Morgunblaðið - 29.08.1989, Qupperneq 5
4 B
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1989
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐ.IUDAGUR 29. ÁGÚST 1989 '
B 5
Asgeir Elíasson er hér tolleraður af leikmönnum Fram eftir glæsilegan
sigur á KR í bikarúrslitaleiknum á sunnudaginn.
Ásgeir bikar-
meistari í
siötta sinn
Asgeir Elíasson, þjálfari
Fram, gerði liðið að bikar-
meisturum í þriðja sinn á fimm
árum, og undir hans stjórn hefur
liðið einnig orðið Islandsmeistari
í tvígang. Ásgeir hefur þó oftar
komið við sögu i bikarúrslitaleikj-
um Fram, því hann hefur í fjór-
gang verið leikmaður með liðinu,
þegar það hefur unnið úrslitaleik
keppninnar. Fyrst árið 1970 í
fyrsta bikarsigri Fram, þá í fyrsta
úrslitaleiknum á Laugardalsvell-
inum árið 1973, og árið 1979
þegar Framarar unnu Val 1:0.
Hann missti af bikartitlinum árið
eftir þegar Fram vann ÍBV 2:1
en bætti sér það upp árið 1985,
þegar hann bæði sem leikmaður
og þjálfari tók þátt f 3:1 sigri
Fram á ÍBK.
„VIÐ vitum hvað það er að
vinna titil, en þeir ekki,“ sagði
Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram,
eftir sjöunda sigur Framara í
bikarkeppni KSI á sunnudag-
inn. Þetta eru orð að sönnu
því Fram hefur átt miklu vel-
gengni að fagna undir stjórn
Asgeirs síðan 1985, unnið ann-
að hvort bikar eða meistaratitil
á hverju ári. Frábær árangur
það. KR-ingar verða hins vegar
að bíða enn um sinn, en þeir
unnu síðast bikarinn 1967 og
meistaratitilinn 1968 og biðin
því orðin býsna löng. Fram og
KR standa þó jöfn að vígi hvað
varðar bikarkeppnina þar sem
bæði liðin hafa fagnað sigri sjö
sinnum alls.
Framarar keyrðu gjörsamlega
yfir KR-inga á fyrsta hálftíma
leiksins og gerðu þá nánast út um
leikinn. Leikaðferð Fram, að spila
stífan sóknarleik
ValurB. gegn mjög svo
Jónatansson taugaveiklaðari
skrifar vöni KR-inga í byij-
un, gekk upp. Þeir
skoruðu á þessum kafla þijú mörk
á móti einu marki Vesturbæinga.
Framliðið dró sig til baka í síðari
hálfleik og spilaði frábæran varnar-
leik þar sem skynsemin réði ríkjum.
Markaregn
Fyrstu mínútur leiksins voru svo
sannarlega fjörugar og viðburðarík-
ar. Guðmundur Steinsson gaf tón-
inn er hann setti knöttinn i mark
KR strax á 9. mínútu. Pétur
Ormslev gaf sendingu út á hægri
vænginn á nafna sinn Arnþórsson
sem sendi inn í vítateiginn á Guð-
mund sem gaf sér góðan tíma og
setti boltann í vinstra markhornið.
Pétur Pétursson jafnaði fyrir KR
aðeins fimm mínútum síðar. Markið
kom upp úr homspyrnu þar sem
knötturinn barst til Rúnar Kristins-
sonar, sem lék laglega á einn Fram-
ara og sendi inn að markteig og
þar var Pétur mættur og skallaði í
netið.
Fram hafði ekki sagt sitt síðasta
því eftir 17 mínútna leik hafði Pét-
ur Ormslev bætt öðru marki við
fyrir Fram. Kristinn R. Jónsson
fékk þá stungusendinu upp í víta-
teiginn vinstra megin, lék upp að
endamörkum og gaf fasta sendingu
fyrir og þar var Pétur Ormslev
mættur á markteingum og skoraði
með viðstöðulausu skoti.
100. bikarúrslitamarkid
Guðmundur Steinsson gerði svo
endanlega út um vonir KR-inga á
28. mínútu er hann skoraði þriðja
mark Fram, sem jafnframt er 100.
markið í bikarúrslitaleik frá upp-
hafi. Pétur Ormslev átti heiðurinn
að því marki. Hann vann boltann á
vinstri vængnum við miðlínu og lék
á einn varnarmann KR og sendi
síðan háa sendingu innfyrir á Guð-
mund Steinsson sem afgreiddi bolt-
ann viðstöðulaust í netið rétt utan
vítateigs. Glæsilegt mark.
Það sem eftir lifið hálfleiksins
gerðist fátt markvert. Framarar
léku eins og þeir sem valdið höfðu
og voru nær því að bæta við mörk-
um en KR að minnka muninn.
Sýnikennsla í varnarleik
Síðari hálfleikur var eins daufur
og sá fyrri var fjörugur. Framarar
voru með sýnikennslu í varnarleik
og greinilegt að þessi staða, tvö
mörk yfir, hentaði þeim vel. KR-
ingar fengu ekkert einasta mark-
tækifæri í síðari hálfleik. Eina um-
talsverða færi þeirra, ef færi mætti
kalla, var þegar Pétur Pétursson
komst í gegnum vörn Fram og féll
er Kristján Jónsson potaði í boltann
gegnum klofið á honum. Margir
vildu fá víti þ.á.m. Pétur Pétursson.
Eftir að hafa séð þetta atvik sýnt
í sjónvarpi er undirritaður á því að
Óli Olsen hafi gert rétt í því að
sleppa vítaspyrnunni.
Sigur Fram var verðskuldaður
og sýndi liðið sinn besta leik í sum-
ar, góðan sóknarleik í fyrri hálfleik
og öruggan varnarleik í þeim síðari.
Liðsheildin var aðall liðsins, en ég
tel ekki á neinn hallað þó ég full-
yrði að Pétur Ormslev hafi verið
besti leikmaður vallarins. Hann átti
þátt í öllum mörkunum þremur auk
þess að stjórna leik liðsins af mik-
illi festu og skynsemi. Það er orðin
spurning hvort við getum verið án
hans í næsta landsleik?
Reynsluleysi
Reynsluleysi og taugaveiklun
KR-inga í upphafi leiks varð þeim
að falli. Vörnin og markvarslan var
slakasti hluti liðsins og það vareins
og sambandsleysi væri milli varnar-
manna og markvarðar. Spilið á
miðjunni gekk ekki upp þó svo að
Framarar hafi bakkað í síðari hálf-
leik. Rúnar náði sér aldrei almenni-
lega á strik og það munar um
minna. Pétur var ógnandi frammi,
en vantaði aðstoð frá félögum
sínum.
- sagði Pétur Ormslev, fyrirliði Fram, sem varð bikarmeistari ífimmta sinn
Pétur Ormslev, fyrirliði Fram
„Við unnu mjög vel saman og þetta
var léttara fyrir bragðið. I slíkum ham
stenst ekkert lið okkur -snúning.
Reynslan hjálpaði okkur því við vitum
hvað þarf í svona úrslitaleik. Það léku
allir eins og þeir geta best og þegar
svo er gengur þetta upp. Þetta sann-
ar að við getum þetta þó svo að leik-
ir okkar hafi verð köflóttir í sumar.“
Pétur Pétursson, fyrirliði KR
„KR-Iiðið lék vel að mínu mati og
á hrós skilið þar sem pressan á liðinu
var mikil fyrir leikinn. Fram náði fljót-
lega forystunni og við áttum á bratt-
an að sækja eftir það. Framarar léku
mjög skynsamlega, sérstaklega í
síðari hálfleik og sigur þeirra var
sanngjarn. Ég tel þó að Óli Olsen,
dómari, hafi sleppt vítaspyrnu í síðari
hálfleik er ég komst í gegn. Ef hann
hefði dæmt víti hefði leikurinn getað
snúist okkur í hag.“
Ásgeir Eiíasson, þjáifari Fram
„Ég held að reynsla okkar hafi
vegið þungt. Við vitum hvað það er
að vinna titla, en ekki þeir. Við feng-
um þægilega stöðu eftir fýrri hálfleik-
inn enda lékum við af meiri krafti
fyrsta hálftímann í leiknum en við
erum vanir. í síðari hálfleik færðum
við okkur aftar og það hentaði okkur
vel og við vorum nær því að bæta við
mörkum en þeir að minnka muninn.
Fram spilaði einn af sínum betri leikj-
um og sóknarleikurinn gekk vel upp.“
lan Ross, þjálfari KR
„Framarar léku betur, líklega einn
sinn besta leik í sumar og sigur þeirra
var verðskuldaður. Það sem ég er
óánægðastur með hjá KR er að ég
veit að liðið getur leikið betur.
Reynsluleysi í svona leik háði okkur
í byrjun og það varð okkur dýrkeypt.
Við vitum nú hvað það er að spila
bikarúrslitaleik. Ég er þrátt fyrir allt
mjög ánægður með leik minna manna,
þeir börðust á fullu allan leikinn, en
Framarar voru einfaldlega betri í
þessum leik og ég vil óska þeim til
hamingju með bikarinn."
GunnarOddsson
„Ég er svekktur yfir að tapa. Við
vorum taugaóstyrkir í fyrri hálfleik,
en í síðari hálfleik náðum við betri
tökum á leiknum, án þess þó að ná
upp pressu. Þessi leikur er mikil
reynsla fyrir liðið og nú er bara að
einbeita sér að deildinni."
Pétur Arnþórsson
„Þetta var meiriháttar sigur. Við
náðum að afgreiða þá í fyrri hálfleik,
enda tók það sinn toll því við keyrðum
alveg á fullu. Við spiluðum síðari
hálfleikinn mjög yfirvegað pg skyn-
samlega þannig að það var aldrei
verulega hætta á ferðum.“
- - Morgunblaðiö/RAX
■ ■ I
Jöfnunarmark KR-inga kom eftir stórskemmtilegan undirbúning Rúnars Krist-
inssonar. Sæbjörn Guðmundsson tók hornspymu frá hægri. Gaf á Rúnar við
nærstöngina, sem lék laglega á einn varnarmann Fram, og sendi hárnákvæmt
á Pétur sem skallaði í netið með tilþrifum framhjá Birki Kristinssyni. Þetta
var fjórða mark Péturs í þremur bikarúrslitaleikjum, en hann skoraði tvö mörk
gegn Fram árið 1986, þegar ÍA vann 2:1, og hann skoraði einnig sigurmarkið
gegn Val árið 1978.
_ _ Morgunblaðiö/Einar Falur
Oa I
Hundraðasta mark Bikarkeppninnar frá upphafi íeit dagsljósið þegar Guðmund-
ur Steinsson skoraði þriðja mark Fram á 28. mínútu. Pétur Ormslev æddi upp
vinstri kantinn og gaf alveg hárnákvæma sendingu á Guðmund, sem þrumaði
honum í netið framhjá Þorfinni Hjaltasyni. Þetta var jafnframt 6. mark Guð-
mundar í bikarúrslitaleik, og þar með jafnaði hann met Gunnars Felixsonar,
sem skoraði jafnoft með KR á 7. áratugnum.
umm
FOLK
■ TVEIR KR-ingar hafa sjö sinn-
um orðið bikarmeistarar, eða í öll
skiptin sem KR hefur unnið titilinn,
og er það met sem seint verður sleg-
ið. Þeir eru Bjarni Felixson, sem
lýsti leiknum á sunnudaginn í sjón-
varpinu, og Ellert B. Schram,
formaður KSÍ. Tveir KR-ingar
hafa unnið til hans sex sinnum,
þeir Sveinn Jonsson, formaður
Knattspyrnudeildar KR, og
Gunnar Felixson. Reyndar bætti
Sveinn sjöunda titlinum við árið
1967, en þá var hann þjálfari KR.
■ FRAM hefur leikið 13 sinnum
til úrslita um bikarinn, unnið 7 sinn-
um, og skorað 23 mörk. KR hefur
hins vegar leikið 9 sinnum til úr-
slita, og einungis tapað tvisvar.
Markatalan er 23:9, en Framarar
hafa fengið á sig 19 mörk. Þeir
standa samt betur að vígi en IA,
sem hefur jafnmarga úrslitaleiki að
baki og Fram, því markatalan hjá
Skagamönnum er 20:33, andstæð-
ingunum í hag.
■ KR-INGAR urðu fyrstir til að
skora í bikarúrslitum er þeir unnu
Fram 2:0 á Melavellinum. Þá
skoraði Gunnar Guðmannsson
fyrsta markið. Framarar skoruðu
hins vegar 50. mark keppninnar
árið 1973 þegar Fram vann ÍBK
2:1 í fyrsta bikarúrslitaleiknum sem
háður var á Laugardalsvellinum.
Það mark gerði Jón Pétursson.
■ FYRIR úrslitaleikinn á sunnu-
daginn var meðalmarkaskorun sig-
urliðs í úrslitaleik 2,43 mörk. Tap-
liðið gerði hins vegar 0,76 mörk í
leik. Þar sem Framarar skoruðu
þrjú mörk, og KR-ingar eitt, hefur
þetta meðaltal aðeins hækkað. Það
hefur einungis gerst ijórum sinnum
i 30 leikjum að tapliðið hafi skoraði
fleiri en eitt mark. Skagamenn
hafa staðið sig best: Töpuðu 4:3
fyrir KR 1961, 5:3 gegn Val 1965
og 3:2 þegar þeir mættu ÍBA árið
1969. Framarar gerðu svo tvö
mörk gegn þremur mörkum IBV
árið 1981.
■ ÁSGEIR Elíasson, þjálfari
Fram, er fyrsti þjálfari liðsins sem
gerir það þrisvar sinnum að bikar-
meisturum. Guðmundur Jonsson,
Mummi, og Hólmbert Friðjóns-
son leiddu Framara tvisvar sinnum
til sigurs í bikarúrslitaleik; Mummi
árin 1970 og 1973, og Hólmbert
árin 1979 og 1980.
■ SIGURÐUR Björgvinsson
hefur ekki haft heppnina með sér
í úrslitaleikjum Bikarkeppninnar.
Hann lék þrívegis með IBK til úr-
slita og tapaði öllum viðureignum
sínum, og ósigur hans með KR
varð því sá fjórði.
■ FRAMARAR sáust þjóta með
bikarinn að áhorfendastæðunum
þar sem lítill hópur stuðningsmanna
var samankominn. Þar var á ferð-
inni Castró-gengið, en í því er að
finna einhverja aláköfustu stuðn-
ingsmenn Fram. Það skilyrði er
sett að meðlimur í Castrí-genginu
mæti á alla leiki Framara, og má
þá einu gilda hvar á landinu leikið
er. Forsprakki hópsins heitir Hörð-
ur Einársson.
í ’tSSWSm
Guðmundur Steinsson hefur verið iðinn við að skora fyrir Fram í bikarúrslita-
leikjum, og hér sést hvar hann skorar fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Pétur
Ormslev fékk knöttinn á miðjunni, gaf eina af sínum glæsilegu sendingum út
á hægri kantinn þar sem Pétur Arnþórsson sendi inn í vítateiginn á Guðmund,
sem fékk nægan tíma til að finna glufu í vörninni og skora. Var þetta 4.
mark hans í bikarkeppninni í sumar, en hann skoraði þrennu gegn ÍBK í undan-
úrslitunum.
Víti, víti!
Pétur Pétursson komst
einn inn fyrir vörn Fram-
ara þegar síðari hálfleikur var
rúmlega hálfnaður. Kristján
Jonsson, sem hafði haft góðar
gætur á Pétri allan leikinn,
kom á fleygiferð á eftir hon-
um, og á síðustu stundu tókst
honum að renna sér og pota
knettinum í horn. Pétur féll
við, en reis upp aftur, og
stormaði að Óla P. Olsen og
heimtaði víti. Óli var hins veg-
ar vel staðsettur og aldrei í
neinum vafa um réttmæti
dómsins.
1:0
MorgunblaÖið/Einar Falur
ekkert lið okkur snúning"
9^
■
mm
FEHt
im
<**<¥<**
Fram—ICR
3
Morgunblaðið/Einar Falur
Fyrirliði Framara, Pétur Ormslev, skoraði annað mark þeirra í leiknum eftir góða fyrirgjöf frá Kristni
R. Jónssyni, sem hafði leikið alveg upp að endamörkum með KR-vörnina á hælunum. Með sigri í þessum
úrslitaleik varð Pétur bikarmeistari með Fram í fimmta sinn á tíu árum. Fyrst varð hann meistari árið
1979 eftir leik gegn Val, árið eftir gegn ÍBV og fimm árum síðar gegn ÍBK. Síðast hafði hann tekið við
titlinum í stórsigri gegn Víði. Pétur hefur alls leikið níu sinnum til úrslita í bikarkeppninni og skorað sam-
tals fjögur mörk.
Hvað sögðu þeir?
Laugardalsvöllur, bikarúrslitaleikur, sunnudaginn 27. ágúst 1989.
Mörk Fram: Guðmundur Steinsson á 9. mín. og 28. mín. Pétur
Ormslev á 17. mín.
Mark KR: Pétur Pétursson á 14. mín.
Gult spjald: Pétur Ormslev, Fram (35. mín.), Rúnar Kristinsson,
KR (36. mín.), Gunnar Oddsson, KR (59. mín.).
Áhorfendur: 5.670.
Dómari: Óli Olsen.
Línuverðir: Gísli Guðmundsson og Gunnar Ingvarsson.
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Steinn Guðjónsson, (Steinar Guð-
geirsson vm. á 75. mín.), Kristján Jónsson, Pétur Ormslev, Viðar
Þorkelsson, Kristinn R. Jónsson, Pétur Amþórsson, Guðmundur
Steinsson (Ríkharður Daðason vm. á 65. mín.), Ragnar Margeirs-
son, Jón Sveinsson, Ómar Torfason.
Lið KR: Þorfinnur Hjaltason, Sigurður Björgvinsson, Jóhann Lap-
as, Þormóður Egilsson, Gunnar Skúlason, (Willum Þór Þórsson vm.
á 75. mín.), Rúnar Kristinsson, Gunnar Oddsson, Þorsteinn Hall-
dórsson, Björn Rafnsson, (Heimir Guðjónsson vm. á 51. mín.),
Sæbjörn Guðmundsson, Pétur Pétursson.
„I slíkum ham stenst
KNATTSPYRNA / ÚRSLITALEIKUR I MJÓLKURBIKARKEPPNI KSÍ
Reynsla
Framara
vóþungt
- gerðu út um leikinn á hálftíma og unnu bikarinn í sjöunda sinn