Morgunblaðið - 19.05.1989, Blaðsíða 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989
MATVÆLASYNING
Laugardal s h ö I
Það er rúm vika síðan matvælasýningunni
lcefodd '89 lauk í Laugardalshöllinni, en þar
voru meðal annars kynntar ýmsar nýjungar í
innlendri matvælaframleiðslu. Hér á eftir
segjum við frá nokkrum þessara nýjunga.
Fiskibollur
Fyrirtækið Humall hefur verið með þrjár vörur á markaðn-
um framleiddar úrfiski, en það eru frystir fiskborgarar
og röspuð og krydduð ýsa og fiskbollur úr kæli. Fyrir
tæpu ári síðan hóf Humall að nota nýjar aðferðir við fram-
leiðslu fiskibollanna. Nú eru þær steikar á teflon færi-
bandi, sem þýðir að bollurnar komast aldrei í snertingu
við feiti né vatn og eiga því að innihalda öll næringar-
efni fisksins, að sögn Bjarna Bæringssonar.
EFTIRFARANDIATRIBI
ER SKYLT RO HAFA
h REIIHJðLUM:
Hemla
Lós
Bjöllu
Framljós og rafal
Giltauga að aftan
Glitauga ó fótstigum
TIL AÐ SJÁST SEM BEST:
Teinaglit (endurskin fró hlið).
Endurskinsmerki, hvítt - þrístrent aö framan.
Hjólvari. (Viðvörunarstöng með endurskinsmerki).
ÖNNUR ATRIÐISEM ÞURFA
AÐ VERA í LAGISVO AÐ HJÓLIÐ
HENTIÖKUMANNI:
Hæð stýris
Hæó hnakks
Loft í dekkjum
Framhjól
Afturhjól
Keðja/keðjuhlíf
AUK ÞESSA MÁ NEFNA HJÁLM, SEM ER MIKILVÆGT
ÖRYGGISATRIÐI HVERJUM HJÓLREIÐAMANNI.
Pottar & hnífar
Það voru ekki aðeins matvæli kynnt á lcefood heldur einnig eldhúsáhöld. Bræðrnir Ormsson
sýndu svissneska multiplan potta fyrirallar tegundir matreiðslu. Meðal annars voru
þeir með tvöfaldan pott, þar sem y ‘^annar potturinn er notaður til að elda í og er síðan
settur ofan í hinn pottinn sem heldur Ý? matnum heitum. Það þarf þvíekki að hafa áhyggjur
af matnum IP á eldavélinni meðan verið er að undirbúa annað.
í marga þessa potta þarf
lítið vatn og jafnvel ekkert
svo næringarefnin tapast
ekki úrfæðunni. Bræðurnir
Ormson voru einnig með
duromatic þrýstipotta úr
gæðastáli, sem þola
langan tíma á hellu án
þess að láta undan.
Tvíburahnífar J.A. Hen-
ckelsfrá Bræðrunum
Ormsson eru dýrir en
sterkir hnífar sem endast
árumsaman.
Síldarréttir
Síldarréttir hf. kynntu nýja
síldarrétti sem væntanlegir eru
á bæði innlendan og erlendan
markað á næstunni. Það voru
kryddsíld með bananasósu og
kryddsíld með sýrðu grænmeti og merineruð sfld í epla-
sósu og marineruð sfld með sýrðu grænmeti.
Sfldarréttir framleiða einnig þá sfldarrétti sem flestir
þekkja.
Tilbúnir fiskréttir & súpur
Fyrirtækið Frostmar er með nýjunar á markaðnum
sem eru tilbúnir fiskréttir og fiskisúpur. Hver rétt-
ur er ætlaður fyrir einn og er tilbúinn beint úr fryst-
inum á borðið eftir fá-
ar mínútur í örbylgju-
ofni. Fiskréttina má
einnig hita í venjuleg-
um ofni og súpurnar
má hita í potti á elda-
vél.
Fiskréttirnir eru allir
með grænmeti og
hrísgrjónum, en þá er hægt að fá með
fjórum mismunandi sósum. Súputeg-
undirnar eru tvær.
M ~JSSB
-.-x,- :Vj
|H|
V
Sanitas hóf f ramleiðslu á
sinnepi fyrir nokkrum mán-
uðum, sem nota má á pysl-
ur, hamborgara eða í matar-
gerð.
é
Idýfur & sosur
Stutt er síðan Sanitas hóf framleiðslu á eigin majónesi og í framhaldi af þvi hafa verið
búnar til sósur og ídýfur. Þær eru kallaðar létt sósur og létt ídýfur, enda 40-50% fitu-
minni en aðrar sambærilegar vörur að sögn Sigurðar Þorvaldssonar hjá Sanitas. Það
er vegna þess að þær eru búnar til úr sýrðum rjóma og lítilli olíu.
Sósutegundirnar eru borgarasósa, kokkteilsósa og pítúsósa og ídýfurnar eru með
lauk- og paprikubragði. .