Morgunblaðið - 29.10.1989, Side 10

Morgunblaðið - 29.10.1989, Side 10
:s ;i S...1 ,. ,-.,3 : ’-i ; i ■ : ■ FASTEIGIMIR wtmm ■• ■ w SUNNUDAGUR 29: OKTÓBEIf 1989' SVERRIR KRISTJÁNSSON - HÚSI VERSLUNARINNAR 6. HÆÐ - BALDVIN HAFSTEINSSON HDL, Símatími frá kl. 13.00-15.00 Einbýli/tvíbýli STÓRT NÝTT HÚS EINBÝLI - TVÍBÝLI VIÐ KLYFJASEL Til sölu nýtt, vandað hús við Klyfjasel. Húsið stendur hátt upp við óbyggt svæði. Réttur fyrir byggingu á hesthúsi og bílsk. fylgir. Á.jarðhæð er ca 80 fm 2ja herb. séríb. Falleg íb. m. parketi á gólfum og stóru flísal. baðherb. Aðal- hæð, ris og hluti af jarðh. ca 260 fm. Anddyri, hol, stofa, borðst., eldh. og stórt herb., parket og flísar á gólfum. í risi eru 4 svefnherb. og stórt bað. Efra ris sem er stórt leikherb. barna. Geymslur o.fl. á jarðh. Á eigninni geta hvílt góð langtímalán. SKIPASUND. Ca 220 fm gott hús. Stórar stofur, 4 svefnherb. o.fl. Innb. bílsk. Húsið er ekki fullfrág. LÆKJARTÚN - MOS. ise fm nettó einb. á einni hæð + tvöf. ca 50 fm bílsk. íb. er forst., stór stofa, borðstofá (arinn), rúmg. eldhús, þvherb., búr, 3 svefnherb. og bað. Stór falleg hornlóð. Hús í góðu standi. Ákv. NORÐURTÚN - ÚTSÝNI 126 fm á einni hæð. Falleg staðs. Tvöf. bflsk. Raðhús-Parhús HÁALEITISBRAUT. ca 190 fm á einni hæð. Bílsk. Övenju vandað og gott hús. Ákv. sala. SERBYLI - VESTURBÆ við Ránargötu með mögul. á tveimur íb. 146 fm, 1. hæð. Forstofa, 2 saml. stofur, gott eldhús, snyrting. og þvotta- herb. Á efri hæð 2 stofur, 2 svefnherb. og bað. í risi 2 herb., geymsla og stór óinnr. rými. Nýtt járn á þaki, nýtt raf- magn og Danfoss. Verð 8,5 millj. Útb. 50-60%. Ákv. sala. Sérhæðir VESTURBÆR - SÉRHÆÐ V/HJARÐARHAGA. gó« 135 fm efri sérhæð. Rúmg. uppgangur. Gestasn. og forstherb., gott hol, t.v. tvö svefnherb. og bað. Stórar suðursv. T.h. stór stofa, borðstofa og rúmgott eld- hús. í kj. sérþvherb. og góð geymsla. 26 fm bílsk. með hita og rafmagni. Ákv. sala. eða skipti á nýl. 3ja herb. íb. í Vesturbæ. HÆÐARBYGGÐ - GB. 146 fm falleg neðri sérhæð í tvíb. 5 svefnherb., góðar stofur o.fl. V. 7,5 m. 5-6 herb. OFANLEITI + BÍLSK. Fai- leg 5 herb. íb. á 4. hæð (4 svefnherb.) Suðursv. Góður bflsk. Góð langtímalán. GRETTISGATA. Ca 140 fm góð íb. á 2. hæð. Laus. 4ra herb. GRENIMELUR. ss fm falleg sérhæð 1. hæð. Laus fljótt. SAFAMÝRI ENDAÍB. 93 fm góð íb. á 4. hæð. Mikið útsýni. Bílskréttur. KR-BLOKKIN. 93 fm á 2. hæð. Góðar innr. Áhv. allt að 1,8 millj. Laus. MEISTARAVELLIR. U.þ.b. 100 fm á 3. hæð. Laus í des. nk. Ákv. sala. í GRAFARVOGI. ca nitm mjög falleg ný jarðhæð í sambýlishúsi. Parket. Stórt „terras11. íb. er laus. BERGSTAÐA- STRÆTI. 97 fm góð íb. á 3. hæð í steinhúsi. Verð 6,2 millj. 60% útb. Laus. VESTURBERG. ca ao tm íb. á 3. hæð. Mikið útsýni. Verð 5350 þús. 3ja herb. BOGAHLÍÐ. GÓð 80 fm íb. á 3. hæð. Ákv. sala. HRÍSMÓAR. Glæsil. 82 fm íb. á 2. hæð. Suðursv. Óvenju glæsil. og vandaðar innr. Bílskýli. SPÍTALASTÍGUR. 1. hæð í húsi sem er að miklu leyti nýendurn. 4-5 herb. o.fl. Allt í gamla stflnum. JÖRFABAKKI 3. 75 fm falleg og góð íb. Þvottah. og búr innaf eldh. SAFAMÝRI. Góð 3ja herb. 97 fm íb. á 3. hæð. Laus. UGLUHÓLAR. 96fmfb á 3. hæð + bílskréttur. Áhv. ca 3,0 millj. húsnstjlán. ENGIHJALLI. Góð 80 fm íb. á 4. hæð E. Laus. HRAUNBÆR. Rúmg. íb. á 2. hæð. Suðursv. Verð 5,3 millj. Áhv. 1,8 millj. langtl. LEIFSGATA. Lítið, snoturt ris sem gefurýmsa mögul. Verð 3,5 millj. MARBAKKABRAUT. 67 fm jarðhæð. Sérinng. Laus. Verð 3,5 millj. SÖRLASKJÓL. Ca82fmsnot- ur risíb. í tvíb. Laus. 2ja herb. AUSTURSTRÖND. 52 fm. Útsýni. Bílskýli. Verð 4,8 millj. Áhv. 1,8 millj. langtlán. GAMLI BÆRINN. ca 55 fm íb. á 2. hæð við Berg- staðstr. Laus fljótl. GRETTISGATA. æ fm góð jarðh. HVERFISGATA. uui, ný- stands. 2ja herb. íb. á 1. hæð. Allt sér. Laus fljótl. ROFABÆR. Til sölu 3ja og 4ra herb. íb. 70-100 fm nettó. Afh. tilb. u. trév. pg máln. Lóð grófsl. í mars/apríl 1990. Teikn. og nánari uppl. á skrifst. SUÐURGATA. Ca 104 fm mjög fallegar sérhæðir, afh. tilb. u. trév., fullkl. utan. Lóð grófsl. Teikn. og nánari uppl. á skrifst. FANNAFOLD PARH. 116fm + 24fm bílsk., 136 fm + 24 fm bílsk. og 170 fm + 25 fm bílsk. Afh. fokh. Klárað utan. Grófsl. lóð. Morgunblaðið/Jon H. Sigurmundsson Búið er að klæða suðurhlið íþróttahússins að mestu leyti. Þorlákshöfti: Byggingu íþróttahúss miðar vel Þorlákshöfn. „VERKINU hefúr miðað vel og flestir verkþættir staðist áætlun,“ sagði Guðmundur Hermannsson, sveitastjóri, er Morgunblaðið innti hann eftir gangi mála við bygg- ingu íþróttahúss í Þorlákshöfii. Klæðning á húsið kom á tilsettum tíma í vor en þegar setja átti hana á kom í ljós að hún var öll meira og minna skemmd eftir flutn- ingana að utan. Ákveðið var að skila henni allri aftur og fá nýja í staðinn þó það tefði verkið noíckuð. Þar sem sum- arfrí voru í verksmiðjunni sem fram- leiðir klæðninguna dróst til haustsins að ný klæðning kæmi og þegar tii átti að taka var sú sending.einnig skemmd en þó ekki það mikið að ákveðið hefur verið að klára að klæða húsið með henni þegar búið er að bletta í skemmdirnar. Stefnt verður að því að taka hús- ið í notkun á síðari hluta næsta árs. JHS Híbýli/Garður Hreiórlö þltt Dálítið gamaldags en góð lausn engu að síður. „ER ekki eilt hreiður, sem þú átt, stærra en jörðin öll sem eng- inn getur eignast." (Sig. Nordal — Fornar ástir). ÆT Isíðustu grein fjallaði ég um stúdíó- eða einstaklingsíbúðir; opin rými. Ég held áfram þar sem frá var horfið. Þegar ég ræði um opin rými hér, þá á ég við lítil rými, svokallaðar stúdíó-íbúðir, þar sem flestir staldra stutt við, en ekki stór, opin rými sem hafa verið sérstaklega hönn- uð á þann veg, til þess að fullnægja þesskonar lífsmáta. Engu að síður er margt sem á við í báðum tilvikum. Algengasta vandamál þeirra sem búa í stúdíó-íbúð eða litlu rými er skortur á meira íými. Gott skipulag og niðurröðun er því nauðsynleg og nýta þarf hvern krók og kima svo hægt sé að láta sér líða sem best þó fermetrarnir séu ekki marg- ir. Að skipta rými Það virðist e.t.v. hjákátlegt að ætla að skipta niður opnu rými og skemma um leið hugmyndina um víddina og léttleikann. Það virðist þó vera manninum eðlislæg þörf að hreiðra um sig í afmörkuðum skotum og einnig að hólfa rými niður fyrir hvert viðfangsefni. Ef um fleiri en einn íbúa er að ræða myndast sterk þörf fyrir að skil- greina sitt eigið, skot, stól eða stað. Þegar allt kemur til alls felst grund- vallarhugmyndin að baki stúdíó- íbúðar eða opnu rými ekki í því að hafa allt „opið upp á gátt“ heldur að auka tilfinningu fyrir vídd innan lítils rýmis, hvort sem um andlegar og/eða líkamlegar þarfir er að ræða; með þeim hætti að sniðganga hefðbundna veggi, hurðir og ganga. I skrifstofum með svokölluðu „opnu plani“ þar sem vinnusvæðun- um er oft skipt niður með skilrúm- um, hillum eða plöntum er dæmi- gert að hver og einn reyni að setja sitt persónulega mark á sinn „bás“ eins og til þess að eigna sér eða afmarka hann. Þetta horfir að sjálf- sögðu örlítið öðruvísi við á heimil- um, en aimennt hneigist maðurinn til þess að eigna sér sitt skot. Sjónræn skil Ódýrasta og jafnvel besta lausnin til þess að aðgreina svæði f stúdíó- íbúð eru svokölluð sjónræn skil. Þau er hægt að mynda með niðurröðun húsgagna, litum, lýsingu, plöntum, ólíkum gólfefnum eða hæðarmis- mun á gólfi svo eitthvað sé nefnt. Við það að snúa baki á sófa að borðstofuborði myndast tvö að- greind rými einskonar stofa og borðstofa. Ef það er eitthvað sem „mæðir augað" innan rýmisins er ágæt lausn að beina athyglinni að ákveðnu uppáhaldssvæði eða hlut innan rýmisins þannig að annað gleymist. Þessi áhrif er auðvelt að kalla fram með lýsingu með því að lýsa upp ákveðnu svæði eða að styrkja þau með öðrum lit, áberandi hlutum eða stórri plöntu. í stúdíó-íbúð er rétt lýsing mjög mikilvæg. Kastarar eru góð lausn því þá er auðveldlega hægt að beina ljósinu á það svæði sem er í notkun eða á að vera mest áberandi hveiju sinni. Ennfremur njdist rökkvi (dimmer) vel því þannig er auðvelt að breyta birtumagninu á skjótan hátt með því að styrkja eða deyfa eftir því sem við á. Hangandi ljós er gott að hafa á brautum þannig að auðvelt sé að flytja þau á milli svæða. Á þann hátt getur sama ljó- sið þjónað fleiri en einum tilgangi. Skilveggir Auk þess sem skilveggir aðgreina mismunandi svæði gefa þeir opnu rými oft meiri sveigjanleika og flæði, gæða það lífi og rýmið verð- ur ekki eins flatneskjulegt. Skil- veggir þurfa alls ekki að vera fastir nema síður sé (t.d. ef um leiguíbúð er að ræða), þeir geta einnig verið á brautum og eru svokallaðir jap- anskir skermveggir afar hentugir fyrir umrædd rými því þá er hægt að opna og loka að vild. Það eru viss rými sem við teljum nauðsynlegt að geta lokað frá öðr- um s.s. saierni og bað. Ennfrejnur er ýmislegt sem fer fram innan eld- hússins sem við viljum siður hafa .í sjónlínu þegar slakað er á. Eld- húsið í stúdíó-íbúð þarf oftast að aðgreina á einhvern máta þó óæski- legt sé að loka því að fullu. Algeng- asta og e.t.v. besta lausnin er að loka þeim með hálf háum vegg eða svonefndu barborði. Ónýtt pláss í þessum eldhúsum, þó lítil séu, er oft auðvelt að nýta pláss á margvíslegan hátt og í þeim er gott að vinna þar sem allt er innan seilingar. Eldhúsið býður upp á þann möguleika að hengja upp koppa og kirnur og aðra plássfreka hluti, auk þess sem það gefur því persónulegan blæ. Þess konar nýt- ing getur sparað margar skúffurnar auk þess sem auðvelt er að nálgast hlutina. Ef um meiri lofthæð er að ræða en venjan er, er mögulegt að nýta umframhæðina fyrir geymslurými eða e.t.v. eitthvað meira áhugavekj- andi eins og svefnloft. Eins er hægt að nýta venjulega lofthæð að fullu með því að eldhús- og fataskápar spanni hana alla. Það er í raun mun meiri vandi að skipuleggja lítið rými án veggja en stórt einbýlishús, ef vel á að vera, því að í litlu rými þarf hver fermetri að vera þaulhugsaður. En hvað allan skipulagsvandann varð- ar, hvort sem um stórt eða smátt er að ræða, þá ertu hálfnuð(aður) að leysa hann ef þér tekst að gera þér grein fyrir honum. eftir Elísabetu Ingvarsdóttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.