Morgunblaðið - 19.05.1989, Blaðsíða 5
4 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989
Tilgangur
tískusýninga
T ilgangur tískusýninga er fyrst og fremst að ná athygli
kaupenda og tískublaða, sem senda fulltrúa sína á vettvang
til að greina stöðuna hjá hveijum og einum. Reglurnar eru
miskunnarlausar og oft gerist það að ekki er minnst á
sumartískuna hjá þeim sem mest fékk hólið fyrir
vetrarfatnaðinn. Það er því alltgert til að hreppa athygli
þeirra sem ráðið geta hveijum er mest hampað hveiju sinni
og hveijir falla í skuggann. nSrfi
Uppsetning sýningarinnar skiptir miklu máli. Það eru litir
og skreytingar, lýsing, og tónlist sem ráða stemmningunni
í þær 45 mínútur sem venjuleg sýning stendur.
Y firleitt er allt ýkt eins og sjá hefur mátt á myndum sem
birst hafa frá þessum sýningum í Daglegu lífi. Hattar eru
stundum nálægt einum metra á hæð, sýningarstúlkur bera
skartgripi í kílóatali og oft getur reynst erfitt fyrir þær að
komast út á endann á sýningarpallinum í skónum sem þær
eru í, og svo mætti áfram telja. Aðrir hafa hlutina mun
látlausari strax í byijun, þvi allt er þetta einfaldað áður en
til sölu kemur.
Klestir reyna að hafa einhvern íburð, þó ekki sé nema í
þeim tilgangi að halda vakandi 1.000-2.000 manna
áhorfendahópi. Því leiði leggst fljótlega í þá sem þurfa að
komast yfir sextíu sýningar á einni viku.
STJÖRNUR SUMARSINS
Þeir sem einna mest lof fengu fyrir sumarið '89 voru
Gaultier, Lacroix, sem á fatnaðinn hér á opnunni, Mont-
ana, Martin Sitbone og Issey Miyake.
Það eina sem hægt er að segja þegar lýsa á tískunni fyrir
sumarið 1989, er að allt er leyfilegt. Gyllt og útsaumað,
austurlenskir straumar og barrokk og kúrekatíska. Undir-
fatnaður er mikið í sviðsljósinu og gegnsætt siffon er notaði
í bæði hversdags- og kvöldfatnað. Það er mjög kvenlegt, en
langt frá því sakleysislegt, hylur aðeins á réttum stöðum.
Pils og kjólar eru ýmist stuttir eða síðir, og jakkar sömuleið-
is ermastuttir eða ermalausir með klaufum upp í mitti.
Framúrstefnan, eða avant garde, er ekki lengur I tísku.
Hlutirnir eru ekki lengur í föstum skorðum, því nú er það
hugarflugið sem fær að njóta sín.
Myndir og texti: Ágústa Daníelsdóttir.
0861 ÍAM .er AUOAaUTBÖ^ ,ÖI3AJaMUPH0M
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989
JJt
B 5
Hér er megrunarkúrinn sem margir hafa beðið eftir. Þetta er tveggja vikna kartöflukúr og
er hann sagður tryggja það að viðbótarkílóin hverfi — hálft kfló dag — sé kúrnum
samviskusamlega fylgt eftir. Sé það gert, eiga þeir sem kúrnum fylgja að vera orðnir
bæði fallegri og heilbrigðari áður en langþráð sumarfrí hefst. Þessi kartöflukúr
er jafnframt einskonar fegrunarkúr sem stuðlar að því að svefninn verður
dýpri, hrukkurnar færri og húðin sléttari um leið og aukakflóin hverfa og
það án þess að viðkomandi finni nokkru sinni til svengdar. Þetta er
einnig ódýr megrunarkúr og fyllilega þess virði að prófa hann.
Kartöflur hafa frá náttúrunnar hendi hina fullkomnu næringar-
samsetningu. Þær hafa aðeins nokkur grömm af kolvetni,
en að öðru leyti innihalda þær mjög næringarauðuga
safa sem eru mikilvægir fyrir uppbyggingu og
viðhald líkamans. Má þar fyrst og fremst nefna
kalíum sem m.a. hefur þann hæfileika að
draga fram vökva úr vefjunum en á
einnig að stuðla að endurnýjun
vökva ívefjum.
Morgunverður:
Kaffi eða tebolli. Appelsínumúslí:
1 appelsína er afhýdd og skorin í
teninga, þeir eru ásamt 1 msk. af
kornfleksi settir saman við 1 bikar
af óbragðbættri jógúrt (eða súr-
mjólk).
aða með gervisykri í stað sykurs
ef þörf er fyrir sykur.
'
1. dagur
Snarl milli mála
Snarl milli mála
1 bolli kjötsoð og 1 sneið hrökk-
brauð.
Hádegisverður
2 rifnar gulrætur, 1 appelsína, 1
stór kartafla (200 g) skorin í teninga.
Blandað er saman safa úr sítrónu
og lauk rifnum, steinselju og 1 msk.
af skyri og sett yfir grænmetið.
Bæta má við 2 svörtum ólífum og
salti og pipar gerist þess þörf.
Síðdegiskaffi
Kaffi eða tebolli, lítið eitt brúnn
sykur og 1 eggjabikar af mjólk.
Kvöldverður
Fylltur kartöflusekkur: 1 msk.
þurrkað kartöfluduft er hrært út með
1 þeyttu eggi og 1 msk. vatni og
blandað vel. Fínsaxaðir eru 2 laukar
og 1 grein steinselja, það er síðan
ásamt 1 sneið af niðurskorinni
skinku, soðið við vægan hita á
pönnu, nánast gufusoðið í 5 mín.
Kartöflumassinn er flattur út í fer-
kantaða köku og er laukmaukið sett
þar í, hliðar eru lagaðar að og sekkn-
um lokað. Hann er síðan soðinn í
potti eða pönnu í litlu saltvatni og
borinn á borð með 375 g af soðnu
blönduðu grænmeti.
2. dagur
Morgunmatur
Kaffi eða tebolli. Rifsberja- eða
ávaxtamúslí: Ef berin eru til staðar
þá skal nota 1 bolla af berjum og 1
bikar af óbragðbættri jógúrt ásamt
4 söxuðum valhnetukjörnum bland-
Hið sama og hinn fyrsta dag.
Hádegisverður
Kartöflutatari: 200 g kartöflur
mjölmiklar og nýsoðnar og eru þær
pressaðar með gaffli. Síðan er 1
laukur, 1 sýrð gúrka, 1 epli og 1
sneið af skinkuáleggi skorið í ten-
inga og bragðbætt með söxuðu
kryddi eins og steinselju og gras-
lauk. Blandað er saman 2 msk. af
vínediki og 1 msk. matarolíu og
er henni hellt yfir kartöflutatarann
ásamt möluðum pipar. Hann er
síðan borinn fram með eggi skornu
í tvennt.
Kvöldverður
Kartöflu-gulrótna-laukgratin: Nið-
ursneiddar eru 200 g kartöflur, 2
stórar gulrætur, 1 vorlaukur. (eða
1-2 blöð púrra). Grænmetið er sett
í pott með 1 bolla af kjúklingasoði
og er pipar stráð yfir. Grænmetið
er síðan soðið við mjög vægan hita
í 15-20 mín. Það er síðan sett í
hæfilega stórt mót. Hrært er saman:
1 eggi, 1 msk. af mjólk og 50 g af
rifnum osti og hellt yfir grænmetið
sem síðan er sett í heitan ofn stutta
stund á meðan osturinn er að
bráðna.
Síðdegiskaffi