Morgunblaðið - 06.01.1989, Page 5

Morgunblaðið - 06.01.1989, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989 C 5 sem við erum að ræða um er „sérstakt". Þannig sjá allir foreldr- ar sitt barn og auðvitað smitumst við af því. Enda er hver einstakling- ur afskaplega sérstakur." vökudeildin tilheyrir sem fyrr segir Barnaspítala Hringsins, en hefur frá upphafi verið staðsett á kvennadeild og segir Gunnar það eitt að deildin skuli vera á fæðing- argangi, örfáum skrefum frá fæð- ingarstofum og skurðstofu vera algera óskastaðsetningu fyrir keis- araskurðaðgerðir. Reyndar sprengdi deildin ekki alls fyrir löngu það húsnæði utan af sér af þeirri ánægjulegu ástæðu að full- kominn tækjabúnaður hennar, sem Kvenfélagið Hringurinn á stór- an heiður af, var orðinn full pláss- frekur, en ekki vegna þess að veik- um nýburum hefði fjölgað. Þar hefur ekki orðið hlutfallsleg aukn- ing á, þrátt fyrir fæðingarfjölgun, en um 4-5% nýbura þarfnast að- hlynningar á vökudeild. Mikill stuðningur líknarsamtaka En það er ekki bara vökudeildin sem er vel tækjum búin. Að sögn Gunnlaugs Snædal má svipaða sögu segja um kvennadeildina í heild og er þar ekki síst að þakka þeim fjölmörgu félagasamtökum og einstaklingum sem hafa stutt deildina með fjárframlögum og gjöfum í gegnum tíðina. Má þar nefna Landssöfnun kvenna sem hófst 1969 og lauk eftir að deildin var stækkuð 1975. Þá hafa mörg kvenfélög gefið til deildarinnar s.s. Svölurnar, Rebekkustúkur Odd- fellowreglunnar, Vinahjálp, Kven- félagasamtök íslands, kvenna- deildir Rauða Krossins, Ljós- mæðrafélag Reykjavíkur, Soropt- imistar, ýmsir minningarsjóðir s.s. Vilborgarsjóður og klúbbar á borð við Lions, auk fjölmargra annarra sem of langt mál væri að telja upp. Þá hefur Kvenfélagið Hringur- inn stutt dyggilega við vökudeild- ina, eins og minnst var á varðandi stækkun þeirrar deildar. „Þá reyndi enn á gott samstarf deildanna hér er kvennadeildin lét okkur eftir stofu á sængurkvenna- gangi, þó henni veitti ekki af því plássi fyrir sína starfsemi," segir Gunnar Biering og bætir við að farsælli lausn hefði vart fengist, „því það er mikill léttir fyrir for- eldra veikra nýbura þegar börn á batavegi eru flutt niður á sama gang og mæðurnar." Aukið húsnæði á árinu Þegar húsnæðismálin ber á góma vaknar sú spurning hversu lengi húsnæði kvennadeildar dugi, i haldi íslendingar áfram á sömu braut hvað barnsfæðingar varðar. „Þeim má eiginlega ekki fjölga mikið meira en orðið er ef vel á að vera — hins vegar getur kvenna- i deildin aldrei orðið „full“. Hér er alltaf tekið við,“ segir Jón Þ. Hall- grímsson, yfirlæknir á meðgöngu- deild, en þess má geta að til mikill- ar hagræðingar liggja alltaf fyrir frá mæðraeftirliti nokkuð nákvæmar spár yfir væntanlegar fæðingar þrjá mánuði fram í tímann, þannig að hægt er að stjórna innlögnum á öðrum deildum kvennadeildar en fæðingardeild nokkuð í sam- ræmi við það. Gunnlaugur Snædal bætir við I að horfur séu á að næstu mánuði endurheimti deildin húsnæði sem hún hefur lánað til annarrar starf- semi. Sú viðbót komi til með að gera deildinni kleyft í fyrsta sinn að anna öllu því starfi sem hún var í upphafi hönnuð til. Viðbótar- húsnæðið verður annars vegar Yfirlæknar kvennadeildar og yfirljósmóðir ásamt yfirlækni vökudeildar. F.v. Kristján Sig- urðsson, Jón Hilmar Alfreðs- son, Gunnar Biering, Kristín I. Tómasdóttir, próf. Gunn- laugur Snædal og Jón Þ. Hallgrfmsson. Gunnlaugur hefur starfað lengst lækn- anna á kvennadeild, eða frá árinu 1960, en Kristín hóf störf jhdeildinni 1954. Hefur starfað þar stðan með litlum hléum og er þvf líklega búin að afsanna þá kenningu að taki Ijósmæður fyrst á móti stúlku endist þær stutt í starfinu. Hún hóf ferilinn með þvf að taka á móti 6 stúlkubörnum áður en kom að dreng. Morgunblaðið/Einar Falur Hluti starfsfólks kvennadeildar og gesta á fjörutfu ára afmælisdaginn, en formlega verður haldið upp á það afmæli í dag, 6. janúar. notað til að stórauka göngudeild- arþjónustu og hins vegar undir ófrjósemisrannsóknir og ýmis rannsóknarverkefni önnur þar sem fá þarf fólk inn til rannsókna. „Þetta viðbótarhúsnæði verður einhver besta afmælisgjöfin sem deildin getur fengið á árinu," segir prófessor Gunnlaugur Snædal og við Ijúkum þessari grein með til- vitnun í samantekt um kvenna- deild, sem m.a. er að finna á af- mælissýningu í anddyri deildarinn- ar. Þar segir m.a. um markmið í náinni framtíð: „Á næstu árum stefnum við að því að auka bæði þjónustu- og rannsóknastarfsemi. Við áformum enn betri þjónustu við þungaðar konur og jafnframt rannsóknir á ýmsu er fæðingar varðar, t.d. á orsökum hækkaðs blóðþrýstings í meðgöngu. Sérhæfðar ófrjósemis- rannsóknir og „glasafrjóvganir" þurfa að komast á hér innan tíðar. í samvinnu við Krabbameinsfólag íslands verður áfram unnið að rannsóknum á krabbameini í kyn- færum kvenna. Á þessu ári verður hafin athugun sem miðar að því Upphaflegt starfslið fæðing- ardeildar Landspítalans í janúar 1949, læknar, Ijós- mæður og nemar. Fyrir miðju er prófessor Pótur H. J. Jakobsson, yfirlæknir deildarinnar, og við hlið hans Jóhanna Friðriksdóttir, yfir- Ijósmóðir, en þau tóku ein- mitt á móti fyrsta barni deildarinnar 2. janúar sama ár. að finna betri leiðir til að greina krabbamein í eggjastokkum. Ýmis- leg skráningarvinna og úrvinnsla gagna um meðgöngu og kvensjúk- dóma fer fram á deildinni í sam- vinnu við heilbrigðisyfirvöld. Sam- vinna er við ýmsa aðila innlenda og erlenda um þessar rannsóknir og aðrar." Vilborg Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.