Morgunblaðið - 19.05.1989, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989
rörum, með stálbúnaði, mjóum
dekkjum og tíu gírum.
Þau eru góð í styttri ferðir og
lengri ferðir á flatlendi, en nokk-
uð þung.
Vönduð trimmreiðhjól
Vandaðri trimmreiðhjól kosta
frá 23 þúsund krónum og vega
13 kíló eða minna. Þau eru kjörin
til líkamsþjálfunar. í rauninni er
lítill munur á þeim og keppnis-
og þríþrautarhjólunum.
Trimmhjólin eru úr handsoðn-
um krómstálrörum og allur bún-
aður úr áli. Á felgunum er snar-
losunarbúnaður, stýrið er bogið,
dekkin grönn og hnakkurinn frek-
ar harður. Gírarnir eru tíu til tólf.
Það má fara í lengri og
skemmri ferðir á trimmhjólunum
og nota þau til líkamsþjálfunar.
Þau eru létt, hraðskreið og þægi-
leg í burði.
Fjallahjól
Fjallahjólin kosta frá 29 þús-
und krónum og vega 13—15 kíló.
Þau eru eina byltingin sem kom-
ið hefur fram í gerð reiðhjóla í
nokkuð mörg ár og njóta sívax-
andi vinsælda bæði í Banda-
ríkjunum og Evrópu, enda notk-
unarmöguleikar þeirra meiri en
annarra reiðhjóla. Alvöru fjalla-
hjól eru sterk og með mikla
breidd í gírum. Auðvelt er að
rugla þeim saman við ódýrar eft-
irlíkingar með stálgjörðum og
hliðartogshandbremsum, sem
eru í rauninni götuhjól og ekki fær
í hvað sem er.
Annarsstaðar á opnunni má
sjá nánari útlistun á gerð fjalla-
hjólsins svo og viðtöl við menn
sem hafa reynslu af notkun
þeirra.
Keppnishjól/ þríþraut-
arhjól
Keppnis- og þríþrautarhjól
kostar frá 30 þúsundum og vega
ekki meira en 13 kíló.
Það er gott að hjóla á þeim á
góðum vegum, en þau eru fyrst
og fremst notuð til að keppa á.
Þau eru góð til að komast hratt
áfram og í létt ferðalög. Helstu
ókostirnir eru að þau eru dýr og
tiltölulega veikbyggð og því ekki
gerð fyrir langar ferðir og útilegur
eða hjólreiðar utan vega.
Ferðahjól
Ferðahjól kosta frá 35 þúsund
krónum og vega 11—13 kíló. Þau
eru góð til allra ferðalaga á góð-
um vegum, en ef þau kosta und-
ir 35 þús. er ólíklegt að hægt sé
að treysta þeim á lengri ferðalög-
um.
Ferðahjólin eru úr fjölþykktar-
krómstálrörum og allur búnaður
úr áli. Stýrið er bogið, dekkin
sterk og frekar breið, hliðartogs-
eða miðtogsgaffalhandbremsur,
12—18 gírar.
Notkunarmöguleikar ferða-
hjólsins eru miklir, þau eru end-
ingargóð, þægileg og létt. Þó er
hæpið að nota þau mikið utan
vega og þau eru óþægileg fyrir
þá sem ekki vilja bogið stýri. Því
má þó fá breytt í reiðhjólaversl-
unum.
Barnareiðhjól
Börn undir sjö ára eru alls
ekki fær um að hjóla úti í um-
ferðinni, en engu að síður er
hægt að fá tvíhjól handa börnum
frá þriggja ára aldri. Ef keypt er
reiðhjól handa svo ungu barni
verður að gæta þess að það
haldi sig inni á lokuðu svæði.
Mikilvægt er að allur öryggis-
búnaður sé í lagi á barnareið-
hjólum og að börnin noti hjálma.
Fótbremsur henta yngri börn-
um betur en handbremsur og
þau hafa lítið að gera við gírahjól
fyrr en um tíu ára aldur. Ekki er
síður mikilvægt að barnahjólin
séu sterkbyggð en hjól hinna
fullorðnu, þar sem þau verða oft
að þola mikið hnjask. Barna- og
unglingahjól fást í öllum regn-
bogans litum og skipta tísku-
sveiflur oft máli í vali barnanna
á þeim og tegund hjólsins.
Texti: MEO
Fjallahjólið er fyrsta byltingin sem fram hefur komið í reiðhjólum í langan tíma, en það var fyrst framleitt
í Kaliforníu í Bandaríkjunum fyrir tæpum tíu árum. Grundvallarhugmyndin var að fá fram í einu hjóli kosti
torfæruhjóls með breiðum dekkjum og létts fjórgírahjóls, sem gera það að verkum að fjallahjólið er hægt
að nota á bæði vegum og vegleysum. Það sameinar styrkleika og hörku þyngri reiðhjóla og lipurð og léttleika
trimmhjólanna.
Öll hlutföll hjólsins eru vandlega úthugsuð með tilliti til notkunarmöguleika þess. Eins og nafnið gefur
til kynna er hægt að hjóla á fjallahjólinu upp um fjöll og fyrnindi, en það kemur sér einnig vel innanbæjar,
því gangstéttarbrúnir, tröppur og holur í malbiki eru því engin fyrirstaða. Til eru hjól sem li'ta út eins og
fjallahjól, (svokölluð borgarfjallahjól), en eru til sömu nota. Til nánari glöggvunar kemur hér samantekt á
þvf sem gott er að vita ef höfð eru í huga kaup á fjallahjóli.
MEO
1 Fríhjól og gírun
Fjallahjólið kemst upp brattar
hlíðar vegna þess hve marga gíra
það hefur. Daemigért fjallahjól
hefur 18-21 gír, þaraf 16-19
nothæfa, (það á aldrei að nota
stærsta sveifartannhjólið að
framan með stærsta gíratannhjóli
að aftan, né minnsta
sveifartannhjólið með minnsta
gíratannhjólinu, vegna óeðlilegrar
spennu sem keðjan fær á sig við
það).
Því færri tennur sem eru á
minnsta sveifartannhjólinu að
framan og því fleiri tennur á
gíratannhjóli að aftan því léttara
og örara verður ástigið. Stærðir
gíratannhjóla eru breytilegar eftir
tegundum og gerðum. Seljendur
eru stundum tregirtil að skipta um
tannhjólakrans svo vert er að
athuga vel hvaö verið er að kaupa.
Til notkunar innanbæjar hefur
fjallahjólið meira en nógu marga
gíra. A lélegum vegum og utan
vega þarf stór gíratannhjól að
aftan. Knapará keppnishjólum
geta komist af með 28 tanna gírhjól
stærst, en við hin þurfum að
minnsta kosti 30 tanna gírhjól fyrir
léttustu gírana.
3 Sætispinni
Þegar hjólið er mátað á
hnakkurinn að vera stilltur í
þá hæð sem passar
viðkomandi þegar hjólað er.
Ekki má hækka hann meira en
að efstu mörkum sem gefin
eru upp á sætispinnanum,
oftast í kringum 5-8 sm frá
neðri enda pinnans. Ef mörkin
eru of lág má biðja um lengri
æinna eða velja stærra stell.
Ódýrir sætispinnar sem eru
dregnir út í fulla lengd, eiga
þaðtil að bogna.
Fjallahjól eru með
hraðlosunarhandfangi fyrir
sætispinnann. Það er því
auðvelt að hækka og lækka
sætið á augabragði þegar
komið er niöur úr brattri
brekku á flatlendi eða hjólað
upp í móti.
2 Hnakkurinn
Gerð hnakksins er í raun
smekksatriði. Vandaðir
hnakkar eru með leðuráklæði.
Eina undantekningin á því er
ný gerð af hnökkum, bólstraðir
með hlaupkenndu efni og lycra
áklæði. Hnakkarmeð
plastáklæði eru á ódýrum
hjólum, en þeir eru ekki
hentugir ef hjóla á langar
vegalengdir.
Konur ættu að athuga vel
hnakkinn. Ef þeim finnst hann
óþægilegur ættu þær að biðja
seljandann um að skipta á
hnakk áður en kaupin eru
gerð.
Sethæð
Hnakkur er í réttri hæð
þegar stigið er með hælnum
á pedalasveifina í lægstu
stöðu með beinum fæti og
setið beinn í mjöðmum á
hnakknum.
Þegar hjólað er niður
brattar brekkur gæti þurft að
lækka hnakkinn um 3-5 sm,
svo hægt sé að liggja á honum
með þungann yfir afturhjólinu.
4 Stýrið
Hyggileg breidd á stýri á
fjallahjóli er 28 - 32 sm. Ef
hjólið þitt er með breiðara stýri
er tiltölulega auðvelt að saga
tvo til fjóra sentimetra af
hvorum enda. Dýrari hjólin eru
með stýri úr léttmálmsblöndu,
sem henta flestum vel, nema
mjög þungufólki.
10 Keðjan
Fylgdu eftirfarandi
hreinsiaðferðum eftir að hafa
hjólað í mikill leðju eða bleytu: 1.
Skrúbbaðu keðju og tannhjól upp
úr sápulegi og vatni. 2. Baðaðu þau
með keöjuhreinsara eða steinolíu.
3. Úðaðu allt saman með
keðjusmurningi úr úðarabrúsa.
Einungis mjóar keðjur eru
nothæfar á index gíra (smellugíra)
og því er best að halda sig við þá
keðju sem gíraframleiöandinn
mælir með, til að ná bestum
árangri. Stundum er skynsamlegra
að skipta um ódýra og illa farna
keðju, en eyða mjög löngum tíma
í nostursamlega hreinsun, þegar
um er að ræða aðra gíra en index
gíra.
9 Sveifaráslegu-
búnaðurinn
Það eru tvær kenningar í gangi
hvað varðar sveifaráslegur
(krankinn); Að nota ódýrar
nælonlegur og skipta oft um þær
eða þétta þéttilæstar hágæða
legur (sem eru þó ekki 100% þéttar
gegn vatni og skít þegar til lengdar
lætur) og hugsa vel um þær.
8 Gjarðir
Gjarðirnar á fjallahjólum eru
mjög þýðingarmikið atriði. Vel
byggðar gjarðir geta endst að eilífu,
lélegar gjarðir bogna. Það ætti að
vera almenn regla að forðast
meiriháttarójöfnurfyrstu 80-100
kílómetrana á nýju hjóli, til að jafna
út álagið á teinana. Bestu
gjarðirnar eru teinaðar í
höndunum, en fjöldaframleiddar
gjarðir, sem eru teinaðar í vélum
og hafa verið yfirfarnar í sérverslun
ættu að duga vel. Hjól úr
póstverslunum 05 stórmörkuðum
þar að yfirfara vandlega. Vandaðar
gjarðir eru venjulega með felgum
úr rafhertu áli (stundum dökk gráar
að lit), með nöf frá þekktum
framleiöanda og teina úr ryðfríu
stáli.
Verðflokkar
Persónuleg fjárráð koma væntanlega
Aukabúnaður til með að ráða nokkru um það hvernig hjól er keypt. Hærra verð þýðir þó
yfirleitt meiri gæði. Eftirfarandi
Hjálmur. leiðþeiningar koma vonandi að einhverju
Góðurlás. haldi, þó verðið geti verið eitthvað
Bótasett. breytilegt í samræmi við gengi. Hér er
Lyklasett, sexkanta. því um grófa verðmiðun að ræða.
6“ skrúflykill. Kr. 21.000 eða ódýrari. Eftirlíking af
Dekkjajárn. fjallahjóli. Ágæt fyrir stálpaða krakka og
Pumpa. fremur litla notkun innanbæjar.
Lukt. Kr. 21.000 - 29.000. Ódýr gerðir af
Varaslanga. fjallahjóli. Ágæt fyrir hóflega notkun utan
Aðrir gagnlegir hlutir eru vega og góð innanbæjar.
bögglaberi, taska, bretti og Kr. 29.000 - 50.000. Fjallahjól í
vatnsflaska og flöskugrind. milliflokki, ætluð til almennrar notkunar.
Henta flestum hjólreiðamönnum.
Kr. 50.000 - 80.000. Fjallahjól í háum
gæðaflokki. Hæf til notkunar í keppni.
Kr. 80.000 - 250.000. Sérsmíðuð og
mjög fullkomin. Fyrireldheita
fjallahjólagarpa.
ölæknandl
hjóladelln
Magnús Bergsson, rafvirki fékk
fyrsta hjólið sitt í fermingargjöf og
síðan hefur reiðhjólið verið hans
farartæki. „Það var samt ekki fyrr
en ég fékk fyrsta fjallahjólið fyrir
fjórum árum, sem ég fór að taka
hjólreiðarnar alvarlega," segir
Magnús. „Þetta er orðið að ólækn-
andi dellu.“