Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 8
JKROm Reuter Petra Kronberger sigradi í bruni kvenna bæði á laugardag og sunnu- ítfömR FOLK ■ HEIMSBIKARKEPPNIN í aipagreinum verður ekki á dagskrá fyrr en eftir áramót. Þau mót, sem fram áttu að fara í Madonnna di Campiglio á Italíu og í Schlad- ming í Austurríki í næstu viku hefur verið frestað vegna snjóleys- is. Næsta heimsbikarmót í karla- fiokki verður í Kranjska Gora í Júgóslavíu 6. og 7. janúar. Kon- umar keppa næst í Piancavallo á . Ítalíu sömu helgi. H PIRMINZurbriggen, ólympíu- meistari frá Sviss, tók forystu í heimsbikarkeppninni í alpagreinum er hann sigraði í fyrstu brunkeppni vetrarins í Val Gardena á Ítalíu á iaugardaginn. Þetta var annar sigur Svisslendingsins á tímabilinu, en hann sigraði í risasvigi í síðustu viku. Hann hefur ekki sigraði í brunkeppni síðan á Olympíuleik- unum í Calgary 1988. Ziirbriggen hefur nú 126 stig samaniagt, en Norðmaðurinn Oli Kristian Fur- usedt kemur fast á hæla honum með 118 stig. H GIORGIO Piantanida frá ít- alíu féll illa í Saslong-brunbraut- .. ínni í Val Gardena á laugardaginn og þurfi að fá hjartahnoð og.blást- ur til að halda líf i. Piantanida, sem er 22 ára, var strax fluttur með þyrlu í nærliggjandi sjúkrahús. Þar kom í ijós að hann hafði rifbeins- brotnað og axlarbrotnað auk ann- arra áverka. Hann er fimmti skíða- maðurinn sem slasast í risasvigi á þessu keppnistímabili. H ALBERTO Tomba frá Ítalíu, sem slasaðist í risavigi fyrr í þessum mánuði, reiknar með að taka þátt í sviginu sem fram fer í Bad Wi- essee í Vestur-Þýskalandi 14. jan- úar, eða þá í Kitzbuehel næstu viku á eftir. Foreldrar Tomba vilja að hann hætti að taka þátt í risas- * vigi eins og bruni vegna þeirrar hættu sem því fylgir. Tomba sagði um helgina að hann hefði áhuga á að sigra einu sinni í risavigi áður en hann hætti að keppa í þeirri grein. H PETRA Kronberger frá Aust- urríki gerði það gott í Panorama í Bandaríkjunum um helgina er hún vann tvívegis í bruni kvenna á jafn mörgum dögum. Kronberger, sem er 20 ára, startaði númer 19 eða í öðrum ráshópi á laugardag og var 0,8 sek á undan Miehaelu Gerg frá Vestur-Þýskalandi sem varð önnur. Kronberger lék sama leíkinn á sunnudaginn og var þá 0,35 sek á undan Katrinu Gut- ensohn frá Vestur-Þýskaladi. Gerg var í þriðja sæti á sunnudag og er nú efst að stigum í heims- bikamum. SKIÐI / LANDSLIÐIÐ I ALPAGREINUM Kristinn stóð sig best - hafnaði í 15. sæti ísvigi á alþjóðlegu móti í Noregi KRISTINN Björnsson, skíða- maður frá Ólafsfirði, stóð sig best íslensku keppendanna á alþjóðlegu móti í Noregi um helgina. Kristinn hafnaði í 15. sæti af um 100 þátttakendum og hlaut 67 fis-stig sem er hans lang besti árangur. Islenska skíðalandsliðið hefur dvalið við æfingar í Svíþjóð og Noregi undanfamar fimm vikur. Snjóleysi háði liðinu fyrstu þtjár vikurnar og varð þá að fresta mörg- um mótum. Síðan rættist úr og tóku íslendingarnir þátt í fjórum mótum í Noregi í síðustu viku. Kristinn Björnsson varð í 26. sæti af 120 þátttakendum í svig- keppni sem fram fór í Geilo í Nor- egi á þriðjudag í síðustu viku og hlaut 81,57 fis-stig, en hann átti áður best 91 fis-stig. Arnór Gunn- arsson frá Isafirði varð í 31. sæti, en Valdimar Valdimarsson frá Ak- ureyri varð úr leik. Morgunblaðið/Guðmundur Jakobsson Kristinn Björnsson stóð sig vel á alþjóðlegu skíðamóti í Noregi. Á fimmtudaginn kepptu strák- arnir í stórsvigi. Valdimar varð í 45. sæti eftir að hafa náð 31. sæti eftir fyrri ferð. Amór náði sínum besta árangri, en hann varð í 61. sæti og hlaut 97 fis-stig og bætti sig um átta stig. Kristinn varð í 80. sæti, en keppendur vom 115. 30 stiga frost var er keppnin fór fram og gerði það keppendum erf- itt fyrir. Á laugardaginn var keppt í stór- svigi og var Arnór sá eini sem skil- aði sér í mark. Hann varð í 49. sæti af 120 þátttakendum sem hófu kepjmi. Á sunnudaginn var svig og náði Kristinn þeim góða árangri að hafna í 15. sæti, sem gefa honum 67 fis-stig. Valdimar varð í 17. sæti með um 70 fis-stig, en Arnór keyrði út úr í síðari umferð eftir að hafa verð í 32. sæti eftir fyrri umferð. Arnór og Valdimar komu heim í gær, en Kristinn verður áfram er- lendis. Örnólfur Valdimarsson hélt utan á sunnudag, en hann komst ekki út með liðinu í byrjun nóvemb- er vegna náms. Kristinn og Örnólf- ur munu æfa næstu daga í Gállvare í Norður-Svíþjóð undir stjórn þjálf- ara síns, Kajsa Nyberg, og taka þeir síðan þátt í tveimur mótum í Finnlandi og Noregi um áramótin. Svet óhress með risasvig Mateja Svet, heimsmeistari í svigi kvenna frá Júgó- slavíu, hefur í hyggju að hætta keppni í risasvigi. Astæðan er sú að risasvigið er orðið mjög hættu- legt og er að líkjast bruni meira og meira. Hún gagnrýnir móts- haldara fyrir að gera keppnina hættulegri svo hún verði spenn- andi fyrir sjónvarp og áhorfendur. Svet, sem vann heimsbikarinn í svigi 1988 og varð í öðru sæti á síðasta keppnistímabili, segir að hún muni líklega aldrei keppa oftar í risasvigi. „í byijun var risasvigið aðeins hraðara og opn- ara en stórsvig. í dag er risasvig- ið lítið hægara en brun. Það hafa orðið svo mörg slys í vetur vegna þess að aðstæður hafa ekki verið innan eðlilegra marka. Keppnin hefur farið fram á of þunnum og hörðum gervisnjó þar sem við getum ekki stjórnað skíðunum eins vel og við erum vön við eðli- legar aðstæður," sagði Svet. Kurt Rambis er kominn til Phoenix. Uf6m FOLK H KURT Rambis, sem lék lengi með Los Angeles Lakers, er kom- inn til Phoenix Suns. Hann lék með Charlotte Hornets í fyrra en var skipt fyrir Ar- mand Gillian sem fór frá Phoenix til Charlotte. Gillian er reyndar talinn betri leikmaður en Ranibis en var látinn fara eftir að hafa lent í úti- stöðum við stjörnuna í liði Phoen- ix, Tom Chambers. Gunnar Valgeirsson skrifarfrá Bandankjunum H ALEX English, sem verið hef- ur einn besti leikmaður Denver síðustu ár, vill nú fara frá féla'ginu. Hann gerði 26,5 stig að meðaltali í leik í fyrra en hefur lítið fengið að spila í vetur. H HÁSKÓLAKEPPNIN í körfu- bolta í Bandaríkjunum er nú nokk- uð á veg komin. Syracuse er í efsta sæti en næstu skólar eru Kansas, Georgetown, Missouri, Illinois, og Micliigan. Einn frægasti skól- inn, Háskólinn í Norður-Karólínu hefur byijað illa og er í 23. sæti. TENNIS / DAVIS BIKARINN Svíar réðu ekki við Becker Vestur-Þjóðverjar sigruðu Svía í úrslitaleik Davis-bikarsins VESTUR-ÞJÓÐVERJ AR tryggðu sér sigur í Davis-bikarnum í úrslitaleik gegn Svíum um helgina í Stuttgart. Svíar voru taldir sigurstranglegri en þeir mættu einni hindrun sem þeir réðu ekki við; Boris Becker. Wimbledonmeistarinn fór á kostum, sigraði í öilum þremur leikjum sínum og bætti fyrir slaka frammistöðu landa sinna. Það er kaldhæðnislegt að Svíar, sem eru taldir með flesta tenn- isleikara í fremstu röð, skuii hafa verið stöðvaðir af einum manni. En frammistaða Boris Beckers var ein- stök og Vestur-Þjóðveijar geta þakkað honum sigurinn í keppninni undanfarin tvö ár en hann hefur unnið 27 af 29 leiki í keppninni. „Hann hefur líklega aldrei leikið betur. Það var sama hvað við gerð- um, hann náði alltaf að svara," sagði Mats Wilander sem tapaði fyrir Becker. Þess má geta að Beck- er misnotaði aðeins eina uppgjöf í leikunum þremur. Carl Uwe Steeb tapaðj fyrir Mats Wilander í fyrstá leiknum, 5:7, 7:6,-6:7, 6:2, 6:3. Becker jafn- aði strax er hann sigraði Stefan Edberg 6:2, 6:2 og 6:4. Vestur-Þjóðveijar náðu foryst- unni er Boris Becker og Eric Jelen sigruðu Jan Gunnarsson og Anders Jarryd í tvfliðaleik. Eric Jelen gerði Boris Becker fór á kostum í Davis-bikarnum og er hér fagnað af félögum sínum í landsliðinu. Retuer mörg mistök og Boris Becker vann nær öll stig Þjóðveija í leiknum. Becker hélt svo áfram og tryggði Þjóðveijum sigur er hann vann Mats Wilander, 6:2, 6:0 og 6:2. Wilander átti ekkert svar við stór- leik Beckers og áhorfendur í Stutt- gart fögnuðu sanngjörnum sigri Vestur-Þjóðveija. í síðasta leiknum tapaði Carl Uwe Steeb fyrir Stefan Edberg 2:6 og 4:6 en sá leikur skipti engu máli. Becker, sem er aðeins 22 ára, segir að Vestur-Þýskaland eigi eftir að verða stórveldi í tennis á næstu árum. „Við erum Davis-meistarar og eigum bestu tenniskonu heims (Steffi Graf). Að auki eigum við nokkra efnilega tennisleikara og þeir eiga eftir að ná í fremstu röð,“ segir Becker. GETRAUNIR: 122 121 11X X X 2 LOTTO: 2 9 10 27 34 + 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.