Morgunblaðið - 29.10.1989, Page 12

Morgunblaðið - 29.10.1989, Page 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1989 28444 SÍMATÍMI KL. 13-15 OKKUR BRÁÐVANTAR fyrir góðan kaupanda 2ja herb. íb. á Austurströnd, Seltjarnarnesi. 2ja herb. SEILUGRANDI. Ca 60 fm á 1. hæð. Falleg íb. Bflskýli. V. 4,9 m. DALSEL. Skemmtil. 50 fm jarð- hæð. Góð lán áhv. Ákv. sala. V. 3,7 m. GRETTISGATA. Mjög góð 61 fm hæð í eldra húsi. Mögul. að hafa 2 svefnh. Allt sér. V. 4,2 m. 3ja herb. FLYÐRUGRANDI. Falleg og góð 80 fm á 3. hæð. Mjög góð áhv. lán. Sala eða skipti á stærri íb. STÓRAGERÐI. Góð 76 fm á 3. hæð ásamt aukaherb. í kj. Suð- ursvalir. Laus strax. V. 5,5 m. NÖKKVAVOGUR. Falleg 75 fm risíb. í þríb. Steinh. Góð lán áhv. SÓLVALLAGATA. Falleg 70 fm á 2. hæð. Skuldlaus. Stórar svalir. V. 5,0 m. GUNNARSBRAUT. Mjög falleg 80 fm á 1. hæð í fjórb. Æskil. skipti á stærri eign í gamla bænum. V. 5,8 m. BRÆÐRABORGARST. Mjög falleg 90 fm íb. á 1. hæð ásamt aukaherb. í kj. Laus. V. 6,2 m. TJARNARGATA. Mjög falleg 75 fm jarðh. Allt sér. Ákv. sala. DÚFNAHÓLAR. 80 fm á 6. hæð í lyftuhúsi. Laus. V. 4,5 m. FREYJUGATA. Mjög skemmtil. 85 fm risíb. Góð lán. Útsýni. V. 5,2 m. 4ra herb. og stærri GOÐHEIMAR. Stórglæsil. 150 fm 1. sérhæð. 4 svefnherb. og stór stofa. Búr og sérþvottah. frá eldh. Laus mars 1990. SUÐURVANGUR. 125 fm falleg endaíb. á 3. hæð. Laus 1. des. '89. Skuldlaus. V. 6,9 m. JÖRFABAKKI. 110 fm mjög falleg og góð íb. á 3. hæð í húsi sem er í topplagi. Sérþvottah. og auka- herb. V. 5,9 m. ÚTHLÍÐ. Glæsil. 140 fm sérh. ásamt 14 fm auka- herb. í kj. og 27 fm bílsk. Ákv. sala. V. 10,0 m. EIÐISTORG. Sérl. skemmtil. 110 fm íb. á tveimur hæðum. Vel íbhæf. 2 svefnherb. Blóma- skáli. Einkabílast. Bein og ákv. sala eða skipti á 3ja herb. á svipuðum stað. V. 7,0 m. DUNHAGI. Falleg 110 fm á 3.hæð. Suðursvalir. Góð sam- eign. V.: Tilboð. VESTURGATA. 90 fm mikið endurn. og falleg rishæð. Suð- ursv. og sérþvottah. Góð lán. V. 5,5 m. HÁALEITISBRAUT. Glæsil. 120 fm endaíb. á 3. hæð ásamt bílsk. 4 svefnherb. Tvennar svalir. V. 8,5 m. HRAUNBÆR. Glæsil. 120 fm endaíb. á 3. hæð. Bein sala eða skipti á 3ja herb. á 2.-3. hæð í efri Hraunbæ. KAPLASKJÓLSVEGUR. 125 fm falleg endaíb. f lyftuh. ásamt bílgeymslu. Laus fljótl. Tvennar svalir. STÓRAGERÐI. 110 fm góð íb. á 3. hæð ásamt aukaherb. í kj. Bílskréttur. V. 6,2 m. HRAUNBÆR. 110 fm mjög falleg á 1. hæð. Góð sameign. Vestursv. 2,5 m. góð lán áhv. V. 6,0 m. 28444 ÁLFTAMÝRI. Mjög glæsi- leg 115 fm endaíb. á 4. hæð ásamt bílsk. Tvennar sv. Mikið útsýni. Ákv. sala. SÓLEYJARGATA. Sérstakl. góð 165 fm hæð ásamt bílsk. á þessum eftirsótta stað. Mjög fallegur garður. V. 11,8 m. VESTURBERG. 95 fm á efstu hæð. Mjög falleg íb. Útsýni. Mikið áhv. Útborgun 34%. Ákv. sala. V. 5,8 m. HRAUNBÆR. Falleg 110 fm á 2. hæð. Mjög góð íb. Ákv. sala. TJARNARGATA. Mjög góð 120 fm íb. á 2. hæð ásamt auka- herb. V 7,3 m. Raðhús - parhús BAKKASEL. Glæsil. og vel byggt 237 fm raðh. á tveimur hæðum ásamt kj. sem nýta má sem séríb. Bílsk. Frábært útsýni. HEIÐNABERG. Mjög gott 140 fm á tveim hæðum ásamt 25 fm bílsk. V. 9,0 m. TORFUFELL. Mjög fallegt og gott 120 fm endaraðh. með bílsk. og góðum innr. kj. Mögul. skipti á 4ra herb. íb. eða bein sala. BÚLAND. Glæsil. 200 fm endaraðh. á tveimur hæð- um ásamt bflsk. 5 svefnh. Vandaðar innr. Suðursv. Einbýlishús VESTURBRÚN. Sérstakl. fal- legt og gott 250 fm á tveimur hæðum ásamt 35 fm bílsk. Laust nú þegar. NEÐSTABERG. Stórglæsil. 255 fm á tveimur hæðum ásamt bflsk. 4-5 svefn- herb. og 20 fm suðursvalir. FJARÐARÁS. Glæsil. 333 fm á tveimur hæðum ásamt 27 fm bílsk. Tvennar sv. Arinn. Útsýni. MIÐSTRÆTI. Stórglæsil. 270 fm tvær hæðir og kj. Ákv. sala. KÁRSNESBRAUT. Falleg 140 fm hæð og ris ásamt 48 fm bílsk. V. 9,2 m. GARÐABÆR. 450 fm glæsil. hús á tveimur hæðum ásamt tvöf. bílsk. í húsinu eru tvær fallegar íb. GRJOTASEL. 320 fm á tveimur hæðum ásamt 32 fm bílsk. Hent- ar vel sem tvær íb. Ákv. sala. HVERFISGATA 60A. í þessu húsi eru tvær íb. 2ja herb. 60 fm á jarðhæð. Sérinng. V. 3,0 m. og 100 fm hæð og ris. V. 5,3 m. Húsið selst í einu eða tvennu lagi. LINDARGATA. 137 fm. Hæð, ris og séríb. í kj. Mjög góð áhv. lán. Ákv. sala. V. 7,8 m. I byggingu fokh./tilb. u. trév. í URRIÐAKVÍSL er fokh. 250 fm einbhús á tveimur hæðum ásamt bílsk. Teikn. og uppl. á skrifst. DALHÚS 51 OG 55. Tvö 160 fm endaraðh. á tveimur hæðum ásamt bílsk. Teikn. eftir Kjartan Sveinsson. Afh. fullfrág. að ut- an, fokh. að innan. 3JA HERB. íb. við Grandaveg 11. Tilb. u. trév. Annað fullfrág. 3JA HERB. íb. v/háskólann. Tilb. u. trév. Annað fullfrág. 2JA OG 3JA herb. ásamt bílskýli við Skólavörðustíg. Tilb. u. trév. TIL SÖLU eru stæði í bílgeymslu v/Eiðistorg og Boðagranda. OKKUR BRÁÐVANTAR 2ja og 3ja herb. m/góðum áhv. lánum- eða háu brunamati án veðbanda. HÚSEICNIR VELTUSUNDI 1 Q SiMI 28444 wHlr Daníei Ámason, lögg. fast., jEm Heigi Steingrím8son, sölustjóri. II Markvfss hönn- unarráógjöf «g góö þjónusta — eru oldcar uðfangsefni, segir Garðar Hall- dórsson, húsameistari ríldsins EMBÆTTI húsameistara ríkisins á sér talsverða hefð. Það var stofnað 1904 og er því á meðal elztu embætta í íslenzka stjórn- kerfinu. Embættið heyrir undir forsætisráðuneytið og er verk- svið þess tvíþætt. í fyrsta lagi hefur það umsjón með viðhaldi og breytingum á nokkrum mikil- vægum opinberum byggingum, en meðal þeirra eru Bessastaðir, Ráðherrabústaðurinn við Tjarn- argötu, Alþingishúsið, Hæstirétt- ur, Þjóðleikhúsið, safnahús í Reykjavík og húsnæði stjórnar- ráðsins t.d. Arnarhvoll. meistara hannaður eftir Magnús Sígurðsson Hinn þátturinn er að hanna ný- byggingar fyrir opinberar stofnanir og fyrirtæki. Hjá húsa- ríkisins hefur því verið mikill fjöldi opinberra mma bygginga eins og skólar, sjúkrahús, kirkjur, embættjs- bústaðir, stjórnar- skrifstofur og nú nýverið Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Á undanförnum 10 árum hefur verið að því stefnt, að embættið hafi sem mestar eigin tekjur á móti gjöldum. Á árinu 1975 voru tekjur embættisins um 60% af heild- arveltu þess, en á síðasta ári var þetta hlutfalí orðið 102%, sem þýð- ir að hagnaður varð af rekstri emb- ættisins. Til þess að ná þessu mark- miði, hefur svonefndum “þjónustu- verkefnum" embættisins fækkað, það er verkefnum, sem ekki er tek- ið gjald fyrir. Verkefni, sem enn er nokkur þjónusta fyrir án gjald- töku samkvæmt gömlu samkomu- lagi, er t.d. hönnunarþjónusta vegna Hallgrímskirkju. Fyrir önnur verkefni er gerður reikningur sam- kvæmt gjaldskrá Arkitektafélags íslands. — Opinberir aðilar eru alls ekki skyldugir til að leita til okkar með hönnun nýbygginga, segir Garðar Halldórsson, húsameistari ríkisins, í viðtali við Morgunblaðið. — Þeir geta ýmist snúið sér hingað eða til annarra arkitekta. í reynd erum við að vinna hliðstæða vinnu og unnin er á almennum arkitektastofum og nú fáum við ekkert fé á fjárlögum. Það er mikil breyting frá því, sem eitt sinn var. Þegar þetta embætti var stofnað, var þjónustan, sem hér er veitt, alveg ókeypis fyrir þá, sem leituðu hennar, en það voru opin- berar stofnanir. Nú gerum við reikning fyrir öllu, sem við vinnum líkt og sjálfstætt starfandi stofur og þær tekjur, sem við öflum, standa undir rekstrinum auk þess sem hann skiiar nokkrum hagnaði á hverju ári, sem rennur þá í ríkis- sjóð. I fyrra voru rekstrarútgjöld um 50 millj. kr og lang stærstur hluti þeirra var launakostnaður. Garðar telur þessa þróun mjög mikilvæga og segir: — Hún eflir kostnaðarvitund starfsmanna okkar og fær verkkaupann til að hug- leiða, að ráðgjafarþjónusta kostar peninga. Þjónustan þarf því að vera markviss. Því miður halda sumir stjórnmálamenn enn, að fela megi slíkan kostnað með því að fastráða starfsmenn innan stofnana eða ráðuneyta í stað þess að kaupa þjón- ustuna að á réttmætu verði frá Garðar Halldórsson sjálfstæðum ráðgjöfum eins og embætti húsameistara. Garðar er fæddur 1942 í Reykjavík. Hann gekk í Mennta- skólann í Reykjavík og að afloknu stúdentsprófi hélt hann til Aachen í Vestur-Þýzkalandi, þar sem hann lagði stund á arkitektúr. Heim kom Garðar vorið 1968 og byijaði þá að starfa hjá embætti húsameistara ríkisins. Hann var svo skipaður húsameistari ríkisins í ársbyijun 1979 og hefur gegnt því embætti síðan. — Hér hjá embættinu vinna nú 25 manns’ og hefur sá fy'öldi verið svipaður síðustu 10 árin, segir Garðar. — Þrír vinna við skrifstofu- störf og að jafnaði þrír við gerð kostnaðaráætlana og byggingaeft- irlit. Þriðji hópurinn og sá fjölmenn- asti eru þeir, sem vinna við hönnun- arstörf. í honum eru tæplega 20 manns, arkitektar, innanhúsarki- tektar, byggingafræðingar og tæknifræðingar og vinna þeir að mjög fjölbreyttum hönnunarstörL um bæði við gömul hús og ný. í reynd má því segja, að við rekum stærstu arkitektastofu á íslandi með þessum hópi manna og það mjög fjölbreytta stofu, vegna þess að við höfum hér þjálfað fólk úr ýmsum starfsgreinum saman í hóp- vinnu. Á árinu 1986 hófst undirbúning- ur að tölvuvæddri hönnun við emb- ættið. Fyrst var fenginn Autocad hugbúnaður, sem enn er notaður en árið eftir var samt ákveðið að kaupa brezkan hugbúnað (GDS) en vélbúnað af gerðinni Microwax GPX/II. Með þessum búnaði má m.a. teikna hús í þrívídd og í litum. — Frá því um mitt ár í fyrra höfum við unnið mikið við þetta kerfi og virðist árangurinn lofa góðu, segir Garðar. — Við höfum til dæmis notað það við hönnun á Bessastöð- um og á Þjóðleikhúsinu. Samkeppni við aðrar arkitektastofur — Margir halda að við hér séum með einhveija heildarstjórn á húsa- kosti fyrir ríkið, heldur Garðar áfram. — Svo er ekki. Þetta er fyrst og fremst arkitektastofa, sem vinn- ur fyrir hina ýmsu húsbyggjendur hins opinbera. Þar má segja, að við séurn í samkeppni við aðrar arki- tektastofur á landinu og m.a. þess vegna hefur verið talið eðlilegt, að sérhver verkkaupi borgi fyrir vinnu okkar. Þá erum við ekki í óheiðar- legri samkeppni við aðrar arkitekta- stofur, enda geta stjórnvöld leitað til þeirra, ef þáð þykir henta. Mark- mið okkar er að veita jafngóða og helzt betri þjónustu en aðrar stofur og styrkur okkar felst einkum í þeim fjölbreytta mannskap, sem við höfum. Við höfum líka lagt mikið kapp á að auka fagleg gæði þess, sem frá okkur fer. Mikilvægur er einnig sá þáttur, sem lýtur að varð- veizlu frumgagna af þeim opinberu byggingum, sem hér hefur verið unnið við á umliðnum árum og varð- veizla þeirrar þekkingar, sem hér hefur safnazt upp. Eitt helzta hlutverk embættis húsameistara er að gera tillögur um viðhald og endurbætur á opin- berum byggingum. — Þær fram- kvæmdir eru almennt bundnar ákvörðunum um fjármagn, sem til þessara viðgerða þarf. Þessar ákvarðanir t.d. um forgangsröð verkefnanna liggja því hjá fjárveit- ingavaldinu en ekki hjá okkur, seg- ir Garðar. — Eg hef samt hugboð um, að það er sé nokkuð útbreiddur misskilningur, að það séum við hér hjá embætti húsameistara ríkisins, sem tökum þessar ákvarðanir. Gangurinn er sá, að umráðaaðili viðkomandi byggingar snýr sér til okkar. Síðan gerum við úttekt á húsinu og komum með tillögur um úrbætur ásamt kostnaðaráætlun. Þessar tillögur eru svo lagðar fram af viðkomandi stofnun það er um- ráðaaðila byggingarinnar — en ekki af okkur — þegar hún gerir sínar tillögur til fjárveitinganefndar um íjárframlög. Oft fást svo engir pen- ingar til framkvæmdanna. Þannig vorum við búnir að gera ár eftir ár ýmsar tillögur um endurbætur á Þjóðleikhúsinu, áður en stjórnvöld áttaðu sig loks á því, að þar þurfti að leggja fram verulega fjármuni. Garðar telur þörfina fyrir viðhald á opinberum byggingum mjög mikla og brýna. Viðhorfið er líka að brejdast. Lengi fram, eftir þess- ari öld hafi það verið almenn skoð- un, að steinsteypt hús væru svo miklu varanlegri en þau, sem byggð höfðu verið hér áður, að verið væri að byggja til langrar framtíðar. — Stjórnmálamenn sem og allur al- menningur gerðu sér ekki grein fyrii’ því að sama skapi og nú, að steinhúsin þurfa viðhald nánast frá því að þau eru tekin í notkun og

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.