Morgunblaðið - 16.12.1988, Síða 11

Morgunblaðið - 16.12.1988, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖS'rtÍJDÁGUR 16. 'DBSEMBER 1988 c ii Stóri kvennafræð- arinn er yfirgrips- mikil bók með fjölda kafla um mismunandi efni, mikið mynd- skreytt og með mörgum skýring- _ töflum. Við grípum hér niður í kaflann um lífshætti þar sem rætt er um þröskulda fullorðinsáranna og birtum hluta hans. Milli tvítugs og þrítugs Borið saman við stormasöm unglingsárin er þessi aldur til- tölulega rólegur en um leið spennandi og fullur virkni og at- hafna. Við hugsum fyrst og fremst um að skoða umheiminn og reyna að hafa áhrif é hann okkur í hag. Við viljum komast að því hvernig við getum náð framtíðarmarkmiðum okkar. Við viljum vita hvar á að hefjast handa, hverjir verða á okkar bandi og hvernig eigi að takast á við erfið verkefni. Samskipti og sambönd við aðra eru okkur ofar- lega í huga og flestar viljum við halda tiltölulega nánu og stöð- ugu sambandi við annan aðila en um leið reyna að halda sjálf- stæði okkar. Um níu af hverjum tíu konum giftast eða taka upp sambúð á þessum aldri og eign- ast eitt eða tvö börn. Á árunum eftir tvítugt látum við flestar fyrst í stað stjórnast af því sem við höldum að við eig- um að gera. Það byggist meðal annars á því hverju við höldum að fjölskylda okkar, þjóðfélagið og félagar okkar búast við af okkur. Oft finnst okkur við verða fyrir þrýstingi vegna slíkra vænt- inga. Eitt af því sem veldur okkur erfiðleikum á þessum aldri er að við höldum að allar ákvarðanir sem við tökum séu óafturkallan- legar. En við eigum eftir að sjá að svo er alls ekki. Annars vegar finnst okkur við vera undir þrýst- ingi til þess að taka á okkur skuldbindingar og ákveða lífsmynstur okkar endanlega. Á hinn bóginn langar okkur alls ekki til að festast í einu ákveðnu mynstri um alla framtíð. Mörgum finnst að fara verði milliveginn, leita fyrir sér og prófa sig áfram, gæta þess að ekkert ástand verði varanlegt og alltaf finnist undankomuleiðir. Við eigum því flestar tveggja kosta völ á árunum milli tvítugs og þrítugs. Við getum tekið á okkur miklar skuldbindingar og beint framtíð okkar í ákveðinn farveg eða við getum fylgt síbreytilegu og óstöðugu lífsmynstri. Báðum hópunum er þó sameiginlegt að konur trúa því að þær muni fylgja þeirri leið sem þær hafa valið ævina á enda. Þær halda að þær hafi valið einu réttu leiðina fyrir sig og því verði ekki breytt. Auðvitað er þetta ekki rétt. Milli þrítugs og fertugs Ein algengasta breytingin sem verður í lífi okkar þegar við kom- umst á þennan aldur er afneitum á þeim lífsháttum sem við reynd- um af alúð og kostgæfni að skapa okkur áratuginn á undan. Algengt er að bæði körlum og konum finnist að líf þeirra sé og miklum takmörkunum háð og þau vilji brjóta sér leiö út. Vissu- lega kann að vera að við höfum valið rétt á árunum eftir tvítugt miðað við þær aðstæður sem þá ríktu en það er ekki þar með sagt að þeir lífshættir henti okkur núna. Mörgum finnst ástæða til að endurskoða val sitt, taka nýjar ákvarðanir og breyta til. Árangur- inn verður oft miklar breytingar, óreiða í lífi okkar og stundum alvarleg kreppa. Okkur finnst við vera komnar á botninn en um leið finnum við óviðráðanlega hvöt til að umbylta lífi okkar. Algengt er að ógiftar konur á þessum aldri reyni mikið til að finna sér lífsförunaut, að konur Stóri sem höfðu ákveðið að taka fjöl- skylduna fram yfir starfsframann og voru ánægðar með að vera heima yfir börnunum séu nú orðnar ergilegar og óánægðar með húsmóðurhlutverkið og vilji komast í nánari tengsl við um- heiminn og fara að vinna úti og einnig að hjón sem áður höfðu ákveðið aö eignast ekki börn skipti nú um skoðun. Langflestar þeirra sem hafa verið í hjóna- bandi í 6-7 ár finna fyrir ein- hverri óánægju og margar lenda í hjónabandserfiðleikum og kreppu. Upp úr þrítugu finna ýmsir, bæði karlar og konur, hjá sér þörf til að taka þátt í félagsstörf- um eða stjórnmálum vegna þess að þeim finnst eitthvað skorta, að lífið hljóti að hafa upp á eitt- hvað fleira að bjóða og reyna að finna vettvang til að þroska per- sónuleika sinn. Mörgum gengur líka mjög vel í starfi á þessum árum. Þegar 35 ára aldrinum er náð finnst mörgum þær standa á krossgötum. Þær átta sig allt í einu á því að lífið er ekki óendan- legt og tími þeirra takmarkaður. Oft finna þær á eigin líkams- ástandi að æskan er liðin hjá. Þær eru þreyttari en áður eftir sundsprett, móðar eftir að hafa hlaupið upp stiga og hafa ekki sama þrek og áður. Flestar fara að velta fyrir sér tilgangi lífs síns og huga betur að því hvernig þær eyða kröftum sínum þaðan ífrá. Þessum krossgötum ná konur oft fyrr en karlar. Þær stinga oft við fótunum og endurmeta líf sitt gjörsamlega frá öllum sjónar- hornum. Oft finnst þeim þetta vera síðasta tækifærið til að breyta um lífshætti og þær verða að endurskoða fyrra val sitt og kanna þá möguleika sem þær höfnuðu á sínum tíma. Það eru oft líkamleg aldurseinkenni sem hrinda slíku sjálfsmati af stað. Margar konur eyða mikilli orku í að leita að nýrri framtíð sér til handa og sú tilfinning að tíminn sé að verða útrunninn eykur þrjósku þeirra og kjark. Þær eru reiðubúnar til að takast á við vanda sem þær hafa áöur skotið sér undan. Það er oft á þessum tímamót- um sem konur taka ákvörðun um mjög róttækar breytingar á lífsháttum sínum, t.d. um skilnað, um að hverfa aftur út á vinnu- markaðinn, um að finna sér nýtt lífsstarf eða hefja nýja sambúð. Þetta eru tímamót sem skipta flestar konur miklu máli. Þær llni' núfimtíti vv//w <i tiitin. /’iii’ ífnt . t.'//' 'iir . u) iiKil .\/wrviih‘!tw um iifí/uitt iiví) <tvt \Hf/Tit lit/i'úí’/ /i//'iin,i i's; itiskttn verða varar við sterka hvöt til breytinga og nota allan þann tíma og alla þá orku sem þær þurfa til að leita leiða til að hrinda slíkri breytingu í framkvæmd. Á því veltur andlegur vöxtur þeirra og þroski í framtíðinni. Ef það er ekki gert fer illa. Kona sem þráir breytingar en sættir sig við óbreytt ástand verður gröm, ergileg, óánægö og stöðnuð og mun ekki þroskast áfram. Auk þess er hún í rauninni aðeins að vinna sér frest því óánægja hennar brýst aftur fram seinna. Svo getur farið að hún lifi óham- ingjusömu lífi í mörg ár en viti þó fullvel að fyrr eða síðar verður hún að gera miklar breytingar á lífi sínu. Milli fertugs og fimmtugs Margar konur koma ekki að þeim krossgötum sem rætt var um hér á undan fyrr en um fer- tugt og oft líða nokkur ár þar til lífið er komið í fastar skorður á nýjan leik. Þess vegna verða árin þegar konur fara að nálgast fimmtugt oft eins og logn eftir stormasöm ár. Líf þeirra er oft- ast komið í jafnvægi, flest meiri- háttar vandamál eru leyst og þær hafa komið sér fyrir og eru sáttar við sjálfar sig. Ef til vill eru þær raunverulega ánægðar með lífið í fyrsta sinn. En það er þeirra eigið val sem ræður því hvert þær eru raun- verulega ánægðar eða hvort þær hafa gefist upp. Kona sem hefur látið nægja að ýta vandanum til hliðar er líkleg til að missa smám saman móðinn og glata sjáfsvit- und sinni, auk þess sem þroski hennar er hindraður og hún stendur í stað. Þetta gerist með- al annars vegna þess að þeir þættir sem hún treysti á og hafa skapað henni öryggi hverfa einn af öðrum. Börnin vaxa úr grasi og yfirgefa heimilið, ef til vill þroskast maki hennar hraðar en hún og vex frá henni og vinnan hættir að vera lífsfylling og verð- ur aðeins skyldustarf. Smám saman verður erfiðara að sætta sig við þetta. Sennilegt er að ný kreppa skapist í kringum fimm- tugt og hún verði erfiðari en kon- an átti í á fertugsaldrinum. Sú kona sem tókst á við vand- ann þegar hún stóð á kross- götum og gerði nauðsynlegar breytingar og aðlaganir hefur aftur á móti fundið lífinu nýjan tilgang. Innra með sér hefur hún fundið hvöt og styrk til að skapa sér - ánægjulega lífshætti og henni er Ijóst að hún á fyrir hönd- um bestu ár ævinnar. Hún getur orðið mjög hamingjusöm. Sjálf- straust hennar er í hámarki og hún hetur brugðist við erfiðleik- um af ró og skynsemi. Slíkri konur er sennilegt að forðast að sýna manni sínum og börnum eigingirni eða yfirgang og hún verður lífsglaðari og já- kvæðari öðrum en ella. Vinir skipta miklu máli. Það verður augljóst hvaö á að hafa forgang og auðvelt að taka ákvarðanir. Kona sem þannig er ástatt um kann að meta það sem hún hefur og þessi aldur getur því reynst henni afar ánægjulegur og þægi- legur. Milli fimmtugs og sextugs Þegar komið er yfir fimmtugt þurfa konur einu sinni enn að endurmeta líf sitt. Það er fyrst og fremst vegna þess að þær geta ekki lengur litið framhjá líkamlegum og andlegum hrörn- unareinkennum, t.d. minnkandi þreki og versnandi sjón, heyrn og minni. Fallvaltleiki lífsins verð- ur þeim æ Ijósari. Tíðarhvörfin eru fyrir flestum konum helsta líkamlega og sálfræðilega ein- kenni þessa tímabils. Sálfræðingar hafa bent á að á þessum aldri verður oft vart við hægfara breytingar á hlutverkum kynjanna innan hjónabandsins. Starfið skiptir minna máli en áður og margir fara að minnka við sig vinnu. Meiri áhersla er lögð á frí og tómstundir. Við þetta missa karlar hluta þess forskots sem margir þeirra hafa haft á konur sínar vegna þess að þeir gegna oft hærri stöðum. Um leið er oft eins og konur fái aukið sjálfsálit og fari að gegna stærra hlutverki en áður. Sumar konur sem hafa verið heimavinnandi leita út á vinnumarkaðinn eða reyna að veita sköpunargleði sinni útrás á heimilinu. Á þessum tíma fara yngstu börnin oftast að heiman og margar konur hlakka til að eiga nokkurs konar síðari hveiti- brauðsdaga með manni sínum. En oft verða þær fyrir vonbrigð- um því margir karlar eru lítt hrifn- ir af þessari breyttu hlutverka- skipan. Á þessum aldri fer heilsa okk- ar að skipta æ meira máli. Um leið og við verðum sífellt betur varar við líkamlegar breytingar á okkur sjálfum aukast líka áhyggj- ur vegna versnandi heilsu maka okkar og einnig vegna þess að við óttumst að verða þungur fjár- hagslegur og félágslegur baggi á fjölskyldu okkar og þjóðfélaginu síðar. Oft höfum við einnig áhyggjur af því að komast á eftirlaunaald- urin — og ef ekki okkar vegna þá vegna maka okkar — og hvaða áhrif það muni hafa á lífshætti okkar. Oft eigum við sjálfar aldr- aða foreldra eða tengdaforeldra sem þarf að annast um á ýmsan hátt. Slík umönnun kemur oftast nær eingöngu í hlut kvenna. Hún getur reynst tímafrek og erfið og veldur stundum miklu álagi í samskiptum við maka og börn, hindrar okkur í störfum og veldur líkamlegri og andlegri streitu. Á þessum aldri dregur smám saman úr hraðanum í lífi okkar og við drögum smátt og smátt úr ýmsum athöfnum (t.d. kynlrfi). Við verðum umburðarlyndari en áður, bæði gagnvart okkur sjálf- um og öðrum. Viðhorf okkar breytast smátt og smátt og verða mildari. Konur sem hafa búið í hjóna- bandi verða þess oft varar þegar þær fara að nálgast sextugsala- urinn að samband þeirra við makann en nánara en nokkru sinni fyrr. Þetta kanna að mega tengja samskiptum við bama- börn. Þau eru einhver ánægju- legasti þáttur þessa aldursskeiös og geta orðið til þess að færa afann og ömmuna nær hvort öðru en áður . . . SNYRTING JOOP! Nýtt ilmvatn Joop heitir ilmvatn sem nýkomið er á markað. Ilmvatnið er kennt við einn af fremstu tískuhönnuðum þjóðverja, Wolfgang Joop. Hann hefur auk þess að vera þekktur fatahönnuður getið sér örðstír fyr- ir snyrtivörur sínar. ísland er fyrsta landið utan meginlands Evrópu þar sem Joop snyrtivörur eru kynntar. Auk Joop ilmvatnsins er einnig mögulegt að fá með sama ilm til- heyrandi baðvörur. Ombre bleue Nýr ilmurfrá Je- an Charles Brosseau Nýlega kom á markaðinn Ombre Bleue sem er nýr ilm- ur frá franska tískukónginum Jean Charles Brosseau. Ilmvatnið inniheldur blöndu af jasmín, rósum, vanillu, mango papaya og kókoshnetu. Ilmvatns- glösin eru gerð úr handblásnum kristal og skreytt með sandblásnu listaverki. Baðlína er væntanleg innan tíðar frá þessu sama merki. GRG Kvenna- titíeóariiin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.