Morgunblaðið - 06.01.1989, Side 10

Morgunblaðið - 06.01.1989, Side 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989 VIKimKAR i ♦ niwr\ Gleðileikir á jólum i ♦ ^iwi ♦ i cv r<cvi Fyrr á öldum voru hér á landi haldnar hátíðir á jólum með gleðileikjum og dönsum sem nefndir voru vikivakar. í upphafi hafa þeir verið haldnir við vetrarsólhvörf til að fagna rísandi sól og bjartari dögum, en með kristni- töku hafa þessir heiðnu gleðileikir verið felld- ir inn í trúarsiði kristninnar, eins og gerðist meðal fólks af germönskum stofni í Norður- Evrópu. Gleðir þessar áttu sterk ítök hjá þjóð- inni og voru þær iðkaðar hér allt fram að alda- mótum 1800. í „smiðju" Ólafs Davíðssonar sagnritara er náma heimilda um gleðileiki fyrr á öldum. Þessar heimildir eru víða að komnar og sýna þær að hér hafa verið ríkjandi merk- ir þjóðlegir siðir um aldir. Að vísu breyttust áherslur í leikjum þessum gegnum aldirnar, en gleðileikir fólks þjónuðu ákveðnum til- gangi sem áhugavert er að rifja upp. Innsýn og þekking á fornum venjum og siðum þjóðar er ekki aðeins fróðleikskorn, hún eflir öðru fremur þjóðernisvitund sem er undirstaða samkenndar og þjóðarsamstöðu. Yikivakar voru fyrrum haldnir á helgum dögum, annaðhvort á sunnudögum, stórhátíöum eöa kvöldiö fyrir aðfara- nótt hátíða, en þó einkum á jóla- nótt og um jólaleytið. Uppruni orðsins vikivaki er ekki Ijós, orðið kemur ekki fyrir í fornu máli svo vitað só, en vaka kemur fyrir í fornkvæðum og orðið vöku- nótt er til í ritum frá 16. öld. Ein tilgáta er sú, að vikivakar sé am- baga úr vigil sem fyrst var snúið í vaka, vigil-vaka = viki vaka. Vigiliur, þ.e. vökur, voru þekktar úr pápískum sið og voru þær haldn- ar nóttina fyrir hverja stórhátíð og nóttina á undan mörgum helgra manna messum. Þær voru ýmist kallaðar vökur eða vökunætur og kenndar við daginn sem eftir fór. Þannig var Jónsvaka kölluð kvöldið og nóttin fyrir Jónsmessu og jóla- vaka aðfangadagskvöld jóla og jóla- nóttin. Á þessum vökum voru sungnar tíðir, að minnsta kosti á jólanótt og hélst sá siður lengi síðan og sótti þá jafnan fjölmennur söfn- uður kirkjurnar. Venja var að menn fóru ekki heim frá kirkju á jólanótt og síst þeir sem langt að voru komnir, fyrr en eftir messu á jóla- dag. Það hefur varla verið mögulegt fyrir svo mikinn mannfjölda, sem þá var saman kominn, að fá legu- rúm á kirkjustöðum þessar nætur. — Má því Ijóst vera, segir Ólafur Davíðsson, að mönnum hefur bæði leiðst að hanga aðgerðarlausum næturlangt eftir tíðir og þeim hefði líka orðið hrollkalt hefðu þeir ekki fundið ráð til að bæta úr hvoru tveggja. Menn fóru því snemma að búa sig undir að geta notið jólagleö- innar með fullum fagnaði. Þeir, sem ætluðu að sækja tfðir á jólanótt og gera að vökunótt, skutu saman matvælum og ölföngum eða lögðu til fó fyrir sig og sína til mötuneytis ef heimabóndinn, staðarhaldarinn eða klerkurinn var ekki svo efnum búinn eða veglyndur, að hann veitti vökumönnum gefins allan beina. Vakan Vökumenn kusu sér forgöngu- menn sem bæði áttu að ganga þeim fyrir beina og sjá um gleðina hvort sem hún var haldin á staðnum sjálfum eða í kirkju. Þar sem skemmtunin átti að vera voru fyrst sungnar tíðir, síðan var sest að snæöingi, sem var kallaður „skytn- ingur" eða samskotsveisla, til hressingar fyrir nóttina. Þegar leið á skytninginn hófst skemmtunin á því að fyrirfram valin persóna sem kölluð var „Vítus" kom að borðum vökumanna og gantaðist við þá. Vítus hefur verið einskonar gam- ansöngvari eins og við þekkjum þá í dag, það má glöggt sjá á vísu sem um hann var kveðin: Nú er ekki verra von, Vítus kemur að borðum, mun því margur meyjarson mæta þungum orðum. Þegar Vítus hafði lokið skemmt- an sinni var staðið upp frá borðum og tók fólk að syngja, dansa og skemmta sér. Var vakað við þennan glaum næturlangt eða þar til dagur rann og var hann nefndur vaka og vökunótt. Glaumi þessum hefur verið lýst svo, aö þar hafi verið viki- vakadans og hafi hann verið tvenns konar, karladans og kvennadans, og hafi karladansinn verið hraður og ákafur en kvennadansinn þýðari og blíðari. Vikivaki var hringdans með körlum og konum til skiptis og hafi þau kveðið og um leið við- haft ákveðnar fótahreyfingar eftir fyrirmælum forsöngvarans. Þegar hlé var á söng og dansi var farið í leiki og tóku leikmenn þá á sig ýmiskonar gervi eða dularbún- ing. Af leikum sem vinsælir voru hafa verið nefndir: giftingarleikur, hindarleikur, hringbrot, hestaleikur, þingálpsleikur, kerlingaleikur, Þór- hildarleikur, Hoffinnsleikur, Brúar- leikur og Háu-Þóruleikur. Þórhildarleikur nefndist einn helsti giftingarleikurinn og virðist hann hafa verið til í fleiri en einni útgáfu. Karlmaður er valinn til að leika prest sem kaliaður er Þór- hildarprestur. Hann stillir stúlkum upp á móti piltum og gengur leikur- inn út á það að stúlkurnar finni sér réttan pilt og er það gert undir kveðskap og dansi. Hindarleikur hefur verið svipaður leikur og eru stúlkurnar í þeim leik hindar og pilt- arnir hirtir. Hoffinnsleikur var mikið leikinn á vökunóttum og er hann talinn vera frá miðoldum. [ þessum leik fara allir karlmenn út fyrir dyr en kvenfólk verður eftir inni. Þeir velja sér svo tvo talsmenn, Hoffinn og Alfinn, sem gengur honum næst að virðingu. Þeir eru foringjar í bón- orðsbralli og eru hinir sveinar þeirra. Stúlkurnar velja sér eina úr sínum hóp til að verða fyrir svörum þegar Hoffinns-sveinar banka að dyrum. Síðan varpa þeir fram til- heyrandi vísum sem þær svara á sama hátt. Brúaleikur eða banda- leikur hefur ekki verið ósvipaður þeim leik sem við nú köllum „Frúin í Hamborg". Hringbrot í vikivökum fór þannig fram að karlmenn mynda hring og halda höndum þétt sam- an. Karl og kona reyna síðan með lagni að brjóta eða rjúfa hringinn. í Kerlingaleik, sem einnig virðist hafa verið kallaður tröllkonuleikur, voru tveir karlmenn klæddir í kven- mannsbúning og var annar þeirra kerlingin en hinn dóttir hennar. Kerling virðist hafa verið gerð hin ófrýnilegasta með hundsbelg á höfði íklædd hærusekk niður fyrir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.