Morgunblaðið - 12.11.1989, Side 8

Morgunblaðið - 12.11.1989, Side 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ MANNLÍFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 12. NOVEMBER 1989 STORKOSTLEG YERKSMIÐJUÚTSALA að Iðavöllum I4b Keflavík. rxb^öbtvx-b°%00' ***** s« Y*> .o,öj^ QqO* AxO?? e«>a Opið frá kl. 10 - 18 alla daga til 19. nóv. Flug-Hótel, Hafnargötu 57, Keflavík verður með kaffihlaðborð laugardag og sunnudag. Einstakt tækifæri til að kaupa ódýrar jólagjafir f/rir fjölskyldu og vini, heima og erléndis. A Allir viðskiptavinir útsölunnar fá afsláttarmiða ^ að glæsilegu kaffihlaðborði Flug-Hótels sem opið verður laugardag og sunnudag. Jw Best er að aka fram hjá gamla afleggjaranum til f Keflavíkur í áttina að Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar til skilti vísar inn í Keflavík. VERIÐ VELKOMIN. ÍSLENSKUR MARKAÐUR Iðavöllum I4b, Keflavík. Sími 92-12790. Austur-Evrópa — Svona sér breska vikuritið The Economist þróun- ina í Austur-Evrópu. HAGFRÆÐI/Erfélagshyggjan orbin feimnismál? Öfugmæli í efnahagsmálum FYRIR RÉTTU ári kynnti forsætisráðherra stefnu nýrrar ríkis- stjórnar með þeim orðum, að horfið yrði frá hefðbundnum vest- rænum leiðum í efiiahagsmálum. Þessi ummæli forsætisráðherra fólu í sér glögga lýsingu á því sem á eftir fylgdi. Allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa borið merki hinnar boðuðu stefhu. I um- ræðu á alþingi um stefhuræðu forsætisráðherra á dögunum gerð- ist það að fjármálaráðherra hélt því fram, að ríkissfjórnin ástund- aði vestræna háttu í efhahagsmálum af meiri ákafa en nokkur önnur ríkisstjórn, þvert á yfirlýsingu forsætisráðherra fyrir ári. Sérstaka athygli vakti, að forsætisráðherra þagði um efhahags- stefhuna í stefiiuræðu sinni, sem tók þó hálfa klukkustund í flutn- ingi. Hvor Iýsir efhahagsstefnunni betur, forsætisráðherra fyrir ári eða fjármálaráðherra nú? eftir Ólof ísleifsson Hin nýja atvinnustefna sem tekin var upp með kúvending- unni í efnahagsmálum fyrir ári er flestum kunn. Teknar voru upp millifærslur til einstakra atvinnu- greina, sem fjár- magnaðar voru með erlendum lántökum. Boðuð var aukin mið- ■ stýring í efna- hagslífinu, m.a. í verðmyndun og vaxtaþróun. Fyr- irtækjum var gert að leita ásjár í sjóðakerfi í stað þess að starfa á grundvelli eðlilegra rekstrarskilyrða. Þrengt var að einstaklingum og fyrirtækj- um með skattahækkunum, og boð- að hefur verið áframhald þeirrar stefnu. Allt er þetta skiljanlegt í ljósi yfirlýsingarinnar um að horfið yrði frá vestrænum leiðum í efna- hagsmálum. Nú hefur verið lýst yfir því, að starfsemi svokallaðs atvinnutryggingarsjóðs útflutn- ingsgreina og hlutafjársjóðs verði hætt innan skamms. Sú ákvörðun er þó ekki efnahagsleg heldur pólitísk, og kemur í framhaldi af því, að ekki er talin jafn brýn nauð- syn og áður að kaupa stuðning aldursforseta þingsins við ríkis- stjórnina. Yfirlýsingin um að vestrænir hættir hentuðu ekki hér á landi varpar jafnframt ljósi á hina óskilj- anlegu harðneskju sem ríkisstjórn- in hefur sýnt ekkjum og öðrum einstaklingum. Þessu fólki er ekki ætlað að njóta fjárhagslegs sjálf- stæðis heldur má það súpa úr hóf- fari félagshyggjunnar. Er ekki að efa að ekknaskatturinn svonefndi er meðal þeirra verka, sem boð- berar þessarar stjórnarstefnu eru hvað hreyknastir af. Afleiðingar kúvendingarinnar haustið 1988 blasa við. Enda þótt gengi krónúnnar hafi verið fellt um ríflega 20% í ár meðan kaup verkafólks hefur hækkað um ná- lægt 10% er hraðfrystiiðnaðurinn rekinn með halla, ef millifærslu- peningar eru frádregnir. Þrátt fyr- ir 7 milljarða króna skattahækkun í fyrra gín við ríkishalli upp á 5 miíljarða króna í ár. Skuldir þjóðar- innar í útlöndum eru taldar aukast um 12% í erlendri mynt á árinu 1989. Verðbólga og atvinnuleysi fara vaxandi. Allt þetta veit fjármálaráðherra. Kúvendingin hefur engum árangri skilað og er hjárænuleg í ljósi at- burða samtímans í Austur-Evrópu þar sem stjórnvöld eru á harða- hlaupum frá félagshyggjunni og fólkið flýr martröðina í tugþús- undatali. Ráðherrann virðist því hafa afráðið að senda jafnréttið og félagshyggjuna á sextugt dýpi og kynna sjálfan sig sem sverð og skjöld vestrænna stjórnarhátta á íslandi. Gamansemi ráðherrans er við brugðið, og hann hefur látið hafa eftir sér, að ráðherrarnir hefðu áþekka kímnigáfu og að „mjög góðir brandarar" væru sagðir á ríkisstjórnarfundum. Er líka farið með öfugmælavísur? Því hvar sér verka hans stað í þessu efni? Efnahagsstefnan sem almennt er fylgt á Vesturlöndum byggist á markaðsbúskap og fijálsræði. Framtak einstaklinga og sam- keppni knýja efnahagslífið áfram og skila almenningi síbatnandi lífskjörum. Einstakiingar og fyrir- tæki starfa á grundvelli almennra skilyrða og leikreglna, jafnir fyrir lögunum og fyrir stjórnvöldum. Með leyfi, hvað hefur flármálaráð- herra lagt af mörkurn til að treysta þessa stefnu í sessi á íslandi? Gerði hann það með handstýringu á vöxtum og verðlagi? Með því að þrengja svigrúm einkaaðila með skattahækkunum? Með sérstökum fyrirvara af íslands hálfu við sam- eiginlega stefnu Norðurlandanna um að tengjast sameinuðum Evr- ópumarkaði? Vafalaust telur hann allt þetta meðal helstu verka sinna. Hefur hann beitt sér fyrir aðgerð- um til að treysta eiginfjárstöðu íslenskra atvinnufyrirtækja í harðnandi erlendri samkeppni? Hafa hótanir hans í garð sparifjár- eigenda verið fallnar til þess að auka innlendan sparnað og draga úr erlendum skuldum þjóðarinnar? Orð forsætisráðherra fyrir ári um að ríkisstjórn hans myndi hverfa frá hefðbundnum vestræn- um leiðum í efnahagsmálum gengu eftir. Hvað sem líður öfugmæla- kveðskap íjármálaráðherra situr á íslandi ríkisstjórn sem hefur sýnt með orðum sínum og verkum, að hún telur engan vanda svo snúinn, áð úr honum megi ekki bæta með aukinni miðstýringu og harðari höftum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.