Morgunblaðið - 22.08.1989, Blaðsíða 2
18
MORGUNBLAÐÍÐ, IÞROI I tR ÞRlÐJUBAGUR 22. ÁGÚST 1989
FRJALSAR IÞROTTIR / STIGAMOTIÐ I KOLN
„Arangurínn
vonum framar"
- sagði Sigurður, sem tryggði sér þriðja sætið fyrir úrslitakeppnina
SIGURÐUR Einarsson varð í
öðru sæti á stigamótinu í Köln
á sunnudaginn, og er það þriðja
stigamótið í röð þar sem hann
lendir í því sæti. Verður það að
teljast frábær árangur. Sigurður
kastaði 82,30 m ífyrstu tilraun
og næstu tvö köst hans voru
bæði yfir 80 metra. Það var ekki
fyrr en í sjöttu og síðustu tilraun
sem Bretanum Steve Backley,
sem verið hefur nær ósigrandi á
stigamótum í sumar, tókst að
kasta lengra en Sigurður, og
tryggja sér þar með sigur í mót-
inu. Einar Vilhjáimsson varð í
þriðja sæti; kastaði 81,80 m og
ífjórða sæti varð Japaninn Kazu-
hiro Mizoguchi; 8 cm. á eftir Ein-
ari.
Eg er mjög ánægður með árangur
minn, hann hefur verið vonum
framar, en það eru tvö sterk mót
eftir, og þar á meðal úrslitamótið í
Mónakó, og það dæmi þarf að klára,“
sagði Sigurður Einarsson eftir að
kastkeppninni var lokið á sunnudag-
inn.
Sigurður sagðist einungis hafa tek-
ið þrjú fyrstu köstin, því þá hefði
hann aðeins verið farinn að fmna
fyrir álagsmeiðslum, og því ekki vilj-
að taka neina áhættu.
„Þetta hefur verið mjög stíft að
undanförnu; eða 6 mót á einungis
13 dögum, og það er tími til kominn
að skrokkurinn fái hvíld,“ sagði hann.
Hann kvaðst samt ætla að nota fríið
til æfinga hér heima, en taka það
fremur rólega, því hann ætlaði að
reyna að ná úr sér taki í baki, sem
hefði verið að hrjá hann að undanf-
ömu.
Með frammistöðu sinni í stigamót-
unum er Sigurður í þriðja sæti; en
auk þess að lenda þrisvar sinnum í
öðru sæti, hefur hann lent tvisvar
sinnum í þriðja sæti.
Árangur Sigurðar á stigamótunum
í ár er annars sem hér segir:
3. sætið í Rðm................78,30 m
3. sætið (Búdapest............81,88 m
2. sætið í Zurich.............80,64 m
2. sætið í Berlín...................82,68 m
2. sætið í Köln.....................82,30 m
Það er Bretinn Steve Backley sem
er í fyrsta sæti fyrir úrslitakeppnina
í Mónakó; er með 45 stig, en á hæla
honum kemur Japaninn Mizoguchi
með 40 stig. Sigurður er svo í þriðja
sæti með 33 stig og Einar í 4-5 sæti
með 30 stig. Það er þvi töluvert bil
sem aðgreinir þá frá tveimur efstu
mönnum, en á það er samt að líta,
að úrslitakeppnin gefur tvöfaldan
stigafjölda á við stigamótin fram að
þessu. Þar hreppir sigurvegarinn 18
stig, annað sætið gefur 16 stig og
þriðja sætið 14, og síðan fækkar stig-
unum í samræmi við þetta. Lítum ^S/EÍnar^Fáiui-
því að lokum á stigafjölda þeirra átta, Sigurður
sem rétt hafa til þátttöku í mótinu í Einarsson
Mónakó, semframfer 1. september. varg ; öðru
1. Steve Baekley, Bretlandi..............45 sæti á þriðja
2. Kazohiro Mizuguchi, Japan.............40 stigamótinu í
3. Sigurður Einarsson, Islandi...........33 röð um helg-
4. Seppo Ráty, FinnlandL.................30 jna 0~ verAur
5. Einar Vilhjálnisson, Islandi..........30 , A , , ,
6. Mike Hill, Bretlandi..................24 Þa.ðu að ^ljast
7. Jan Zelezny, Tékkóslóvakíu............19 trabaer arang-
8. Gerald Weiss, A-Þýskalandi............18 ur.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Júlíus Tryggvason og Luca Kostic höfðu ástæðu til'að fagna eftir leik Þórs
og Fram. Þeir skoruðu báðir glæsileg mörk af löngu færi.
Tvö glæsimörk Þórs
- eríslandsmeistaramirvoru lagðir að velli
ÞÓRSARAR unnu mjög mikil-
vægan sigur; 2:0, á sunnudag-
inn. Með sigri sínum bættu
þeir verulega stöðu sína íbotn-
baráttunni, en Framarar sáu
aftur á móti af þremur dýrmæt-
um stigum í baráttunni um ís-
landsmeistaratitilinn.
Þetta var það sem við nauðsyn-
lega þurftum; menn lögðu sig
alla fram í þennan leik, og það var
alveg frábært að sigra í honum,“
sagði Nói Björnsson,
Frá Reyni fyrirliði Þórs, eftir
Eiríkssyni leikinn.
áAkureyri. Þórsarar léku
undan strekkins-
FRJÁLSAR IÞROTTIR
Aouida setti heimsmet
í fimmta sinn í Köln
SAID Aouida setti heimsmet
í fimmta sinn á ferli sínum á
sunnudaginn í Köln, er hann
hljóp 3000 metrana á 7:29.45
mínútum og varð þar með
fyrstu allra til að hlaupa þá
vegalengd á skemmri tíma en
sjö og hálfri mínútu. Aouida,
sem orðinn er 29 ára gamall,
bætti 11 ára gamalt heims-
met í greininni um rúmlega
tvær og hálfa sekúndu, og þar
með hafa án efa þær raddir
þagnað, sem héldu þvífram
að hann væri búinn að segja
sitt síðasta orð á hlaupa-
brautinni.
Það er óhætt að segja að
Aouida hafi náð sér á strik
eftir Ólympíuleikana í Seoul í
fyrra. Þá hreppti hann einungis
bronsverðlaun í 800 metra hlaupi,
og varð að sjá vonir sínar um sig-
ur í 1500 metra hlaupi verða að
engu vegna meiðsla. Nú bætti
hann hins vegar fimmta gildandi
heimsmetinu við í safnið, en hann
á heimsmet í 1500 m, 2000 m,
3000 m, 5000 m, og tveimur ensk-
um mílum. Það verður því óhikað
að telja hann- hlaupakonunginn í
millivegalengdum, þó svo að nú
séu að koma fram á sjónarsviðið
menn, sem famir eru að veita
honum harða keppni á hlaupa-
brautinni.
Þór—Fram
2 : O
íslandsmótið 1. deild, Akureyrarvöllur,
sunnudaginn 20. ágúst 1989.
Mörk Þors: Luka Kostic 23. og Júlíus
Tryggvason 34.
Gul spjöld: Bojan Tanevsky, Þór.
Þorsteinn Þorsteinsson, Jón Sveinsson,
Ómar Torfason, Fram.
Dómari: Friðgeir Hallgrímsson dæmdi
ágætlega.
Áhorfendur: 685
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Luka
Kostic, Birgir Karlsson, Nói Bjömsson,
Þorsteinn Jónsson, Ólafur Þorbergs-
son, Kristján Kristjánsson (Sævar
Ámason 78.), Bojan Tanevski, Júlíus
Tryggvason, Árni Þór Árnason, Valdi-
mar Pálsson.
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Þor-
steinn Þorsteinsson, Kristján Jónsson,
Helgi Bjamason (Ríkharður Daðason
51.), Viðar Þorkelsson, Kristinn R.
Jónsson, Pétur Arnþórsson (Arnljótur
Daviðsson 72.), Guðmundur Steinsson,
Ragnar Margeirsson, Jóns Sveinsson,
Ómar Torfarson.
vindi í fyrri hálfleik, og tókst að
færa sér það nokkuð í nyt. I heild-
ina var hálfleikurinn nokkuð jafn,
og reyndu Framarar að leika sín á
milli gegn vindinum og tókst það
bærilega. Fyrsta hættulega færið
féll Fram í skaut, þegar Guðmund-
ur Steinsson komst i gegnum Þórs-
vörnina á 8. mínútu eftir laglegt
samspil. Skot hans fór hins vegar
rétt framjá.
Fyrra mark Þórs kom svo á 23.
mínútu, og var þar Luka Kostie að
verki, og er það fyrsta mark hans
í deildarkeppninni á íslandi. Luka
tók aukaspyrnu rétt fyrir utan víta-
teig, og þrumuskot hans fór fram-
hjá varnarvegg Fram og efst i
markhornið, gjörsamlega óveijandi
fyrir Birki í Frammarkinu, og sann-
kallað glæsimark.
Á 34. mínútu var Birkir hins
vegar vel á verði þegar hann varði
vel skot frá Júlíusi Tryggvasyni.
Tveimur mínútum síðar átti Birkir
hins vegar ekkert svar við þrumu-
skoti Júlíusar, sem jók forskot Þórs
í leiknum í tvö mörk. Dæmd var
aukaspyrna á Fram rétt við miðju-
hringinn og virtist ekki mikil hætta
vera á ferðum. Júlíus Tryggvason
gerði sér hins vegar lítið fyrir og
þrumaði í bláhornið. Birkir hreyfði
hvorki legg né lið, enda vart búist
við að Júlíus reyndi markskot úr
þessu færi. Fagnaðarlátun hafði
vart linnt á vellinum eftir markið,
þegar Bojan Tanevski komst einn
í gegnum vöm Fram, en Birkir
náði að hirða knöttinn af tám hans
með fallegu úthlaupi.
í síðari hálfleik sóttu Framarar
mun meira en tókst ekki að skora
þrátt fyrir þokkaleg færi. Bestu
færi þeirra áttu Ríkharður Daðason
og Viðar Þorkelsson, sem þrumaði
í þverslá af stuttu færi.
Á lokamínútunum fengu Þorarar
tvö góð færi, en mistókst í bæði
skiptin að auka forskot sitt.
„Þórsarar börðust eins og ljón
og uppskáru eftir því,“ sagði Guð-
mundur Steinsson, Framari eftir
leikinn, og bætti við að Framliðið
hefði aldrei komist í gang, og að
mörk Þórs hefðu verið með þeim
hætti að ekkert hefði verið hægt
að gera við þeim.
m
Árni Þór Árnason, Júlíus
Tryggvason, Luka Kostic
Þór.