Morgunblaðið - 14.04.1989, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 14.04.1989, Qupperneq 5
8861 .IÍÍRfc .M ÍFJOAaUTgÖ'i ŒGtAjaHlfOHOM MORGUNBLAÐIÐ FÓSTUDAGUR T4: -APRÍL' 1989 ' JL s 3 SI B 5 Þetta borð er hluti af sviðsmunum hönnuðum af austuríska arkitektinum Joseph Hoffmann fyrir sýningu á „Leðurblökunni" f Vín árið 1907. Borðið er úr beyki og gleri. Kringlótt borð, eftir Charies Rennie Mackintosh, hönnuð og arkitekt. Framlag hans til mótunar nýlista- stefnunnar á Stóra-Bret- landi var mjög mikilvægt. Borðið er gert ur íbenholtviði og má lengja það út frá báðum hliðum. . Glæsileg i sloppnum lika umir sem fylgst hafa lengi með tískunni segja að hún gangi í hring. Ef svo er borgar það sig fyrir for- sjála að pakka fötunum niður og geyma þegar þau verða hallærisleg og þangað til þau komast á ný í tísku. Nýlega rak á fjörur okkar áratuga gamla tískuumfjöllun þar sem birtar voru myndir af sloppum. Án efa hafa slopparnir þótt glæsilegir og flestar húsmæður notað þá við heimilisstörfin. Til gamans birtum við nokkrar myndanna og mynda- texta. Hver veit nema þetta sé það sem verður á síðum tískublaðanna á næstunni! 1 .„Sloppurinn er athyglisverður, því að hann er saumaður úr diska- þurrkum. Athugið, ef þið viljið leika þetta eftir, að sjóða þurrkurnar áður en þið sníðið úr þeim.“ 2. „Þessi sloppur er góður við störf þar sem Ijósir litir eru óhentugir,. eins og til dæmis við afgreiðslu í blómabúð. Hann er úr bláu vinnu- fataefni og vélsaumuðu rendurnar bæta upp grófleika efnisins. 3. „Fjölskyldan hefur varla mikið á móti því að sjá húsmóðurina jafn glæsilega strax við morgunverðar- borðið og við sjáum á myndinni hérna. Okkur þætti líklega lítið til kjólsins koma, ef ekki væru borð- arnir í fjórum litum til að lífga upp hvíta litinn og tilveruna. Augnmálning undir gleraugu Það er engin ástæða til að sleppa því að mála sig í kringum augun af því maður er með gleraugu. Hugsið frekar umgjarðirnar eins og ramma utan um mynd og málið ykkur samkvæmt því með smávegis tilfæringum eftir því hvernig gleraugun eru. 1 . Þykk gler (fjarsýnisgleraugu) virka eins og horft sé á augun í gegnum stækkunargler; þau verða stærri og kringlóttari. Dragið línu eftir augnhvörmunum með „eyeliner" eða blýanti til lengja augun og dragið úr stækkunarglersáhrifunum með því að nota augnskugga í daufum, dökkum eða gráum litum. Látið þá dofna út með því að nota perlumóðurlit eða málmlit. 2. Áhrif nærsýnisgleraugna eru þveröfug við fjarsýnisglerin: augun virðast minni og eins og sokkin inn í höfuðið. Til að stækka augun á að varast að nota of dökka liti í kringum þau. Augnskug- garnir eiga að vera bjartir og skærir. 3. Augnmálningin getur virst „klístruð" undir sumum glerjum sem draga úr endurskini og eru lituð. Hafið því málninguna létta! Vandlega burstaður maskari er ómissandi. Augnabrúnirnar skipta máli, þar sem umgjarðinar undirstrika þær verða þær að vera gallalausar. Gerið þær þéttari ef það er nauðsynlegt með brúnum maskara, gætið þess að hann sé þurr, eða með augnskugga í mildum lit.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.