Morgunblaðið - 18.07.1989, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 18.07.1989, Qupperneq 8
msmR FRJÁLSAR / 3000 METRA HLAUP Ennþá stór- bætir Kristján Skúli sig KRISTJÁN Skúli Ásgeirsson IR bætti árangur sinn um 20 sekúndur er hann hljóp 3.000 metra á 8:32,0 mínútum á móti í Bad Oldersloh í Vestur-Þýska- landi sl. föstudag. Kristján Skúli átti best áður 8:51,7 mínút- ur frá því á Flugleiðamótinu á dögun- um. Ekkert lát hefur verið á framförum hans í sumar. Hefur hann nýlega bætt ár- angur sinn i 10 km um 50 sekúndur frá í fyrra og um 45 sekúndur í 5 km. Þá hefur hann sett persónulegt met í 800 og 1.500 einnig. Kristján Skúli er aðeins tvítugur. Kristján Skúli varð fjórði í hlaupinu í Bad Oldersloh. Gunnlaugur Skúlason UMSS varð áttundi á sínum næstbesta tíma, 8:48,2, og Sighvatur Dýri Guðmundsson ÍR 12. á 8:58,6. Bætti hann sig um 15 sekúndur, átti 9:13 áður, en Sighvatur er 36 ára. Árangurinn er „öldungamet" og er hann fyrsti öldungurinn sem hleypur 3 km undir 9 mínútum. í fyrradag, eða tveimur dögum eftir hlaupið í Bad Oldersloh, hljóp Kristján Skúli síðan 5 km i Hamborg á 14:59,45 og varð aftur fjórði. Gunnlaugur varð sjötti á 15:06,83 og Sighvatur Dýri bætti sig um rúmar átta sekúndur, hljóp á 15:43,2, sem er öldungamet. FRJALSAR Réttir félags- búningar á itiótum Stjóm Frjálsíþróttasambands Is- lands hefur ákveðið að á Meist- aramóti Íslandíf verði þáttakendur að keppa í félagsbúningi sínum í samræmi við lög og reglur. Oft hefur viljað brenna við að fijálsíþróttafólk keppi ekki í búningi síns félags, og í boðhlaupum hefur hver þátttakandi verið í sínum lit. Árið 1.986 var félögum gefinn tveggja ára frestur til að koma skikkan á þessi mál, en enn vantar mikið upp á að farið sé eftir þessum reglum. Tíu bestu afrekin í3000 m hlaupi Árangur Kristjáns Skúla er besti tími íslendings í sumar og sjöundi besti árangur íslendings frá upphafi, en listi yfir 10 bestu afrekin hljóðar annars sem hér segir: 8:05,63.........................Jón Diðriksson, UMSB1983 8:17,6....................... .....Ágúst Ásgeirsson, ÍR1976 8:18,23...................Brynjúlfur Hilmarsson, ÚlA 1985 8:21,0...................Kristleifur Guðbjömsson, KR 1959 8:25,0..............................Sigfús Jónsson, ÍR1976 8:30,0........................Gunnar Kristinsson, HSÞ1970 8:32,0..................Kristján Skúli Ásgeirsson, ÍR1989 8:32,8..........................Már Hermannsson, UMFK1988 8:35,5........................ Jóhann Ingibefgsson, FH1988 8:37,4............:...................Agnar Levý, KR1964 8:37,5........................Kristján Jóhannsson, ÍR1957 8:37,73.................. Sigurður P. Sigmundsson, FH 1979 8:40,2......................Daníel Guðmundsson, USAH 1988 8:41,16......................... Frimann Hreinsson, FH 1987 8:42,9...................... Halldór Jóhannesson, KR1964 8:45,1.........................Hafsteinn Óskarsson, ÍR1984 8:45,2........................Sigurður Guðnason, lR 1956 8:45,4.....................Gunnlaugur Skúlason, UMSS 1989 8:45,8.................,....Gunnar Páll Jóakimsson, ÍR1982 8:46,0................... Guðmundur Sigurðsson, UMSK1988 Gunnar Guðmundsson, ÚÍA, bætti sig í 400 m hlaupi í Hamborg. GOLF / SKOSKA MEISTARAMOTIÐ „Ótrijlegt“ - sagði Michael Allen um sigurhöggið „ÞETTA er ótrúlegt. Ég ætlaði bara að komast nálægt hol- unni, en svo fór boltinn ofan í,“ sagði Michael Allen, Bandaríkjunum, eftir sigurinn á opna skoska meistaramót- inu í golfi á sunnudag. AUen fór á 272 höggum, 12 undir pari, en síðasta hring- inn fór hann á átta undir pari og síðasta pútt hans var um sjö metra frá holu. Þetta var fyrsti sigur Allens í Evrópu. Hann fékk 50.000 pund í verðiaun og öðlaðist þátttökurétt á opna breska meistaramótinu, sem hefst í vikunni, en í fyrra byijaði hann þar illa og féll úr keppni. Hann hafnaði í 28. sæti á opna franska meistaramótinu fyrir skömmu og varð í 29. sæti á opna Monte Carlo mótinu. Bretinn lan Woosnam og Spán- veijinn Jose-Maria Olazabal voru jafnir í öðru sæti á 274 höggum. Þeir komu báðir inn á eftir Állen og þurftu að fara síðustu holuna á tveimur undir pari til að fá auka- keppni um fyrsta sætið, en báðir fóru á pari. Norður-írarnir David Feherty og Ronan Rafferty voru jafnir í 4. sæti á 276 höggum, en Gordon Brand, sem var með for- ystu fyrir síðasta dag, tókst ekki að verða fyrsti Skotinn til að sigra í keppninni — fór síðasta hringinn á erjö yfir pari og hafnaði í 25. sæti. Úrslit / B6 FRJALSAR / 800 M HLAUP Steinn bætir sig um 1,5 sekúndur Hljóp á 1:53,9 mín. í Bad Oldersloh STEINN Jóhannsson FH hljóp 800 metra á 1:53,9 mínútum á móti í Bad Oldersloh í Vestur- Þýskalandi sl. föstudagskvöld ogbætti sig um 1,5 sekúndur. ^J^einn vann hlaupið, sem hann 'wvarð að leiða að mestu sjálfur, en það bendir til að hann geti enn betur með meiri keppni. Hann átti best áður 1:55,25 frá 1986. Árang- ur hans á föstudag er 15. besti árangur Islendings frá upphafi. Daginn eftir keppti Steinn í 1500 metra hlaupi á móti í Hamborg og hljóp á 4:00,03 mínútum. Á mótinu í Bad Oldersloh setti Margrét Brynjólfsdóttir UMSB per- sónulegt met í 800 kvenna, hljóp á 2:17,6. Er það 17. besti tími íslenskrar konu frá upphafi. Daginn eftir hljóp hún svo á 2:17,73 í Ham- borg. Oddný Árnadóttir ÍR og Gunnar Guðmundsson UÍA unnu 200 metra hlaup á Bad Oldersloh-mótinu. Oddný hljóp á 25,7 sek. og Gunnar á 22,8 en nokkur mótvindur var í hlaupunum. Gunnar bætti sig svo í 400 metra hlaupi á Hamborgarmótinu á laug- ardag. Vann hann hlaupið með yfir- burðum og hljóp á 48,57 sekúndum, en það er 11. besti árangur frá upphafi. Hann átti 49,00 frá í fyrra- haust. Daginn eftir hljóp hann 100 metra á 11,33 sek. og bætti árang- ur sinn um einn hundraðasta úr sekúndu. Oddný Árnadóttir vann 400 kvenna sömuleiðis með yfir- burðum á 57,41 sek. Frá Bob Hennessy i Englandi George Graham, framkvæmda- stjóri Arsenal. íHénR FOLK MLAURIE Cunningham lést í bílslysi í Madrid á Spáni á laugar- . dag, en vinur hans, sem var með honum í bílnum, komst lífs af. Cunningham, sem lék sex landsleiki, var fýrsti enski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, er var dökkur á hörund. „Hann var hæfi- leikaríkasti leikmaðurinn, sem kom á eftir George Best, ..sagði Ron Atkinson, sem keypti Cunningham til WBA 1976. 1979 greiddi Real Madrid 900.000 pund fyrir kappann, en síðan hefur hann leikið með nokkrum liðum; á síðasta tímabili með Real Vallieano, sem vann sig upp í 1. deild á Spáni. ■ GARY Gillespie, sem er 28 ára, hefur misst marga leiki úr með Liverpool vegna meiðsla og er framtíð hans hjá félaginu sögð ótrygg. Hann lék aðeins 20 af síðustu 52 leikjum liðsins. ■ MARK Lawrenson lék með Tampa Bay í Flórída og hjálpaði liðinu að komast í bandarísku úr- slitakeppnina fyrir skömmu. David Pleat, stjóri Leicester, sá hann leika og vildi fá hann til Leicester. Lawrenson sagði að það gengi ekki meiðslanna vegna, en til greina kæmi að stjórna ensku liði á ný. ■ GEORGE Graham, stjóri Arsenal gerir á næstunni fimm ára samning við félagið. Laun hans tvö- faldast og fara í um 150.000 pund á ári, sem er heldur minna en Kenny Dalglish fær hjá Liverpool og Grahame Souness hjá Rangers. ■ RON Atkinson er tilbúinn að greiða Manchester United 500.000 pund fyrir Norman White- side, en spænska félagið Osasuna bauð þá upphæð. Verið getur að Atkinson bjóði einnig í Paul McGrath, sem hættir örugglega Wá Manchester United. ■ ALAN Harris, sem var látinn fara frá Espanol, er kominn til Englands og hefur verið orðaður við Swindon sem eftirmaður Lou Macari, er tók við stjórninni hjá West Ham. ■ DAVID Hodgson, fyrrum leikmaður Liverpool og síðast hjá Sheffield Wednesday, hefur gert samning við japanska félagið Mazda. Alan Irvin leikur einnig með liðinu, en Bill Foulkes er þjálf- ari. ■ ASA Hartford, sem var rek- inn frá Stockport fyrir þremur mánuðum, verður þjálfari Shrews- bury. ■ TOTTENHAM heíur reynt að fá Mark Walters frá Rangers, en Souness sagði um helgina að leik- maðurinn væri ekki til sölu. Liðin leika æfingaleik á Ibrox 6. ágúst. ■ MO Johnston er byijaður að skora fyrir Rangers; gerði fyrsta markið í æfingaleik á Ítalíu um helgina. GETRAUNIR: X11 12X 222 111 LOTTO: 2 21 25 28 32 /19

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.