Morgunblaðið - 18.11.1989, Qupperneq 8
8 B
eseí aaa /:r/on .at tfiíí)A(iHADuA3xöiaAjaWuDáOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. NOVEMBER 1989
listgreina samhliða námi í deild.
Ég valdi textfldeildina, sem mér
fannst bjóða upp á óteljandi
möguleika. Þeir sem stefna á
masters-nám taka auka ár í
„studio" vinnu, en þá er unnið
með ákveðin þemu sem nemand-
inn skilar með sýningu.“
Birna valdi að halda áfram í
textíl í master-náminu og að-
spurð hvers vegna segir hún:
„Það var heilmikið að gerast í
textíllist á þessum árum. Ég
kunni vel að meta þann kraft
sem streymdi frá mörgum textíl-
listamönnum. Greinin var af-
skaplega fijó og mikil endur-
nýjun átti ser stað. Breytingarn-
ar hafa hægt á sér í dag, verk
fremstu textíllistamanna eru
ekki eins byltingakennd og fyrir
tíu árum.
Textíldeildin hlekkjaði mig
ekki niður heldur vann ég í sam-
ráði við ráðgjafa að persónulegri
stefnu, blandaðri tækni til að
BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
SÝNIR
í ÁSMUNDARSAL
táknað öryggi og skjól, eða eitt-
hvað sem heftir hana og þrengir
að henni. Stólpinn er þó jafn-
framt háður frekara umhverfi.
Umhverfíð er því ekki landslag
í klassískri meiningu, heldur
frekar landslag hugans.
Birna er búin að vera í tæp
sjö ár í Bandaríkjunum. Fyrstu
fjögur árin við háskólann í Iowa
og síðan í Kaliforníu, þar sem
hún útskrifaðist með MFA-
gráðu frá California College of
Arts and
Crafts.„Ég var mjög ánægð með
námsfyrirkomulagið í Banda-
ríkjunum," sagði Birna þegar ég
bað hana að segja nánar frá
náminu. „Ég lauk BFA-gráðu
frá háskólanum í Iowa, en þar
er. lögð áhersla á fjölbreytt val
geta unnið saman að textíl og
málun. Samvinna við kennara
var mikil bæði í skólanum og á
vinnustofu. Umræðan um verk
nemenda, kennara og annarra
starfandi listamanna varð að
óþijótandi uppsprettu til list-
sköpunar og er það enn.“
MEO
UPPSPRETTA
LISTSKÖPUN AR
Birna Kristjánsdóttir mynd-
listakona heldur nú sína
þriðju einkasýningu, sem opn-
uð var í Asmundarsal í gær,
föstudag.
Birna hélt eina sýningu
hér heima á meðan
hún var enn í námi.
Hafa myndimar þínar
tekið miklum breyt-
ingum frá síðustu sýningu hér
á landi, Birna?
„Myndirnar sem ég sýndi í
FÍM fyrir nímum tveimur árum
voru í augljósum tengslum við
textíllist. Ég dýfði efninu i litinn
og var þannig í beinni snertingu
við efnið. En síðan þá hef ég
unnið meira með pensli og áferð-
in hefur breyst. Ég hef leitast
við að komá tilfinningalegum
átökum betur til skila. Yfirborð
myndanna á þessari sýningu er
því hrárra en um leið skarpara.“
En hvaða hugsun iiggur að
baki myndanna?
„ Myndirnar á þessari sýn-
ingu eru þróun frá fyrri sýn-
ingu. Þá var ég líka með þessa
stólpa, en núna líkjast þeir meira
mannverum. Eða mannveru sem
er föst í stólpanum.
Ég er að velta fyrir mér mann-
eskjunni og umhverfi hennar.
Stólpinn er þá það umhverfi sem
manneskjan býr í og getur bæði
Endur-
minningar
Björns Th.
Björnssonar
^IÁL og menning hefur sent frá
sér bókina Sandgreifarnir eftir
Björn Th. Björnsson. í kynningu
útgefanda segir m.a.:
„Bókin hefur að geyma endur-
minningar höfundar frá því að hann
var að álast upp í Vestmannaeyjum
á árunum milli stríða. Hann lýsir
samfélagi strákanna í Eyjum og
margvíslegum uppátækjum þeirra,
auk þess sem ágengni hins stóra
heims kemur við sögu: Kreppa,
stríðsógn, stjórnmálaeijur og þjóð-
félagsumbrot. Síðast en ekki síst
geymir bókin lýsingar á fjölskyldu
„Bidda Björns“ eins og hann er
nefndur í sögunni.
• Mörgum mun eflaust þykja sem
hér kveði við nýjan tón hjá höfund-
inum sem þekktur er af margvísleg-
Sigfús Bjartmarsson
SONNETTUR
SHAKESPEARES
Björn Th. Björnsson
um bókum um listfræðileg efni og
sögulegum skáldsögum.
Bókin er 180 blaðsíður og er
prýdd fjölda mynda, bæði af fjöl-
skyldu höfundar og einnig af mál-
verkum föður hans, Baldvins
Bjömssonar. Hilmar Þ. Helgason
gerði kápu og Prentstofa G. Ben.
annaðist prentun, en bókband var
unnið í Arnarfelli.“
LJÓÐSKÁLDIÐ Sigfús Bjart-
marsson hefur nú sent frá sér
nýja bók, er nefnist Án fjaðra.
Útgefandi þessarar þriðju ljóða-
bókar Sigfúsar er Mál og menn-
ing.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Sigfús Bjartmarsson er einn þeifa
höfunda sem sækir sér föng víða í
bókmenntum, heimsins en stendur
þó föstum fótum í íslenskri hefð,
enda ættaður frá Sandi í Aðaldal.
Hin nýja bók hans er í sjö hlutum,
sem ýmist geyma stutt ljóð eða
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs
hefur gefið út Sonnettur Williams
Sliakespeares í þýðingu Daníels
A. Daníelssonar, læknis á Dalvík.
Hann ritar einnig formála og eftir-
mála, þar sem fjallað er um tilefni
Sonnettanna og sögu þessarar
skáldskapargreinar.
Sonnetturnar eru 154 talsins og
skiptast í tvo bálka: Lofkvæðin Lá-
varðarljóð og mansöngvana Hrafn-
hödduljóð. Útgefandi kynnir bókina,
höfund og þýðanda svofelldum orð-
um á kápu: William Shakespeare
(1564-1616) kallast jöfurinn í hópi
leikritaskálda veraldar, en sagt hefur
verið um Sonnettur hans, að þær
éinar hefðu nægt „svaninum frá
Avon“ til heimsfrægðar. Margir
bragsnillingar hafa þýtt leikrit hans
og kvæði á íslenska tungu. Nú bæt-
ast Sonnetturnar í heild sinni við það
ríkulega safn. Þær orti Shakespeare
á árunum 1592-1595.
Daníel Á. Daníelsson, læknir á
Dalvík (f. 1902), hefur unnið að þýð-
lengri Ijóðabálka, og nefnast þeir
stærstu „Stefnumót" og „Cro-
Magnon mennirnir koma“. En þótt
hér séu langir ljóðaflokkar er form
Sigfúsar enn meitlaðra en fyrr,
hann kýs heldur að vekja ímyndun-
arafl iesandans með fáum orðum
en útlista hlutina um of.“
Án fjaðra er 102 bls. að stærð,
og gefin út samtímis innbundin og
í kilju. Steinholt hf. prentaði, en
Félagsbókbandið-Bókfell sá um
Bókband. Kápu gerði Ragna Sig-
urðardóttir.
ingu Sonnettanna og rannsókn á
þeim og baksviði þeirra langt ára-
skeið, en lætur þær nú frá sér fara
í hinum íslenska búningi sínum með
ítarlegri greinargerð um tilefni þeirra
og sögu. Mun þýðing hans þykja
bókmenntaviðburður. Þar eru snjöll
en blæbrigðarík ljóð túlkuð á foman
hátt og nýstárlegan í senn.
Sígild listaverk eftir meistara eins
og William Shakespeare auðga íslen-
skar bókmenntir og ljúka upp dulúð-
ugum undraheimi. I Sonnettunum
biitist Shakespeare í öðru ljósi en í
leikritum sínum. Lesandinn kynnist
þar manninum sjálfum, lífsbaráttu
hans og skaplyndi, hi-yggð og af-
brýði, gleði og munúð, sem hann
lýsir opinskátt í þessum einstæða
ljóðaflokki.
Sonnettur Shakespeares eru 281
bls. að stærð og bókin prýdd nokkr-
um myndum, þar á meðal teikningu
af höfundi eftir þýðandann. Hún er
unnin í Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
Kápu gerði Margrét E. Laxness.
Daníel Á. Daníelsson
Ingibjörg Haraldsdóttir
Ljóð eftir
Illg-ÍbjÖl,gTl
Haralds-
dóttur
MAL OG menning hefúr sent frá
sér ljóðabók Ingibjargar Har-
aldsdóttur, Nú eru aðrir tímar.
Þetta er þriðja ljóðabók höfund-
ar.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Ljóð Ingibjargar eru einföld og
knöpp, þar má sjá söknuð og trega
og jafnframt margræðari tilfinning-
ar. Samkennd tekst á við einsemd,
sátt við þrár, friðsæld við gný borg-
arinnar, fortíð við nútíma. Yrkisefni
sækir hún bæði í reykvískan veru-
leika og þau lönd þar sem hún hef-
ur verið langdvölum, Sovétríkin og
Kúbu.“
Nú eru aðrir tímar er þriðja Ijóða-
bók Ingibjargar Haraldsdóttur.
Ingibjörg Eyþórsdóttir gerði kápu
en Steinholt hf. prentaði. Bókin er
48 blaðsíður.
Ljóðabók eftir Sigfus
Bjartmarsson