Morgunblaðið - 01.04.1989, Page 7

Morgunblaðið - 01.04.1989, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ IAUGÁRDAGUR 1. APRÍL 1989 B 7 Einar Gubmundsson skrifar frá Amsterdam tengslum við meginstrauma mynd- listarinnar í Evrópu. Fútúrisminn var þama líka á fullu; það varð til kúbó- fútúrismi. Malewitsch var á bólakafi í geijandi hræringum sinnar samtí- ðar. Sumarið 1913 tók Malewitsch þátt í gerð fútúrísku óperunnar „Sig- urinn yfir sólunni", — sá um leik- myndina og búninga. M.V. Mat- iushin samdi tónlistina en A.E. Kruchenykh lagði til líbrettó og V. Khlebnikov skrifaði prólógus. Óp- eran var flutt tvisvar á Skt. Péturs- borg. Listamennimir höfðu komið sér saman um áhrifabrögð. Tjaldið var t.d. ekki dregið frá heldur rifið í tvennt. í ofbirtu ljóskastaranna birtust kraftakarlar framtíðarinnar. Með því að leggja undir sig sólina — tákn sköpunarkrafts náttúrannar, opna þeir leið til nýs tímabils sem stjórnað er af manninum. — Hlutur Malewitsch í sambandi við leik- myndagerð ópemnnar átti eftir að hafa afgerandi áhrif á frekari mynd- sköpun hans; þama fóm að bæra á sér hugmyndir er leiddu til súpre- matíska málverksins. Það var sýning haldin í Petrograd í desember 1915; 14 framúrstefnu- listamenn vom á ferð og sýningin hét „0,10“ — þetta var síðasta fútúr- istasýningin. Malewitsch átti þama ' 39 „fyrirmyndarlaus" málverk; hann var jafnframt búinn að mynda nýtt orð yfír þessa sína nýju tegund af myndlist. Súprematismi — orðið kom úr latínu af supremus, er merkir hið hæsta; Malewitsch hafði í huga þett.a sem hæsta stig í myndlist miðað við sinn tíma. í súprematískri myndlist er listamaðurinn orðinn skapari formsins og náttúran kemur þar hvergi nálægt. — „Svarti súpre- matíski ferningurinn" (olía á striga, 79,5 x 79,5 cm, málaður 1914) var þarna með, sú fræga mynd, svartur ferningur á hvítum grunni, hreinasta form óhlutbundinnar listar — núllgr- áða málverksins. Fyrir listamannin- um táknaði þetta ekki endalok mál- verksins heldur nýja byijun. — Nú er þessi „frummynd“ svo illa farin að hún er ekki sett í ferðalög; varð- veizlustaður er Tretjakov-galleríið. Á sýningunni í Amsterdam er í stað- inn höfð eftirgerð (’29) frá lista- mannsins eigin hendi. Malewitsch ■ „Súpremus ttr. 56, “ 1916. skrifaði: „Sú mynd er femingurinn geymir er vagga súprematismans, hinn nýi vemleiki litarins sem óhlut- bundin sköpun. — Er ég notaði hug- takið „óhlutbundinn“ vildi ég aðeins segja skilmerkilga, að í súprematis- manum er ekki fengizt við hluti eða þess háttar, og er það allt og sumt.“ Eftir byltinguna í Rússlandi varð það fljótt ljóst, að vinsælustu lista- mennimir vom ekki þeir sem fram úr stefndu, heldur hinir raunsæis- legu er gerðu myndir af hetjum bylt- ingarinnar í velþóknun Leníns og kommúnistaflokksins. Malewitsch var árið 1917, eins og flestir framúr- stefnulistamenn, ákafur stuðnings- maður byltingarinnar; þó vildi ljóm- inn hverfa af hrifningunni þegar frá leið. Hann sannfærðist um að listin ætti að standa fyrir utan stjómmál; að hann taldi að pólitíkusar og trúar- leiðtogar misnotuðu listina. Frá 1919 til 1922 dvaldi Malew- itsch í Vitebsk og kenndi við skóla sem Marc Chagall hafði stofnað. Nemendur hópuðust að honum og grúppan UNOVIS (brautryðjendur nýju listarinnar) var stofnuð. Hug- myndafræði súprematismans lá til gmndvallar kennslunni. — Ungir listamenn þessa tíma vom veiklaðir á taugum, bláfátækir, vannærðir og meðal þeirra var há sjálfsmorðs- tíðni. Kennsluaðferðir Malewitsch buðu upp á aðrar útgönguleiðir; ásamt nemendum sínum braut hann til mergjar myndir þeirra og bægði þar með hugmyndum frá því að lenda í glundroða. Komu sálfræðing- ar og fylgdust spenntir með árangri. Frá Vitebsk liggur leið til Leníngrad, þar sem hann veitir for- stöðu „Listrænni rannsóknarstofnun ríkisins" (GINKHUK). Þama er hann fram á árið 1926, en þá er stofnuninni lokað; orsökin var sýn- ing — eða réttara sagt, grein í Len- ingradútgáfunni af Pravda, skrifuð gegn sýningu á vegum stofnunarinn- ar, leiddi til lokunarinnar. „Klaustur á framfæri ríkisins" var fyrirsögn greinarinnar, þar sem m.a. stóð þetta: „Á meðan list öreiganna stendur frammi fyrir tröllauknum verkefnum og hundmð virkilega efnilegra listamanna þjást af hungri, er það glæpsamlegt að halda úti glæsihöll til þess að þrír bijálaðir munkar geti leyft sér ánægjuna af ástundun listrænnar sjálfsflekkunar eða fengizt við andbyltingarlegan áróður, sem er engum til gagns.“ Árið 1927 fær Malewitsch ferða- leyfi og heldur til Póllands og Þýzka- lands. Hann tekur með sér obbann af súprematískum málverkum sínum, teikningar og útskýringar- spjöld (í fómm hans em einnig hand- rit) og sýnir í Varsjá og Berlín. Áður en sýningunni í Berlín er lokið verður Malewitsch að snúa aftur til Sovétríkjanna. Hann kemur handrit- um fyrir í geymslu og hann biður sérstaklega um, að málverkin verði ekki send á eftir honum. Talað er um, að hann hafí ætlað að koma aftur að ári og sýna á fleiri stöðum — jafnvel að setjast að á Vesturlönd- um, þar sem hann taldi sig geta lif- að af sölu verka sinna. En hann átti ekki afturkvæmt. — Margir hafa velt vöngum og brotið heilann um það, hvers vegna Malewitsch vildi alls ekki fá verk sín til baka; er hallazt að því að hann hafi álitið að ekki væri nægilegt andrúmsloft í Sovétríkjunum. Og það þurfti líka að fela þessi verk fyrir Hitler, er hann var kominn til valda. Það dett- ur vonandi engum í hug að spá í hvernig íslenzkir Hriflumenn gætu hafa bmgðizt við ... Löngu seinna em verkin boðin ýmsum söfnum í Vestur-Þýzkalandi til kaups, en þau hafna. Kemur þá Sandberg, safn- stjóri Stedelijk Museum til skjalanna og gerir snilldarinnkaup fyrir sitt safn. Núverandi safnstjóri, Wilm Beeren, benti á að þegar þetta verka- safn hefði verið sýnt í Ámsterdam, 1958, hefðu engir blaðamenn mætt og gestir við opnun vom aðeins 35; það væri ekki réttlátt að álasa ein- göngu Sovétmönnum fyrir tómlæti í garð myndlistar á liðnum ámm. Þegar Malewitsch sneri heim til Rússlands tók hann upp þráðinn í málverki þar sem hann hafði fallið niður um 1913, og ártölin setti hann aftur í tímann sem þessu nam. Hann málaði myndir af bændum og íþróttafólki. Það er talað um heila- þvott í þessu sambandi; en þama er margt óljóst. Ljóst er þó, að lista- maðurinn einangraðist. Hann fann ekki útgefendur að fræðilegum text- um sínum. Hann var ekki talinn fé- lagslega marktækur. 1930 er hann tekinn til yfirheyrslu og gefnar að sök njósnir fyrir Þjóðverja. Vinir brenndu góðan slatta af handritum hans til þess að lögreglan fyndi ekki hugsanlegar sannanir gegn honum. Með fínlegum hætti er gefið til kynna, að þrengingum listamannsins hafí slegið út í skízófreníu og íau- fléttu ofsóknarbijálæði. Síðustu málverk Malewitsch, heimi ókunn fram að þessari um- ræddu yfírlitssýningu, minna á ren- essansmyndlist; hann merkir sér þau með svörtum femingi þar sem sign- atúr er venjulega settur. Árið 1932 setti Stalín fram hvað og hvemig Iistin ætti að vera — perestroika hét það einnig á sínum tíma; þremur árum seinna var sósí- alrealisminn orðinn opinber stefna í myndlist Sovétríkjanna og við tók hræðileg afturför á þessu sviði. Það var ekkert pláss fyrir Malewitsch lengur. Frá dauða listamannsins leið rúm- lega hálf öld þar til verk hans voru sýnd í heild. Allan tímann vom verk- in hýst í geymslum — fyrir utan þau sem Stedelijk á. Þegar ryk var loks- ins dustað af, óttuðust Rússamir það, að þeirra almenningur væri ekki búinn undir þessa sýningu — en þeir tóku áhættuna. Aðspurð um hvert verkin fæm að lokinni Amst- erdamsýningunni, sagði frú Petrova frá Leníngrad-safninu, að frá þeirra hálfu væri ekkert því til fyrirstöðu að sýningin kæmi víðar við. Varð- andi Rússneska listasafnið, sagði hún það hvorki vera Malewitsch- né Kandinsky-safn. Þau væm með 360.000 listaverk í geymslum, sem verið væri að dusta ryk af og draga fram í dagsljósið Hluti verka Maiew- itsch fengi fastan sess í safninu, en megnið færi aftur í geymslu. Er Malewitsch lézt greiddi borgar- ráð Leníngrad útfararkostnað vegna framlags hans til listaheimsins. Kist- una hafði hann sjálfur látið hanna í súprematískum stíl. Framan á vél- arhlíf líkvagns var fest málverk af svarta ferningnum. í Moskvu var líkið brennt og askan grafin á opnu svæði nálægt sumarbústað hans í Nemchinkova. Þar stóð lengí vel hvítur teningur með svörtum fem- ingi; þessi minnisvarði er nú horfinn. Núna em Rússamir að leita að gröf- inni til þess að geta reist á henni nýjan minnisvarða, vegna þess hve tímamir breytast. Það er ells ekki allt upp talið ... ■ „Svaríurfemtngur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.