Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1989
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Fyrsta tap ÍBV heima
EYJAMENN töpuðu sínum
fyrsta heimaleik á þessu tíma-
bili, er íslandsmeistarar Vals
komu íheimsókn á laugardag
og sigruðu, 28:23. Valsmenn
náðu tveggja til þriggja marka
forskoti fyrir leikhlé og það bil
náðu Eyjamenn ekki að brúa.
IBV byijaði leikinn mjög vel, gerði
tvö fyrstu mörkin og lék ágæt-
lega í vörn og sókn lengi framan
af fyrri hálfleik. Leikurinn var afar
spennandi fyrstu 25
mínúturnar. Vals-
menn tóku Sigurð
Gunnarsson úr um-
ferð svo til frá byrj-
Sigfús Gunnar
Guðmundsson
sjrrifarfrá
Éyjum
un og við það riðlaðist sóknarleikur
ÍBV frá því sem verið hefur. Vals-
menn gengu á lagið og náðu góðu
forskoti strax í seinni hálfleik og
hleyptu heimamönnum aldrei nær
sér en 5 mörkum eftir það.
Vörn Valsmanna var mjög sterk
fyrir í seinni hálfleik og sóknarleik-
urinn gekk vel hjá þeim, með Brynj-
ar Harðarson sem drýgsta mann.
Valsmenn eru til alls líklegir og
voru hreinir ofjarlar Eyjamanna.
Einar Þorvarðarson var í miklu
stuði í leiknum, varði oft vel úr
opnum færum.
Aldrei
spurning
LEIKMENN Gróttu höfðu ekki
erindi sem erfiði, er þeir lögðu
leið sína í Breiðholtið á laugar-
daginn. Ekki er hægt að segja
að IR-ingar hafi verið gestrisn-
ir; þeirtóku Seltirninga íbaka-
ríið og sigurinn, 23:15, hefði
getað orðið enn stærri.
Fyrsta stundarfjórðunginn tókst
Gróttumönnum það ætlunar-
verk sitt að halda hraðanum niðri.
Staðan varþá 3:3 en heimamönnum
leiddist greinilega
þófið, skiptu um gír
og gerðu fimm mörk
í röð. Grótta gerði
þá ekki mark i níu
og hálfa mínútu, laumaði svo inn
fjórða marki sínu en ÍR gerði þrjú
síðustu mörk hálfleiksins. Staðan
11:4 í hálfeik og eftir þennan kafla
þurfti ekki að spyija að leikslokum.
Munurinn hélst svipaður allan
seinni hálfleik — IR komst reyndar
■ Skapfi
Hallgrímsson
skrifar
10 mörk yfir á tímabili, 18:8 og
19:9, en Gróttan lagaði stöðuna
örlítið áður en flautað var af. Þeir
brugðu til þess ráðs að taka tvo
ÍR-inga úr umferð síðustu tíu mín.,
Ólaf og Róbert; við það varð leikur-
inn hálfgerð endaleysa, en sigrinum.
varð ekki ógnað.
ÍR-liðið var jafnt, sóknarleikur-
inn var fjölbreyttur að vanda og
vörnin sterk. Róbert er góð skytta;
skoraði með fallegum þrumuskot-
um og Magnús var liður á línunni,
en þessir tveir voru einnig bestu
menn varnarinnar. Aðrir stóðu vel
fyrir sínu. Gróttan, „spútniklið"
deildarinnar á síðasta tímabili, má
muna sinn fífil fegurri. Enginn náði
að taka af skarið að þessu sinni
gegn sterkri ÍR vörn. Willum var
sprækastur, gafst aldrei upp og
reyndi að binda saman vörnina af
mikilli baráttu, en hafði ekki erindi
sem erfiði.
Otrúlega auduett
- hjá KR-ingum er þeir sigruðu slaka Víkinga
KR þurfti ekki stórleik til að
sigra Víking á iaugardag með
sjö marka mun, 23:16. Vörnin
var að vísu góð og Leifur frá-
bær í markinu, en sóknarleikur-
inn var ekkert til að hrópa húrra
fyrir. Það kom samt ekki að
sök, því Víkingur með alla sína
landsliðsmenn, var gersam-
lega úti á þekju og aðeins
Hrafn í markinu kom í veg fyrir
enn stærra tap.
KR-ingar áttu ekki í erfiðleikum
með Víkinga og kom á óvart,
hvað Víkingar voru í raun slakir.
Liðið er í slæmri stöðu við botninn,
en engu að síður
voru leikmennirnir
áhugalausir, bar-
áttulausir með öllu.
KR-ingar mættu til
ieiks á skjálftavaktinni, en eftir að
jafnræði hafði verið með liðunum
fyrsta stundarfjórðunginn, tóku
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
Vesturbæingar völdin í sínar hend-
ur og sigruðu örugglega.
Er tæplega 20 mínútur voru til
leiksloka brugðu Vþkingar til þess
ráðs að taka Pál Ólafsson, eldri,
og Stefán Kristjánsson úr umferð
og á 10 mínútum breyttist staðan
úr 16:10 í 18:16 fyrir KR. En þar
með var allur kraftur úr Víkingum,
sem gerðu ekki mark síðustu 10
mínúturnar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sigurður Sveinsson skoraði mest fyrir KR; það losnaði um hann eftir að
Páll og Stefán voru teknir úr umferð.
Róbert Rafnsson lék mjög vel með
ÍR gegn Gróttu. Hér mundar hann
fallbyssuna án þess að Halldór Ingólfs-
son fái nokkuð að gert.