Morgunblaðið - 12.11.1989, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 12.11.1989, Qupperneq 12
12 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1989 EimiVAD AF SJÁIflM ✓ ✓ >ii;r i HviRini iilm „Það er eitt sem oss bindur að elska vort land.“ Trafakeflið sem Halldór skar út fyrir Öræfinga, sem þeir síðan færðu forseta íslands að gjöf. í forgrunni er trafakeflið forna, frá árinu 1710, sem Halldór fékk að láni írá Þjóðminjasafiiinu og notaði sem fyrirmynd að verkinu. Viðtal og myndir: Agnes Bragadóttir MAÐURINN er löngn þjóðkunnur fyrir listræna hæfileika sína. Hann er þó hógværðin uppmáluð, en aldrei er djúpt á glettninni. Raunar er glettnisglampinn hlýi í augum hans það stöðugur að manni býður í grun að hann dofni ekki einu sinni á meðan hann sefúr. Hann er líka fæddur og uppalinn á Bæjum á Snæfjallaströnd, en írá ísafjarðardjúpi þykja margir húmoristar hafa komið í gegnum tíðina. Halldór Sigurðsson, að Miðhúsum í Egilsstaðahreppi er svo hagur með útskurðarhnífinn að leitað er til hans víða af landinu og hann beðinn um skera út í tré allra handa listmuni. Halldór vinnur við þessa list ásamt syni sínum Hlyni og reka þeir saman fyrirtækið Eik sf. Þegar ég hitti Halldór að máli austur á Miðhúsum og falaðist eftir viðtali við kappann, brosti hann Iítillega og spurði: „Hverju ætti ég svo sem að segja frá?“ Sneri sér því næst á nýjan leik að gripnum sem hann var með í útskurði. Það reyndist vera hvorki meira né minna en trafakefli það sem Öræfingar gáfú Vigdísi forseta er hún sótti þá heim nú á dögunum. Halldór segist sem unglingur ávallt hafa ætl- að sér að verða bóndi. Hann hafi einatt haft gaman af smíð- um, en búskapur hafi þó fyrst og fremst höfðað til hans. Hann hafi því farið í bændaskóla, sem ungur maður og það nám hafi vissulega reynst honum góður undirbúningur fyrir lífið. — Halldór, hvernig bar það til að þú fórst að skera á þennan lista- fallega hátt út tré? „Það var nú ekki fyrr en eftir Ég byijað ekkert að skera út fyrr, en ég hef alltaf verið hneigður fyr- ir að tálga, allt frá því að ég var krakki. Eg fór í Handíðaskólanum sem útskrifaði þá handavinnukepn- ara. Þar var auðvitað allt mögulegt smíðað, en ekkert skorið út. Eg fékk svo vinnu hjá þýskum manni í Reykjavík sem var með mynd- skurðarstofu. Þetta gerði ég til þess að vinna mér inn vasapeninga, en þar kynntist ég því að fara með járn, auk þess sem ég varð opinn og móttækilegur fyrir mismunandi formum. Ég tel mig hafa haft mjög gott af þessu. Ari seinna gerðist ég svo smíðakennari hér austur að Eiðum og þá fór ég strax að reyna að afla mér einhverra smávægilegra tækja, svona mest til þess að þjóna lundinni. Handíða- skólinn var þá undir stjórn Lúðvíks Guð- mundssonar, þess merka manns, sem á sínum tíma stofn- aði skólann. Eftir stríðið tók hann að sér það hlutverk að útvega skólum efni og tæki. Hann út- vegaði m.a. tré- skurðarjárn og dúkristujárn, sem skólamir þurftu á að halda. Þannig eignuðumst við á Eiðum eitt sett af útskurðaijárnum. Það var nú kveikjan að því að ég fór að reyna sjálfur að skera út. Gerði eftirlíkingu af gömlu VaJþjófestaðakirkjuhurðinni Þórarinn á Eiðum var Fljóts- dælingur og unni náttúrlega kirkj- unni sinni, enda var hann guð- fræðingur. Á Fljótsdal voru þeir að byggja nýja kirkju og Þórarni datt í hug að sameina gamla Fljóts- dælinga um að gefa hurð fyrir nýju kirkjuna, sem hann vildi að væri eftirlíking af gömlu Valþjófsstaða- hurðinni, sem er á Þjóðminjasafninu fyrir sunnan. Af því að ég var að pota þetta með útskurðaijárn fyrir augunum á Þórarni, í skólanum á Eiðum, þá datt honum í hug að ég myndi kannski geta gert þetta. Ég neita því ekki að mig langaði svolít- ið að reyna mig, en hugsaði með mér, ég get alltaf sett Þórarni skil- yrði, sem hann getur ekki uppfyllt, og það gerði ég,“ segir Halldór og við þessa upprifjun magnast stríðn- isglampinn í augum hans. Halldór heldur áfram: „Ég setti þau skilyrði að tæki ég þetta að mér, þá yrði hann að útvega mér afsteypur af hurðinni til þess að vinna eftir. Ég bjóst aldrei við því að hann gæti útvegað neinar af- steypur, en þær voru ekki margar vikurnar sem liðu, áður en Þórarinn hafði útvegað afsteypurnar og þá varð ég auðvitað að standa við minn hluta samkomulagsins. Það dróst svo í 10 ár eða meira, að hurðin yrði tilbúin, því þeir voru svo lengi að byggja kirkjuna. Þetta verkefni mitt varð til þess að kveikja enn meiri áhuga hjá mér á útskurði og ég fór að reyna fleira og smátt og smátt fékk ég meira traust á sjálfum mér og aukna getu.“ Útskurðurinn aldrei aðalstarf — Hefur útskurðurinn verið að- alstarf þitt um langt skeið? Nú hristir Halldór höfuðið og segir: „Ég hef aidrei haft þetta sem aðalstarf og mun aldrei hafa. Menn að ég kom í Eiða, laust eftir 1950. LT8KLRDARME18TARIAA HALLDÓR 81GLRD880A ÁMIDHÍ8IM 8EG1R FRÁ LISTIWI AD8KERALTÍTRÉ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.