Morgunblaðið - 16.11.1989, Qupperneq 5
'talck fyrir'
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989
C 5
GoldStar
helmilis-
símsvarinn
Það er þetta með að létta sér lífið og nýta
frítímann vel. Hver kannast ekki við að eiga von á
áríðandi símtali og neyðast til að hanga heima í
biðstöðu. Óþolandi. Fá svo kannski símhringingu frá
gömlum vini sem hefur réttu hugmyndina
um hvernig hægt sé að verja kvöld-
inu, eða helginni og verða að hafna
boðinu vegna þess að maður á von á
símhringingu! Ha.
Svarti síminn náði feykilegri
útbreiðslu hérlendis í gamla daga
eins og allir vita. Hversu margir skyldu hafa lent í því
að vera nýlagstir ofan í heitt og
notalegt bað þegar sá svarti lét f
sér heyra? Vafalaust margir.
Þetta hvimleiða vandamál er úr
sögunni:
Komið er á markaðinn
afburða nett tæki, GoldStar
heimilissímsvarinn. Símsvari og
nútímalegur sími í einu tæki.
Allt þetta nýja. Minni,
fjarstýring, hátalari o.s.frv.,
o.s.frv. en fyrst og fremst alveg
er loksins
fáanlegur á
Islandi
- tœknibylting á heimilinu -
Gripurinn fæst á ótrúlega góðu verði eða kr. 14.800.-
stgr. Svo er boðið uppá kjör sem allir eiga að ráða við, þ.e.
greiðslukortasamninga til allt að 6 mánaða.
Nákvæmar leiðbeiningar á íslensku fylgja, fullkomin
viðhaldsþjónusta og ársábyrgð.
Verið velkomin.
hreint frábær gripur sem léttir
lífið. Eigi maður von á símtali en verði einhverra
hluta vegna að bregða sér frá er
einfaldlega hægt að hringja í
heimilissímsvarann, stimpla inn
lykiltöluna og hlusta á þau skil-
aboð sem á bandinu kunna að
vera. Ekkert mál.
A
• TRÖNUHRAUNI 8 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 91-652501 •