþáttar hefur mönnum verið
Ijós frá örófi alda og hafa þjóðir
þróað með sér ákveðna lífsspeki
með heilræðum og leiðbeiningum
fyrir þegna að fara eftir í samskipt-
umhverviðannan.
í „Gestaþætti" Hávamála, sem
raunar er okkar fyrsta rit heilræða
í hegðan og góðum siðum, segir
frá gesti á ferðalagi sem kemur á
bæ og er kvæðabálkurinn um
hegðan gesta á ferð sinni um lífið.
Þar eru að finna viðvaranir og góð
ráðtil eftirbreytni. Heilræðin eru
sígild enda spanna þau mannlífið
í sínum margbreytileik. Maðurinn
hefur í eðli sínu lítið breyst í ald-
anna rás — aðeins aðstæður.
Fáar bækur hafa verið birtar á
tslensku, á undanförnum árum, um
samskipaþætti og góða siði, þar
til nú fyrir jólin að á markað kom
bókin „Stóru stundirnar" eftir Her-
mann RagnarStefánsson. Þarleit-
ast höfundur við að fræða og leið-
beina okkur samtíðarmönnum
sínum, er við upplifum helstu við-
burði lífsins — á þessu undarlega
ferðalagi okkar hér á þessari jörð,
eins og stendur i kvæðinu „Hótel
jörð“ eftirTómas Guðmundsson
og höfundur vitnað til í upphafi
bókarinnar. En efni hennar spann-
ar lífið frá vöggu til grafar.
í bókinni er greint frá helstu við-
burðum sem flestir upplifa á lífsleið
sinni og hefjast þeir á fæðingunni
sjálfri. Tekin eru fyrir réttindi og
skyldur foreldra og raktir þjóðíegir
siðir sem viðhaldist hafa gagnvart
móður og nýfæddu barni. Skímin,
nafngift og skyldur foreldra og sú
viðhöfn sem skírninni fyígir er ein
af stóru stundunum. Henni erfylgt
eftir með ábendingum um hvernig
staðið skuli að veitingum við slík
tækifæri. Fermingin er stór stund
og fylgir henni lýsing á undirbún-
ingi og framkvæmd og þátttöku
ættingja og vina. Með fermingunni
eru börnin tekin upp í samfélag
hinna fullorðnu og brátt upplifa
þau aðra stóra stund, þegar þau
hafa fundið sinn farveg i lífinu og
lokið prófi í starfsgrein sem þau
hafa valið að lífsstarfi.
Lífið er ekki fullkomið fyrr en
fundinn hefur verið lífsförunautur.
Hér áður fyrrtrúlofaði ungt fók sig
og sat í festum svo og svo langan
tíma áður en kom að brúðkaupinu,
en það er ein af stærstu stundum
í lífi fiestra. Brúðkaup hafa löngum
krafist mikils undirbúnings og góðs
skipulags og er þeim þætti góð
skil gerð i bókinni. Afmæli barna
og fullorðinna eru einnig stórar
stundir. Gestaboðum eru gerð ýt-
arleg skil með hugleiðingum um
tiigang, hvernig að þeim skuli stað-
ið, val á matseðli og hvernig leggja
eigi á borð. Einnig eru tekin fyrir
hin ýmsu veisluform eins og grill-
veisla og fondue-boð.
í bókinni er kafli um andlát og
jarðarfarir og hvert skuli leita að-
stoðar verði dauðsfall í fjölskyld-
unni. Komið er inn á skyldur eftirlif
andi ættingja og siðvenjum sem
fylgja útförum.
Lokakaflinn er um siðareglur
sem fólk almennt ætti að tileinka
sér, eins og viðurkenndar um-
gengnisreglur á vinnustað, á al-
mannafæri, um borðsiði og klæða
burð.
Hermann Ragnar Stefánsson
segir á einum stað í lokakafla bók-
arinnar, — að með því að temja
sér góða siði og venjur geri það
okkur fært að koma vel fyrir og
sé það nokkurs konar meðmæla-
bréf hins siðmenntaða manns. —
Tilgangur bókarinnar er að að-
stoða við aö ná því takmarki.
M. Þorv.
SIMYRTING
úr krafta-
verkajurt
Kraftaverkajurtina“ hafa indíj-
ánar öldum saman nefnt jurt-
ina Aloe Vera vegna græðandi
lækningarmáttar, vítamín og pró-
teininnihalds. Nú er nýlega komið
á markaðinn hér shampó sem unn-
ið er úr þessari jurt og öðrum
heilsubótarjurtum og er það laust
við öll litar- og gerviefni, að sögn
framleiðenda. Er það einungis selt
í apótekum, heilsubúðum og á
snyrtistofum.
Aloi’ Vera
Shumpoo
Ml/l l'ilHllll'llul, (.’lulHltMttb
iin.l ( „11111111 Rih>1
cnc
«11 l>/ I M' mll
HEILSA
Líkams-v
rækt
á mynd-
bandi
Fyrir þá sem ekki hafa tíma eða
nennu til að drífa sig í líkams-
ræktarstöð eða leikfimi er nú kom-
inn sá möguleiki að sprikla heima
í stofu undir leiðsögn íþróttafræð-
ings- og leiðbeinanda. „í fínu formi
með Jónínu og Ágústu“ nefnist
myndband sem þær Jónína Bene-
diktsdóttir, íþróttafræðingur,
Ágústa Johnson, leiðbeinandi og
Ífínuformi
Stefán Einar Matthíasson, læknir
hafa unnið að. Byggir það á tveim-
ur 45 mínútna löngum þáttum,
annars vegar byrjendaleikfimi, þ.e.
uupphitun, liðleikaþjálfun, styrk-
leikaþjálfun og slökunaræfingum
og hins vegar framhaldsleikfimi,
þ.e. upphitun, liðkunaræfingum,
eróbikk, styrkæfingum og slökuna-
ræfingum. Myndbandið er selt i
Stúdíói Jónínu og Ágústu.
VE