Morgunblaðið - 18.08.1989, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1989
B 7
C-vítamín auðug, hún hefur mildan
ilm og þægilegt bragð og blandast
vel öðru kryddi. Hún er notuð til
skreytingar og bragðbætis og á vel
við flestar matartegundir nema
sætar. Hæfir vel í súpur, blandað
salat, kryddsósur, fyllingar fyrir fisk
og kjöt, steiktan fisk, kjöt og fugla.
Rosmarin:
Kemur frá Miðjarðarhafssvæð-
inu, — og eru þurrkuð lauf af
sígrænni plöntu, sem minna á
greninálar. Þau eru grágræn að lit
og af mintuætt. Rósemarin hefur
sérstakt bragð, ferskt sætt og
minnir á viðartegund.
— Er bragðmikið skal notað í hófi.
Mulið á það mjög vel við lambakjöt
og kálfakjöt, grænar baunir, spínat
og pizzur, sjávarrétti, ítalska tóm-
atsósu fyrir fisk. Stráið rósmarin
yfir kol þegar verið er að glóð'ars-
teikja, það gefur gott bragð.
Tarragon eða estragon:
Eru nöfn á sama kryddinu. Kem-
ur það upphaflega frá Suðaustur-
Asíu og er nú ræktað í Evrópu aðal-
lega í Frakklandi. Tarragon er eitt |
bragðmesta kryddið og er, vegna
bragðsins, uppáhald fagurkera á
matvælasviðinu. Græn lauf fást í
þurrkuðu formi og minnir bragð
þeirra á anise. Það er bragðmikið
og má nota eitt og sér, en í hófi.
Tarragon gefur béarnesósu sitt
sérstaka bragð. Það er frábært á
steiktan kjúkling og fuglakjöt. Einn-
ig stráð yfir ferskt blandað græn-
metissalat. Það er einnig notað í
marinaði, í edik, á villibráð í túna-
fisksalat, á fisk, skelfisk og í eggja-
rétti.
Thymian eða blóðberg:
Nokkrar tegundir eru til af blóð-
bergi m.a. íslenskt. Það eru grá-
græn lauf plöntu af mintuætt sem
vex best við svalt sjávarloft. Verð-
mestu tegundirnar á markaðnum
koma frá Frakklandi, það eru —
franskt thy mian og — sítrónu thym-
ian. Blóðberg hefur nokkuð sér-
stakt, þægilegt bragð, örlítið beiskt.
Það hefur m.a. verið notað í osta
og sem aðal bragðefnið í Benedic-
tine-líkjör.
Blóðberg skal nota í hófi, það
er gott á lamba-, kálfa- og fugla-
kjöt. Blóðberg í bráðnu smjöri má . i
bera fram með grænmeti og bökuð-
um sjávarréttum, en er einnig gott
í fyllingar fyrir fisk og kjöt.
Ef verið er að prófá sig áfram
með nýtt krydd er rétt fara hóflega
af stað og bæta síðan við eftir
smekk.
Þegar notað er vín, soya-sósa
eða kryddsalt til að bragðbæta
matinn, er rétt að kanna áður salt-
magnið í matnum. Ef ókryddað kjöt-
meti eða grænmeti er látið út í
kryddaða sósu er rétt að kanna
bragðstyrkleikann á eftir.
Gætið þess vel að hitað krydd-
aðan mat með mikilli varúð, þar
sem ákveðið krydd eins og
Cayenne, paprika og karríblöndur
dafna auðveldlega við mikinn hita.
Annað krydd getur orðið beiskt ef
það er yfirhitað.
Andlitshreinsun ætti að vera
þaó einfaldasta sem hægt er
aðgera fyrir húðina, en því
miðurgetur athöfnin orðið
ansi flókin miðað við ólík
skilaboð sem berast frá
snyrtivöruframleiðendum.
Þeir eru að vísu allir sammála
um aó hrein og mjúk húó se'
það fallegasta sem nokkur
kona geti státað sig af, en þeir
eru ekki jafn sammála um
hvernig konur eiga að náþví
takmarki.
Sumir húðsjúkdómafrœðingar
telja að vatn ogsáþa sé besta
leiðin. Aðrir eru þeirrar
skoðunar að sáþa eyði
náttúrulegum olíum íhúðinni
ogsé hreinlega ofsterk fyrir
andlitshúð. Þá erum að ræða
ýmsa möguleika aðra, eins og
hreinsikrem, hreinsimjólk eða
hreinsiolíur. En þaó sem gerir
málió flóknara er aó húð
manna er afskaþlega misjöfn
og reyndar eru það öðrum
snyrtivörum fremur, vórur
sem ætlað er aó hreinsa húó,
sem orsaka óþægindi eða
ofnæmi. Og íöllu þvíframboði
. sem er afslíkum vörum, getur
það tekió óratíma að finna þaó
sem hentar hverjum ogeinum.
Við skulum líta hér á fimm
mismunandi leiðir til
húðhreinsunar, sem fengnar
eru úr bókinni „ Take Care
Of Your Skin “ eftir Elaine
Brumberg.
/. SfylMS*
Sápur eru hefðbundnasta leiðin,
hvort sem notað er sápustykki eða
fljótandi sápa. Sápan er þannig
gerð að blönduð vatni brýtur hún
upp yfirborðsóhreinindi og fitu,
sem skolað er af.
J?.
Þar er um tvær tegundir að
ræða. Gamaldagskrem sem inni-
halda olíur og borið er á andlitið
með t.d. bómullarhnoðra, eða þá
nýrri útgáfur sem eru bornar á
andlitið og skolaðar burt með
vatni.
Andlitsvötn eru til í ýmsum
gerðum, en oftast þannig að þeim
er ætlað bæði að hreinsa húðina
og fríska. Þau innihalda oftast
alkóhól til að Heysa upp fitu og
óhreinindi.
4.
Þau innihalda svarfefni til að
pússa yfirborð húðarinnar í orðsins
fyllstu merkingu og hreinsa þannig
burt olíu, óhreinindi og dauðar
húðfrumur.
Maskarnir eru gerðir til að
„djúphreinsa" svitaholurnar í and-
litinu, auk þess að hreinsa yfir-
borðsó hreinindi og aukaolíur.
Maska á ýmist að hreinsa af með
vatni eða rífa af húðinni eftir ákveð-
inn tíma.
Talið er að Fönikíumenn hafi fund-
ið sápuna upp fyrir einum 2.300
árum. Á þeim tíma var sápa mikil-
vægari í baráttunni gegn húðsjúk-
dómum en sem sú snyrtivara sem
hún er talín vera nú. En það sem
skiptir máli varðandi sápur nú til
dags er ekki bara hvaða sápa
hreinsar best, heldur hvaða sápu-
tegund hreinsar án þess að erta
húðina eða þurrka hana um of.
Gamaldags sápa er ennþá búin
til eftir aldagamalli uppskrift. Þá
er blandað saman alkali, sem er
vatnsuppleysanlegt málm-
hydroxíð, fitu, oftast olíu unninni
úr grænmeti og svo vatni.
Þvottaefni er orð sem við tengj-
um líklegar heimilishaldinu fremur
en húðinni á okkur, enda gefur
orðið til kynna eitthvað sem er
niun harkalegra við húðina en
venjuleg sápa. Það er líka rétt, en
þó er talsvert um sápur, sem í
raun eru þvottaefni með viðbætt-
um mýkjandi smyrslum.
pH-jafnvægi er stóri kosturinn
við að nota þvottaefni í sápu. pH
er skali yfir sýrustig sem gefur til
kynna hvort sápan er sýrumynd-
andi, hlutlaus eða sýrueyðandi fyr-
ir húðina. Sýrustig heilbrigðrar
húðar er yfirleitt á bilinu 4,5-5,6
pH stig. Þess vegna er það til í
dæminu að gamaldagssápur, sem
innihalda alkali, séu sýrueyðandi,
þannig að húðin verður þéttari og
þurrari eftir notkun. Það varir þó
ekki lengi, því heilbrigð húð erfljót
að ná sínu fyrra sýrustigi. Þegar
sápur eru merktar með pH-jafn-
vægi (pH-balance) þýðir það oftast
að viðkomandi vara inniheldur ekki
alkali og líkur á húðertingu ættu
að vera minni.
Sápur með aukaolfum innihalda
þá meiri olíur en ella og hefur þá
yfirleitt verið bætt við lanolín- eða
kókoshnetuolíu við sápuna eða
þvottaefnið. Tilgangurinn með þvi
er að láta aukaolíurnar bæta húð-
inni upp þær náttúrulegu olíursem,.*
tapast við þvottinn. Það segir sig ’
sjálft að slíkar sápur geta verið
heppilegar fyrir þá sem hafa mjög
þurra húð.
Glýserólsápur eru oftast glærar
og innihalda rakagefandi efni.
Kastalía er kunnugt heiti á
spánsku landssvæði, en við það
er einnig kennd Kastalíusápa, sem
er sérstaklega hrein og hörð sápa,
frábrugðin öðrum að því leyti að
hún inniheldur ólífuolíu í stað ann-
arrar fitu.
Græðandi sápur teljast oft
fremur til lyfja en snyrtivara, s.s.
þær sem innihalda bakteríueyð-
andi og sótthreinsandi efni.
Fljótandi sápur eru í engu frá-
brugðnar sápum í föstu formi hvað
innihaldið varðar. Þær eru ýmist .
ætlaðar fyrir þurra húð, viðkvæma
eða feita og geta verið ýmist al-
vöru sápur eða þvottaefni.
Sápur með svitalyktareyði eru
gerðar til að hreinsa og ekki síður
til að vinna á bakteríuum sem or-
saka svitalykt. Það þarf vart að
taka fram að þessi tegund sápa
er alls ekki ætluð til andlitsþvotta.
Upprunalega voru hreinsikrem út-
búin til þess að hreinsa húðina án
þess að fjarlægja náttúrulegar ol-
íur hennar í leiðinni. Það er ekki
langt síðan konum var sagt að
sápa væri það versta sem hægt
væri að hreinsa andlitið með,
hreinsikrem væru það eina sem
dygði. Áherslurnar hafa þó breyst
upp á síðkastið og núorðið leggja
framleiðendur mesta áherslu á að
auglýsa hreinsikrem sem leið til
að hreinsa húðina án þess að
skilja fitulag eftir á henni.
Þurrkað af/skolað af þarna er
talsverður munur á, en í raun er
um að ræða sama hlutinn, þ.e.
hreinsikrem, en mismunandi leiðir
til að taka hann af andlitinu.
Hreinsikrem sem eru fjarlægð
af andlitinu t.d. með bómullar-
hnoðra eru eldri og algengari teg-
undin. Þau eru búin til úr vaxi, jarð-
olíu og vatni til viðbótar sápu eða
þvottaefni. Konur með þurra húð
halda oft að það sé húðinni fyrir
bestu að skilja örlítið lag eftir á
húðinni, en í sumum tilvikum er
slíkt óráðlegt þar sem kremin inni-
halda sápuefni, sem geta ert við-
kvæma og þurra húð. Þá er ráð-
legra að fjarlægja hreinsikremið
vandlega, t.d. með andlitsvatni og
bera svo rakakrem á húðina.
Konur sem á hinn bóginn eru
með feita húð, þurfa ekki á auka-
olíu.að halda og því eru hreinsi-
krem sem á að skola af andlitinu,
besta lausnin fyrir þær. Þó slík
hreinsikrem séu oft auglýst á sama
hátt og hin, þ.e. mýkjandi og inni-
haldi olíur, þá innihalda þau fyrst
og fremst sápu eða þvottaefni, en
minna af olíum en þau sem strok-
in eru af andlitinu. Það er heldur
ekki alls kostar rétt að kalla þessi
hreinsikrem „krem“ því þau eru
oft í formi froðu eða gels.
Svo, til að flækja málið lítillega,
eru einnig framleidd hreinsikrem
sem bæði má strjúka af andlitinu
eða skola burt. En ef það er vand-
kvæðum bundið að finna út hvort
á að gera og ekkert er um það
sagt á pakkningum, er bara að
Sjá næstu síðu