Morgunblaðið - 12.11.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.11.1989, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR m ' SUNNUDAGUR 12. •' (i' > i I' NOVEMBER 1989 Aldarminning; Guðni Magnús- son frá Hólmum Um þessar mundir eru liðin 100 ár frá fæðingu Guðna Magnússon- ar, sem Iengst af bjó að Hólmum í Austur-Landeyjum, ásamt konu sinni Rósu Andrésdóttur, sem fædd- ist í Hemlu. V-Landeyjum, 19. mars 1890. Guðni Magnússon fæddist 12. nóvember 1889 að Hrauk í Vestur- Landeyjum, sonur hjónanna Magn- úsar Guðmundssonar og Bjarghild- ar Guðnadóttur. Guðni missti föður sinn er hann var á öðru ári og stóð þá Bjarghildur uppi án fyrirvinnu með þrjú börn er öll voru ung. Guðmundur elstur, 11 ára gamall, og Guðbjörg sennilega 6 ára. í þá daga var ekki leikur fyrir fátæka móður að komast af, enda varð Bjarghildur að láta eldri börnin tvö frá sér. En Guðna litla gat hún ekki skilið við sig þótt erfitt væri að komast í vinnumennsku með kornabarn. Bjarghildur átti oft erf- iða daga og næturnar til hvíldar voru stuttar því vinnunni voru eng- in takmörk sett í þá daga. Vinnu- konur og munaðarlaus börn voru ekki hátt skrifað fólk. Það mátti þykja gott ef það fékk í sig og á, en það var oft af skornum skammti. Seinni uppvaxtarár Guðna var hann og móðir hans að Strandar- höfða í V-Landeyjum og leið þeim þar nokkuð vel miðað við aðstæður þess tíma. 14. apríl 1913 keypti Guðni sér lausamannsbréf, sem þýddi að hann hafði rétt til að leita sér sjálfstæðr- ar atvinnu. Eftir það stundaði hann plægingar með eigin hestum í Land- eyjum og á Rangárvöllum í allmörg ár. Guðni var ágætur hestamaður, enda átti hann lengst af góða hesta, sem honum þótti mjög vænt um. A yngri árum stundaði hann nokkuð tamningar og gerði margan baldinn fola að brúkunarhæfum hesti. Guðni var laginn við að gangsetja hesta. Hann lagði mikið upp úr hreÍMU tölti, en var minna fyrir skeiðið, enda hafði hann þann hátt á að fá folana til að tölta upp af fetinu. Og síðan að smáauka hrað- HLA.ÐBA.KUR BILL FRA HEKLU BORGAR SIG HjIHFKI /V UE VERÐ FRÁ KR I .268.000 Laugavegi 170-174 Simi 695500 I#SS§!® ^ j Teg.: 1651 M Efni: Leður Litir: Svart, brúnt Stærðir: 36-41 Verð: 5.980,- Teg.: 1724B Efni: Leður Litur: Brúnn Stærðir: 36-41 Verð: 6.390.- Sendum í Póstkröfu Kringlunni 8-12 sími686062 ikti m o wse nf É, a i »en im 9 1 an

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.