Morgunblaðið - 28.07.1989, Qupperneq 4
;UK»LA1)JI) FÖSTUDAGUR 28. S
1989
smiðji
þess!
ur aðl
Þessi hárauði sófi nefnist Camel og er framleiddur af BBB Over, en honnuður hans er Giorgio Decursu
Með smá tilfæringum breytist þessi sófi í tvíbreitt rúm. Ring nefnist
hann, framleiddur hjá Esse og hannaður af Renötu Toso og Noti
Massari.
.
i+'Æl:
Sér litur fyrir hvern gest. Europa heitir sófinn, framleidaur af Zanotta
og hannaður af Gualtierotti og Mazzoni Delle Stelle.
hrukkustríðió
Það er engin nýlunda að háð sé stríð gegn
hrukkum. í þessu eilífa stríði hefur verið grip
ið til allra hugsanlegra ráða og allra tiltækra
vopna, að vísu með misjöfnum árangri.
sama hátt og loftslag
og mælikvarði á feg-
urð eru mismunandi
eftir heimshlutum eru
brögðin sem beitt hefur verið í
hrukkustríðinu það líka og það er
aldrei að vita nema gömul og ný
húsráð geti komið að einhverju
gagni.
Miðausturlönd
í Miðjarðarhafsbotnum hafa
konur lagt mikla áherslu á umönn-
un húðarinnar allt frá því á dögum
Batseþu og Kleópötru sem kunnu
sannarlega að meta það að liggja
í kerlaug langtímum saman og
nudda síðan húðina með dýrindis
olíu og ilmsmyrslum. Fegrunarlyfin
hafa konur á þessum slóðum sótt
til móður. jarðar á öllum tímum.
Frægir eru leirbakstrarnir úr
Dauðahafinu og olía sem unnin er
úr jurtum.
MÖNDLUOLÍA
Helsta hrukkulyf kvenna í Mið-
austurlöndum er möndluolía og
hefur svo verið svo lengi sem sög-
ur fara af. í- þessum heimshluta
er loftslag þurrt og sólin síður en
svo spör á geisla sína. Því er mikil-
vægt að mýkja húðina og verja
hana fyrir þessari harðneskju
náttúrunnar. Svo virðist sem konur
á þessum slóðum hafi lengst af
gert sér grein fyrir því að skaðlegt
er að bera olíu á húðina áður en
sólin nær að hella geislum sínum
yfir hana. Hitinn frá sólinni getur
gert það að verkum að olían brenni
húðina.
HENNA
Annað þekkt fegrunarlyf í Mið-
austurlöndum er henna en sú jurt
vex víða í ísrael, Egyptalandi og
íran. Jurtin er þurrkuð og síðan
mulín áður en vatni og öðrum efn-
um er blandað í hana þannig að
úr verði þykkt mauk. Með það er
síðan farið eins og leirbakstra. Al-
þekkt er sú aðferð að þekja húðina
með henna og láta sólina síðan
um „baksturinn" en þegar honum
er lokið er húðin rök og mjúk.
JÓJÓBA-JURT
Þá er að nefna jójóba-jurtina en í
fræi hennar er að finna seigfljót-
andi vax sem konur í ísrael blanda
í önnur smyrsl sem eiga að gera
húðina slétta og mjúka.
Austurlönd fjær
í Asíu hafa konur löngum haft
þá afstöðu til fegrunar að hún hljóti
að vera liður í því heildarjafnvægi
sem lifnaðarhættirnir mynda.
GINSENG
Ginseng-jurtina kalla Kínverjar
„lífrót" og því er ekki að undra
þótt hún sé uppistaðan í hverskon-
ar æskuelexír. Asíubúar hafa hina
mestu trú á lækninga- og mýking-
areiginleikum jurtarinnar og telja
m.a. að hana megi nota til þess
að yngja upp húð sem sé farin að
láta á sjá.
í hrukkustríðinu í Asíu er beitt
öðru vopni en fegrunarsmyrslum.
Það er mataræðið. í því er mikið
af olíu sem gengur í samband við
þá fitu sem er að finna í húðinni
sjálfri. í þeim mat sem japanskar
konur leggja sér til munns er mik-
ið af fitu sem kemur úr fiski. Kín-
verskar konur snöggsteikja mat
sinn í olíu sem einkum er unnin
úr sesam-fræi og jarðhnetum, og
hafa tröllatrú á því að þessi forna
matreiðsluaðferð tryggi það að
húðin nærist jafnframt á olíu sem
komi innan frá. í andlitsfarða sem
konur í Asíu nota eru einnig nær-
ingarefni, unnin úr hinum ýmsu
fæðutegundum. Hrísgrjón hafa
lengst af verið uppistöðufæða í
Asíu og þau eru líka notuð í and-
litspúður. Duftið er afar hreint, létt
og fíngert þannig að það safnast
ekki fyrir í skorum í húðinni og fyr-
ir vikið verður það ekki til þess að
hrukkur eða misfellur verði áber-
andi.
í Asíu eru tvær gamlar aðferðir
enn við lýði, svæðanudd og nálar-
stunga. Svæðanuddi er beitt til
þess að losa líkamann við spennu
og slétta um leið úr hrukkum á
andlitinu og í sama tilgangi má
hafa gagn af nálarstungu.