Morgunblaðið - 02.12.1989, Page 4

Morgunblaðið - 02.12.1989, Page 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1989 * Ljóðabók eftir Arna Grétar Finnsson Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnar- firði, hefur gefið út ljóðabókina Skiptir það máli? eftir Arna Grét- ar Finnsson. Skiptir það máli? er önnur ljóða- bókin, sem Árni Grétar Finnsson sendir frá sér. Árið 1982 kom út bók hans Leikur að orðum. í þeirri bók birtust bæði frumort ljóð og þýdd, en í þessari nýju bók Árna Grétars eru eingöngu frumort ijóð. Ljóðin eru í senn margbreytileg að efni og fram- setningu, en víða má greina ákveðinn tón, sem sérkennir höfundinn, segir í fréttatilkynningu Skuggsjár. Eirík- ur Smith myndskreytti bókina. Skiptir það máli? er 104 bls. að stærð. Bókin var sett og prentuð í Prisma, Hafnarfirði, og bundin í Bók eftir Björgúlf Ólafsson ÚT ER komin bókin Hversdags- skór og skýjaborgir eftir Björg- úlf Ólafsson. Í kynningu útgefanda segir m.a.: „Þetta er bráðskemmtileg og fyndin saga um unglingsárin og lýsir hún daglegu lífi unglinga, væntingum þeirra, sorgum og gleði á hlýlegan og sannfærandi hátt.“ Björgúlfur hefur áður birt smá- sögur en þetta er hans fyrsta skáld- saga. Hversdagsskór og skýjaborgir er 206 blaðsíður og er hún gefin út innbundin. Þórhallur Þráinsson teiknaði kápu, prentsmiðjan Viðey prentaði. Prentþjónustan Metri gef- ur bókina út í samráði við höfund. Árni Grétar Finnsson Félagsbókbandinu-Bókfelli. hannaði og prentaði Prisma. Kápu Smasagnasafti eft- ir Sveinbjörn I. Baldvinsson Út er komið hjá Almenna bókafélaginu smásagnasalh eft- ir Sveinbjörn I. Baldvinsson en þetta er fyrsta lausamálsbók Sveinbjörns sem hlaut eins og kunnugt er fyrstu verðlaun í smásagnakeppni Listahátíðar árið 1986. í kynningu útgefanda segir m.a.: „I þessari bók eru fimm sög- ur. Stórir brúnir vængir, titilsaga bókarinnar, fjallar um miðaldra mann sem lifað hefur tíðindalitla ævi og fær skyndilega alvarlegar fréttir. Við það breytist heimur hans. Hitt augað segir frá ungum dreng sem liggur á spítala og bíður eftir alvarlegri aðgerð. Hann notar tímann áður en hann fer undir hnífinn til að senda vini sínum kveðju. Sagan Æfing er frásögn manns sem er staddur á sviði í torkennilegu leikhúsi. Ein spurn- ingin er þessi: Hvort er þetta æf- ing eða sýning? Stjörnur Cesars segir frá gömlum manni og ungum dreng sem hittast um kvöld í ný- byggðu úthverfi. Sá gamli er að grafa holu í jörðina. Smásagna- safninu lýkur á verðlaunasögunni Icemaster þar sem risavaxinn amerískur ísskápur gegnir lykil- hlutverki, þegar áður ókunn fortíð Sveinbjörn I. Baldvinsson vitjar manns sem hefur alist upp án föður síns.“ Stórir brúnir vængir er 160 blaðsíður að stærð. Umbrot, filmu- vinnu, prentun og bókband annað- ist Prentsmiðjan Oddi hf. Kápu- hönnun var í höndum Guðjóns Inga Haukssonar en málverk á kápu er eftir Þórunni Finnsdóttur. íslensk ritsnilld Út er komin hjá Máli og menningu bókin Islensk rit- sniild sem Guðmundur Andri Thorsson hefiir ritstýrt. í kynningu útgefanda segir, að bókin hafi að geyma fleyga kafla úr íslenskum bókmenntum að fornu og nýju og skiptist í kaflana Ástin, Bemskan, Dauð- inn, ísland, Mannlifið, Mannlýs- ingar og Skáldskapurinn. íslensk ritsnilld er 263 blaðsí- ður, prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf. Fyrir 35 árum, nánar tiltekið þann 5. desember, varð einskonar leik- húsbylting á íslandi, þótt ekki væri hún fyrirferðarmikil, en þann dag var fyrsta brúðuleikhússýningin á íslandi — á vegum íslenska brúðuleikhússins. Frumkvöðull þessarar listgreinar hér, Jón E. Guð- mundsson, hafði um tveggja ára skeið undirbúið stofnun leikhúss- ins, sem hann vissi ekki hversu langa framtíð ætti, hafði skorið út brúður, mátað við þær raddirnar og málað leik- ijöld. Brúðuleikhúsið var til húsa í Alþýðuluisinu við Hverfisgötu. Draumur Jóns var orðinn að veruleika. Jón E. Guðmunds- sonopnar sýningu í Bogasal „Blessuð vertu, ég hef nógan tíma. Annars hefur verið mikið að gera hjá mér í haust, sem betur fer, því frá því í lok september til 17. nóvember var ég með 26 sýn- ingar í leikhúsinu, fyrir dagheimili og skóla.“ Verðurðu með leiksýningar í Bogasalnum meðan á þessari sýn- ingu stendur? „Já, alla daga, nema mánudaginn Hér þróaði Jón svo leik- húsið sitt næstu árin og árið 1968 var hann tilbúinn að færa út kvíarnar og sækja brúðuleikhhúshátíðir á Norðurlönd- um. Hann hélt til Noregs, þar sem hann vakti mikla athygli og grein sem skrifuð var í Morgenbladet í febrúar það ár, segir að í útliti sé hann eins og „enskur majór". Brúð- ur hans vöktu ekki síður athygli, því þá þegar var hann byijaður að tálga þær úr tré, sem þótti æði óvenjulegt. Á 35 ára ferli hefur Jón sýnt fjöldann allan af verkum og búið til óteljandi brúður. En hann hefúr einnig málað, teiknað og unnið grafíkmyndir. í tilefni af afmælinu heidur Jón sýningu á verkum sínum í Bogasal Þjóðminjasafnisins og hefst sýningin á sjálfan afmælis- daginn, 5. desember. Ég hitti Jón að máli og spurði hvort hann ætl- aði að sýna eitthvað fleira en brúð- ur á sýningunni. „Já, heldur betur," svaraði Jón. „Ég sýni myndir skornar í tré — úr íslensku birki — vatnslitamyndir, krítarmyndir, tauklipp, pappírs- klipp, tréskurð, grafík og leikbrúð- ur.“ Ætlarðu að selja brúðurnar? „Nei, ég er búinn að láta svo mikið af brúðum frá mér, að ég tími því ekki. Ég seldi nokkrar brúð- ur í sumar, þar á meðal eina á safn í Þýskalandi og ég held ég láti það gott heita.“ En eru ekki stöðugt sýningar hjá þér í leikhúsinu? Hvenær hefurðu tíma til að mála og höggva birki og vinna öll þessi verk.? ISKA BRÍÐUII 35ÁRA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.